Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Qupperneq 26
26 Viðtal 3.–5. maí 2013 Helgarblað
borða vel áður en hann fór í vinnuna
og svo sendi ég hann alltaf með nesti
í vinnuna líka,“ segir hún sposk.
Tíu í skólanum og núll í trúnni
Hún byrjaði 18 ára í MR og þar þótti
hún nokkuð einkennileg. Átján ára,
gift og auk þess í sértrúarsöfnuði.
„Ég er viss um að kennararnir hafi
stundum haldið að ég væri að ljúga.
Bekkjar félagarnir gerðu líka grín að
mér og stundum var hringt í mig og
gert at þegar fólk var í partíum,“ seg
ir hún og hlær. Hún segist ekki hafa
tekið þetta inn á sig. „Ætli ég hafi ekki
verið aðeins of upptekin til þess að
pæla í þessu.“
Eftir tvö ár í MR ákvað hún að
breyta til svo hún gæti tekið mennta
skólann á þremur árum í stað
fjögurra. „Ég vildi drífa mig í há
skólann því þarna var ég kominn í
menntagír. Ég tók síðasta árið tvöfalt
og þá var maðurinn minn þáverandi
orðinn dálítið pirraður og spurði mig
hvort ég ætlaði að fá 10 í skólanum
og núll í trúnni og lífinu,“ segir hún
hlæjandi og viðurkennir að henni
finnist þetta afar fyndið viðhorf í
dag. Hún var komin með efasemdir
um trúna á þessum tíma og eftir því
sem hún fræddist meira efldust efa
semdir hennar. Hún mætti sjaldnar
á samkomur og trúin var svo sannar
lega farin að sitja á hakanum. Ýmis
legt annað gerðist innan safnaðarins
sem hún gat ekki sætt sig við og varð
hún sífellt fráhverfari honum. „Mér
fannst svo áhugavert það sem ég var
að læra að ég vildi frekar vera heima
en á samkomum. Eftir því sem ég
las meira því meira breyttist heims
myndin. Ég tileinkaði mér gagnrýna
hugsun og það var bara ekkert vel
séð. Ég fór að setja spurningarmerki
við ýmislegt, leggja saman tvo og tvo
og fá ekki alveg heila fjóra. Þá fóru að
renna á mig tvær grímur og ég hélt
áfram að lesa og lesa. Ég fór síðan í
mannfræði í Háskólanum og það var
litið hornauga að ég væri að læra um
eitthvað svona í stað þess að vera að
nýta tímann og ganga á milli húsa og
boða trúna. Þá varð ég eins og köttur
sem setur út klærnar. Ég vildi bara fá
að gera það sem mig langaði og vildi
vera látin í friði. Og þá byrjaði upp
reisnin,“ segir hún.
Tók trúna fram yfir hana
Malín var þarna búin að ákveða að
hætta í söfnuðinum og það þýddi
líka endalok hjónabands hennar. „Ég
sagði manninum mínum að ég gæti
ekki verið lengur í þessum söfnuði og
þá sagði hann: „Ef þú getur ekki verið
í söfnuðinum þá getum við ekki verið
í þessu hjónabandi.“ Hann sagðist
ekki geta verið giftur manneskju sem
væri ekki í söfnuðinum. Það myndi
eyðileggja líf hans, fólk myndi ekki
koma í heimsókn og svo framvegis.
Svo sagði hann við mig að hann tæki
trúna fram yfir mig.“ Hún segir að á
sama tíma og hún hafi verið fegin að
losna úr söfnuðinum þá hafi henni
þótt sorglegt að horfa upp á eigin
mann sinn. „Eftir því sem ég fjar
lægðist söfnuðinn þá efldist hann.
Mér fannst ég sjá hann sturlast. Mér
fannst það rosalega dapurlegt í raun
og veru. Þetta er ofstopi hjá sumum,
það getur allt farið út í öfgar.“
Þegar Malín hafði ákveðið að
hætta í söfnuðinum þá var hún ekki
látin vera. Síminn hringdi stanslaust
og æðstu menn í söfnuðinum vildu
vita hvers vegna hún ætlaði að hætta.
Hún svaraði ekki símanum. „Þeir
héldu alltaf áfram að hringja. Ég svar
aði ekki í símann í tvo mánuði. Eitt
skiptið ákvað ég að svara og þá var
það einn öldungurinn í söfnuðin
um og hann spurði mig hvernig væri
með söfnuðinn. Ég sagði honum að
ég væri löngu búinn að segja mig úr
honum, hefði gert það lögum sam
kvæmt á Hagstofunni og væri núna
skráð í Ásatrúarfélagið. Þá sagði hann
að svona virkaði það ekki, ég yrði að
segja þeim það því þau álitu lög guðs
æðri lögum manna. Ég sagði hon
um að það kæmi ekki til mála. Þá
sagði hann að þeir yrðu að reka mig
úr söfnuðinum en ég sagði honum að
það væri ekki hægt því ég væri hætt og
skellti svo á hann.“
Eiginmaðurinn heilsaði ekki
Þetta var árið 2004 og Malín hitti
eiginmanninn fyrrverandi síðast í
jarðarför föður síns, ári síðar, en hann
varð bráðkvaddur langt fyrir ald
ur fram, aðeins 56 ára að aldri. Eðli
lega var það henni mikið áfall. Ekki
bætti úr skák að vera hunsuð í jarðar
för föður síns af öllum vottunum sem
mættu í jarðarförina. „Hann kom í
jarðarför pabba en heilsaði mér ekki.
Mér fannst svo skrýtið að fyrrverandi
eiginmaður minn sem ég hafði skilið
við rétt rúmu ári áður skyldi ekki
heilsa mér. Ég stóð með mömmu
og systur minni syrgjandi eftir að
kistan var borin út og hann faðm
aði mömmu og systur mína en gekk
framhjá mér. Sömuleiðis allir hinir í
söfnuðinum. Ég var bannfærð,“ segir
hún og útskýrir að með því að skipta
um skoðun og ákveða að yfirgefa
söfnuðinn hafi safnaðarmeðlimir
litið svo á að hún væri ekki til lengur.
Þeir hafi síðan hún gekk úr söfnuðin
um ekki heilsað henni ef þeir mæta
henni úti á götu og jafnvel eru dæmi
um að safnaðarmeðlimir fari í burtu
af stöðum sem hún er á. Fólk sem
hún hafði þekkt allt sitt líf. En það
var ekki það eina. Móðir hennar var
á þessum tíma enn í söfnuðinum og
var fordæmd fyrir að tala við dóttur
sína.
„Mamma var enn í söfnuðinum
og fannst mjög erfitt að mega ekki
tala við mig. Hún var í siðferðis
legri klemmu,“ segir Malín en móð
ir hennar var beðin um að hafa ekki
samband við dóttur sína. Móðir
hennar var föst á milli tveggja heima
og vissi ekki í hvorn fótinn hún átti að
stíga. „Ég var að gera upp bíl í skúrn
um hjá henni og ég var inni hjá henni
að drekka kaffi þá kom eitthvert
vottafólk í heimsókn, og hún sagði
mér að drífa mig út í bílskúr og bíða
þar. Mér fannst þetta svo ömurlegt.
Ég var bara úti í bílskúr eins og í ein
hverju fangelsi þar til fólkið var farið.
Við töluðum um þetta eftir á og fór
um báðar að gráta,“ segir hún.
Fyrsta afmælið 23 ára
Eftir að Malín gekk úr söfnuðinum
þurfti hún að læra að lifa á eigin
forsendum. Lífið fyrir utan söfn
uðinn var svo miklu stærra en hún
hafði ímyndað sér. Hún segist hafa
verið eins og álfur út úr hól til þess að
byrja með. Hafi ekki kunnað á eitt né
neitt. „Ég fór í fyrsta afmælið þegar
ég var 23 ára og ég var alveg eins og
fífl og vissi ekkert hvernig þetta virk
aði. Ég hafði ekki einu sinni vit á að
koma með afmælisgjöf,“ segir hún
skellihlæjandi. Fyrstu jólin voru líka
æði sérstök. Þau upplifði hún hjá
fyrrverandi tengdafjölskyldu sinni.
