Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 48
36 Lífsstíll 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Naglalakk til margra nota
N
aglalakk er hægt að nota
á fleiri vegu en til að lakka
neglurnar en dæmi um það er
að naglalakk virkar ágætlega
sem lím. Það er því ekki nauðsyn-
legt að henda naglakksglasi sem er
að verða tómt því það gæti komið að
góðum notum. Athugaðu hvort þú
getir ekki notað afganginn í eftirfar-
andi:
Þegar erfitt
er að þræða
nálina
Þá er er gott
ráð að setja ör-
lítið af naglalakki
á endann á þræðin-
um. Ekki of mikið en nóg til að þráð-
urinn verður stífur og þá verður það
leikur einn að koma honum í gegn-
um þröngt nálaraugað.
Þegar lykkjufall
kemur á sokka-
buxurnar
Flestar konur
kannast við þetta
vandamál. Þegar
það kemur lykkju-
fall er hægt að stoppa það með því
að setja eina stroku af naglalakki við
enda þess. Það er því góð hugmynd
að hafa alltaf naglalakk í veskinu
jafnvel þótt þú ætlir þér ekki að lakka
á þér neglurnar.
Þegar skóreimar byrja að trosna
Við þessar aðstæður er alltaf gott að
hafa naglalakk við höndina. Það er
erfitt að koma trosnaðri reim í gegn-
um gatið og því ráð að setja lakk á
endann og málið er leyst.
Þegar þú þekkir ekki
lyklana í sundur
Ef þú ert með marga
eins lykla á kippunni
getur verið pirrandi að
þekkja þá ekki í sundur.
Gott ráð er að merkja þá
með naglalakki í mismun-
andi litum.
Þegar umslagið vill ekki lokast
Stundum virkar límið á umslaginu
illa eða alls ekki. Það er óþarfi að
henda því þar sem hægt er að loka
því almennilega með naglalakki. n
n Það er óþarfi að henda hálftómum glösum
Toppaðu þig
Þungir toppar hafa verið heitir
á síðustu mánuðum og er ekk-
ert lát á vinsældunum. Mörgum
konum reynist hins vegar erfitt
að ná flottu „lúkki“ á toppinn.
Hér eru einföld ráð til þess að
ná fullkomnu útliti hvort sem
um er að ræða hliðartopp eða
þungan þvertopp.
Þvertoppur
Það er best að hafa hann rakan
og það er nauðsynlegt að blása
hann helst með breiðum hring-
bursta til þess að náttúrulegu
sveipirnir taki ekki yfir. Blástu
toppinn ýmist til hliðar og beint
niður, en þannig nærðu flottri
áferð. Að lokum rennir þú létt
yfir með sléttujárni og spreiar
örlitlu hárlakki yfir. Ekki slétta
hann um of, þá
verður hann of
flatur.
Hliðartoppar
Sama regla
gildir hér,
smá raki áður
en hann er blás-
inn. Leyndarmálið að flottum
hliðartoppi er að blása hann í
öfuga átt við hvernig þú vilt að
hann liggi. Með því móti kem-
ur þú í veg fyrir að toppurinn
liggi flatur til hliðar og nærð fal-
legri sveigju sem gerir hann afar
smart.
Það leynist margt
í burstanum
Það leynist fleira en hár í hárburst-
anum. Ryk, bakteríur og rykmaur-
ar geta lent í hári þínu ef þú þrífur
ekki burstann reglulega. Svona
þrífur þú hárburstann þinn einu
sinni í viku.
Notaðu pinnagreiðu til að
hreinsa hár úr burstanum. Settu
heitt vatn í vaskinn ásamt góðri
sápu og láttu burstann liggja í
vatninu í smá stund. Skolaðu
hann með heitu vatni á eftir. Það
er líka gott að nota spritt sem er
ætlað fyrir handaþvott og úða
örlitlu á burstann eftir hreinsun.
Nú ætti burstinn að vera sem nýr.
Nú er það hvítt
n Hvítt með hvítu er leyfilegt
H
vítur er nýi „svarti“ liturinn
í sumar. Hvort sem það eru
skór, jakkar, kjólar, toppar eða
veski, þá mun hvíti liturinn
ráða ríkjum í tískunni á kom-
andi mánuðum. Hvítt frá toppi til táar
er málið núna. Hönnuðir eins og Al-
exander Wang og Stella McCartney
eru með áberandi mikið af hvítum flík-
um í sumarlínu sinni fyrir árið 2013.
Tískuspekúlantar segja að allar
konur sem vilja tolla í tískunni, eigi
að hafa einn hvítan bleiserjakka í fata-
skápnum sínum um þessar mundir.
Gallabuxur og hvítur bleiser standa
alltaf fyrir sínu. Hér í myndasafni má
sjá það heitasta í hvítu tískunni um
þessar mundir. n
iris@dv.is
Dragt Kvenlegt og
afar smart að klæð-
ast hvítri dragt.
Sumarlegur
kjóll Dásam-
lega fallegt.
Fylgihlutir Hvít
taska og fylgi-
hlutir – töff.
Herrar Strák-
arnir eiga ekki
að vera feimnir
við að bera
hvíta litinn.
Skór Frá
toppi til
táar.
Bleiser Allar
konur ættu að
eignast eitt
stykki hvítan
bleiserjakka
fyrir sumarið.
Alexander
Wang
Tískurisar elska
allt sem er hvítt.
Gott ráð við
slæmri húð
Það er óþarfi að borga fyrir húð-
hreinsun þegar hægt er að sjá um
hana heima hjá sér.
Gufa er góð leið til að hreinsa
húðina. Fylltu stóra skál af sjóð-
andi vatni og láttu standa í nokkr-
ar mínútur. Settu 2 til 3 dropa af
lavenderolíu út í.
Haltu andlitinu yfir skálinni í 5 til
10 mínútur en mundu að leggja
handklæði yfir höfuðið.