Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Síða 40
40 Lífsstíll 19.–21. apríl 2013 Helgarblað
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
Þ
essa dagana er ég í óða að
undirbúa mig fyrir aðra at
rennu að hæsta punkti Ís
lands, Hvannadalshnúk.
Aðfaranótt 11. maí verður lagt
upp í ferðina sem að þessu sinni
endar vonandi á toppnum í rúm
lega 2.100 metra hæð. Þessi ganga
er talin vera erfiðasta dagleið í
Evrópu. Gangan sjálf er um 25
kílómetrar og hækkunin um 2.000
metrar. Þetta er því ekki fyrir
aukvisa.
Í
fyrra reyndi ég
við Hnúkinn
ásamt rúmlega
100 öðrum félög
um í 52ja fjalla hópi
Ferðafélags Íslands. Sú ferð
endaði þegar um 100 metrar voru
í efsta punkt. Ástæðan var að frost,
og snjókoma hömluðu för. Frem
ur en að taka áhættuna á því að
steypa öllum þessum fjölda göngu
manna í lífsháska var snúið við og
haldið áleiðis niður aftur. Dagur
inn hafði byrjað í glaðasólskini og
fádæma góðu skyggni. En þegar
komið var upp í 1.700 metra hæð
lagðist yfir kolsvartur bakki með
ofankomu og frosti.
Þ
að urðu mér
gríðarleg
vonbrigði að
þurfa að snúa
við þegar einungis
örfáir metrar voru
á toppinn. En ég hef tamið mér
hlýðni við fararstjóra auk þess að
hafa varkárni í öndvegi. Þannig
reyndir ég tvisvar við Þverfellshorn
Esjunnar áður en ég náði að fara
alla leið upp. Þar hamlaði reyndar
gríðarleg lofthræðsla för. Mér tókst
í þriðju tilraun að komast á Hátind
á Esjunni síðasta sumar. Reglan er
nefnilega sú að láta efann ráða og
snúa frá fremur en ana inn í hásk
ann.
Þegar hópurinn minn sneri frá
í maí í fyrra var annar hópur uppi
á Hnúknum. Það fólk hafði misst
áttir og ráfaði í nokkra klukkutíma
í sortanum. Hermt er að örvænting
hafi gripið nokkra þar sem ekki
sást út úr augum og staðsetningar
tæki voru orðin rafmagnslaus. Sá
siður hefur verið algengur að fólk
skilur bakpoka sína eftir neðan við
Hnúkinn sjálfan og léttir á sér eins
og kostur er. Í þessu tilviki þýddi
það að fólkið var án aukaskjólfatn
aðar og matar. Sem betur fer rofaði
til eftir nokkra klukkutíma og fólkið
komst heilu og höldnu niður.
Þ
egar við snerum baki í Hnúk
inn sást varla út úr augum. En
eftir svo sem hálftíma göngu
yfir öskjuna áleiðis að brún
inni birti til á einu augabragði.
Skyndilega blasti hinn ókleifi tindur
við okkur baðaður í vorsólinni. Það
var orðið heiðskírt. Tilfinningin var
sú að Hnúkurinn væri að undir
strika smæð okkar mannskepn
anna. Við stoppuðum og upplifðum
fegurðina í andakt. Síðan var haldið
áfram niður.
Ferðin upp á Hnúkinn tók um 12
klukkustundir. Ég hef aldrei á ævi
minni verið þreyttari en þegar ég og
ferðafélaginn, eiginkonan, komum
í náttstað. Mig verkjaði í hvern ein
asta vöðva og fæturnir voru sárir. En
í miðri þjáningunni var sælan yfir
að hafa þó farið upp í næstum 2.000
metra hæð. Þetta var hálfur sigur.
F
róðir menn segja mér að topp
ur Hvannadalshnúks sé sýnd
veiði en ekki gefin. Dæmi eru
um að fólk hafi náð að toppa
í fjórðu tilraun. Það getur því far
ið á hvorn veginn sem er hvort ég
næ að toppa í ár. En það skiptir
ekki öllu máli. Ferðin sjálf er aðal
atriðið. Ef áfanginn næst ekki kem
ég aftur að ári.
Aftur á Hnúkinn
Ögrar þyngdaraflinu
N
ý húsgagnalína Rúnars Helga
Haraldssonar vekur mikla
athygli um þessar mundir.