„Ég var rosalega stressuð og fannst
pínu eins og ég væri að svíkja lit. Það
var möndlugrautur og ég kunni ekk
ert á þetta og svo sagði ég: „Hvað á
maður að gera ef maður fær möndl
una?“ Allir voru alveg oooh þú átt að
fela hana! Þá hafði ég gleypt hana og
eyðilagði möndlugrautinn fyrir öll
um,“ segir hún og hlær dátt að minn
ingunni. Malín hafði á þessum tíma
fengið vinnu hjá Icelandair en hún
hafði alltaf haft brennandi áhuga á
öllu tengdu flugi. Þar kynntist hún
fjölda fólks. „Það bjargaði mér dá
lítið. Til dæmis kynntist ég bestu vin
konu minni þar og það var rosalega
skemmtilegur tími,“ segir hún. Í flug
inu kynntist Malín líka barnsföður
sínum og þau eignuðust saman son
inn Óðinn sem er í dag fjögurra ára.
Þegar Óðinn var rétt tæplega mánað
argamall dó móðir Malínar.
Hvarf í Færeyjum
Móðir hennar hafði ákveðið með
stuttum fyrirvara að fara í ferðalag til
Færeyja. Það kom Malín lítið á óvart
enda var hún ævintýragjörn og hvat
vís og hafði áður gert svipaða hluti.
Árið á undan hafði hún til dæmis
farið til Frakklands og skyndilega
ákveðið að skella sér til Líbanon líka.
Þegar hún kom til Færeyja sendi
hún dóttur sinni sms og lét vita að hún
væri lent, slökkti svo á símanum og
skilaði sér ekki til baka til Íslands á til
settum tíma. „Við vissum ekkert hvað
hafði orðið um hana. Hún kom ekki
með vélinni sem hún átti að koma
með til baka. Þannig að ég hringdi á
hótelið og bað þá vinsamlegast um
að brjótast inn í herbergið hennar og
þar var allt dótið hennar. Þá hafði hún
ekkert verið þar í einhverja tvo daga.
Þá var gerð ítarleg leit að henni, leitað
á sjó, landi og úr lofti. Það var leitað í
þrjá eða fjóra daga en í minningunni
er þetta eins og þrír mánuðir. Óvissan
er verst. Sem betur fer fannst hún.“
Malín fékk símtal frá ríkislögreglu
stjóra þar sem henni var tilkynnt um
andlát móður sinnar. Hún hafði fund
ist í sjónum. „Jæja hún er fundin, það
var bátur sem fann hana. Já, já það var
bátur sem fann hana,“ segir Malín og
segir símtalið hafa verið ónærgætið
og óþægilegt hafi verið að heyra um
andlát móður sinnar á þennan hátt.
„En það gera allir mistök og líklega
hafa þetta verið mistök dagsins hjá
þessum starfsmanni,“ segir hún um
burðarlynd.
Gat hvorki verið í söfnuðinum né
utan hans
Það var mikið áfall fyrir Malín að
missa móður sína. Malín segist þó
skilja af hverju móðir hennar valdi
þessa leið og þó að hún sé ekki sam
mála ákvörðun hennar þá virðir hún
hana. „Við áttum gott spjall á afmælis
deginum hennar, 18. júní, sama ár.
Hún hélt ekki upp á daginn en ég man
dagsetninguna út af afmælisdegin
um. Þarna sagði hún mér frá því að
hún hefði ekki mætt á samkomur í
4–5 mánuði. Ég hafði ekki hugmynd
um það og fannst það ótrúlegt. Hún
sagði mér þá að hún vildi fara úr söfn
uðinum en treysti sér ekki til þess, hún
var orðin sextug og vissi ekki hvern
ig hún átti að fara að þessu. Ég sagði:
„Láttu ekki svona, þetta er ekkert mál,
ég skal sýna þér hvernig þetta er,“ því
ég var á nákvæmlega sama stað sjálf
fjórum árum áður. En hún sagðist bara
ekki geta þetta. Hún gæti hvorki verið í
söfnuðinum né farið úr honum.“ Malín
segir kannski erfitt fyrir fólk sem ekki
hafi verið inni í þessum heimi að skilja
hvernig það er að vera hluti af slíku
samfélagi. Þetta sé visst trúarofbeldi
eins og hún kallar það, mikil einangr
un og heimurinn fyrir utan getur virk
að ógnvekjandi, til að byrja með. Malín
veit til þess að eftir að mamma hennar
hætti að mæta á samkomur hafi verið
mikið hringt í hana til þess að fá hana
aftur í söfnuðinn, líkt og gert var við
Malín þegar hún hætti.
