Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Page 46
46 | Sport 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Nágrannaslagir
af bestu gerð
n Everton og Liverpool berjast um bítlaborgina n Tottenham fær Arsenal í heimsókn n Adebayor
mætir Arsenal í búningi liðsins sem hann hataði n Kuyt skorar alltaf gegn Everton en kemst ekki í liðið
F
yrsti og síðasti leik-
ur helgarinnar í enska
boltanum verða sann-
kallað augnakonfekt því
þar verður um alvöru
nágranna slagi að ræða. Helgin
verður flautuð af stað í hádeg-
inu á laugardaginn þegar Ever-
ton og Liverpool mætast í bar-
áttunni um bítlaborgina en
leikurinn hefst klukkan 11.45
að íslenskum tíma. Átta leikj-
um síðar kemur svo að slagnum
um Norður-Lundúnir þar sem
Tottenham fær Arsenal í heim-
sókn á White Hart Lane klukkan
15.00 á sunnudaginn. Leikur-
inn í Lundúnum er sannarlega
leikur sem Arsenal hreinlega
verður að vinna ætli það ekki
að heltast enn frekar úr lestinni
í baráttunni um sæti í Meistara-
deildinni. Emmanuel Adebayor
mætir þar aftur sínum gömlu
félögum í Arsenal og nú í bún-
ingi liðsins sem Arsenal-menn
hata. Adebayor er vægast sagt
ekki vinsælasti maðurinn hjá
Arsenal eftir 100 metra sprettinn
fræga sem hann tók með Man-
chester City fyrir tveimur árum.
Barist í bítlaborginni
Liverpool hefur haft tangarhald
á nágrönnum sínum í Everton
undanfarin ár. Allt þar til í fyrra
þegar Everton náði í fjögur stig
af af sex mögulegum í viður-
eignum sínum gegn Liverpool
með sigri á heimavelli og jafnt-
efli á útivelli. Tímabilið í fyrra
var þó að stórum hluta martröð
fyrir Liverpool-menn, eða allt
þar til kóngurinn Kenny bjarg-
aði málunum. Það sem ein-
kennir viðureignir þessara liða
undanfarin tímabil er að einn
maður virðist ekki getað reim-
að á sig skóna í þessum nágran-
naslag án þess að skora. Hol-
lendingurinn Dirk Kuyt virðist
nefnilega elska að skora gegn
Everton. Hann skoraði annað
mark Liverpool í viðureignum
liðanna í fyrra, eitt mark í báð-
um leikjunum tímabilið þar á
undan og bæði í fræknum 2–1
sigri árið 2008 svo dæmi séu
tekin. Kuyt hefur þó ekki hlotið
náð fyrir augum Kenny Dalgl-
ish á þessari leiktíð en þessi
harðduglegi leikmaður hefur
þurft að verma tréverkið meira
og minna á tímabilinu.
Kuyt vonast til að fá tækifæri
gegn Everton á laugardaginn.
„Það væri gaman að fá að spila
þennan leik því þetta er einn
af stærstu leikjum tímabils-
ins. Að skora sigurmark í svona
leik er einhver besta tilfinning
sem ég hef fundið. Leikirnir
gegn Everton eru eitthvað sem
ég hef virkilega gaman af og
það eru þessir leikir sem mað-
ur vill spila. Líka þessi leikur,
Liverpool gegn Everton, þetta
er bara einn af stærstu leikj-
um ársins á Englandi á hverju
tímabili. Að vinna svona leik er
einstakt, sérstaklega á útivelli,“
segir Kuyt.
Heppinn að vera
á heimavelli
Tímabilið hjá Arsenal hefur
vægast sagt farið illa að stað og
var liðið nú í vikunni hreinlega
heppið að leggja gríska liðið
Olympiakos að velli í Meistara-
deildinni. Varnarleikur liðs-
ins er losaralegur, sérstaklega
í föstum leikatriðum þar sem
enginn í teignum virðist vita
hvað hann á að gera. Leikurinn
um helgina gegn erkifjendun-
um í Tottenham er liðinu gríð-
arlega mikilvægur. Bæði þarf
Arsenal einfaldlega á stigunum
að halda í baráttunni um sæti
í Meistaradeildinni að ári og
einnig þarf liðið að sanna fyrir
sjálfu sér að það geti unnið gott
lið. Það vantar nefnilega mikið
upp á sjálfstraustið í Arsenal-
liðinu og Robin van Persie get-
ur ekki alltaf komið til bjargar.
