Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Qupperneq 46
34 Menning 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Úr reggí í blús
Í
blús er fjórða hljóðversplata tón-
listarmannsins og hjartalækn-
isins Helga Júlíusar Óskarsson-
ar og kom út fyrr á árinu. Lög
Helga Júlíusar hafa verið áberandi
í útvarpi síðastliðið ár en þá sér-
staklega lögin Þú ert mín, Stöndum
saman og Kominn heim sem Valdi-
mar Guðmundsson söng á síðustu
plötu Helga Júlíusar, Kominn heim.
Þar fékkst Helgi Júlíus við
reggítónlist en á þessari plötu er
blúsinn allsráðandi líkt og nafn
hennar gefur til kynna. Þó svo
að Helgi hafi yfirgefið reggíið á
þessari plötu þá hefur hann ekki
yfirgefið þá stefnu að yrkja texta
sem berja baráttuandann í ís-
lensku þjóðina. Í laginu Stöndum
saman sem var á síðustu plötu
Helga, hvatti hann þjóðina til upp-
byggingar eftir efnahagshrunið
og er hið sama uppi á teningn-
um í laginu Viltu með sem Elvar
Örn Friðriksson syngur afar vel.
Elvar Örn á líka frábæra innkomu
í laginu Völuspá, en textann yrkir
Sigurður Albertsson, þar sem kall-
að er eftir því að ekki verði gengið
frekar á náttúru Íslands í nafni hag-
vaxtar. Fram bærilegt lag sem verður
eflaust spilað eftir marga fréttatím-
ana á þessu kjörtímabili.
Við hlustun á plötuna var þó
eins og tíminn stæði í stað þegar
kom að fjórða laginu sem nefnist
Draumavon. Lagið syngur Sigríður
Thorlacius eins og engill og lyftir
því upp á hærra plan, gerir gott lag
að frábæru.
Þá er ekki hægt að fjalla um
þessa plötu án þess að minnast á
hljóðfæraleikinn í laginu Áin. Gítar-
leikur Ómars Guðjónssonar og pí-
anóleikur Tómasar Jónssonar eru til
eftirbreytni í þessu lagi sem hljóm-
ar eins og það sé flutt á sveittri krá
löngu eftir lokun en besti vinur allra
Íslendinga, Kristján Kristjánsson,
betur þekktur sem KK, syngur það
afar vel eins og hans er von og vísa.
Eins áberandi og Valdimar Guð-
mundsson var á síðustu plötu Helga
Júlíusar þá syngur hann aðeins eitt
lag á þessari. Lagið heitir Æviskeið
og er alfarið eftir Helga Júlíus en
lagið er eitt það allra besta á þessari
plötu og skemmir tregafullur söng-
ur Valdimars ekki fyrir. Helgi Júlíus
gerir nefnilega afar vel í því að fá til
liðs við sig hæfileikaríka söngvara
sem syngja lög hans og lyfta þessari
plötu verulega upp yfir meðal-
mennskuna. Hljóðfæraleikurinn og
útsetningarnar eru til fyrirmyndar
sem gerir plötuna fjölbreytilega og
áheyrilega. Aðdáendur fyrri verka
Helga Júlíusar ættu alla vega ekki að
verða sviknir af þessari. n
Aukatónleikar
með Kraftwerk
Hljómsveitin Kraftwerk hefur
bætt við tónleikum í Hörpu sem
verða haldnir mánudaginn 4.
nóvember. Hljómsveitin átti
að halda lokatónleika Iceland
Airwaves-tónleikahátíðarinn-
ar og var gestum lofað stór-
kostlegri þrívíddarupplifun og
blöndu sjónarspils og tónlistar.
Vegna mikillar eftirspurnar hef-
ur nú verið bætt við tónleikum
og hefst miðasala á þá í hádeg-
inu á mánudaginn.
Fórn keppir
til verðlauna
Stuttmyndin Fórn eftir Jakob
Halldórsson hefur verið valin
til að keppa á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Seattle í
Bandaríkjunum – Seattle
International Film Festival. Há-
tíðin er ein sú stærsta sinnar
tegundar í Bandaríkjunum. Þær
myndir sem sigra á hátíðinni
koma til greina þegar valdar eru
tilnefningar til Óskarsverðlaun-
anna frægu. Leikarar myndar-
innar eru Björn Hlynur Haralds-
son, Víkingur Kristjánsson og
Þorbjörg Þorgilsdóttir.
Ný bók
eftir Dag
Bókaforlagið Bjartur hefur gef-
ið út nýtt smásagnasafn eftir
Dag Hjartarson. Bókin nefnist
Eldhafið yfir okkur. Dagur hlaut
Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar haustið 2012
fyrir ljóðabókina Þar sem
vindarnir hvílast – og fleiri ein-
læg ljóð, en það var frumraun
Dags. Bókin verður aðeins gef-
in út í rafrænu formi og segir í
tilkynningu frá Bjarti að ekki sé
um að ræða mótmæli við prent-
ara eða sparnaðaraðgerð – held-
ur sé um tilraun með nýtt út-
gáfuform að ræða.
S
ýningin Langa andartakið
– ljósmyndasýning með
verkum Söruh Cooper og
Ninu Gorfer –er sú allra
umfangsmesta sem Nor-
ræna húsið hefur ráðist í.
