Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Síða 17
Fréttir 17Helgarblað 19.–21. apríl 2013
„Við höfum þurft að berjast“
n Konurnar sem kveðja þingið n Margt breyst til batnaðar en draumheimar eru fjarri n Haldið frá ákvörðunum n Styrkur að sjá konu taka forystuna
deila valdi og leiða fólk saman. Auð
vitað eru undantekningar á því og
sumar konur geta bara ekki leitt fólk
saman til samvinnu og samstarfs. Oft
ar hefur mér þó sýnst þær betur til
þess fallnar að laða fram það besta í
öllum og bera virðingu fyrir ólíkum
einstaklingum og eiginleikum. Með
þessu vil ég ekki tala niður til karl
anna því ég hef unnið með fjölda
prýðilegra manna í gegnum tíðina.
Mér finnst gott að sjá að leiðtogar
fimmflokksins, Sjálfstæðisflokksins,
Framsóknarflokksins, Samfylkingar
innar, Bjartrar framtíðar og Vinstri
grænna með Katrínu Jak í broddi fylk
ingar eru allir gott fólk sem vill vel
þótt áherslurnar séu misjafnar. Hver
hefur sinn stíl og hver kemur nestað
ur sínum reynsluheimi.
Ólöf: Eins og ég segi, þá finnst mér
konur og karlar nálgast hlutina á ólíka
vegu. Það er augljóst að hver og einn
einstaklingur er ólíkur og hver og einn
hefur sinn styrkleika og veikleika.
Ennþá er það þannig að konur þurfa
að hafa meira fyrir hlutunum og því
miður höfum við ekki náð þeim ár
angri að það sé ekki frétt að kona hafi
náð á toppinn hvort sem er í stjórn
málum eða atvinnulífi. Ég bíð eftir
því. Mér finnst konur oft fá óvægnari
gagnrýni – það er til dæmis miklu
meira talað um útlit kvenna og skap
gerð – það er fáheyrt þegar kemur að
körlum.
Lilja: Karlar eru gjarnan
óhræddari en konur að nota valda
stöður til að tryggja og jafnvel auka
völd sín enn frekar. Völd kvenna eru
oftar dregin í efa af öðrum í nefndum
og jafnvel komið í veg fyrir að konurn
ar geti beitt þeim með sama hætti og
karlar, til dæmis með því að hafna til
lögum kvenna um breytingar á fyrir
komulagi funda og fundarefni. Dæm
in sýna þó að kyn viðkomandi er ekki
endilega trygging fyrir bættum og lýð
ræðislegri vinnubrögðum.
Karllægur vinnustaður
Hver er þín upplifun af Alþingi – er
þetta karllægur vinnustaður?
Siv: Vinnustaðurinn er karllægur
að því leyti að maður veit oft ekki
hvenær maður kemst heim. Vinnu
tíminn er óreglulegur. Konur eiga erf
iðara með að höndla þetta því þær
taka enn sem komið er meiri ábyrgð
á heimili og börnum en karlar eins og
rannsóknir hafa sýnt og sýna. Kynja
hlutverkin hafa sem betur fer verið
að breytast og ég heyri að ungir karl
menn ræða líka um mikilvægi þess að
skipuleggja vinnutímann betur á Al
þingi.
Þorgerður Katrín: Mér finnst Al
þingi hafa breyst mikið frá því að ég
byrjaði. Ég er rétt byrjandi í pólitík
miðað við suma á þingi eins og Össur,
Ögmund og Jóhönnu Sigurðardóttur
sem hefur setið lengst allra. Þetta er
ekki langur tími en það hefur margt
breyst og fyrir því eru ýmsar ástæður.
Fyrst og fremst má þar nefna fjölgun
kvenna á þingi. Þó að við séum ekki
alltaf sammála um málefnin, síður en
svo, þá hefur myndast ákveðin sam
staða á meðal kvenna á þingi sem er
sterkari í dag en hún var á árum áður.
Þannig að þingið er ekkert endilega
karllægt í dag. Karlar geta ekki leng
ur leyft sér að ganga fram hjá konum
og ég vona að það muni aldrei gerast
aftur, nú þegar tengslanet karla og
kvenna er að verða samtvinnað.
Ólöf: Alþingi er mjög sérstakur
vinnustaður. Ég hef stundum orðað
það þannig að það sé lífsstíll að vera
í stjórnmálum og það er ekki hægt
að líkja vinnuumhverfi á Alþingi
við neinn annan stað. Því miður er
skipulag þingstarfa ekki nógu gott –
allt of mikið um kvöldfundi og nætur
fundi sem henta afar illa fjölskyldu
fólki. Það hefur hreint ekki lagast á
þeim tíma sem ég hef verið þar. Auð
vitað hefur kreppuástandið haft áhrif
þarna en ég held samt að við ættum
að geta komið miklu betra skikki á
þessi þingstörf.
Lilja: Já, Alþingi er karllægur
vinnustaður þar sem formenn flokka
ráða mestu um störf þingsins, það er
hvaða mál komast í gegn fyrir jóla og
sumarfrí. Þegar slíkar samningavið
ræður áttu sér stað fóru margir karlar
á flug í alls konar plotti. Fæstar konur
fundu sig í plottinu og áttu oft erfitt
með að skilja hvað væri í gangi dögum
saman á þingi. Þeim þingmönnum
sem stóðu fyrir utan samningavið
ræðurnar gramdist hvernig farið var
með fullkláruð frumvörp sem fórnað
var í valdaspili formanna stærstu
þingflokkanna. Engin breyting varð á
þessu á meðan ég sat á þingi.
Plottað í bakherbergjum
Eiga konur erfiðara uppdráttar á
þingi en karlmenn?
Þorgerður Katrín: Tengslanet
karla er ósýnilegt en það er þarna.
Það sem skiptir máli er að núna verða
þeir engu að síður að gera ráð fyr
ir konum og tengslaneti þeirra. Það
er ekki hægt að líta fram hjá okkur
lengur. Það er afar jákvæð þróun,
bæði kynin eru þarna, eru sýnileg og
hafa áhrif. Það er frábær breyting. En
það þarf að vinna úr þessu og það má
enginn vera þægur, allra síst konur
þegar það kemur að því að vinna að
hagsmunamálum, hvort sem um er
að ræða jafnréttismál, menntakerfið,
heilbrigðismál eða efnahagsmál.
Lilja: Já, á meðan völd snúast
um plott í bakherbergjum og sam
tryggingarkerfi karla en ekki þekk
ingu og hæfni. Fæstar konur kunna
öll klækjabrögðin sem tíðkast í póli
tík og valdaleysi þeirra í pólitík þýðir
að þær geta ekki treyst á jafn víðtækt
stuðningsnet og karlar þegar á þarf
að halda. Konum hefur verið innrætt
í meira mæli en körlum að þær þurfi
að mennta sig til að ná árangri. Þær
missa því margar fótanna þegar inn á
þing er komið og í ljós kemur að holl
usta við flokksforystuna ræður mestu
um hvaða trúnaðarstörf þingmenn fá.
Voru gerðar aðrar væntingar til
þín sem konu en þeirra karla sem þú
hefur unnið með?
Lilja: Mér fannst fleiri vænta þess
að karlar sem voru nýir á þingi tækju
að sér forystuhlutverk í stjórnmálum
en konur. Ég heyrði til dæmis oftar
að einhver þingmaður væri efnilegur
en þingkona. Þetta er hluti af þeirri
karllægu menningu sem ríkir á Al
þingi.
Öðruvísi komið fram við konur
Er komið öðruvísi fram við þingkonur
en þingmenn?
Siv: Í þessu sambandi man ég eft
ir tveimur skondnum atvikum, þegar
ég var erlendis og var spurð við komu
á fundarstað: „Hvenær kemur ráð
herrann?“ „Hann er kominn,“ svaraði
ég. Viðkomandi hélt í bæði skiptin að
ráðherrann væri karlmaður.