Á sunnudaginn hittir Arse-
nal fyrir gamlan félaga sem nú
er orðinn óvinur, Emmanuel
Adebayor. Tógómaðurinn öfl-
ugi var í miklum metum hjá
Arsenal áður en hann elti pen-
ingana til Manchester City.
Hann fór síðan úr því að vera
illa liðinn hjá Arsenal í það að
vera hataður þegar hann tók
100 metra sprett að stuðnings-
mönnum Arsenal og fagnaði
fyrir framan þá eftir að hafa
skorað fyrir City. Nú er hann
án efa orðinn enn óvinsælli
enda kominn í treyju Totten-
ham. Hann hefur þó farið vel af
stað með þeim hvítu og munu
stuðningsmenn Tottenham
taka hann í sátt skori hann gegn
Arsenal á sunnudaginn. Stuðn-
ingsmenn Tottenham eru þó
þeir sem sömdu um Adebayor
einhvern dónalegasta níðsöng
í enska boltanum. En hlutirnir
eru fljótir að breytast þegar
mörk eru skoruð.
Baðst afsökunar
„Hann baðst afsökunar eft-
ir City-atvikið en hvað gerði
hann í rauninni sem var svo
rangt,“ segir Harry Redknapp,
knattspyrnustjóri Tottenham,
sem hefur nýtt vikuna í að
verja sinn mann og róa mann-
skapinn fyrir átökin gegn Arse-
nal um helgina. „Hann baðst
afsökunar eftir það atvik en
þann daginn hafði hann fengið
það óþvegið frá sínum gömlu
stuðningsmönnum allan leik-
inn. Hann bara brást svona
við. Þegar hann skoraði þá
bara réð hann ekki við sig. Það
verður alltaf þannig að menn
verða illa liðnir þegar þeir fara
frá félögunum sínum en vana-
lega standa þeir sig vel. Í fyrra
spilaði William Gallas fyrir mig
eins og herforingi og var mað-
ur leiksins. Hann sýndi virki-
legan karakter í þeim leik og ég
er viss um að Adebayor geti gert
það sama á sunnudaginn,“ segir
Harry Redknapp.
Leikir helgarinnar
Laugardagur 1. október
11.45 Everton - Liverpool
14.00 Aston Villa - Wigan
14.00 Blackburn - Man. City
14.00 Man. United - Norwich
14.00 Sunderland - WBA
14.00 Úlfarnir - Newcastle
Sunnudagur 2. október
12.30 Bolton - Chelsea
14.00 Fulham - QPR
14.00 Swansea - Stoke
15.00 Tottenham - Arsenal
Staðan
1 Man. Utd 6 5 1 0 22:5 16
2 Man. City 6 5 1 0 19:5 16
3 Chelsea 6 4 1 1 12:7 13
4 Newcastle 6 3 3 0 7:3 12
5 Liverpool 6 3 1 2 8:8 10
6 Tottenham 5 3 0 2 9:9 9
7 Stoke 6 2 3 1 4:6 9
8 Aston Villa 6 1 5 0 7:5 8
9 QPR 6 2 2 2 5:7 8
10 Everton 5 2 1 2 6:6 7
11 Wolves 6 2 1 3 5:8 7
12 Arsenal 6 2 1 3 9:14 7
13 Sunderland 5 1 2 2 6:4 5
14 Norwich 5 1 2 2 5:7 5
15 Wigan 6 1 2 3 5:9 5
16 Swansea 6 1 2 3 4:9 5
17 Fulham 6 0 4 2 4:7 4
18 Blackburn 6 1 1 4 8:13 4
19 WBA 6 1 1 4 3:8 4
20 Bolton 6 1 0 5 8:16 3
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti
Óvinsæll Emmanuel Adebayor á nákvæmlega ekkert inni hjá stuðnings-
mönnum Arsenal.
Vill vinna Kenny Dalglish er með
Liverpool-hjarta og vill vinna Everton.
Hart barist Það er alltaf fjör
þegar Everton og Liverpool
mætast. myndir rEuTErS