Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 4
„Ég veit ekki hver þau eiga að vera“ 4 Fréttir 19.–21. apríl 2013 Helgarblað Sakfelldur fyrir 97 brot n Halldór Viðar dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Danmörku H alldór Viðar Sanne hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir umfangsmikil svik í Kaupmannahöfn. Hall- dór var sakfelldur fyrir 97 brot og er brottrækur frá Danmörku þegar hann hefur lokið afplánun dómsins. Hall- dór Viðar mun hafa játað brot sín. Halldór Viðar var handtekinn í miðborg Kaupmannahafnar í lok október í fyrra. Hann sat í gæslu- varðhaldi þar til dómur féll í máli hans í byrjun mars. Hann var talinn hafa svikið 600–800 iPhone-síma út úr fólki. Það gerði hann með því að fá fólk til þess að fjárfesta í símum á raðgreiðslusamningi og sagði fólki að það gæti grætt töluverða fjárupp- hæð með því að selja símana á Ís- landi. Fólkið sem keypti símana fékk hins vegar aldrei sinn skerf af gróð- anum. Halldór var talinn hafa svikið um 110 milljónir af fólki á þennan hátt. Rannsókn málsins var afar um- fangsmikil enda þurfti lögregla að ná tali af öllum þeim sem hann hafði svikið. Eftir Halldór Viðar liggur slóð svika hérlendis. DV fjallaði um mál hans í janúar síðastliðnum en þá sagði fólk sem til hans þekkti að hann hefði stundað alls kyns vafasöm viðskipti um árabil en hefði að mestu verið búsettur erlendis síðan á tíunda ára- tugnum. n Sveik fólk Halldór Viðar fékk dóm fyrir að svíkja fólk með því að fá það til að kaupa fyrir sig iPhone-síma sem hann ætlaði svo að selja til Íslendinga og skipta ágóðanum með þeim sem keyptu símana. Fólkið fékk hins vegar aldrei sinn skerf af gróðanum. n Hafnar því að stórfelld lögbrot, að yfirlögðu ráði, hafi átt sér stað Þ orsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hafnar því alfarið að útgerðarfyrirtækið hafi að yfirlögðu ráði og til lengri tíma gerst sekt um brot á lögum um gjaldeyrismál í viðskiptum sínum með fisk frá Íslandi til tengdra félaga í Evrópu. Rannsókn á meint- um lögbrotum Samherja hefur verið send til embættis sérstaks saksóknara frá Seðlabanka Íslands. Hann segir að húsleit Seðlabanka Íslands á skrifstof- um Samherja í mars í fyrra hafi snúið að tímabilinu frá því febrúar 2008 til ársins 2012. Seðlabankinn lagði hald á mikið magn gagna í húsleitinni. Rannsóknin snýr að rannsókn á því hvort Samherji hafi selt fisk frá Íslandi til dótturfélaga sinna í Evrópu á undir- verði til að láta hagnaðinn af viðskipt- unum verða til hjá dótturfélögunum erlendis en ekki hjá móðurfélaginu á Íslandi. Undir í rannsókninni liggur sú hugmynd að með þessu móti hafi Samherji átt að hafa komið sér undan þeirri skilaskyldu á erlendum gjald- eyri sem lögbundinn hefur verið í gjaldeyrishaftalögunum frá hruninu 2008. Eðli málsins samkvæmt eru fjármunir erlendra dótturfélaga Sam- herja undanskildir íslenskum lögum og þar af leiðandi ekki skilaskyldir á Íslandi. Mistök – ekki lögbrot að yfirlögðu ráði Þorsteinn Már útilokar þó ekki að Samherji kunni að hafa gert einhver mistök í verðlagningu sinni á þeim fiski sem seldur var til dótturfélaga Samherja, meðal annars í Þýska- landi. „Það getur vel verið að það hafi verið gerð einhver mistök. En ég veit bara ekki hvaða mistök þetta ættu að vera. Ég er bara að segja að við unn- um þarna mánuðum saman við mjög erfiðar aðstæður og ég ætla ekki að segja að hugsanlegt sé að gera hefði mátt eitthvað öðruvísi,“ segir Þorsteinn Már en með „erfiðum aðstæðum“ vísar Þorsteins Már til þeirra aðstæðna sem sköpuðust í kjölfar hrunsins. Af orðum Þorsteins að dæma geta slík „mistök“ hins vegar ekki verið stórfelld lögbrot að yfirlögðu ráði til langs tíma. „Líti maður til baka þá held að ég við höfum tekið réttar ákvarðanir í flestum tilfellum. En kannski var það þannig, einn daginn, að við hefðum átt að hækka eða lækka verðin á fiskinum fyrr en við gerðum,“ segir Þorsteinn Már. Veit ekki hver niðurstaðan var Þorsteinn Már segist ekki vita hver niðurstaðan var úr rannsókn Seðla- banka Íslands og þar af leiðandi þekkir hann ekki forsendurnar sem lágu að baki þeirri ákvörðun að senda kæru um málið til embættis sérstaks saksóknara. „Ég veit ekki um hvað málið snýst. Ég hef ekki séð nein gögn um rannsóknina og það hefur aldrei verið við mig talað. Seðlabankinn hefur ekki spurt okkur að einu eða neinu síðan húsleitin fór fram. Við áttum von á því að þeir myndu tala við okkur en svo var ekki,“ segir Þorsteinn Már. Forstjóri Samherja veit því ekki nákvæmlega hvað það er sem Seðla- bankinn og sérstakur saksóknari eru að rannsaka í starfsemi Samherja. Mál Samherja er þriðja meinta brotið á gjaldeyrishaftalögunum sem opinbert er að sérstakur saksóknari hafi fengið til rannsóknar. Hin tvö eru Aserta-málið, sem ákært hefur í, og mál tengt Heiðari Má Guðjónssyni fjárfesti, sem rannsókn var hætt á. Staðan á málinu er því sú, ef Þor- steinn Már er að segja satt og rétt frá, að hann hefur ekki hugmynd um þau stórfelldu brot á gjaldeyr- ishaftalögum sem hljóta að vera undir í rannsókninni hjá sérstök- um saksóknara. Miðað við þessi orð Þorsteins Más liggur fyrir að eitthvað mikið er á huldu í málinu: Annaðhvort hefur Seðlabanki Ís- lands verið í skógarferð síðastliðið ár eða Þorsteinn Már veit ekki um þau stórfelldu mistök, brot á gjald- eyrishaftalögunum, sem átt hafa sér stað í rekstri fyrirtækisins. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Seðlabankinn hefur ekki spurt okkur að einu eða neinu síðan húsleitin fór fram. Útilokar ekki mistök Þorsteinn Már útilokar ekki að Samherji hafi gert mistök í viðskiptum sínum við erlend dótturfélög sín. Rannsókn lokið Lögreglan á Selfossi hefur lokið rannsókn á láti refsifanga á Litla-Hrauni sem lést í klefa sín- um þann 17. maí 2012 og hefur ríkissaksóknari nú fengið málið til meðferðar. Í tilkynningu segir að rannsóknin hafi verið flókin og að frá upphafi verið ljóst að ekki yrði að vænta samvinnu þeirra tveggja sakborninga, Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar, sem grunað- ir eru um að hafa valdið áverk- um sem leiddu manninn til dauða. „Í þágu rannsóknarinnar hefur verið leitað til ýmissa sér- fræðinga um úrlausn tiltekinna atriða. Dómkvaddur var réttar- meinafræðingur til að fara yfir þau gögn sem urðu til við krufn- ingu líksins auk annarra þátta sem varða áverka þá er leiddu til dauða mannsins. Þá voru tveir prófessorar í sálfræði dóm- kvaddir til að greina atferli fanga á upptökum úr öryggismynda- vélum. Prófessor í verkfræði við HÍ var fenginn til að rannsaka þá krafta sem þarf til að valda þeim áverkum sem voru á lík- inu. Hann mun skila skýrslu sinni til ríkissaksóknara á næst- unni. Sérstakar mælingar voru gerðar á hljóðburði innan fang- elsisins og möguleikum vitna á að heyra það sem talið er hafa farið fram innan veggja fanga- klefa hins látna. Þá var nákvæm eftirlíking klefans byggð í fullri stærð í húsnæði Lögregluskóla ríkisins þar sem Tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðis- ins sviðsetti mögulega atburða- rás auk þess sem grunuðum var gefinn kostur á að lýsa atvikum í klefanum þar,“ segir í tilkynn- ingunni. Lögreglan vill ekki greina frá fjölda vitna sem hefur nú þegar verið leiddur fyrir dóm og borið þar vitni undir nafnleynd en vitnin hafa talið að framburður þeirra um málavexti gæti stofn- að þeim í hættu, að sögn lög- reglunnar. Málið er nú í höndum ríkis- saksóknara eftir langt og tíma- frekt ferli. Ríkissaksóknari mun nú yfirfara málsgögn og taka ákvörðun varðandi frekari rann- sókn einstakra þátta ef hann tel- ur þörf á því og taka málið síðan til ákærumeðferðar í samræmi við ákvæði sakamálalaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.