Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Page 32
6 Pepsi-deildin 2013 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Allir á völlinn!
n Áhorfendum á leiki hefur fækkað örlítið undanfarin tvö tímabil
É
g hvet auðvitað alla til að fara
á völlinn. Það er góð dægra-
stytting, góð skemmtun og
ekki síst ágæt útivist,“ segir
Geir Þorsteinsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands.
DV rýndi í áhorfendatölur á leiki
liða í efstu deild undanfarin ár og
hefur þeim fækkað örlítið undan-
farin tvö tímabil. Þeir voru 1.034
að meðaltali síðasta sumar, 1.122
sumarið 2011 og 1.205 sumar-
ið 2010. Þetta er fjórtán prósenta
fækkun á tveimur árum. Ljóst er
að það skiptir félögin sem leika í
Pepsi-deildinni gríðarlega miklu
máli að fá áhorfendur á völlinn og
því um að gera að hvetja stuðn-
ingsmenn til að fylkja liði og mæta
á völlinn í sumar.
Aðspurður segist Geir búast við
fjörugu sumri og segist hann búast
við skemmtilegu móti. „Þetta
leggst mjög vel í mig og það er
alltaf sami spenningurinn á vor-
in,“ segir Geir. Hann viðurkennir
þó að hann hafi vissar áhyggjur
af ástandi valla enda hefur apríl-
mánuður verið nokkuð kaldur.
Hann horfir engu að síður björt-
um augum til sumarsins. „Ég á von
á mjög skemmtilegu knattspyrnu-
sumri,“ segir formaðurinn. n
V
ið teljum okkur vera með
ágætis mannskap og gott
lið. Þannig að við erum
fullir tilhlökkunar,“ segir
Logi Ólafsson, þjálfari
Stjörnunnar. Spá DV gerir ráð fyrir
að Stjarnan verði í toppbaráttu í
sumar og endi í 4. sæti. Það er ekki
óraunhæft enda hefur liðið verið
í toppbaráttu undanfarin tímabil.
Liðið endaði í 5. sæti síðasta sum-
ar og komst alla leið í bikarúrslit.
Þá hefur Logi fengið til sín góða
leikmenn fyrir átök sumarsins og
ber þar helst að nefna Veigar Pál
Gunnarsson sem kemur heim eftir
gott gengi í Noregi undanfarin ár.
Strembinn leikur við KR
Logi segist vera hæfilega bjart-
sýnn fyrir komandi sumar og liðið
hafi sett sér skýrt markmið um að
komast í Evrópukeppni. Stjörnu-
liðið fær verðugt verkefni í fyrstu
umferðinni þegar liðið heimsækir
KR í Frostaskjól en í annarri um-
ferðinni fær liðið heimaleik gegn
nýliðunum í Víkingi Ólafsvík. „Það
verður auðvitað hörkuleikur og
KR-ingar hafa frábærum mann-
skap á að skipa. KR er væntanlega
eitt af þeim liðum sem eru örugg
um að vera í toppbaráttu. Þeir eru
erfiðir heim að sækja og við þurf-
um að eiga góðan leik til að fá góð
úrslit.“
Nokkrar breytingar
Leikmannahópur Stjörnunnar hef-
ur tekið smávægilegum breyting-
um frá síðasta sumri. Liðið varð fyr-
ir blóðtöku þegar Ellert Hreinsson
ákvað að róa á önnur mið og ganga
í raðir Breiðabliks og þá fór Daninn
Alexander Scholz til Lokeren í vet-
ur þar sem hann hefur slegið í gegn.
