Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Síða 6
6 Fréttir 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Braut gegn 16 ára stúlku
n Gaf tveimur stúlkum áfengi og áreitti aðra þeirra kynferðislega
H
æstiréttur Íslands staðfesti á
fimmtudag fangelsisdóm yfir
35 ára karlmanni sem gaf 16
og 17 ára stúlkum áfengi og
beitti aðra þeirra kynferðislegu of
beldi. Maðurinn var dæmdur fyrir að
hafa gefið þeim áfengi í sumarhúsi
á Austurlandi í október árið 2011.
Þar braut hann einnig kynferðislega
gegn yngri stúlkunni, áreitti hana
kynferðislega, meðal annars með
því að hafa kysst hana tungukossi
og sagt „að hann langaði til þess að
ríða henni“ eins og segir í dómn
um. Í dómsorði segir: „Sannað þykir
með framburði piltanna þriggja að
stúlkan hafi í pottinum ítrekað ýtt
ákærða frá sér og sagt honum að
hætta.“ Einnig segir að það þyki yfir
allan vafa hafið að háttsemi ákærða
hafi átt sér stað gegn vilja hennar og
ákærða hafi mátt vera það ljóst.
Dómurinn telur sýnt að ákærði,
sem var 35 ára að aldri og mun meiri
að líkamsburðum en stúlkan, hafi
neytt þessara augljósu yfirburða
sinna til að koma fram vilja sínum
gagnvart stúlkunni sem var á 17.
ári. „Þá verður að líta til þess að brot
ákærða átti sér stað í töluverðri fjar
lægð frá þéttbýli og þess að bæði
stúlkan og tveir af þremur vina henn
ar voru ölvuð af áfengi sem ákærði
hafði veitt þeim.“
Héraðsdómur Austurlands hafði
áður dæmt manninn og Hæstiréttur
staðfesti því þann dóm með dómi
sínum.
Var refsing hans því ákveðin fang
elsi í 18 mánuði og honum gert að
greiða stúlkunni 800.000 krónur í
skaðabætur. n
Börn geta orðið
háð spjaldtölvum
n Foreldrar þurfa að gæta að í hvaða tilgangi spjaldtölvan er notuð
B
örn allt niður í fjögurra ára eru
orðin svo háð spjaldtölvum og
snjallsímum að þau þurfa sál
fræðilega hjálp. Sérfræðingar
vara foreldra við að leyfa börn
um að vera með slík tæki í marga tíma
á dag því það geti haft alvarleg lang
tímaáhrif á börnin.
Fjögurra ára spjaldtölvufíkill
Í grein sem breska blaðið Telegraph
birti á dögunum segir að yngsti sjúk
lingurinn sem vitað er um að hafi þurft
aðstoð vegna spjaldtölvufíknar sé
fjögurra ára stúlka frá suðausturhluta
Bretlands. Foreldrar hennar fóru með
hana í atferlismeðferð þar sem hún
varð sífellt erfiðari og óhuggandi þegar
spjaldtölvan var tekin af henni. Tölvu
notkun hennar hafði aukist mikið á
einu ári og hún orðin háð því að nota
tölvuna í allt að fjórum tímum á dag.
Sömu reglur og með tölvu
Guðlaug M. Júlíusdóttir, félagsráð
gjafi og verkefnastjóri félagsráðgjafar
BUGL og Barnaspítala Hringsins, seg
ist hafi ekki heyrt af slíkum tilfellum
hér á landi. „Það á þó það sama að
gilda um spjaldtölvur og aðrar tölvur
og snjallsíma; að horfa á kassa of lengi
er ekki of gott. Það ættu því að gilda
sömu reglur um þessi tæki og tölvur
almennt.“
Hún bendir á að farið sé að kenna
börnum á spjaldtölvur mjög snemma
inni á leikskólum, og í grunnskólum
séu þær notaðar í kennslu. Þær geti
vissulega verið góðar til að örva hug
ann og sem þroskaviðfang en mikil
vægt sé að huga að því hvernig þær
séu notaðar. „Margir nota spjaldtölvur
til að skoða myndir og það er ekkert að
því. Það þarf bara að passa að það sé í
stuttan tíma í senn, helst ekki meira en
10 til 15 mínútur. Einnig að efnið svari
til aldurs viðkomandi.“
Notið ekki spjaldtölvu sem snuð
Hún segir varhugavert að leyfa barni
að horfa á spjaldtölvu til að róa sig, líkt
og snuð eru notuð. „Barnið lærir ekki
að róa sig sjálft ef spjaldtölvan hefur
verið notuð sem snuð. Mér finnst því
eðlilegt að fjögurra ára barn gráti eftir
tölvunni ef foreldrarnir hafa látið það
fá hana til að róa sig. Foreldrar verða
því að hugsa út í þetta.“
Í grein Telegraph er rætt við dr. Ric
hard Graham sem kom á stofn fyrstu
meðferðarstöð fyrir tæknifíkla. Hann
segir að saga áðurnefndrar stúlku sé
alls ekkert einsdæmi, það séu fjölmörg
börn sem hafi ánetjast spjaldtölvum.
