Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Síða 25
Erlent | 25Helgarblað 26.–28. ágúst 2011
Þessi lönd eru helstu innflytjendur olíu frá Líbíu
Olía
1,6 milljón
tunnur af olíu framleiddar
á venjulegum degi
500.000
tunnur af olíu framleiddar
á dag í óeirðunum
2%
Líbía framleiðir um
2 prósent af allri olíu
í heiminum
Heimildir: The International Energy Agency, Reuters, U.S. Energy Information Administration, Wall Street Journal, The Economist*Tölur frá mars 2011
Líbía
Stærð: 1,8 milljónir ferkílómetra,
fjórða stærsta ríkið í Afríku
Höfuðborg: Trípólí
Fólksfjöldi: 6,4 milljónir
Olía: Landið á tíundu stærstu
olíuauðlindir heims
Y
fir fjörutíu ríki hafa viður-
kennt stjórn uppreisnar-
manna í Líbíu sem rétt-
mæta ríkisstjórn. Meðal
þessara landa eru Banda-
ríkin, en mikil umræða hefur verið
vestanhafs um stuðning Bandaríkj-
anna við aðgerðir uppreisnarmanna
í Líbíu eftir að auðmaðurinn Donald
Trump sagði í viðtali við Fox News að
hann teldi óeðlilegt að Bandaríkin
veittu uppreisnarmönnum stuðning
nema að fá loforð um olíu í staðinn.
Líbía er rík af olíu en mörg Vestur-
lönd eru háð olíunni sem kemur frá
landinu. DV hefur tekið saman lista
yfir þau ríki sem hvað mestra hags-
muna eiga að gæta hvað varðar olíu-
viðskipti við Líbíu.
Írar og Ítalir treysta á Líbíu
Þegar rýnt er í tölurnar kemur í
ljóst að Írar eru hvað háðastir olíu
frá Líbíu. Um fjórðungur allrar olíu
sem Írar nota kemur frá Líbíu en
Írar kaupa um 14 þúsund tunnur af
olíu á dag. Það er þó talsvert minna
af olíu en önnur stærri ríki nota af
olíu frá Líbíu. Ítalir kaupa lang-
stærstan hluta þeirrar olíu sem
framleidd er í Líbíu en samkvæmt
tölunum kaupa Ítalir um 376 þús-
und tunnur af líbískri olíu á dag.
Austurríki og Ítalía fá bæði yfir 20
prósent af allri olíu sem nýtt er í
landinu frá Líbíu.
Bæði Ítalía og Austurríki eru á
lista yfir þau fjörutíu ríki sem við-
urkennt hafa ríkisstjórn uppreisn-
armanna en það hefur Írland ekki
gert. Ísland er ekki á meðal þeirra
landa sem viðurkennt hafa ríkis-
stjórn uppreisnarmanna í landinu.
Samkvæmt svörum frá utanríkis-
ráðuneytinu er ekki hefð fyrir því að
íslensk stjórnvöld viðurkenni ríkis-
stjórnir heldur einungis þjóðríki.
Skiptir Bandaríkin litlu máli
Samkvæmt tölunum eiga Banda-
ríkin ekki mikilla olíuhagsmuna að
gæta í Líbíu. Aðeins um hálft pró-
sent af þeirri olíu sem Bandaríkja-
menn nota á hverjum degi kemur
frá norðurafríska ríkinu. Ekki er víst
að Bandaríkjastjórn fari að ráðum
Donalds Trump og krefjist einfald-
lega þess að fá 25 prósent af allri
olíu í landinu næstu 25 árin en það
myndi þýða að Bandaríkin fengju
400 þúsund olíutunnur á dag frá
Líbíu í stað 51 þúsund tunna sem
ríkið kaupir nú af Líbíu.
Langmest af þeirri olíu sem
framleidd er í Líbíu er seld til Evr-
ópu eða um 85 prósent. Það endur-
speglast að vissu leyti í lista þeirra
þjóða sem viðurkennt hafa ríkis-
stjórn uppreisnarmanna sem rétt-
mæta ríkisstjórn Líbíu.
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Líbía
n Hvaða ríki hafa olíuhagsmuna að gæta í Líbíu n Ítalía kaupir mest
af líbískri olíu n 25 prósent af olíu notaðri á Írlandi upprunnin í Líbíu„Þegar rýnt er í töl-
urnar kemur í ljóst
að Írar eru hvað háðastir
olíu frá Líbíu.
Evrópa treystir
á olíu frá Líbíu
Magn í tunnum Prósentan sýnir hlutfall af heildarinnflutningi hvers ríkis.
