Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 36
M
aður er alltaf bjartsýnn í
byrjun móts og ég held
að leikmenn séu það
líka, segir Þorvaldur
Örlygsson, þjálfari
Fram. Framarar enduðu í 10. sæti
Pepsi-deildarinnar í fyrra og í 9.
sæti sumarið 2011. Eftir slakt gengi
undanfarin tvö tímabil vonast
stuðningsmenn liðsins eftir bjart-
ari tímum í sumar þó fæstir búist
við því að liðið nái að blanda sér í
toppbaráttuna. Kjarninn í Fram-
liðinu er nokkurn veginn sá sami í
ár og í fyrra þó einhverjar breytingar
hafi verið gerðar. Varnarmennirnir
Bjarni Hólm Aðal steinsson, Ólafur
Örn Bjarnason og Halldór Arnars-
son eru komnir til félagsins. Þá
munu þeir Viktor Bjarki Arnars-
son, Haukur Baldvinsson og Helgi
Sigurðsson leika með þeim bláu
í sumar. Öflugir leikmenn eru þó
einnig farnir frá liðinu. Má þar
nefna Ásgeir Gunnar Ásgeirsson,
sem hætti í knattspyrnu eftir síð-
asta sumar, Kristján Hauksson,
sem fór í Fylki, og Sam Tillen, sem
fór í FH.
Setur pressu á Víkinga
Þorvaldur vill lítið tjá sig um hvort
leikmannahópur liðsins sé sterkari í
ár en í fyrra. „Ég tel að hann sé safn
af góðum leikmönnum. Ef einstak-
lingarnir ná að standa sig vel í sum-
ar er það væntanlega vísir að góð-
um árangri.“ Sérfræðingar DV spá
því að Fram-liðið verði í basli í sum-
ar og endi í 9. sæti. Þorvaldur segir
þó að lítill munur sé á styrkleika
margra liða í deildinni og því geti
allt gerst. Fyrsti leikur Fram er gegn
Víkingi Ólafsvík í Ólafsvík og býst
Þorvaldur við erfiðum leik. „Það er
mikil stemning í þeirra heimabyggð
og lið sem koma upp geta oft haft
áhrif á gang mála, sérstaklega í byrj-
un móts. Að sama skapi er pressa á
þeim eins og öðrum,“ segir hann.
Leikmenn í fínu standi
Aðspurður hvaða lið verði í barátt-
unni um Íslandsmeistaratitilinn
segir Þorvaldur að brugðið geti til
beggja vona hjá mörgum liðum. „FH
fékk mikinn meðbyr í byrjun móts í
fyrra og átti skilið að vinna. Ég held
að fyrstu tveir mánuðir mótsins verði
mjög jafnir og að þeim liðnum mun-
um við sjá hvaða lið verða í barátt-
unni,“ segir hann.
Framherjinn Kristinn Ingi Hall-
dórsson þurfti að fara í aðgerð fyrir
skemmstu en er væntanlegur til
baka fljótlega. Að öðru leyti segir
Þorvaldur að leikmannahópurinn sé
í góðu standi. n
10 Pepsi-deildin 2013 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Lykilmaður
Steve Lennon
Á góðum degi er
Steve Lennon
einn besti leik-
maður deildarinn-
ar. Hann meiddist
um mitt mót í fyrra og Fram-liðið
saknaði hans. Ef hann helst heill
getur hann gert gæfumuninn fyr-
ir Fram.
Fylgstu með
Kristni Inga Halldórssyni
Þessi 24 ára fram-
herji varð næst-
markahæstur í
deildinni í fyrra.
Er að jafna sig eft-
ir aðgerð en kem-
ur vonandi sterkur til
baka.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Býst við hnífjöfnu
Íslandsmóti í sumar
n Fram heimsækir Víking Ólafsvík í fyrsta leik n Þorvaldur sáttur við hópinn„Ég held að fyrstu
tveir mánuðir
mótsins verði mjög jafnir.
Erfið byrjun Fram
heimsækir Ólafsvík
í fyrstu umferðinni.
Þorvaldur er bjart-
sýnn fyrir sumarið.
V
ið erum klárir í slaginn
og tímabilið leggst mjög
vel í mig,“ segir Zoran
Daníel Ljubicic, þjálf-
ari Keflavíkur. Keflvík-
ingar mæta til leiks með svipaðan
hóp og í fyrra þó lykilmaður síð-
ustu ára, Guðmundur Steinars-
son, hafi ákveðið að kúpla sig nið-
ur og leika með Njarðvík í annarri
deildinni. Ljóst er að hans verð-
ur sárt saknað enda reynslumesti
leikmaður liðsins og sá leikmaður
sem skorað hefur langflest mörk
undanfarin ár. Þá fór miðjumað-
urinn Hilmar Geir Eiðsson aftur
í Hauka og Jóhann Ragnar Bene-
diktsson gekk aftur í raðir Fjarða-
byggðar í vetur.
Maður í manns stað
Þó svo að sterkir leikmenn hafi
horfið á braut hafa aðrir sterk-
ir leikmenn komið í staðinn.
Varnarjaxlinn Halldór Kristinn
Halldórsson kom frá Val og bak-
vörðurinn Ray Anthony Jónsson
frá Grindavík. Þá kom Magnús
Þórir Matthíasson aftur til liðsins
frá Fylki. Þá hefur liðið fengið til
sín tvo erlenda leikmenn, Slóven-
ann Fuad Gazibegoivc og serb-
neska sóknarmanninn Marjan
Jugovic sem nokkrar vonir eru
bundnar við.
Zoran segist vera sáttur við leik-
mannahóp sinn og þrátt fyrir að
reynsluboltar hafi farið komi alltaf
maður í manns stað. „Við fáum
bara nýja menn í staðinn fyrir þá
sem fara. Ég held að við séum með
svipað sterkan hóp og í fyrra.“
Ætlar að vinna FH
Keflvíkingar enduðu í 9. sæti
deildarinnar í fyrra og spáir DV því
að liðið verði örlítið neðar, eða í
10.sætinu. Liðið muni þó sleppa við
fall. Aðspurður hvort Keflvíkingar
muni ekki eftir fremsta megni reyna
að blása á þær spár segir Zoran: „Ég
velti þessum spám ekki mikið fyr-
ir mér. Okkur hefur verið spáð basli
á undanförnum árum. Okkar hlut-
verk er að afsanna þetta og reyna
að standa okkur á vellinum þar sem
við getum látið verkin tala. Markmið
okkar er að gera betur en í fyrra,“
segir Zoran ákveðinn. Í Keflavíkur-
liðinu eru ungir og efnilegir leik-
menn í bland við reynda leikmenn
og segir Zoran að stemningin í
hópnum sé góð. Keflvíkingar hefðu
vart getað hugsað sér erfiðari byrj-
un á Íslandsmótinu en þeir mæta
FH í Kaplakrika í fyrsta leik á sunnu-
dag og KR-ingum á heimavelli þann
12. maí. Zoran er þó hvergi banginn.
„Við verðum að spila alla þessa leiki
og það er vissulega áskorun fyrir
okkur að mæta Íslandsmeisturun-
um í fyrstu umferð. Við ætlum bara
að vinna þann leik enda erum við í
þessu til að vinna.“ n
Lykilmaður
Haraldur Freyr
Guðmundsson
Haraldur er
feykilega öflugur
og reynslu mikill
varnarmaður.
Keflavíkurliðið
má illa án hans vera enda einn
mikil vægasti hlekkur liðsins.
Fylgstu með
Arnóri Ingva Traustasyni
Arnór er gríðarlega
efnilegur miðju-
maður sem gæti
náð langt. Sýndi
flotta takta með
Keflavík í fyrrasum-
ar og sumarið 2011
og gæti sprungið endanlega út í
sumar.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Erum í þessu til að vinna“
n Zoran ætlar að vinna FH í fyrsta leik n Góð blanda yngri og eldri leikmanna
„Markmið okk-
ar er að gera
betur en í fyrra.
Góð blanda Það velkist enginn
í vafa um að í Keflavíkurliðinu
eru góðir leikmenn. Þar eru
reynslumiklir leikmenn í bland við
unga og efnilega. Mynd KnattSpyrnudEiLd
KEFLaVíKur
9. sæti
10. sæti