Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Page 30
30 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 30. september–2. október 2011 Helgarblað
M
argrét fæddist að Suður-
eyri við Súgandafjörð en
ólst upp í Reykjavík. Hún
lauk samvinnuskólaprófi
frá Samvinnuskólanum
að Bifröst árið 1959, stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1964 og prófi að loknu leiðsögu-
mannanámskeiði árið 1975. Margrét
tók einnig stigapróf í söng, píanó- og
gítarleik frá Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar.
Margrét starfaði um tíma sem
gjaldkeri hjá verslun SÍS í Austur-
stræti, var starfsmaður hjá Félagi
einstæðra foreldra á árunum 1971–
75 og læknaritari í tuttugu og þrjú ár.
Hún var auk þess móttökuritari hjá
Læknavaktinni sf. og ritari við Hjalla-
skóla í Kópavogi á árunum 1987–
2010.
Margrét söng í tuttugu og fimm
ár með Fílharmóníukórnum með
stuttum hléum, var um tíma í kirkju-
kór Kópavogskirkju, í söngsveitinni
Kjarabót og söng með Samkór Kópa-
vogs. Hún hefur setið í stjórn Fíl-
harmóníukórsins, Félags einstæðra
foreldra og Foreldrafélags Digranes-
skóla.
Fjölskylda
Margrét giftist 10.11. 1962 Kristjáni
Eyjólfssyni, f. 19.8. 1942, hjartalyf-
lækni í Reykjavík, syni Eyjólfs Krist-
jánssonar fiðurbónda og Guðrúnar
Emilsdóttur húsmóður sem bæði eru
látin. Margrét og Kristján slitu sam-
vistir.
Síðar giftist Margrét 9.8. 1975
Halldóri Ármanni Sigurðssyni, f.
30.6. 1950 lektor, syni Sigurðar Á.
Magnússonar bílasala, og Guðrúnar
L. Halldórsdóttur, fimleikakennara
og húsmóður. Margrét og Halldór Ár-
mann slitu samvistir.
Frá árinu 1979 hefur Margrét ver-
ið í sambúð með Árna Kjartanssyni,
f. 13.6. 1953, vélfræðingi, syni Kjart-
ans Jónssonar, sem er látinn og Hlíf-
ar Einarsdóttur, sem bæði voru garð-
yrkjufræðingar.
Börn Margrétar eru Örnólfur
Kristjánsson, f. 24.7. 1962, selló-
leikari og sellókennari, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Helga
Steinunn Torfadóttir fiðluleikari
og fiðlukennari; Eyjólfur Kristjáns-
son, f. 13.11. 1963, heimspekinemi
og tölvufræðingur, kvæntur Guð-
rúnu Eysteinsdóttur, leikkonu og rit-
ara við Menntavísindasvið Háskóla
Íslands; Kristinn S. Kristjánsson, f.
30.9. 1966, d. 24.7. 1999, var nemi í
hagfræði og tungumálum í Þýska-
landi, Danmörku og víðar; Sigurður
Á. Árnason, f. 9.7. 1973, d. 22.5. 2010,
tónlistarmaður og trúbador; Anna
Ragnhildur Halldórsdóttir, f. 3.8.
1974, lögfræðingur en maður hennar
er Friðbjörn E. Garðarsson lögfræð-
ingur; og Hlíf Árnadóttir, f. 23.1.
1981, íslenskufræðingur en maður
hennar er Einar Sigurðsson íslensku-
fræðingur.
Barnabörn Margrétar eru nú níu
talsins.
Alsystkini Margrétar: Þorvarð-
ur Örnólfsson, f. 14.8. 1927, fyrrv.
framkvæmdastjóri Krabbameinsfé-
lags Reykjavíkur, var kvæntur Önnu
Garðarsdóttur sem er látin og eign-
uðust þau fjögur börn; Anna Örn-
ólfsdóttir, f. 30.12. 1928, d. 16.12.
1999, bankafulltrúi í Reykjavík, var
gift Kristjáni Jóhannssyni; Guðrún
Örnólfsdóttir, f. 5.12. 1929, d. 9.4.
1933; Valdemar, f. 9.2. 1932, fyrrv.
íþróttastjóri við Háskóla Íslands,
kvæntur Kristínu Jónas dóttur og
eiga þau þrjá syni; Ingólfur Ó., f. 1.7.