Nokkrir leikmenn eru þó komnir til
félagsins. Auk Veigars Páls má nefna
Ólaf Karl Finsen og Robert Sandnes,
sem báðir léku undir stjórn Loga á
Selfossi í fyrrasumar. Þá fékk liðið
til sín tvo Dani, Martin Rauschen-
berg og Michael Præst, sem Logi
bindur miklar vonir við. „Við höf-
um fengið til okkar mjög góða leik-
menn. Veigar er auðvitað feikilega
reyndur og góður knattspyrnumað-
ur. Ég er mjög ánægður með sam-
setninguna á hópnum. Danirnir eru
að leysa af hólmi Scholz og þeir eru
mjög sterkir leikmenn og falla vel
inn í okkar hóp.“
FH og KR sterkust
Sem fyrr segir búast flestir við því
að Stjörnuliðið verði í toppbaráttu
þó fæstir spái því að liðið nái að
blanda sér fyrir alvöru í baráttuna
um Íslandsmeistaratitilinn. Logi
segir að markmið sumarsins séu
skýr. „Við höfum sagt það fyrirfram
að við viljum vera í toppbaráttu og
markmið okkar er að ná Evrópu-
sæti og gera þannig aðeins betur
en í fyrra. Ég tel að við eigum raun-
hæfa möguleika á því ef hlutirn-
ir ganga upp og lykilmenn haldast
heilir,“ segir Logi. Aðspurður hvort
hann treysti sér til að spá í hvaða
lið hampi Íslandsmeistaratitlinum
í sumar segir Logi: „Ég held að það
sé ekki óraunhæft að spá því að FH
og KR muni berjast um þennan tit-
il.“ n
Lykilmaður
Garðar Jóhannsson
Garðar hefur
skorað 23 mörk
í 39 leikjum í
Pepsi-deildinni
með Stjörnunni
undanfarin tvö
tímabil. Þarf að halda upptekn-
um hætti í sumar og það verður
spennandi að fylgjast með sam-
vinnu hans, Veigars og Halldórs
Orra.
Fylgstu með
Veigari Páli Gunnarssyni
Veigar getur gert
ótrúlega hluti á
vellinum og hann
mun heldur betur
lífga upp á Pepsi-
deildina í sumar.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
n Logi telur að KR og FH séu sterkust n Sáttur við breytingar á hópnum „Ég held að það sé
ekki óraunhæft að
spá því að FH og KR muni
berjast um þennan titil.
við viljum vera
í toppbaráttu
Skýr markmið Logi segir
að markmið sumarsins séu
skýr: gera betur en í fyrra og
komast í Evrópukeppni.
MyNd SigtRygguR ARi
2012 2011 2010 2009 2008 2007 2006 2005
Meðaltalsaðsókn
1.034 1.122 1.205 1.029 1.106 1.329 1.089 1.070
4. sæti
TÖKUM EINN LEIK
EFTIR ÆFINGU
FH og Stjarnan
FH endar með titilinn í Pepsi-
deild karla að leiktíðinni lokinni
og Stjarnan mun leika sama leik í
kvennadeildinni ef marka má spár
forráðamanna þeirra félagsliða sem
keppa í þessum sömu deildum. Að
sama skapi ganga spár út á að það
verði nýliðar beggja deilda sem falla
munu aftur að sumrinu loknu eða
Þór Akureyri og Víkingur Ólafsvík í
karladeildinni og HK/Víkingur og
Þróttur Reykjavík í kvennadeildinni.
Umhleyp-
ingar hjá
fjölda félaga
Töluverðar breytingar verða á leik-
mannahópum allnokkurra félaga
í Pepsi-deildinni þegar litið er til
fjölda nýrra leikmanna. Hjá Fylki
eru hvorki fleiri né færri en ellefu
nýir leikmenn á lista þegar þetta
er skrifað en nokkrir þeirra eru að
koma aftur úr láni. Svipaða sögu er
að segja af Valsmönnum og Keflavík
þar sem tíu leikmenn bætast í hóp
þeirra sem fyrir voru. Gróflega má
segja að liðin í efstu deild séu að
bæta við sjö leikmönnum að með-
altali. Skagamenn eru manna róleg-
astir. Aðeins þrír nýir leikmenn eru í
þeirra hópi nú rétt fyrir fyrsta leik.
Haska sér á
völlinn
Athygli vekur að Knattspyrnu-
samband Íslands heldur upp-
teknum hætti og setur ansi
marga deildarleiki í Pepsi-deild
karla á tiltölulega snemma
dags á virkum dögum þetta
sumarið en slíkt hefur verið
gagnrýnt áður sökum þess að
almenningur vinnur almennt
langan vinnudag á Íslandi og
því komast færri á völlinn en
vilja. Menn þurfa til dæmis
að haska sér nokkuð til að sjá
viðureign KR gegn Þór fimmtu-
daginn 16. maí sem hefst
klukkan 18. Sömuleiðis verða
eyjaskeggjar að slútta snemma
til að berja augum ÍBV og KR
mánudaginn 20. maí en sá leik-
ur hefst klukkan fimm síðdegis.