Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Blaðsíða 31
Pepsi-deildin 2013 5Helgarblað 3.–5. maí 2013
1 Með hvaða liði spilar Alfreð Finnbogason?
2 Hvaða lið hefur oftast orðið Íslandsmeistari í karlaflokki?
3 Efnilegustu leikmenn Ís-landsmótsins tímabilin 2008,
2009 og 2010 komu allir úr röðum
Breiðabliks. Hvað heita þeir? (eitt
stig fyrir hvern)
4 Fjögur félög hafa orðið Ís-landsmeistari oftar en 10
sinnum. Hvaða félög eru það? (eitt
stig fyrir hvert félag)
5 Hver varð markakóngur Ís-landsmótsins í fyrra?
6 Hvaða tvö lið féllu úr efstu deild í fyrra og hvaða tvö lið
komust upp í efstu deild? (hvert
lið gefur eitt stig)
7 Markahæstu leikmenn Ís-landsmótsins tímabilin
1992, 1993, 1994 og 1995 komu
allir úr röðum ÍA. Um er að ræða
þrjá leikmenn þar sem einn varð
markakóngur tvisvar. Hvað heita
þessir þrír leikmenn? (hver leik-
maður gefur eitt stig)
8 Spurt er um leikmann. Fyrsta vísbending gefur þrjú stig,
önnur tvö stig en þriðja eitt stig.
A Hann lék sinn fyrsta landsleik árið 1992 en um var að ræða
leik með U17 ára landsliði Íslands.
Hann þótti býsna efnilegur enda
var hann töluvert frá 17 ára aldrin-
um þegar kallið kom.
B Hann lék sinn fyrsta leik í úr-valsdeild sumarið 1994 og var
valinn efnilegasti leikmaður Ís-
landsmótsins það sumar. Í kjölfar-
ið hélt hann út í atvinnumennsku
þar sem belgíski markahrókurinn
Luc Nilis var samherji hans. Annar
ungur leikmaður í liðinu átti eftir
að setja svip sinn á knattspyrnu-
heiminn svo um munar.
C Hann er markahæsti leik-maður íslenska landsliðsins
frá upphafi og eini Íslendingurinn
sem hefur unnið Meistaradeild
Evrópu með félagsliði sínu. Hver
er leikmaðurinn?
9 Spurt er um leikmann. Fyrsta vísbending gefur þrjú stig,
önnur tvö stig en þriðja eitt stig.
A Hann er fæddur á því herr-ans ári 1974 og þótti strax
ljóst að þar færi býsna efnilegur
leikmaður. Hann lék sinn fyrsta
meistaraflokksleik með Víkingi
Reykjavík árið 1990 en flest mörk-
in skoraði hann þó fyrir annað
Reykjavíkurfélag. Hver er maður-
inn?
B Hann hélt út í atvinnu-mennsku árið 1994 og
samdi við þýska stórliðið Stutt-
gart. Hann kom þó aftur heim og
lék nokkra leiki á Íslandi sumar-
ið 1997. Norska liðið Stabæk fal-
aðist eftir starfskröftum hans og
kom hápunkturinn á ferli leik-
mannsins í Noregi þegar hann
skoraði tvö mörk í bikarúrslitaleik
með liði sínu árið 1998. Skömmu
síðar bankaði sannkallað stórlið
upp á og kom með tilboð sem var
ómögulegt fyrir hann að hafna.
C Liðið sem um ræðir er gríska stórliðið Panathinaikos en þar
gekk Íslendingurinn undir nafninu
Hákarlinn. Hann lék í Grikklandi
til ársins 2001 og spilaði í Noregi
og Danmörku áður en hann kom
til Íslands árið 2006 og gekk í rað-
ir Fram. Sumarið 2007 fór hann til
Vals og var valinn besti leikmaður
Íslandsmótsins það sumar. Þessi
kröftugi framherji lék 63 landsleiki
fyrir Ísland og skoraði í þeim 10
mörk. Hver er maðurinn?
10 Spurt er um leikmann. Fyrsta vísbending gefur þrjú stig,
önnur tvö stig en þriðja eitt stig.
A Hann er fæddur árið 1977 og spilaði alltaf upp fyrir sig
í yngri flokkunum. Það er kannski
ekki furða enda er hann fæddur í
fámennu þorpi úti á landi þar sem
góðir knattspyrnumenn voru ekki
beinlínis á hverju strái. Hann átti
eftir að ná býsna langt en smjör-
þefinn af atvinnumennsku fékk
hann þegar hann spilaði í stutta
stund með Torquay árið 1999 þar
sem hann skoraði í sínum fyrsta
leik.
B Þrátt fyrir þessa góðu byrjun varð hann aldrei þekktur
markaskorari enda hafði hann
öðrum skyldum að gegna. Hann
skoraði þó reglulega fyrir fé-
lagslið sín en tókst aldrei að
koma knettinum í netið í 30
landsleikjum sem hann spilaði
fyrir Ísland. Hann lék með sex fé-
lagsliðum á ferli sínum á Englandi
og með þremur þeirra lék hann
undir stjórn Steve Coppell.
C Hann sagði eitt sinn að Didi-er Drogba væri erfiðasti leik-
maður sem hann hefði mætt á ferli
sínum. Hann spilaði tvö tímabil í
ensku úrvalsdeildinni með Rea-
ding þar sem hann var fastamað-
ur. Hann kom heim úr atvinnu-
mennsku á síðasta ári og lagði
skóna á hilluna. Hver er maðurinn?
Veistu svarið?
Nú við upphaf Íslandsmótsins er ekki úr vegi að kanna þekkingu lesenda á íslenska boltanum. Allar spurningarnar koma íslensk-
um fótbolta við þó sumar kanni þekkingu á íslenskum atvinnumönnum á erlendri grundu. Mest er hægt að fá 26 stig í prófinu.
1. Hereenveen
2. KR (25 sinnum)
3. Alfreð Finnbogason,
Jóhann Berg Guðmundsson
og Kristinn Steindórsson.
4. KR, Fram, Valur og ÍA
5. Atli Guðnason með 12
mörk.
6. Grindavík og Selfoss féllu
en Þór og Víkingur Ólafsvík
komust upp.
7. Arnar Gunnlaugsson
(1992), Þórður Guðjónsson
(1993), Mihajilo Bibercic
(1994) og Arnar Gunnlaugs-
son (1995).
8. Eiður Smári Guðjohnsen
9. Helgi Sigurðsson
10. Ívar Ingimarsson
Svör: