Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Side 54
54 | Fólk 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Tveir drengir
á leiðinni
Blaðamannahjónin Andrés
Magnússon og Auðna Hödd
Jónatansdóttir hafa bæst í hóp
þekktra Íslendinga sem eiga
von á tvíburum á næstu mán-
uðum. Hjónin eiga saman eitt
barn og bæði eiga þau börn af
fyrra sambandi og nú munu
tveir drengir bætast í hópinn.
Aðrir frægir sem eiga von á tví-
burum eru iðnaðarráðherrann
Katrín Júlíusdóttir með sínum
manni, leikaraparið Tinna
Hrafnsdóttir og Sveinn Geirs-
son og Tinna Ólafsdóttir og
Karl Pétur Jónsson en Tinna
er dóttir Ólafs Ragnars Gríms-
sonar.
Slá í gegn
er best
Í viðtali við skemmtiritið
Monitor upplýsir stórsöngv-
arinn Egill Ólafsson hvert
uppáhaldslag hans með Stuð-
mönnum er. „Með fullri virð-
ingu fyrir öllum lögum Stuð-
manna þá held ég að lagið Slá
í gegn sé kannski það lag sem
hefur höfðað til flestra enda
meistaralega samið af Valla
[Valgeiri Guðjónssyni, innsk.
blm.],“ segir Egill sem viður-
kennir þó að fá stundum leiða
á lögunum sem hann hefur
þurft að syngja í nokkra tugi
ára. „Já, já, ég þurfti oft að taka
á öllu mínu til þess að komast
í gegnum þau,“ segir Egill við
Monitor.
É
g segi bara nó kom-
ment. Eða ókei,
kannski. Hugsanlega,“
segir Vilhjálmur Þór
Davíðsson þegar hann
er inntur eftir því hvort hann
sé að elta ástina til Noregs en
Vilhjálmur mun flytja til Berg-
en í næsta mánuði. „Ég tók
þessa ákvörðun í skyndi en
mig langar að rífa mig upp úr
hversdagslegri tilverunni hér
heima og upplifa ný ævintýri,“
segir Vilhjálmur sem sigraði í
keppninni Herra Gay Ísland í
fyrra og átti í kjölfarið að keppa
í Mr Gay Europe. „Keppnin var
flautuð af en svo var hún hald-
in síðar en með miklu minna
sniði en upphaflega stóð til og
þá komst ég ekki vegna anna,“
segir Vilhjálmur sem hefur
borið titilinn Herra Gay Ís-
lands í að verða tvö ár. „Það
er ekki búið að kjósa arftaka
svo ég er farinn að halda að ég
eigi að bera þennan titil enda-
laust,“ segir hann hlæjandi en
bætir við að hann mæli með
að þessari keppni verði haldið
við. „Mér finnst virkileg þörf
á svona keppni því mín þátt-
taka varð til þess að ég opn-
aðist mikið sem einstaklingur
auk þess sem ég lærði mikið
um mannréttindabaráttu sam-
kynhneigðra sem varð svo til
þess að ég fór að kynna mér
þau mál enn betur. Ég er ekk-
ert endilega talsmaður fegurð-
arsamkeppna en þegar þessar
keppnir snúast meira um innri
pakkann þá er ég „all for it“.“
Vilhjálmur Þór er spenntur
fyrir að komast til Noregs en
segir marga vini hans hneyksl-
aða á að hann velji ekki ein-
hvern meira spennandi stað
en Bergen. „Þeir segja að þetta
sé eins og Selfoss. Ég veit það
ekki. Það verður bara að koma
í ljós. Ég hlakka bara til að
koma mér inn í nýja borg og
hefja nýtt líf.“
indiana@dv.is
n Herra Gay Ísland eltir ástina til Noregs
n Ber titilinn enn tveimur árum seinna
Nýtt líf í Bergen
Herra Gay Ísland Vilhjálmur
Þór var einn af sex strákum sem
kepptu um titilinn. Hann segir
að ekki hafi verið krýndur arftaki
og er hræddur um að hann beri
titilinn ævilangt.
Spenntur Vilhjálmur ætlar að
flytja til Bergen í Noregi. Vinum hans
finnst hann geta valið meira spenn-
andi stað en að þeirra sögn er Bergen
eins og Selfoss. myNd GuNNar GuNNarSSoN
Þ
að hefðu ekki fleiri kom-
ist fyrir í húsinu,“ segir
kvikmyndagerðarmað-
urinn Hrafn Gunnlaugs-
son sem í tengslum við RIFF-
kvikmyndahátíðina hélt
bíókvöld heima hjá sér við
miklar og góðar undirtektir.
Sjálfur hafði hann gaman af því
að fá gestina heim í höllina við
Laugarnesið. „Ég skemmti mér
alveg ágætlega. Ég hef aldrei
gert svona áður en það er tölu-
vert öðruvísi að horfa á mynd-
ir með öðrum en að vera einn,“
segir Hrafn.
Myndin sem varð fyrir val-
inu var hið sígilda Gullæði eft-
ir Chaplin. „Það er ein af fáum
kvikmyndum sem er algjört
höfundarverk. Hann leikstýrir,
leikur aðalhlutverkið og sem-
ur líka tónlistina. Það var mjög
fróðlegt að rifja þessa mynd
upp fannst mér. Ég stoppaði
myndina á nokkrum köflum
sem ég vildi vekja athygli á
og svo sat ég fyrir svörum eft-
ir myndina. Það komu marg-
ar spurningar því þarna mætti
fólk sem hafði raunverulegan
áhuga á kvikmyndagerð,“ segir
Hrafn sem bauð auðvitað upp
á bíógóðgæti með myndinni.
„Það var kók og sódavatn
og popp í boði. Svo var mynd-
inni hent upp á tjald með kast-
ara. Þetta var mjög ánægjulegt
kvöld,“ segir Hrafn sem getur
vel hugsað sér að gera svona
aftur að ári. „Það gæti bara vel
verið. Þá myndi ég kannski
sýna mína eigin mynd og út-
skýra hana. Ég er viss um að
margir hefðu áhuga á því,“ seg-
ir Hrafn Gunnlaugsson.
tomas@dv.is
n Áhugafólk sá Chaplin í Laugarnesinu
Hrafninn bauð í bíó
málin útskýrð Hrafn
Gunnlaugsson sat fyrir
svörum eftir að Chaplin
hafði lokið sér af.
Fullt út úr dyrum Mikill áhugi var fyrir heimabíóinu.