Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Page 14
Þ
ýska blaðið Der Spiegel birti
nýlega tölur um eignir um
fram skuldir hjá íbúum þeirra
fimmtán landa sem notast
við evruna innan Evrópusam
bandsins. Byggðist umfjöllun blaðsins
á rannsókn sem Evrópski seðlabank
inn (ECB) hafði gert. Þar kom í ljós að
Þjóðverjar eiga mun minni eignir en
íbúar í mörgum af þeim löndum sem
hafa þurft á efnahagslegri aðstoð að
halda á síðustu árum. Helstu tíðindin
þykja mikill munur á eignum Þjóð
verja og Kýpverja en líkt og flestum er
kunnugt þurftu Kýpverjar nú nýlega að
leita á náðir Evrópusambandsins eftir
fjárhagsaðstoð úr evrópska björgunar
sjóðnum.
Þjóðverjar eignalitlir
Eins og sjá má í töflu eiga Þjóðverj
ar að meðaltali hreina eign upp á 195
þúsund evrur sem gera nærri 30 millj
ónir íslenskra króna. Kýpverjar eiga
hins vegar um 670 þúsund evrur að
meðal tali sem gera rúmar 100 millj
ónir íslenskra króna. Íslendingar eiga
að meðaltali um 120 þúsund evrur eða
um 18 milljónir íslenskra króna um
fram skuldir. Í þessu samhengi má þó
benda á að þegar miðgildi eigna er
reiknað verður upphæð eigna mun
lægri. Þannig er miðgildið í Þýskalandi
einungis um 50 þúsund evrur eða
nærri fjórum sinnum lægra en meðal
talið. Miðgildi þýðir að það eru jafn
margir sem eiga minna en 50 þúsund
evrur og þeir sem eiga umfram það.
Það sýnir í raun að töluvert mikil mis
skipting er á eignum eftir tekjum fólks.
Þar má nefna að árið 2009 átti ríkasta
eitt prósentið á Íslandi um 20 prósent
af eignum umfram skuldir Íslendinga
það ár.
Margir reiðir Þjóðverjum
Þjóðverjar hafa verið gagnrýndir víða
eins og á Grikklandi og á Kýpur þar
sem myndir hafa jafnvel birtar af Ang
elu Merkel, kanslara Þýskalands, með
tengingu við nasista. Umfjöllun Der
Spiegel um eignir íbúa víðs vegar um
Evrópu sýnir hins vegar að það er alls
ekki þannig að Þjóðverjar eigi meira
en ýmsar af þeim þjóðum sem hafa átt
í vanda að undanförnu.
Það sem skiptir þó líklega miklu
máli í þessu samhengi er að líklega eru
hvergi fleiri á leigumarkaði en í Þýska
landi. Eins og sjá má í töflu með frétt
búa einungis 44 prósent Þjóðverja í
eigin húsnæði á meðan hlutfallið er 77
prósent á Íslandi og á Kýpur og heil 83
prósent á Spáni. Tekið skal fram að töl
ur um Ísland voru ekki settar fram í út
tekt Evrópska seðlabankans en eru hér
settar í samhengi við þá úttekt. Hins
vegar reyndist nokkuð erfitt að fá töl
ur um heildareignir Íslendinga. Þá
má einnig nefna að í úttekt Evrópska
seðlabankans eru eignir metnar á
hverja fjölskyldu sem getur verið mjög
mismunandi að stærð. Þannig eru að
meðaltali um tveir á hverja fjölskyldu
í Þýskalandi en 2,8 á Kýpur og 2,9 á Ís
landi.
Svipar til umræðunnar á Íslandi
Lítið hefur verið rætt um hvað Ís
lendingar eiga í eignum eftir banka
hrunið. Þeim mun meira um skuld
irnar en líklega má segja það sama
um ýmis lönd á evrusvæðinu eins
og Írland, Spán, Portúgal, Grikkland
og Kýpur. Umfjöllun Der Spiegel um
málið var á þá leið að Þýskaland væri
fátækt en löndin í suðri rík. Þessari
umfjöllun var hins vegar harðlega
mótmælt í löndum eins og Spáni og
Ítalíu.
