Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Blaðsíða 21
É g er reynslunni ríkari eftir veru mína í stjórnarráði Íslands í rúmt ár í þjónustu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Senn lýkur störfum mínum rétt eins og annarra aðstoðarmanna ráðherra. Sá hópur er ekki ýkja stór, líklega 14 manns, en alls starfa um 600 manns í stjórnarráðinu öllu. Til samanburðar má nefna að pólitískir aðstoðarmenn sænsku rík­ isstjórnarinnar eru hátt í 300 og alls vinna um 4.600 manns í stjórnarráð­ inu þar. Svíar eru 28 sinnum fleiri en við Íslendingar. Samkvæmt því ættu þeir að vera með um 390 pólitíska aðstoðarmenn og nærri 17 þús­ und embættismenn ættu að vinna í stjórnkerfinu. Þessi munur á Íslandi og Svíþjóð stafar af því að miklu meira af verkefnum eru á hönd­ um lénanna og sveitarfélaganna í Svíþjóð en hér. Á því stjórnsýslu­ stigi eru því embættismenn fleiri, en færri í æðstu yfirstjórn í Stokkhólmi. Höldum áfram þessum sam­ anburði. Ráðuneytin í Svíþjóð eru 11 og mjög stór á íslenskan mæli­ kvarða. Ráðherrar nú í ríkisstjórn Reinfeldts eru 23 að mig minnir þ.e. fleiri en einn ráðherra er um hvert ráðuneyti og deila þeir með sér verk­ um. Halda umbæturnar velli? Það kvisast að sigurvegari þingkosn­ inganna vilji fjölga ráðherrum á ný hjá okkar 330 þúsund manna þjóð. Ég held að það sé í sjálfu sér í lagi en tel einnig að á bak við það sé gamal­ dags viðhorf um að stjórnarráðið sé einhvers konar herfang til að úthluta hollum flokksmönnum fylgdarlaun. Sjálfur hef ég haft mikinn áhuga á stjórnkerfisumbótum. Mér finnst að þær eigi að miða að því að auka skil­ virkni, gera kerfið opnara og faglegra og auka þar þjónustulund gagnvart al­ menningi. Síðast en ekki síst eiga þær að uppræta sem kostur er hvers kyns spillingu, frændhygli og klíkuskap. Íslenskir fjölmiðlar, sem ég elska að hata og hata að elska, hafa sýnt þess háttar umbótum ríkisstjórnar Jó­ hönnu Sigurðardóttur mikið tómlæti. Þessar breytingar eru á einhvern hátt ekki „sexí“. Slúðrið um Tobbu og rispu á bíl hennar er skemmtilegra. Ég get nefnt margvíslegar umbæt­ ur sem dæmi. Vart þarf að taka fram að margvísleg grein er gerð fyrir þeim m.a. á vefsvæði stjórnarráðsins í þágu gagnsæis og hagsmuna almennra borgara. Ný upplýsingalög tóku gildi um síðastliðin áramót. Gildissvið þeirra hefur verið víkkað. Dregið hefur verið úr kröfum um framsetningu á beiðn­ um um aðgang að gögnum með það að markmiði að almenningi verði gert auðveldara en nú er að óska upplýs­ inga. Embættismönnum og ráðherrum hafa verið settar siðareglur t.d. sem tengjast mögulegum hagsmunaá­ rekstrum. Um þetta var m.a. fjallað í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og varað við mikilli nálægð hér á landi milli stjórnsýslu, pólitíska valdsins og atvinnulífsins. Undið ofan af sérréttinda þjóðfélaginu Eitt af fyrstu verkum ríkisstjórn­ ar Samfylkingarinnar og VG var að afnema umdeild lög sem sett voru í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks­ ins og Framsóknarflokksins árið 2003 um eftirlaun þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna. Með nýju lögunum voru þessi sérréttindi afn­ umin og njóta þeir nú sömu lífeyris­ kjara og aðrir opinberir starfsmenn. Þetta sparar ríkinu milljarða króna á endanum. Fækkun ráðuneytanna þýðir t.d. aukið jafnræði atvinnuveganna, hlut­ lægari og faglegri afgreiðslu mála. Flestir viðurkenna nú að einkum gömlu atvinnuvegaráðuneytin voru allt of veik gagnvart sérhagsmunagæslu t.d. í landbúnaði og sjávarútvegi. Mikið og gott verk hefur verið leyst af hendi við að bæta samskipti landshlutanna og stjórnkerfisins og einfalda þau. Sóknaráætlanir lands­ hlutanna, sem var sérstakt