Þorgerður Katrín: Í draumaheimi
væri enginn munur á því en við erum
ekki alveg komin þangað enn. Ég held
að menn sjái það.
Ég hef upplifað það sjálf að það er
tekið öðruvísi á konum. Mér fannst
það ekki sérlega skemmtilegt að til
að byrja með virtust vinstri sinnað
ar konur ekki sýna hægri sinnuðum
konum skilning, eins og við værum
ekki sömu jafnréttissinnarnir eða
sömu baráttukonurnar og þær, bara
af því við leyfðum okkur aðra nálgun
á málefnið. Minn flokkur hefur verið
íhaldssamur og haldið fast í hefðir
innan flokksins. Þrátt fyrir að við eig
um fyrsta kvenkyns ráðherrann og
borgarstjórann þá hefur hlutunum
stundum miðað hægt og við höfum
þurft að berjast innan flokksins til
þess að breyta því. Því fannst mér
súrt að fá mestu gagnrýnina frá öðr
um konum sem sýndu því ekki skiln
ing að við værum að berjast í þágu
jafnréttis. Sem betur fer hefur skapast
meiri samstaða og vinskapur á milli
kvenna þvert á flokka en áður. Eins
má ekki taka það frá karlmönnum að
þeir hafa leikið lykilhlutverk í mörg
um málum eins og fæðingar orlofinu.
Hugmyndafræðin að baki því kem
ur frá Friðriki Sophussyni sem
„Fyrst þegar ég
var að byrja, þá
fannst mér eins og fólk
tryði mér ekki eins vel og
næsta manni þegar ég
talaði um efnahagsmál
en það breyttist.
Ólöf Norðdal
n 1970-1971 Auður Auðuns, dóms- og
kirkjumálaráðherra.
n 1983-1985. Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra og heilbrigðis- og
félagsmálaráðherra frá 1985 til 1987.
n 1987-1994. Jóhanna Sigurðardóttir,
félagsmálaráðherra.
n 1994-1995. Rannveig Guðmundsdóttir,
félagsmálaráðherra.
n 1995-2001. Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra.
n 1999-2004. Siv Friðleifsdóttir, um-
hverfisráðherra.
n 1999-2003. Sólveig Pétursdóttir, dóms-
og kirkjumálaráðherra.
n 1999-2006. Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
n 2003-2009. Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, menntamálaráðherra.
n 2004-2006. Sigríður Anna Þórðardóttir,
umhverfisráðherra.
n 2006-2007. Jónína Bjartmarz, um-
hverfisráðherra.
n 2006-2007. Valgerður Sverrisdóttir,
utanríkisráðherra.
n 2007-2009. Þórunn Sveinbjarnardóttir,
umhverfisráðherra.
n 2007-2009. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
utanríkisráðherra.
n 2007-2009. Jóhanna Sigurðardóttir,
félagsmálaráðherra.
n 2009. Kolbrún Halldórsdóttir, um-
hverfisráðherra.
n 2009. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
félags- og tryggingamálaráðherra.
n 2009-2010. Ragna Árnadóttir, dóms-
og kirkjumálaráðherra.
n 2009-2010. Álfheiður Ingadóttir, heil-
brigðisráðherra.
n 2009-2013. Jóhanna Sigurðardóttir,
forsætisráðherra
n 2009-2013. Katrín Jakobsdóttir,
mennta- og menningamálaráðherra.
n 2009-2012. Katrín Júlíusdóttir, iðnað-
arráðherra. Fjármála- og efnahagsráð-
herra 2012-2013.
n 2011-2012. Oddný G. Harðardóttir,
fjármálaráðherra.
Kvenkyns ráðherrar
Kvennasamstaða Það er af sem áður
var þegar hægri sinnuðum konum fannst
þær helst sitja undir ámælum frá vinstri
sinnuðum konum fyrir að vera ekki nægi-
lega jafnréttissinnaðar. Nú hefur myndast
samstaða á þingi og þær Ólöf, Lilja, Siv og
Þorgerður deila reynslu sinni af því að vera
kona í áhrifastöðu. SAmsett myNd.