Rúnar sýndi nýja hönnun sína
í bókaversluninni Iðu í Lækjargötu;
sófa og stól sem hann kallar Spóa á
HönnunarMars og nýlega var fjallað
um stólinn í pólska tímaritinu Futu.
Rúnar lék sér að þyngdaraflinu við
hönnun húsgagnanna sem eru alfarið
framleidd hér á landi. „Ég vildi brjóta
upp ásýnd jafnvægis. Þyngdarpunkt
urinn liggur mjög aftarlega og bökin
liggja í gegnum sessurnar. Þannig
ögra ég þyngdaraflinu. Nafnið Spói
er tilkomið af því að mjóar lappirnar
minntu mig á fuglinn.“
Rúnar nam í Danmörku og lauk
námi sínu árið 2008. Hann starfaði um
nokkurra ára bil á arkitekta og verk
fræðistofu þar í landi en fluttist til Ís
lands fyrir einu og hálfu ári. Stóllinn
Spói og sófinn eru fyrstu verk í nýrri
línu hans. Hann stefnir á að hanna
fleiri húsgögn undir vörumerkinu
Kurrdesign. „Ég hef mikinn áhuga á
hönnun og arkitektúr. Núna beinist sá
áhugi helst að hönnun húsgagna og ég
hef hug á því að halda áfram.“ n
n Fjallað um hönnun Rúnars Helga í Futu
Stílhreint Lína Rúnars er ákaflega stílhrein og falleg.
Nýfluttur til landsins Rúnar Helgi Har-
aldsson vakti mikla athygli á HönnunarMars
og stefnir á að hanna fleiri húsgögn undir
merkinu Kurrdesign.
Þykir vænst um
greinina í Dwell
Þ
etta eru marmaraborð
með stálgrind sem virka
tvö saman eða stök en þau
fengu mikla athygli,“ segir
hönnuðurinn Ólöf Jakobína
Ernudóttir, húsgagnahönnuður og
innanhússarkitekt.
Í framleiðslu erlendis
Borðin hennar heita Marmo en Ólöf
Jakobína segir þau ekki enn komin í
framleiðslu. Sú athygli sem borðin
hafa fengið ýti þó undir að hún verði
að gera eitthvað meira með þau.
„Ég er að gæla við þá hugmynd að fá
þetta í framleiðslu erlendis en það er
allt á frumstigi.“ Aðspurð hvenær Ís
lendingar megi vænta þess að hægt
verði að kaupa Marmoborð segist
hún vona að þau verði til í árslok.
Fjallað var um hönnun hennar á
vefsíðum tímarita eins og Dwell og
Cool Hunting, auk Emmas Design,
sem er víðlesið hönnunarblogg. Hún
segir að sér þyki jafnvel vænst um að
hafa fengið umfjöllun á vefsíðu Dwell
þar sem það sé metnaðarfullt tímarit
og mikill heiður að vera þar.
Vítamínsprauta fyrir hönnuði
„HönnunarMars er frábær meðal
annars að því leyti að hátíðin er
góð vítamínsprauta fyrir íslenska
hönnuði. Þetta er gríðarleg kynning
fyrir okkur og það vindur upp á sig.
Ég veit að nokkrar vörur hafa farið
beint í framleiðslu hjá erlendum að
ilum í kjölfar hátíðarinnar.“
Ólöf Jakobína sýndi einnig skálar
sem hún gerði í samstarf i við Guð
björgu Káradóttur. „Þetta samstarfs
verkefni okkar heitir Postulína en við
höfum unnið saman í nokkur ár.“ Um
er að ræða skálalínu sem þær vonast
til að stækki og hugmyndin er að hún
breytist í matarstell þegar fram líða
stundir. n gunnhildurdv.is
n Hönnun Ólafar Jakobínu vakti athygli erlendra blaðamanna
Marmo Borðin
vöktu athygli
erlendra blaða-
manna.
Postulína Samstarfsverkefni Ólafar Jakobínu og Guðbjargar Káradóttur.
Erlend framleiðsla „Ég er að gæla
við þá hugmynd að fá þetta í framleiðslu
erlendis en það er allt á frumstigi.“
MyNd RakEl ÓSk SiguRðaRdÓttiR