Áhugavert er að bera þetta saman
við umræðuna í kosningabaráttunni
sem fram fór á Íslandi nú nýverið. Þar
bentu sumir á að það væri ekki endi
lega sanngjarnt að nota þá fjármuni
sem Framsóknarflokkurinn vill ná af
kröfuhöfum Glitnis og Kaupþings upp
á allt að 300 milljarða króna einung
is til þess að lækka íbúðaskuldir hjá
þeim sem eru með verðtryggð lán.
Má þar nefna að lítið hefur verið rætt
um að koma til móts við þá sem eru
með námslán hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna sem eru einnig verð
tryggð en Íslendingar skulda nærri 200
milljarða króna í námslán.
Þannig finnst líklega mörgum
Þjóðverjum sem eru á leigumarkaði
ekki sanngjarnt að þurfa að ábyrgjast
fjárhagsaðstoð til landa í suðri sem
talið er getað kostað Þjóðverja yfir 500
milljarða evra ef löndin geta ekki stað
ið undir þeim lánum sem þangað hafa
verið veitt vegna efnahagsástands
ins þar. Hér á Íslandi hefur verið rætt
um að í stað þess að koma einungis
til móts við íbúðaeigendur ef svigrúm
skapast til þess vegna samninga við
kröfuhafa hinna föllnu banka ætti að
nota hluta þeirra fjármuna í lækkun á
skuldum ríkissjóðs og í heilbrigðis og
menntakerfið svo fátt eitt sé nefnt.
Öflugt lífeyriskerfi á Íslandi
Þó Íslendingar eigi minna í eignir um
fram skuldir en flest löndin á evru
svæðinu búum við þó vel að því að
eiga gott lífeyriskerfi. Lífeyrissjóðirnir
eiga í dag um 2.400 milljarða króna í
hreina eign en eignir þeirra í hlutfalli
við landsframleiðslu er næst hæstar
hérlendis í heiminum. Einungis Hol
lendingar eru fyrir ofan Ísland. Þá má
einnig benda á að samkvæmt tölum
sem Eurostat, tölfræðistofnun Evrópu
sambandsins, hefur birt verður Ísland
með fæsta íbúa eldri en 65 ára árið
2060. Þá er talið að hlutfall 65 ára og
eldri verði um 34 prósent af heildar
íbúafjölda landsins á meðan hlutfallið
verður um 60 prósent í Þýskalandi svo
dæmi sé tekið. n
n Ríkasta 1 prósent Íslendinga átti 500 milljarða 2009 n 2.000 milljarðar umfram skuldir
Íbúar evrulanda eiga
meira en Íslendingar
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Meðaltal eigna á
hverja fjölskyldu
n Lúxemborg 710.100
n Kýpur 670.900
n Spánn 291.400
n Ítalía 275.200
n Frakkland 233.400
n Þýskaland 195.200
n Finnland 161.500
n Portúgal 152.900
n Grikkland 147.800
n Ísland* 119.000
*Tölur fyrir flest evrulöndin eru frá
2010. Tölur fyrir Ísland eru hins vegar
frá 2012. Þar er gengið út frá því að
eignir Íslendinga umfram skuldir
séu um 2.000 milljarðar samkvæmt
skattatölfræði ríkisskattstjóra. Inni
í þeirri tölu er hlutabréfaeign upp á
160 milljarða króna frá árinu áður
sem um 4.000 Íslendingar eiga, sem
viðkomandi aðilar þurftu að greiða
viðbótarauðlegarðskatt af vegna
endurútreiknings á markaðsverðmæti
hlutabréfa. Ekki liggja fyir upplýsingar
um eignir Íslendinga í skattaskjólum.
Meðalstærð fjölskyldna á Íslandi er 2,9
og íbúar alls 322.000. Fjöldi fjölskyldna
er því 111.000.