1933, viðskiptafræðingur í Reykjavík,
kvæntur Elínu H. Hallgrímsdóttur og
eiga þau fimm börn; Arnbjörg A., f.
4.5. 1935, húsmóðir í Reykjavík, gift
Þórhalli Helgasyni og eiga þau þrjú
börn; Þórunn, f. 21.10. 1937, hús-
móðir í Reykjavík og á hún tvö börn;
Úlfhildur G., f. 1.8. 1943, húsmóðir í
Reykjavík, gift Ásgeiri Guðmunds-
syni og eiga þau einn son; Sigríður
Ásta, f. 12.8. 1946, húsmóðir í Reykja-
vík og á hún einn son.
Hálfsystir Margrétar, samfeðra,
var Finnborg, f. 22.11. 1918, d. 13.6.
1993, húsmóðir í Reykjavík, var gift
Árna Þ. Egilssyni og eignuðust þau
þrjú börn.
Foreldrar Margrétar voru þau
Örnólfur Valdemarsson, f. 5.1. 1893,
d. 3.12. 1970, kaupmaður og útgerð-
armaður, og Ragnhildur Kristbjörg
Þorvarðardóttir, f. 24.2. 1905, d. 16.9.
1986, kennari, organisti og húsmóð-
ir. Þau bjuggu á Suðureyri við Súg-
andafjörð til ársins 1945 er þau fluttu
til Reykjavíkur.
Ætt
Örnólfur var sonur Valdemars, bók-
haldara á Suðureyri við Súganda-
fjörð og verslunarmanns á Ísafirði
Örnólfssonar, skipstjóra á Ísafirði
Þorleifssonar ríka, hreppstjóra á
Suðureyri Þorkelssonar. Móðir Örn-
ólfs skipstjóra var Valdís Örnólfs-
dóttir, systir Guðrúnar, langömmu
Sveins, afa Benedikts Gröndal for-
sætisráðherra og Gylfa Gröndal rit-
höfundar. Móðir Valdemars var Mar-
grét, dóttir Jóns Sumarliðasonar, og
Þorbjargar Þorvarðardóttur, b. í Eyr-
ardal við Álftafjörð Sigurðssonar, b. í
Eyrardal og ættföður Eyrardalsættar
Þorvarðarsonar.
Móðir Örnólfs, kaupmanns og
útgerðarmanns var Guðrún Sigfús-
dóttir, trésmiðs á Ísafirði Pálssonar,
í Þórunnarseli Þórarinssonar, á Vík-
ingsvatni.
Ragnhildur Kristbjörg var dóttir
Þorvarðar, fríkirkjupr. á Reyðarfirði
og síðar pr. á Stað í Súgandafirði
Brynjólfssonar, bókbindara í Reykja-
vík Oddssonar, b. á Reykjum í Lund-
arreykjadal Jónssonar. Móðir Brynj-
ólfs var Rannveig Ólafsdóttir, dbrm.
á Kalastaðakoti á Hvalfjarðarströnd
Péturssonar.
Móðir Ragnhildar Kristbjargar var
Anna, systir Halldórs, föður Ragnars,
fyrrv. forstjóra Ísal. Anna var dótt-
ir Stefáns, pr. á Desjamýri, bróður
Þórunnar, langömmu Vals Arnórs-
sonar bankastjóra. Stefán var sonur
Péturs, pr. í Valþjófsdal Jónssonar,
vefara á Kórreksstöðum Þorsteins-
sonar. Móðir Önnu var Ragnhildur
Björg Metúsalemsdóttir sterka, b.
á Möðruvöllum Jónssonar. Móð-
ir Ragnhildar Bjargar var Kristbjörg
Þórðardóttir, ættföður Kjarnaættar
Pálssonar, bróður Páls, afa Friðriks
Friðrikssonar æskulýðsleiðtoga.
S
igríður fæddist að Hofi í
Vopnafirði og ólst upp í
Vopnafirði og síðan í Reykja-
vík. Hún stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík.
Sigríður var formaður Félags
austfirskra kvenna, var virkur félagi
í góðtemplarareglunni um langt ára-
bil, starfaði með áhugaleikhópnum
Hugleik, sat í Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík og var oft fararstjóri í ferð-
um húsmæðra, m.a. erlendis. Hún
hefur starfað með leikklúbbi eldri
borgara um árabil.
Fjölskylda
Sigríður giftist 24.12. 1941 Sindra
Sigurjónssyni, f. 20.12. 1920, d. 23.1.