Vegna sýningarinnar hefur rými
á neðstu hæð hússins verið gjör-
breytt. Salirnir málaðir dimmrauð-
ir, gólfin teppalögð og veggir og
skilrúm sett upp til að þjóna sýn-
ingunni. Þá er í fyrsta sinn boðið
upp á hljóðleiðsögn um sýninguna.
Hverri mynd á sýningunni fylgir
saga. Á sögurnar er hægt að hlýða í
sérstökum heyrnartólum sem eru í
sýningarsalnum.
Umgjörðin er hin prýðilegasta
og rýmið í kjallara Norræna hússins
verður að gulli. Þær Sarah og Nina
hafa sýnt myndir sínar víða og eru
orðnar reyndar í sýningarhaldi.
Sýningin í Norræna húsinu er eins
konar yfirlitssýning verka þeirra í
samstarfi við Dunkers Kulturhus í
Helsingjaborg og Hasselblad-stofn-
unina í Gautaborg. Umfjöllunar-
efni sýningarinnar eru sameiginleg
minni og þjóðsögur þriggja landa.
Íslands, Katar og Kirgisistan.
Ferðalagið hófst á Íslandi
Þær Nina og Sarah ferðast til fram-
andi og fjarlægra staða. Þar leita
þær uppi áhugavert fólk og sög-
ur þeirra. Söguna segja þær svo í
uppstilltum ljósmyndum þar sem
þær vísa í ævintýri og goðsagnir.
Þær vinna jafnan mjög náið með
því fólki sem þær mynda og náin
kynnin eru auðsæ. Myndirnar
eru persónulegar, mikið unnar og
hlaðnar tilvísunum.
Það er viðeigandi að halda yfir-
litssýningu á verkum þeirra á Ís-
landi, því þótt myndir þeirra hafi
verið sýndar víða um heim þá
hófust ferðalög Söruh og Ninu um
heiminn á Íslandi. Hingað komu
þær árið 2003 og hrifust af landi
og þjóð. Þær kynntu sér þjóðsögur,
draugagang og kynntust nokkrum
Íslendingum sem þær gerðu skil í
ljósmyndabók sem fékk virt lista-
bókaverðlaun í Svíþjóð árið 2005.
Þennan hluta sýningarinnar
kalla þær Snjóhúsið. Þar má með-
al annars sjá sjálfsmyndir af þeim
stöllum þar sem þær eru afmynd-
aðar. Þær lentu í lífshættu á Íslandi.
Veltu bílnum á ferðalagi í kafalds-
byl og myndirnar eru uppgjör við
líðan þeirra á þessum tíma.
Í kjölfarið ferðuðust Nina og
Sarah til Katar og Kirgisistan og
myndirnar lýsa samskiptum þeirra
við fólk og gera sögum þess skil.
Hreyfingar túlka tilfinningar
Í myndum þeirra frá Katar nota
þær hreyfingar til að túlka tilfinn-
ingar. Konurnar sem eru klæddar
í hefðbundnar búrkur hreyfa sig
til að túlka líðan sína. Þannig fást
áhrifamiklar myndir sem tjá tor-
rætt líf þeirra kvenna sem búa í
Katar. Áhrifamiklar myndir, en
hreyfingarnar gefa jafnvel meira til
kynna en andlitstjáningin gerði ef
andlit þeirra fengju að sjást.
Sorgmædd Shola
Enn kraftmeiri eru myndirnar af
Sholu frá Kirgisistan. Konu sem
skildi við ofbeldismann og er eftir
það sett skörinni lægra en aðrir í
samfélaginu. Saga Sholu verður
enn magnaðri þegar í ljós kemur
að hún er enn ástfangin af ofbeldis-
manninum, fyrrverandi eigin-
manni sínum, og hversu mjög hún
saknar dóttur sinnar sem hún fær
ekki lengur að sjá. Dóttirin er í um-
sjá föður síns, ofbeldismanns síns,
enda orðin 12 ára og stendur til að
gifta hana.
Sonur Sholu, Islam, nokkurra
ára gamall, er með í nokkrum
myndum og reiði hans er vel grein-
anleg meðan ásjóna Sholu lýsir
tærri sorg.
Falleg nánd
Nándin sem þær Nina og Sarah
ná fram í efnistökum sínum er
kynngi mögnuð. Þær bíða ekki
eftir rétta andartakinu. Þær leita
þess og hlúa að því. Af ástríðu.
Þaðan kemur nafn sýningarinnar;
Langa andartakið. Fallegt og tært.
Sýning þessi er sú albesta sem sett
hefur verið upp í Norræna húsinu.
Að sýningunni hefur verið hlúð
í anda listamannanna. Það má
mæla með þessari sýningu fyrir
alla þá sem hafa áhuga á sögum,
litrófi mannslífsins, glímu gamalla
hefða og samtímans og fegurðinni
sem glæðir lífið sorg jafnt sem
gleði. n
Kynngimögnuð sýning
Listakonur Nina Gorfer
og Sarah Cooper ferðast
um heiminn og safna
sögum.
Myndlist
The Long Moment
Ljósmyndasýning Söruh Cooper og Ninu Gorfer
Norræna húsið
9. mars–17. júní
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Lentu í lífshættu á Íslandi Þær Nina og
Sarah sýna myndir frá Íslandi. Þessi mynd
er uppgjör við líðan annarrar listakonunnar
eftir bílslys sem þær lentu í hér á landi.
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Tónlist
Í blús
Helgi Júlíus
Útgefandi: Cortone ehf.