Eigið húsnæði
n Hlutfall þeirra sem búa í
eigin húsnæði í Evrópu
n Spánn 83%
n Grikkland 72%
n Ísland 77%
n Kýpur 77%
n Ítalía 69%
n Finnland 68%
n Lúxemborg 67%
n Portúgal 66%
n Frakkland 55%
n Þýskaland 44%
Helstu eignir
Íslendinga 2012
n Hrein eign 2.012 milljarðar*
n Fasteignir 2.458 milljarðar
n Innlend og erlend
verðbréf 279 milljarðar
n Ökutæki 175 milljarðar
n Hlutabréf 63 milljarðar
n Innistæður 495 milljarðar
*HrEin Eign Er ÞEgar búið Er að draga Skuldir frá EignuM. Í
ÖðruM liðuM Er Ekki tEkið tillit til Skulda.
Ísland yngst í
Evrópu 2060
Þrátt fyrir að íslenskir lífeyrissjóðir og
ríkissjóður hafi þurft að taka á sig mikinn
skell í kjölfar hruns íslenska fjármála-
kerfisins í október 2008 eru framtíðar-
horfur íslenska lífeyriskerfisins að mörgu
leyti bjartar. Eitt af því sem skiptir miklu
máli er að á næstu áratugum mun Ísland
ekki glíma við stóraukinn vanda við að
fjármagna lífeyriskerfið vegna hækkandi
hlutfalls eldri borgara, líkt og mörg lönd
Evrópu. Samkvæmt tölum frá Eurostat,
tölfræðistofnunar Evrópusambandsins,
er því spáð að Ísland verði yngsta þjóð
Evrópu árið 2060.
Þá verða íbúar, 65 ára og eldri, einungis
33,5 prósent af heildaríbúafjölda
landsins. Því má segja að mikil fjölgun
fæðinga í kjölfar hrunsins muni skila
sér vel til framtíðar. Til samanburðar
má nefna að árið 2060 verða um 60
prósent af íbúum Þýskalands 65 ára
og eldri þar sem fæðingartíðni er mjög
lág. Þýskalandi mun því líklega reynast
erfitt eftir nokkra áratugi að halda uppi
lífeyriskerfinu þar í landi. Það ætti að
reynast Íslendingum auðveldara.
65 ára og eldri árið 2060
n Hlutfall í nokkrum evrulönd-
um og Íslandi
land Hlutfall
n Ísland 33,5
n Lúxemborg 45
n Frakkland 46,6
n Finnland 47,4
n Kýpur 47,6
n Spánn 56,4
n Ítalía 56,7
n Grikkland 56,7
n Portúgal 57,2
n Þýskaland 59,9
„Það eru ekki allir á flæðiskeri staddir.
Hópur efnamanna sker sig nokkuð úr.
Hér er um að ræða 1.381 fjölskyldu sem
taldi fram eignir sem metnar voru á meira
en 150 milljónir kr. Samanlagðar eignir
þessara fjölskyldna voru metnar á rúma
468 milljarða kr. en á móti eignum stóðu
skuldir upp á 60 milljarða kr., eða 12,7% af
eignum. Þessar fjölskyldur, sem telja 0,8%
fjölskyldna í landinu, áttu 12,8% eigna og
3,5% skulda.
Þessi hópur framteljenda sem töldu fram
meira en 150 milljónir í eignir átti rúman
fjórðung innstæðna í bönkum, eða tæpa
168,7 milljarða kr. af rúmlega 661,5 milljörð-
um kr. sem skráðir voru á framtölum lands-
manna. Þeir áttu 42,3 milljarða kr. af þeim
94,4 milljörðum kr. sem landsmenn áttu í
hlutabréfum. Þetta er 44,8%. Þá áttu þeir
134,1 milljarð kr. í verðbréfum eða 63,7% af
þeim 210,7 milljörðum sem landsmenn áttu
í verðbréfum árslok 2009.“
Heimild: Eignir og skuldir Íslendinga eftir Pál
Kolbeins, sérfræðing hjá embætti ríkisskatt-
stjóra, úr Tíund, fréttablaði ríkisskattstjóra,
nóvember 2010.
Miklar eignir ríkasta 1 prósentsins
n átti 500 milljarða umfram skuldir 2009
Minni eignir Þó Íslendingar
eigi minna í eignum umfram
skuldir en flest löndin á evru-
svæðinu búa þeir þó að góðu
lífeyriskerfi eins og fram kemur í
umfjölluninni.
14 Fréttir 3.–5. maí 2013 Helgarblað