Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 34
V
ið verðum klárir á mánu-
daginn. Þróunin hefur verið
fín hjá okkur í vetur,“ segir
Magnús Gylfason, þjálfari
Valsmanna. Valur mætir
Fylki í Lautinni í fyrsta leik sínum í
Pepsi-deildinni á mánudagskvöld
og segir Magnús að hans menn verði
tilbúnir í erfiðan leik. Valsmenn
ollu nokkrum vonbrigðum á síðasta
tímabili en þá endaði liðið í 8. sæti
deildarinnar eftir að þjálfarar, fyrir-
liðar og forráðamenn liðanna höfðu
spáð þeim 5. sætinu.
Breyttur hópur
Líkt og undanfarin ár hafa orðið
talsverðar breytingar á leikmanna-
hópi Valsmanna milli ára. Sterkir
leikmenn á borð við Halldór Kristin
Halldórsson, Guðjón Pétur Lýðs-
son og Hörð Sveinsson hafa horfið
á braut en á sama tíma hafa sterk-
ir leikmenn komið. Má þar nefna
landsliðsmanninn Bjarna Ólaf Ei-
ríksson, Magnús Má Lúðvíksson og
Arnar Svein Geirsson, sem snýr aft-
ur á heimaslóðir. Þá mun miðju-
maðurinn öflugi Rúnar Már Sigur-
jónsson spila með Val í sumar eftir
að hafa verið á láni hjá hollenska
liðinu Zwolle. Rúnar glímir þó við
smávægileg meiðsli sem stendur.
Langt og strangt mót
„Við vitum að hver einasti leikur í
þessu móti er erfiður,“ segir Magnús
en lið hans heimsækir sem fyrr seg-
ir Fylki í fyrstu umferðinni á mánu-
dagskvöld. „Þeir eru með hörku-
mannskap og hafa líkt og við gert
miklar breytingar á sínum leik-
mannahópi. Þeir hafa verið að spila
ágætlega og það er ekki langt síð-
an þeir unnu FH. En heilt yfir tel
ég okkur vera eins vel undirbúna
og hægt er og við gerum allt til að
vinna,“ segir Magnús sem vonast eft-
ir góðri byrjun hjá sínum mönnum. Í
annarri umferðinni fer Valur í heim-
sókn upp á Akranes og því ljóst að
tveir erfiðir útileikir bíða Valsmanna.
„Það er vissulega mikilvægt að byrja
vel en þetta er samt langt tímabil og
menn verða að halda ró sinni ef það
gengur ekki vel. Menn þurfa samt að
vera tilbúnir í þetta,“ segir hann.
5. sætið raunhæft
Flestir spá Valsmönnum ágætu gengi
í sumar og spáir DV því að liðið endi
í 5. sæti í deildinni þegar upp verð-
ur staðið í haust. „Við erum ekki al-
veg búnir að klára okkar markmið.
En auðvitað viljum við alltaf vera
ofar en það. Valur, í mínum huga, er
lið sem á að berjast við toppinn. En í
dag held ég að þetta sé býsna raun-
hæf spá. Liðið hefur verið að rokka á
milli 5. til 8. sætis undanfarin ár og
það hafa orðið miklar breytingar á
milli ára. Við teljum okkur vera með
sterkan hóp og gerum tilkall til sigurs
í hverjum einasta leik en við vitum að
þetta er langt og strangt mót. Flestir
telja að KR, Stjarnan, FH og Breiða-
blik séu með sterkustu hópana en
við viljum auðvitað blanda okkur í
baráttuna við þessi lið.“ n
8 Pepsi-deildin 2013 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Lykilmaður
Rúnar Már Sigurjónsson
Þessi öflugi miðju-
maður mun spila
með Val í sumar
eftir lánsdvöl í
Hollandi síðustu
mánuði. Rúnar var
einn besti leikmaður Íslands-
mótsins í fyrra en hefur glímt
við meiðsli undanfarnar vikur.
Ef hann nær sér á strik verður
hann gríðarlegur liðstyrkur fyrir
Valsliðið.
Fylgstu með
Stefáni Ragnari Guð-
laugssyni Stefán
er stór og sterk-
ur miðvörður sem
kom til Vals frá Sel-
fossi í janúar. Hefur
mikla reynslu þrátt fyr-
ir að vera einungis 22 ára og gæti
náð langt.
Eiga að berjast um
Íslandsmeistaratitil
n Sterkir leikmenn komnir í Val n Magnús Gylfason er klár í slaginn„Við vitum að hver
einasti leikur í
þessu móti er erfiður.