Ítalía
376.000 tunnur
15–25%
Frakkland
205.000 tunnur
15–25%
Spánn
136.000 tunnur
10–15%
Grikkland
63.000 tunnur
10–15%
Kína
150.000 tunnur
0–10%
Austurríki
21.000 tunnur
15–25%
Sviss
17.000 tunnur
15–25%
Írland
14.000 tunnur
15–25%
Þýskaland
144.000 tunnur
0–10%
Bretland
95.000 tunnur
0–10%
Bandaríkin
51.000 tunnur
0–10%
Holland
31.000 tunnur
0–10%
Ástralía
11.000 tunnur
0–10%
V
in
n
SLa
pa
LLi@
d
V
.iS
Cheney vildi láta ráðast á Sýrland
Dick Cheney hvatti George W. Bush,
þáverandi forseta Bandaríkjanna,
árið 2007 til að láta varpa sprengj-
um á kjarnaofn í Sýrlandi. Þetta er á
meðal þess sem fram kemur í endur-
minningum varaforsetans en bókin
In My Time: A Personal and Political
Momoir, kemur út í næstu viku.
„Þegar ég hafði sagt þessa skoðun
mína spurði forsetinn hvort einhver
styddi mitt sjónarmið. Ekki ein ein-
asta hönd fór á loft,“ segir hann í bók-
inni. Ráðleggingum hans var hafnað
en stuttu síðar gerðu Ísraelar loftárás
á kjarnaofninn.
Í bókinni, sem erlendir miðlar
segja að varpi nýju ljósi á marg-
ar ákvarðanir Bush-stjórnarinn-
ar, sakar hann Colin Powell, þáver-
andi utanríkisráðherra, um að hafa
reynt að grafa undan forsetanum í
einkasamtölum við aðila utan stjórn-
arinnar. Hann ku hafa látið í ljósi efa-
semdir sínar um stríðið í Írak. Þess
vegna hafi afsögn hans árið 2004 ver-
ið fyrir bestu. Í bókinni viðurkenn-
ir hann einnig að hafa ekki fyllilega
gert sér grein fyrir afleiðingum stríðs-
ins en hann verst þó ásökunum um
að Bandaríkjamenn hafi beitt pynt-
ingum við yfirheyrslur í tengslum við
stríðið.
Cheney skýtur í allar áttir í bók
sinni og sakar Condoleezzu Rice um
að hafa verið barnaleg í samskiptum
við Norður-Kóreumenn með tilliti til
kjarnorkumála.
baldur@dv.is
Enginn studdi hann Dick
Cheney gefur út bók um tíma sinn
sem varaforseti Bandaríkjanna.
Warren Buffet
fjárfestir í
banka
Milljarðamæringurinn Warren
Buffet ætlar sér að kaupa stóran hlut
í Bank of America, einum stærsta
banka Bandaríkjanna, fyrir fimm
milljarða dala. Kaupverðið er jafn-
virði um 573 milljarða íslenskra
króna. Bankann kaupir hann í gegn-
um fjárfestingafélag sitt, Berkshire
Hathaway, sem er eitt arðsamasta
fjárfestingafélag heims. Buffet ætlar
sér að kaupa um 50 þúsund hluti í
félaginu samkvæmt því sem fram
kemur í tilkynningu frá fjárfestinum
en eftir að tilkynningin barst hækk-
uðu bréf í bankanum um 25 prósent.
Buffet er einn ríkasti maður heims
en hann hefur fjárfest í fjöldamörg-
um fyrirtækjum í gegnum Berkshire
Hathaway.
Prófessor myrti
unnustu sína
Bandarískur háskólaprófessor fannst
látinn á hótelherbergi á þriðjudag.
Þar hafði maðurinn framið sjálfs-
morð eftir að hafa skotið fyrrverandi
kærustu sína daginn áður. Maður-
inn var haldinn alvarlegum geð-
sjúkdómum. Fyrrverandi kærasta
mannsins sleit sambandi við hann
í mars síðastliðnum en samkvæmt
upplýsingum frá bandarísku lögregl-
unni hafði maðurinn setið um hana
síðan. Svo virðist sem prófessorinn
hafi skipulagt morðið á fyrrverandi
kærustu sinni, sem var nemandi
í sama skóla og hann kenndi í, en
hann hafði sagt starfi sínu lausu frá
og með deginum í dag, föstudag.
Sprungur í
minnisvarða
Eftirlit með Washington-minnis-
varða sem stendur gegnt Hvíta hús-
inu í Washington, höfuðborg Banda-
ríkjanna, hefur leitt í ljós glufur í
steypunni sem minnisvarðinn er
gerður úr. Glufurnar eru í efsta hluta
minnisvarðans, sem er um 170
metra hár. Talið er nær öruggt að
glufurnar séu afleiðing öflugs jarð-
skjálfta sem reið yfir austurströnd
Bandaríkjanna á þriðjudag. Jarð-
skjálftinn átti upptök sín tiltölu-
lega nálægt höfuðborginni. Svæðið
í kringum Washington-minnis-
varðann verður lokað ferðamönn-
um þangað til búið er að lagfæra
skemmdirnar. Fleiri sögufrægar
byggingar skemmdust í jarðskjálft-
anum.
n dick Cheney, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna