Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Page 28
2 Pepsi-deildin 2013 3.–5. maí 2013 Helgarblað Titillinn aftur í Krikann F H ver Íslandsmeistaratitil sinn ef marka má spá DV fyrir Pepsi-deildina í knattspyrnu, sem hefst um helgina. Spáin þarf ef til vill ekki að koma á óvart því FH og KR hafa undanfarin ár haft úr firnasterkum leikmönnum að spila. Á því er engin breyting nú og bæði lið ætla sér stóra hluti. Landsbyggðarliðin ríða ekki feit- um hesti frá spánni að þessu sinni og verma þrjú neðstu sætin, auk þess sem DV spáir ÍBV og ÍA stöðu um miðja deild. Spennandi verður að sjá hvort Þór frá Akureyri, sem leikur nú í annað sinn á skömm- um tíma í efstu deild, sé reynslunni ríkari og þá er athyglivert að fá lið af Snæfellsnesinu í Pepsi-deildina. Víkingar frá Ólafsvík munu vafalítið setja svip sinn á deildina, enda hafa þeir valdið usla á undirbúnings- tímabilinu. DV óskar knattspyrnuáhuga- mönnum gleðilegs sumars og hvetur til góðrar mætingar á leikina í sumar. n „Að sjálfsögðu er mark- miðið að ná í titla V ið erum búnir að vinna í því í allan vetur að verða tilbúnir á mánudaginn og við verðum það,“ segir Bjarni Guðjónsson, fyrir- liði KR. Krafan í Vesturbænum fyrir þetta tímabil líkt og öll önnur er sú að liðið skili að minnsta kosti ein- um titli í hús. Bjarni segir að KR- liðið ætli ekki að gefa neinn afslátt af þeim kröfum og liðið ætli sér að berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Ef spá DV gengur eftir verða KR- ingar þó að gera sér annað sætið að góðu. Líkt og hjá öllum öðrum liðum í deildinni hafa smávægi- legar breytingar orðið á leikmanna- hópi KR. Liðið fékk Brynjar Björn Gunnarsson sem kemur heim eftir farsælan feril í Englandi og Eyja- manninn Andra Ólafsson. Magn- ús Már Lúðvíksson, Viktor Bjarki Arnarsson, Dofri Snorrason og Fjalar Þorgeirsson ákváðu þó allir að róa á önnur mið. Sterkara lið en í fyrra Aðspurður hvort liðið sé sterkara í ár en í fyrra segir Bjarni: „Já, ég er eigin lega ekki í nokkrum vafa um það. Það er rétt að breytingarnar hafa verið tiltölulega litlar milli ára. Andri og Brynjar hafa bæst í hópinn sem eru báðir frábærir karakterar og miklir sigurvegarar. Þeir koma með nýja vídd inn í leikmannahópinn.“ Kjartan Henry Finnbogason hefur glímt við meiðsli í vetur og er ljóst að hann verður ekki með KR-liðinu í byrjun móts. Hann er byrjaður að skokka en óvíst hvenær hann snýr aftur á völlinn. Hvað sem því líður eru KR-ingar vel mannaðir í öllum stöðum og ljóst að Gary Martin mun leiða framlínuna í byrjun móts. Jákvætt tap gegn FH Bjarni segir að KR-liðið hafi undir- búið sig vel fyrir tímabilið og hefur liðinu gengið þokkalega á undirbún- ingstímabilinu. Liðið komst í úrslit Reykjavíkurmótsins þar sem það tapaði óvænt fyrir Leikni. Í Meistara- keppni KSÍ um liðna helgi beið KR lægri hlut fyrir FH, 3–1. „Það góða við tapið gegn FH er að við lærðum alveg helling af því. Frá þeim leik erum við búnir að vinna mikið í okk- ar málum.“ Sterkari deild Bjarni segir að markmið tímabilsins hjá KR sé að sjálfsögðu að landa titli. Til þess þurfi mikið að ganga upp eins og Bjarni bendir á. „Að sjálf- sögðu er markmiðið að ná í titla. Til að það gerist þarf mikið að ganga upp. Deildin í heild sinni hefur styrkst mjög mikið og mörg lið sem horfa á toppsætin.