Langt mót Magnús segir að
Valsliðið sé klárt fyrir Íslands-
mótið. Liðið mætir Fylki í fyrsta
leik í Lautinni á mánudags-
kvöld. Mynd Sigtryggur Ari
5. sæti
V
ið erum nokkuð stórt
spurningarmerki varðandi
deildina enda hafa margir
leikmenn farið frá okkur,“
segir Hermann Hreiðars-
son, þjálfari ÍBV. DV spáir Eyjaliðinu
6. sætinu að þessu sinni en undan-
farin tvö tímabil endaði liðið í 3.
sæti deildarinnar. Breytingar á leik-
mannahópnum frá því í fyrra eru þó
talsverðar og hafa lykilmenn horfið á
braut, má þar nefna Andra Ólafsson,
Guðmund Þórarinsson, Þórarin Inga
Valdimarsson, Tryggva Guðmunds-
son og Rasmus Christiansen. Liðið
fékk þó varnarmanninn sterka Eið
Aron Sigurbjörnsson aftur frá Örebro
og síðast en ekki síst markvörðinn
David James, fyrrverandi landsliðs-
markmann Englands.
ungir og hungraðir
Sparkspekingar búast flestir við því að
ÍBV verði um miðja deild í sumar og
segir Hermann að sú spá sé skiljanleg
í ljósi breytinga á liðinu. „Ég held að
þetta sé í samræmi við það sem hefur
verið í gangi hjá félaginu. Auðvitað
förum við í hvern leik til að vinna
hann. Þetta er hraðmót í byrjun, fimm
leikir á stuttum tíma, og þá munum
við læra á sjálfa okkur, hvert við get-
um stefnt og hvernig málin standa.“
Hermann segist vera mjög sáttur
við leikmannahóp sinn. „Ég er með
marga unga og óreynda leikmenn en
þeir eru gríðarlega hungraðir og til-
búnir að fórna miklu til að bæta sig
og ná lengra. Það er frábært að fá
að þjálfa þannig hóp. Þeir sem eru
eldri hugsa vel um sig og miðla vel af
sér til yngri leikmannanna. Þetta er
mjög skemmtileg blanda.“
Útilokar ekki að spila
ÍBV byrjar mótið á tveimur
heimaleikjum. Í fyrstu umferðinni
mætir liðið ÍA á Hásteinsvelli en í
annarri umferðinni koma Blikar í
heimsókn. „Skagamenn stóðu sig
gríðarlega vel í fyrra eftir að þeir
komu upp og verða sterkir í sumar.“
Hermann hefur æft með
Eyjaliðinu undanfarnar vikur og
segist vera í ágætu leikformi. Hann
útilokar ekki að draga fram skóna
og taka þátt í einhverjum leikjum
þó aðrir leikmenn séu framar í
goggunarröðinni. „Ég er búinn að
æfa svolítið og er í fínu standi. Ef
kallið kemur þá kemur það en fók-
usinn er ekki á það hjá mér. Ef leik-
bönn eða meiðsli koma upp þá tekur
maður skóna með sér í leiki.“ Eyja-
menn eru ekki beint á flæðiskeri
staddir með sterka varnarmenn
enda eru tveir mjög efnilegir leik-
menn í miðri vörninni; Eiður Aron
Sigurbjörnsson og Brynjar Gauti
Guðjónsson. Hermann telur að þeir
geti báðir náð langt. „Þeir eru mjög
öflugir „halfsentar“. Eiður er búinn
að fá nasaþef af atvinnumennsku og
það var mikill styrkur að fá hann til
baka. Þeir báðir eru mjög góðir og
stefna á að koma sér út.“ n
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Tekur skóna
með sér í leiki
n Hermann útilokar ekki að spila með ÍBV í sumar
Lykilmaður
Eiður Aron Sigurbjörns-
son Eiður Aron
sýndi hvers megn-
ugur hann er sum-
arið 2011 þegar
hann lék frábærlega
í vörn ÍBV. Hann fór út
í atvinnumennsku en er kominn
aftur heim. Ef einhver getur að-
stoðað Eið við að verða enn betri
er það Hermann Hreiðarsson.
Verður algjör lykilmaður í sumar.
Fylgstu með
Gunnari Þorsteinssyni
Gunnar er fæddur
1994 og var á
mála hjá Ipswich
á Englandi. Hann
er vinnuþjarkur og
verður líklega í hlut-
verki varnarsinnaðs miðjumanns
hjá ÍBV í sumar. Strákur sem á
framtíðina fyrir sér.
reynslubolti Hermann kemur til með að miðla gríðarlegri reynslu til yngri leikmanna
Eyjaliðsins. Hermann lék meðal annars með Portsmouth líkt og David James sem mun
standa á milli stanganna hjá ÍBV í sumar. Mynd reuterS
„Ég er búinn að æfa svo-
lítið og er í fínu standi
6. sæti