1989, skrifstofustjóra Póstgíróstof-
unnar. Hann var sonur Sigurjóns
Jónssonar, pr. á Kirkjubæ í Hróars-
tungu, og k.h., Önnu Þ. Sveinsdóttur
húsfreyju.
Börn Sigríðar og Sindra eru Einar
Sindrason, f. 24.3. 1942, háls-, nef-
og eyrnalæknir, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Kristínu Árnadóttur og eiga
þau þrjú börn; Heimir Sindrason, f.
24.12. 1944, tannlæknir, búsettur á
Seltjarnarnesi, kvæntur Önnu Lov-
ísu Tryggvadóttur og eiga þau fjög-
ur börn; Sigurjón Helgi Sindrason, f.
17.2. 1948, tæknifræðingur, búsett-
ur á Seltjarnarnesi, kvæntur Helgu
Garðarsdóttur og eiga þau þrjú börn;
Sindri Sindrason, f. 20.8. 1952, við-
skiptafræðingur, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Kristbjörgu Sigurðar-
dóttur og eiga þau tvö börn; Yngvi
Sindrason, f. 8.4. 1955, garðyrkju-
fræðingur, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Vilborgu Ámundadóttur og
eiga þau tvö börn.
Systkini Sigríðar: Einar Helga-
son, f. 25.12. 1922, d. 17.11. 1998,
bókbindari, var búsettur í Reykja-
vík; Vigfús Helgason, f. 18.9. 1925, d.
2.10. 2002, húsgagnasmiður, lengst
af búsettur í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum; Halldór Helgason, f. 16.7.
1927, d. 27.2. 2004, bókbindari, var
búsettur í Kaliforníu og í Reykjavík;
Jakob Helgason, f. 1.3. 1930, lengst af
garðyrkjub. í Gufuhlíð í Biskupstung-
um, nú búsettur á Selfossi; Kristinn
Helgason, f. 23.3. 1939, landmæling-
armaður, fyrst hjá Landmælingum
Íslands og síðar hjá Sjómælingum,
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Sigríðar voru Helgi
Tryggvason, f. 1.3. 1896, d. 20.3.
1982, bókbandsmeistari, bókasafn-
ari og fornbókasali í Reykjavík, og
k.h., Ingigerður Einarsdóttir, f. 2.10.
1898, d. 5.7. 1992, húsmóðir.
Ætt
Helgi var sonur Tryggva, b. á Haugs-
stöðum í Vopnafirði Helgasonar, b. í
Steinkirkju í Fnjóskadal Guðlaugs-
sonar, Eiríkssonar. Móðir Tryggva
var Arnfríður Jónsdóttir, b. í Garði
við Mývatn Jónssonar, Marteins-
sonar.
Móðir Helga var Kristrún Sig-
valdadóttir, b. á Mánárseli á Tjör-
nesi Sigurðssonar, og Guðrúnar Pét-
ursdóttur frá Mánárseli.
Bróðir Ingigerðar var Vigfús, skrif-
stofustjóri í Stjórnarráðinu. Ingigerð-
ur var dóttir Einars, prófasts á Hofi
í Vopnafirði Jónssonar, b. á Stóra-
steinsvaði í Hjaltastaðaþinghá Þor-
steinssonar. Móðir Einars var Járn-
gerður Eiríksdóttir, hreppstjóra á
Kleif Eiríkssonar. Móðir Járngerðar
var Margrét Jónsdóttir.
Móðir Ingigerðar var Kristín, syst-
ir Jóns landsbókavarðar. Kristín var
dóttir Jakobs, pr. á Hjaltastað Bene-
diktssonar, pr. í Hítarnesi Jónassonar.
Móðir Jakobs var Ingibjörg Björns-
dóttir, pr. í Bólstaðarhlíð Jónssonar.
Móðir Kristínar var Sigríður Jóns-
dóttir, pr. í Breiðabólstað í Fljótshlíð
Halldórssonar, pr. í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd Magnússonar. Móðir
Jóns var Guðrún Arngrímsdóttir, pr.
á Melum Jónssonar. Móðir Sigríðar
var Kristín Vigfúsdóttir, sýslumanns
í Hlíðarenda Þórarinssonar.