verkefni fráfarandi ríkisstjórnar, felur til dæm­ is í sér algerlega ný vinnubrögð og skipulag samskiptanna sem t.d. get­ ur gert byggðastefnu markvissari og dregið úr kjördæmapoti. Ég er sannfærður um að þegar fram í sækir munu einkum ungir kjósendur meðtaka þessar breytingar og þakka fyrir þær. Flestir vita að það var kappsmál Jóhönnu Sigurðar­ dóttur og ríkisstjórnar hennar að halda heilbrigðiskerfinu á floti við afar þröng skilyrði. Færri hafa kynnt sér hve ríka áherslu hún lagði á heil­ brigði stjórnsýslunnar; að innleiða verðleikaþjóðfélagið með því að út­ hýsa klíkuskapnum og kunningja­ veldinu og vinna að samræmdari og faglegri vinnubrögðum en áður tíðk­ uðust. Höfundur er fráfarandi upplýsinga- fulltrúi ríkisstjórnarinnar. Þetta er níð- ingsverk Ég er alinn upp í bæði fjöru og fjalli Einar K. þingmaður um falskar Facebook-síður í nafni Sjálfstæðisflokksins - Vísir.isPálmi Gestsson stefnir á Hnjúkinn. – DV „Ég er sannfærð- ur um að þegar fram í sækir munu einkum ungir kjós- endur meðtaka þess- ar breytingar og þakka fyrir þær. Hinn hallærislegi heiðarleiki 1 Heyrnarlausir foreldrar grunaðir um að hafa myrt grátandi barn Dóttir foreldranna var fimm mánaða þegar hún lést. 2 „Þetta er fyrst og fremst furðulegt“ Skemmdarverk voru unnin í Grjótagjá í Mývatnssveit fyrir skemmstu. 3 Óprúttinn aðili rispaði bílinn hennar Tobbu Tobba segist hafa safnað fyrir bílnum síðan hún var tólf ára. 4 Skyrta sem þarf ekki að þvo eða strauja Tískufyrirtækið Wool & Prins framleiðir skyrturnar sem vakið hafa talsverða athygli. Mest lesið á DV.is Hinar þöglu breytingar U m leið og ég óska framsóknar­ mönnum og sjálfstæðismönnum til hamingju með úrslit kosning­ anna, er ekki úr vegi að óska þess í leiðinni að hér verði ekki endurvakið hið alræmda helmingaskiptaveldi sem öllu steypti í glötun. Þeir sem núna telj­ ast sigurvegarar kosninganna eru sekir og ættu að kenna sektarinnar, jafnvel þótt þeim lærist það seint. Þeir eru fyrst og fremst sekir vegna þess að aldrei hef­ ur átt sér stað uppgjör þeirra glæpsam­ legu verka sem forkólfar þessara tveggja flokka unnu hér á árum áður. Ég hef áður grátið heimsku þjóðar minnar og hef meira að segja látið þess getið að ástæða sé til að skammast sín fyrir þjóðernið annað veifið. En í dag hef ég náð þeim þroska, að ég sé þetta allt sem eitt ferli eðlilegra og einfaldra skýringa. Það er nefnilega svo, kæru vinir, að til eru þeir sem eru heiðarleg­ ir og svo eru til aðrir sem óheiðarleg­ ir eru. Óheiðarlegt fólk hefur alltaf og ævinlega þann háttinn á, að maka sinn krók og sleppir því fullkomlega að taka tillit til þess hvort krókamakið geti haft slæmar afleiðingar fyrir samferðafólk­ ið. Heiðarlegt fólk hefur þann háttinn á, að gæta þess að skaða engan og leiðar­ ljós þess er sanngirni og réttlæti. Þetta nefni ég við ykkur hérna, vegna þess að ég þarf að opinbera ykkur einfald­ an heiðarleika (sem jafnvel mun telj­ ast hallærislegur hjá þeim sem þykjast vita betur). Heiðarleg frásögn mín fer á þessa leið: Þeir sem núna eru taldir sigurvegarar kosninganna, beittu þjóð­ ina slíkum blekkingum og slíkri óhóf­ legri hræsni, að varla mun annað svo svæsið dæmi finnast í manna minn­ um, slíkur og þvílíkur er óheiðarleik­ inn. Sigmundur Davíð og Bjarni Ben sátu saman á fjósbitanum, réru í spiki sínu og fundu ríkisstjórn Jóhönnu allt til foráttu. Þeir beittu málþófi í öllum málum sem hagsmunagæslan sagði að mættu ekki fara í gegnum þingið. Þeir léku hlutverk góðu gæjanna svo vel að aðdáunarvert verður að teljast. Leik­ sýningin var fullkomlega óaðfinnanleg, þegar þeir sögðu Jóhönnu gera of mik­ ið ef hún gerði eitthvað og sögðu hana gera of mikið ef hún