Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 27
Þ
etta leggst nokkuð vel í
okkur. Undirbúningstíma
bilið hefur gengið upp og
niður, við höfum átt góða
leiki inn á milli en líka slaka.
Nú er bara að nýta þennan tíma vel
fyrir fyrsta leik,“ segir Heimir Guð
jónsson, þjálfari Íslandsmeistara
FH. Flest bendir til þess að FH verði
enn eina ferðina í baráttunni um
Íslandsmeistaratitilinn enda fá lið
sem hafa jafn öflugum mannskap
á að skipa. FHingar mæta Keflvík
ingum í fyrsta leik á sunnudag og
í annarri umferðinni taka nýliðar
Þórs á móti Íslandsmeisturunum.
Litlar breytingar
FHingar virðast vera búnir að stilla
saman strengi sína en liðið lagði KR
að velli í Meistarakeppni KSÍ, leik Ís
landsmeistaranna gegn bikarmeistur
unum, síðastliðinn sunnudag. Leik
urinn fór 3–1 fyrir FH sem þótti leika
eins og sönnum meistara sæmir. Litlar
breytingar hafa orðið á leikmannahópi
liðsins frá því í fyrrasumar og eru flest
ir lykilmanna liðsins enn hjá liðinu.
Meðal nýrra leikmanna má nefna bak
vörðinn Sam Tillen sem kom frá Fram
og sóknarmanninn Ingimund Níels
Óskarsson sem kom frá Fylki. Mark
vörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson
yfirgaf félagið eftir síðasta tímabil
og gekk í raðir Breiðabliks og Bjarki
Gunnlaugsson lagði skóna á hilluna
eftir langan og farsælan feril.
Aðspurður hvort hann búist við
að fá nýja leikmenn fyrir mót segist
Heimir alltaf hafa augun opin. „Ég
reikna ekki með því enda erum við
nokkuð ánægðir með hópinn eins og
hann er í dag. En segja ekki allir þjálf
arar í dag að þeir séu með augun opin.“
Keflvíkingar erfiðir
DV spáir því að FH verji titilinn og
segir Heimir að markmið FH sé alltaf
að vera í baráttunni um þá titla sem
í boði eru. Sumarið framundan sé
engin undantekning þar á. Hann
segist þó búast við samkeppni frá KR,
Breiðablik og Stjörnunni. „Svo eru
alltaf einhver lið sem koma á óvart.
Valsararnir hafa verið að spila vel
þannig að það er fjöldi liða sem get
ur blandað sér í þessa baráttu. Það er
alltaf mikilvægt að byrja tímabilið vel
og við gerðum það í fyrra, sem hjálp
aði okkur. Við gerum okkur grein fyr
ir því að fyrsti leikur á móti Keflavík
verður mjög erfiður; þeir eru með
mjög gott lið með marga unga og
efnilega leikmenn. Eftir að hafa séð
Keflavík spila þá get ég ekki ímynd
að mér að það verði í fallbaráttu í
sumar.“ n
Pepsi-deildin
„Glugginn lokar 1.
júní þannig að við
erum með augun opin.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Lykilmaður
Atli Guðnason Atli
var valinn besti
leikmaður Ís
landsmótsins
í fyrra og varð
einnig marka
kóngur. Er algjör
lykil maður í sóknarleik FHinga
og þarf að spila vel til að FH verji
Íslandsmeistaratitilinn.
Fylgstu með
Kristjáni Gauta Emilssyni
Þessi tvítugi miðju
maður fór ungur
að árum til Liver
pool en fór heim
í FH um mitt síð
asta sumar. Kristján
er leikinn með boltann og á
eflaust eftir að fá tækifæri í byrj
unarliði FH.
Meistararnir
klárir í slaginn
n Litlar breytingar á leikmannahópi Íslandsmeistaranna n Mikilvægt að hefja mótið vel
Með augun opin
Heimir segist vera sáttur
með leikmannahóp sinn
en útilokar þó ekki að
hann styrki liðið.
Mynd Sigtryggur Ari
1. sæti
3.–5. maí 2013
u m s j ó n : E i n a r Þ ó r S i g u r ð s s o n / e i n a r @ d v . i s