Þegar móðir hennar dó var Malín
með nýfætt barn. Hún viðurkennir
að þetta hafi verið mjög erfiður tími.
„Þetta var ægilega erfitt. Ég las eftir á
um eitthvert hrun sem átti sér stað en
varð ekki vör við það á þessum tíma,
með lítið barn og mamma nýbúin að
fyrirfara sér. Ég man rosalega lítið eft
ir þessu hruni þó ég vinni sem frétta
maður í dag,“ segir hún.
Kveið því að þurfa að svara
Malín segir það sem hún hafi upp
lifað hafa gert hana sterkari. Hún lifir
fyrir son sinn og stoltið leynir sér ekki
þegar hún talar um hann. „Hann er
frábært barn.“ Í dag starfar hún eins
og áður sagði sem fréttakona á RÚV
og segist þar geta nýtt sér reynslu
sína, vonandi öðrum til góðs. Líklega
hafði litla feimna stúlkan ekki get
að ímyndað sér að hún myndi þora
að standa fyrir framan alþjóð þegar
hún yrði stærri og segja fréttir. „Nei,
þetta er barnið sem kveið því mest
á hverjum degi að þurfa að segja já
þegar kennarinn las upp nafn þess.
Á tímabili varð ég eldrauð í framan
bara við að þurfa segja já,“ segir
Malín hlæjandi. Malín vann sig upp
úr sorginni með hjálp góðra vina og
sonar síns. Hún lifir fyrir daginn í dag
og trúir því að allt gerist af ástæðu.
Hún er hamingjusöm í dag, á sér
fjölmörg áhugamál eins og að safna
bílum og taka ljósmyndir. Nýjasti
bíllinn er Land Rover 1962 árgerð
sem var kærkomin viðbót í bílaflota
hennar.
Börn verða að fá að velja
Aðspurð hvort hún sé einhvern tím
ann reið móður sinni fyrir að hafa alið
hana upp í söfnuði votta Jehóva seg
ist hún stundum vera reið yfir því að
hafa þurft að þola svona trúarofbeldi.
„Og það eru enn börn sem búa við
þetta. Hvert er hlutverk samfélagsins
í þessu? Kennara og fleiri?“spyr hún.
„Ég er þakklát fyrir þá reynslu sem
ég hef öðlast, þó svo að á köflum hafi
verið erfitt að öðlast þessa reynslu. Ég
myndi ekki vilja breyta neinu úr for
tíðinni – enda er það fortíðin sem ger
ir mig að þeirri manneskju sem ég er
í dag. Börn hafa sjaldnast val um það
hvernig þau alast upp en ég mun hafa
það að leiðarljósi við uppeldi barna
minna að troða engum kennisetn
ingum í þau. Þau verða að fá að velja
þegar þau eru tilbúin. Þangað til lít ég
á það sem mitt hlutverk að uppfræða
þau en ekki að mata þau.“ n
„Enn þann dag
í dag eru jól og
páskar tími sem ég verð
pínu skrýtin á, það rifjast
upp leiðinlegur tími.
„Hún sagði við mig
að henni fyndist
óþolandi að hafa alltaf
fatlað barn í eftirdragi.
Milli tveggja heima
Móðir Malínar treysti henni
fyrir því nokkrum mánuðum
áður en hún dó að hana
langaði til þess að hætta í
söfnuðinum en hún treysti
sér ekki til þess. Hún gat
hvorki verið innan safnað-
arins eða utan hans. Móðir
hennar dó árið 2008.