gerði eitthvað ann­ að. Allt sem ríkisstjórnin framkvæmdi var ómögulegt, jafnvel þótt allt væri framkvæmt af fólki sem byrjaði stjórn­ arstarfið með tvær hendur tómar. Við ættum að leyfa okkur þann munað að líta yfir farinn veg og leyfa ljósi heiðarleikans að lýsa upp sviðið. Það gæti kannski orðið til þess að við kæmum öll auga á það sem betur má fara í samskiptum manna. Reyndar eigum við einnig þann kost að sogast með flaumi óheiðarleikans og gefa skít í það hvað öðrum finnst um háttu okkar. En ég er fánaberi fegurstu gilda og hef þar af leiðandi enga ástæðu til að skammast mín fyrir þjóðernið eða skyldleika við þá sem skítseiði vilja telj­ ast. Ég hvet stjórnmálamenn til bestu verka; þeir eru kjörnir á þing til að starfa í þágu almennings, að þjónusta fólk en láta völd og auð liggja á milli hluta. Þeir eru ekki valdir til verka svo þeim megi auðnast að ota sínum tota, trygga sér og sínum betra viðurværi, stunda hagsmunapot og illræmda einkavinavæðingu. Þeim er ekki einu sinni ætlað að hafa völd; þeir eru í starfi sem krefst fórnfýsi og heiðarleika. Þess vegna hvet ég þá sem í stjórnar­ andstöðu verða, til að sýna heiðarleika – ekki þau ógeðslegu vinnubrögð sem stjórnarandstaðan náði að sýna síðustu fjögur árin. Vondir menn með vandamál á villigötum reika en upplýst ratar sanngjörn sál sem sýnir heiðarleika. Hitað upp í kuldanum Dagatalið spyr ekki um veðurfar. Pepsi-deildin hefst um helgina og heil umferð er fyrirhuguð, jafnvel þó hiti sé víða um frostmark og sumarið láti bíða eftir sér. Þeir voru flestir með húfur, KR-ingarnir sem æfðu í Frostaskjóli þegar ljósmyndara DV bar að garði í vikunni. Þeir ætla sér stóra hluti í sumar, þessir. Mynd SigtryggUr AriMyndin Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Umræða 21Helgarblað 3.–5. maí 2013 Aðsent Jóhann Hauksson Það eru mistök að halda að eini möguleikinn sé gamla Ísland Birgitta Jónsdóttir spáði í útkomu stjórnarmyndunar. – Facebook „Það er fínt að snúa aftur þegar búið er að þrífa mesta skítinn í burtu. Vinstrimenn fá væntanlega að komast að aftur þegar skíturinn er orðinn svo mikill að hægri flokkar ráða ekki lengur við hann.“ nanna K. Kristjáns- dóttir við frétt DV.is þar sem rætt var við Erp Eyvindarson sem staddur var á kosningavöku Vinstri grænna á kosninganótt. Erpur var ekki sáttur við niðurstöður kosninganna og sagði meðal annars þetta: „Þjóðin kaus lottó og hún mun fokking tapa.“ „Jóhanna Sigurðardóttir á meiri sök en nokkur annar á þessari niðurstöðu. Hugleysið sem einkenndi stjórn hennar rauf traust kjós- enda á vinstristjórninni. Ef fráfarandi ríkisstjórn hefði kallað inn kvótann, sett á auðlindagjald, opnað stjórnsýslunna í stað þess að skilja múra hinna reykfylltu bak- herberja óáreitta fyrir hægriöflin hefðu kannski náðst einhverjar um- bætur í íslenskri pólitík.“ Jakobína ingunn í athugasemd við frétt DV þar sem greint var frá ummælum Barry Sheerman, þingmanns Verkamannaflokksins, eftir þingkosningarnar hér á landi um liðna helgi. Sheerman spurði hversu heimskir Íslendingar væru í ljósi velgengni Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. „Frábært framtak hjá þessari fallegu stúlku. Mættu fleiri taka hana sér til fyrirmyndar. En því miður hafa allt of fáir áhuga á því að hjálpa heimilislausum og fátækum á Íslandi. Það er ekki inn …“ Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir við frétt DV.is þar sem greint var frá söfnun átta ára stúlku, Rebekku, fyrir útigangsfólk. Þetta gerði Rebekka eftir að heimilislaus maður huggaði hana í verslun Hagkaupa ekki alls fyrir löngu. Vinsæl ummæli við fréttir DV.is í vikunni 15 26 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.