Sigríður Helgadóttir
Húsmóðir og fyrrv. fornbókasali í Reykjavík
Margrét Örnólfsdóttir
Fyrrv. skóla- og læknaritari
70 ára á sunnudag
90 ára á laugardag
H
alla fæddist á Akureyri en
ólst upp í Vesturbænum í
Reykjavík. Hún var í Mela-
skóla, Langholtsskóla
og Hagaskóla, stundaði
nám við Kvennaskólann í Reykja-
vík, stundaði nám við Háskólann í
Reykjavík og lauk þaðan prófum á
frumgreinadeild.
Halla starfaði við kexverksmiðjuna
Frón í eitt sumar, vann á McDonald’s
annað sumar á menntaskólaárun-
um og starfaði hjá Intrum um skeið.
Hún hefur verið verslunarstjóri hjá
Subway í Kringlunni frá 2008.
Halla söng
með Rokkling-
unum inn á eina
barnaplötu þeg-
ar hún var ellefu
ára. Hún æfði og
keppti í sundi
með sunddeild
Ármanns í tíu ár
frá sjö ára aldri.
Fjölskylda
Eiginmaður Höllu er Benedikt Kaster
Sigurðsson, f. 16.9. 1974, togarasjó-
maður.
Sonur Höllu og Benedikts er Vikt-
or Berg Benediktsson, f. 2.7. 2005.
Dóttir Benedikts er Alma Dögg
Benediktsdóttir, f. 14.2. 1995.
Alsystkini Höllu: Helga Guð-
mundsdóttir, f. 5.10. 1975, d. 14.1.
1978; Hlynur Guðmundsson, f.
18.7. 1979, matreiðslumaður, bú-
settur í Kópavogi.
Hálfbræður Höllu, samfeðra,
voru Arnar Guðmundsson og
Birkir Guðmundsson sem dóu
skömmu eftir fæðingu.
Foreldrar Höllu eru Guðmund-
ur Ragnar Björnsson, f. 8.4. 1955,
járnsmiður og bifreiðastjóri, og
Rannveig Ingibjörg Jónasdóttir, f.
8.11. 1948, lífeindafræðingur.
Halla Guðmundsdóttir
Verslunarstjóri hjá Subway í Kringlunni
30 ára á föstudag
A
ron fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Húsinu í Fljóts-
hlíð. Hann var í Fljótshlíð-
arskóla og í gagnfræða-
skóla í Hvolsskóla, lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi 2001, stund-
aði nám í guðfræði við International
Bible Training Institute á Suður-
Englandi og lauk þaðan prófum
2002, stundaði nám við Kennarahá-
skóla Íslands og lauk þaðan kenn-
araprófi 2007.
Aron starfaði hjá Skógrækt ríkis-
ins í Fljótshlíðinni í tvö sumur á ung-
lingsárunum, vann hjá Sláturfélagi
Suðurlands á Hvolsvelli í tvö sumur,
var flokkstjóri í unglingavinnunni um
skeið og sinnti
sölumennsku í
Reykjavík.
Aron hefur
kennt við Valla-
skóla á Selfossi frá
2002.
Aron ólst upp
við safnaðar-
störf Hvítasunnu-
manna. Hann hefur verið forstöðu-
maður Hvítasunnukirkjunnar á
Selfossi frá 2002. Þá er hann einn af
stofnendum og hefur starfað við Kaffi
Líf á Selfossi.
Fjölskylda
Eiginkona Arons er Gunnhildur
Stella Pálmarsdóttir, f. 21.9. 1981,
kennari við Vallaskóla.
Börn Arons og Gunnhildar Stellu
eru Lýdía Líf Aronsdóttir, f. 26.6.
2003; Hinrik Jarl Aronsson, f. 16.1.
2010.
Systkini Arons eru Samúel Hin-
riksson, f. 6.12. 1971, framkvæmda-
stjóri og matreiðslumaður, búsettur
á Hvolsvelli; Jóhannes Hinriksson,
f. 3.4. 1975, veiðileiðsögumaður,
búsettur á Selfossi; Jakob Hinriks-
son, f. 14.9. 1985, nemi í fornleifa-
fræði við Háskóla Íslands; Katrín
Sara Hinriksdóttir, f. 2.10. 1988,
nemi.
Foreldrar Arons eru Hinrik Þor-
steinsson, f. 11.4. 1949, og Guðný
Ragnhildur Jónasdóttir, f. 5.9. 1948,
en þau hjónin sinna sjálfboðastarfi
á vegum ABC Barnahjálpar í Burk-
ina Faso í Vestur-Afríku.
Aron Hilmarsson
Kennari og forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi
30 ára á föstudag