Hann heldur því fram að börnin upp
lifi ámóta fráhvarfseinkenni og þegar
alkóhólistar og heróínneytendur fá
ekki skammtana sína. Hann varar
einnig við því að spjaldtölvunotkun
ungra barna geti komið í veg fyrir að
þau myndi félagsleg tengsl.
Guðlaug segir varla hægt að yfir
færa fíknarfráhvörf fullorðinna
einstaklinga yfir á lítil börn en segir þó
að sama um hvaða fíkn ræði þá finni
fólk fyrir andlegum og líkamlegum
einkennum.
Geta þróað með sér fíkn
Guðlaug ítrekar að foreldrar þurfi að
vera meðvitaðir í hvaða skyni þau leyfa
börnunum að vera með spjaldtölvu.
Börn geti þróað með sér fíkn þar sem
spjaldtölvan er enn ein leiðin til að
gera tölvurnar aðgengilegri. Hún út
skýrir að tölvufíkn sé ekki enn læknis
fræðilega viðurkennd og hún hafi því
ekki tölur yfir hve margir þjáist af slíkri
fíkn hér á landi. n
Spjaldtölvufíkn
Börn eru að verða
háð notkuninni.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Geðræn einkenni:
n Almennt áhugaleysi um heilsu sína sem
veldur sinnuleysi um hreinlæti og næringu
n Svefntruflanir vegna netnotkunar
n Þrá eftir meiri tíma í tölvu
n Minnkandi félagsleg virkni, samskipti
við aðra
n Ósannsögli um tíma sem eytt er í tölvu
n Árátta og þrá sem beinist að tölvunni/
sýndarheimum veldur því að viðkomandi
sinnir ekki persónulegum samböndum í
raunheimum
n Jákvæð „víma“ og vangeta til að stýra
notkun
n Endurteknar tilraunir til að minnka eða
hætta notkun án árangurs
n Fráhvörf, kvíði, þunglyndi þegar
viðkomandi kemst ekki í tölvu
Líkamleg einkenni:
n Tölvutitringur (cybershakes) – pirring-
ur og ásláttarhreyfing í fingrum eftir mikla
notkun stýripinna
n Augnþurrkur
n Sinaskeiðabólga
n Verkir í höndum, úlnliðum, hálsi, baki
og öxlum vegna áreynslu
n Mígreni
n Doði og sársauki í þumli, vísifingri og
löngutöng vegna áreynslu á lyklaborði
Einkenni tölvufíknar
– Guðlaug M. Júlíusdóttir tók saman
Guðlaug M. Júlíusdóttir Félagsráðgjafi
og verkefnastjóri félagsráðgjafar BUGL og
Barnaspítala Hringsins
„Mér finnst því eðlilegt að fjögurra
ára barn gráti eftir tölvunni ef for-
eldrarnir hafa látið barnið fá hana til að róa
sig. Foreldrar verða því að hugsa út í þetta
Óprúttinn aðili rispaði bíl fjöl
miðlakonunnar Tobbu Marinós
dóttur aðfaranótt fimmtudags.
„Hey þú sem lyklaðir bílinn okkar
í nótt þá hef ég safnað fyrir hon
um síðan að ég var 12 ára. Öll sum
ur og eftir skóla var ég í aukavinnu,
bar út dv, fermingarpeningarnir
fóru allir í sjóðinn, ég fór ekki með
vinunum í útskriftar eða sóla
landaferðir og ég seldi jafnvel
hestinn minn,“ sagði hún um mál
ið á Facebook. „Vonandi skemmt
ir þú þér vel við þetta athæfi þitt,“
bætti hún við og bað þá sem hafi
orðið varir við einstakling við það
að rispa bíla í Garðastræti í Vestur
bænum að senda sér línu.
Ölvuð stúlka
ók á grindverk
Tvítug stúlka ók á grindverk í
vestur bæ Kópavogs laust fyrir
klukkan hálf tólf á miðvikudags
kvöldið. Þegar lögregla kom á vett
vang kom í ljós að stúlkan hafði
ekið bifreiðinni á grindverkið með
þeim afleiðingum að bifreiðin
laskaðist verulega. Stúlkan var
áberandi ölvuð.
Sprungið hafði á tveimur dekkjum
bifreiðarinnar og hafði henni ver
ið ekið þannig. Annað framdekk
ið var horfið og felgan nánast búin
eftir aksturinn. Bifreiðin var fjar
lægð með kranabifreið. Stúlkan
gisti fangageymslu fram undir
morgun á fimmtudeginum en var
yfirheyrð þegar hún var komin í
ástand til þess.
Óprúttinn aðili
rispaði bílinn
Staðfesti dóminn Maðurinn þarf að
greiða stúlkunni 800 þúsund krónur.