“ KR mætir Stjörnunni í fyrsta leik í Frostaskjóli á mánudagskvöld og býst Bjarni við erfiðum leik. „Þeir hafa bætt við sig fjölda manna og eru komnir með frábæran þjálfara. Þeir eru væntanlega eitt af þeim liðum sem ætla sér að verða Íslandsmeist- arar. Þetta verða nánast allt saman hörkuleikir og mjög erfitt ár. Það skemmtilega er samt að öll liðin eru að styrkja sig.“ n Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Krafa um titil í Vesturbæinn n Fyrirliði KR segir leikmannahóp liðsins sterkari en í fyrra Klár í slaginn Bjarni verður væntanlega í vörn KR-inga gegn Stjörnunni á mánu- dag. Hann telur að leikmannahópur KR sé sterkari en í fyrra. Mynd Sigtryggur Ari Leiðari Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Spá DV Lið Stig 1. FH 79 2. KR 76 3. Breiðablik 69 4. Stjarnan 65 5. Valur 56 6. ÍBV 46 7. ÍA 37 8. Fylkir 36 9. Fram 31 10. Keflavík 21 11. Víkingur Ól 20 12. Þór Ak. 9 Spámenn: Arnar Þór Valsson þjálfari ÍR, Atli Eðvaldsson fv. landsliðsþjálfari, Baldur Guðmundsson blaðamaður DV, Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður, Einar Þór Sig- urðsson blaðamaður DV, Freyr Alexanders- son þjálfari Leiknis og Sævar Þór Gíslason knattspyrnumaður. 2. sæti Lykilmaður Hannes Þór Halldórs- son Hannes hefur unnið ófáa leiki fyrir KR með magnaðri frammistöðu í markinu. Finnst fátt skemmtilegra en að verja víta- spyrnur og gæti orðið lykillinn að velgengni KR í sumar. Fylgstu með Atla Sigurjónssyni Atli mun væntanlega fá fleiri tækifæri í KR-liðinu en í fyrra enda efni- legur leikmaður sem gæti náð langt. Spurningin er sú hvort hann springi út í sumar. Bullandi launa- misrétti í fót- boltanum Himinn og haf er milli þess sem dómarar sem dæma leiki karla og kvenna í Pepsi-deildinni fá í laun fyrir erfiðið. Dómarar í karla- deildinni fá tæpar 40 þúsund krónur fyrir hvern leik en hinum megin, í kvennaboltanum, fær að- aldómari aðeins 14.300 krónur að því er fram kemur á vefnum sport. is. Þetta mun vera launamunur upp á 60 prósent og munar um minna, en inni í greiddum launum er allur kostnaður aðaldómara, ferðir, uppihald og annað sem til þarf fyrir hvern og einn leik. Búningur Fylkis ljót- astur Lífsstílsblaðið Séð og heyrt er enginn eftirbátur annarra miðla þegar kemur að umfjöllun um komandi Pepsi-deild. Þar fengu menn þrjá valinkunna ritstjóra vefíþróttamiðla til að velja flottasta og ljótasta búninginn í karladeildinni þessa leiktíðina. Tveir af þremur telja heimabún- ing Fylkis fyrir neðan allar hellur og ekki þykir búningur Keflavíkur upp á marga fiska heldur. Sömu tveir álitsgjafar eru líka á því að Hafnfirðingar í FH spili í hvað flottustum búningunum. Fleiri erlendir leikmenn Nokkuð hefur verið rætt undan- farin ár um síaukinn fjölda er- lendra leikmanna hjá íslenskum knattspyrnufélögum og sýnist sitt hverjum um þá þróun. Ekki fæst annað séð en þeir séu jafnvel al- mennt fleiri nú en áður en það verður þó ekki endanlega ljóst fyrr en leikmannaskiptaglugginn lokast. Í fyrra var lið Selfoss eitt þeirra liða sem sérstaklega voru milli tanna á fólki enda helmingur liðsins erlendir leikmenn. Svipað verður uppi á teningnum þar nú ef rétt reynist að einir sjö leikmenn af erlendu bergi brotnir hafi geng- ið til liðs við Selfyssinga á síðustu vikum en sumir þeirra voru í láni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.