Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Page 35
„Ég bið til guðs
að æxlið hverfi“
bíla og bla, bla, bla. But money did
not buy me happiness.“
Hann seldi því allt og flutti til
Berlínar, þar sem hann var er hann
frétti af andláti föður síns. Faðir
hans, Carl Berndsen fékk, 61 árs að
aldri, hjartaáfall og lést. Í kjölfar-
ið fór Kalli heim til þess að vera hjá
móður sinni. „Þetta var mjög sér-
stakur tími, ég var meðvirkur og
náttúrulega að hugsa um alla. Síð-
an fór ég út þremur mánuðum síðar
og þá hrundi ég eins og gamall torf-
kofi. Vinur minn fann mig í íbúðinni
sem ég leigði. Hann hafði ekki náð í
mig í viku, hélt að ég væri farinn. Ég
held að ég hafi fengið taugaáfall, ég
vissi ekkert í þennan heim eða hinn.
Ég hafði ekki farið í bað eða gert
nokkurn skapaðan hlut.“ Hann jafn-
aði sig á taugaáfallinu og flutti aftur
til Íslands, en stoppaði enn og aftur
mjög stutt.
Var núll og nix í London
Karl flutti þá til London og bjó þar
í þrettán ár. Hann var orðinn vel
efnaður eftir velgengnina á Íslandi
en átti í þó nokkrum erfiðleikum
með það að komast inn í bransann
í London. „Ég var náttúrulega að
koma, víkingurinn, og hélt að allir
myndu fara á hnén. Var bæði með
hárgreiðslu og make up, ógeðs-
lega klár. Búinn að meika big time
hérna, með fyrirtæki og allt saman.
Honey, þú kemst fljótt að því að þú
ert absolutely not a jackshit því það
eru svona átta til tíu þúsund í sömu
sporum og þú,“ sagði Karl.
Eftir fimm ára starf í förðuninni
ákvað hann að einbeita sér að hár-
greiðslunni. „Það var nóg af make-
up-artistum en margir lélegir hár-
greiðslumeistarar,“ sagði hann um
ástæður þess að hann skipti um
vettvang. Hann náði í kjölfarið að
hasla sér völl á Englandi og flaug
reglulega til annarra landa í ýmiss
konar verkefni.
Nær dauða en lífi eftir e-töflu
Að endingu var hann orðinn nokkuð
stórt númer í förðunar- og hárgreiðslu-
heiminum. Meðal þeirra sem hann sá
um eru Madonna og ofurfyrirsætan
Kate Moss. „Ég bara heilsaði: „Hello,
Kate“ og hún svaraði á móti: „Hello,
pretty boy.“ Ég roðnaði,“ sagði Karl um
fyrsta skiptið sem hann hitti ofurfyrir-
sætuna, og átti þá að sjá um varirnar
hennar.
En mikið djammlíferni var á fólki
í skemmtanabransanum og margir
neyttu eiturlyfja. Margir neyttu kóka-
íns í kringum hann og mikið var
drukkið. Sjálfur snerti hann ekki eitur-
lyfin að undanskildu einu tilviki: „Ég
vissi að þetta væri ekki fyrir mig,“ sagði
hann. Ástæðan var mjög slæm reynsla:
„Þegar ég útskrifaðist úr förðunarskól-
anum prufaði E og endaði á spítala
átta tímum síðar, nær dauða en lífi
en það vita fáir. Það var hjartað og ég
varð bara hræddur, sem betur fer.“
Karl Berndsen hóf svo sjónvarps-
ferilinn á Íslandi á Skjá Einum, þar
sem hann var með þættina Nýtt út-
lit. Þættirnir færðust yfir á Stöð 2
árið 2011 en þar nefnast þeir Kalli
Berndsen í nýju ljósi, en hann lagði
nýlega lokahönd á nýjustu seríuna í
þáttunum. n
Viðtal 35Helgarblað 19.–21. apríl 2013„Ég er sann-
færður um að
ég eigi langt eftir
„Ég endaði á spít-
ala átta tímum
síðar, nær dauða en lífi.
Ætlar að sigra „Ég hef alltaf verið
trúaður og það veitir mér styrk. Ég er
sannfærður um að ég eigi langt eftir.
Það eru mörg verkefni sem ég á óunnin í
lífinu,“ segir Karl Berndsen sem greindist
nýlega með heilaæxli. myNd Heiða HeLgadóttir