Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Síða 58
46 Fólk 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Ashton Kutcher
í slagsmálum
n Slóst við öryggisvörð á tónlistarhátíð
L
eikarinn Ashton Kutcher
lenti í slag á kántrítónlistar
hátíð um síðustu helgi en
sagt er frá þessu á vefsíðu
Huffington Post.
Á laugardagskvöldið ku
Kutcher að hafa verið á VIPsvæði
Stagecoach tónlistarhátíðarinnar
í Kaliforníu þegar ung stúlka vék
sér að honum til að heilsa. Þegar
hann ætlaði að taka í hönd henn
ar skarst öryggisvörður í leikinn
og ýtti við bæði leikaranum
heimsfræga og aðdáandanum.
Við þetta braust út slagur á milli
Kutcher og öryggisvarðarins sem
endaði með því að vinir Kutcher
drógu hann í burtu og þeir yfir
gáfu svo svæðið. Sjónarvottur
sagði við TMZ að öryggisvörð
urinn hafi átt sökina á þessum
stimpingum.
Ekki hafði náðst í talsmann
leikarans en Kutcher virtist ekki
hafa látið uppákomuna skemma
fyrir sér tónlistarhátíðina því
hann setti myndir af sér á hátíð
inni á Twittersíðu sína.
Ashton Kutcher
Lét slagsmál ekki
eyðileggja fyrir sér
tónlistarhátíðina.
n Michael Jackson fékk fullt forræði yfir börnum sínum
Eyðir tíma með móður sinni
P
aris Jackson, dóttir Michael
Jackson og fyrrverandi eig-
inkonu hans, Debbi Rowe,
hefur tekið upp samband
við móður sína en þær hafa lítið
hist síðan Jackson fékk fullt for-
ræði yfir börnum þeirra tveimur
árið 2001.
Þær hafa nú sést saman í nokk-
ur skipti og meðal annars um síð-
ustu helgi þegar þær borðuðu
saman hádegismat í Kaliforníu.
Rowe og Jackson kynntust þegar
hann gekkst undir meðferð við
húðsjúkdómi sem var sagður
vera ástæða fyrir ljósri húð hins
þeldökka söngvara. Þau voru gift á
árunum 1996 til 1999 en við skiln-
aðinn fékk Michael fullt forræði.
Þau tóku svo skrefið enn lengra
árið 2001 þegar Debbie afsalaði
sér öllum réttindum sem móðir
barnanna.
Eftir dauða Jackson náði hún
samkomulagi við móður hans,
sem fékk forræði yfir börnunum,
um að hún mætti hitta þau undir
eftirliti.
Mæðgurnar ná greinilega vel
saman en sonurinn Prince er ekki
tilbúinn til að vera í sambandi við
móður sína strax. Debbie hefur þó
sagt að hún vonist til að þau geti
náð saman eins og þær mæðgur
hafa gert.
Paris Jackson
Dóttir söngvarans
er 15 ára í dag.
Þ
að er ekki oft sem leikkonur
fá skipun um að bæta á sig
nokkrum kílóum fyrir hlut
verk. Isla Fisher sem leikur
Myrtle í The Great Gatsby
varð að bæta á sig tæpum fimm kíló
um til að fá hreppa hlutverkið. Hún
var með barn á brjósti þegar henni
bauðst hlutverkið og afar grönn.
Framleiðendur myndarinnar sögðu
henni að þyngjast um tæp fimm
kíló og það gerði hún með bros á
vör. Segist hafa notið þess að borða
bollakökur í nokkrar vikur til að
þyngjast.
K
evin Spacey vekur mikla
aðdáun fyrir sterkan leik
í sjónvarpsþáttaröðinni
House of Cards. Þar leik
ur hann Frank Underwood,
óvæginn stjórnmálamann sem stefn
ir til hæstu metorða með miklum til
kostnaði.
Innsýn í líf stjórnmálamanna
Kevin hefur átt langan og farsælan
feril sem leikari, leikstjóri, handrits
höfundur og framleiðandi og snýr nú
sterkur til leiks á skjáinn.
Kevin ólst upp í Kaliforníu og
hóf feril sinn á sjöunda áratugnum.
Hann er 53 ára og þekktur fyrir sér
visku sína. Hann er pólitískur og
ákafur stuðningsmaður demókrata
og í hlutverki sínu sem spilltur
stjórnmálamaður í leit að hefnd nýtir
hann innsýn sína í þá veröld.
Hann og Bill Clinton eru kunn
ingjar og ef til vill hafa kynnin veitt
honum skemmtilega innsýn í skrif
stofupólitík bandarísks þingmanns.
Ódæll í æsku
Bakgrunnur Kevins er athyglisverður.
Í uppvextinum þótti hann ódæll og
eftir að hann kveikti í tréhúsi litlu
systur sinnar þótti foreldrum ráð að
senda hann í herskóla.
Sú skólaganga varð endaslepp en
hann var rekinn fyrir árás á skóla
félaga sinn – eftir að hafa hent í hann
bíldekki, nánar tiltekið.
Náðargáfa Kevins
Kevin hefur róast með árunum og
í seinni tíð hefur hann helst verið í
brennidepli slúðurmiðlanna sökum
sérvisku sinnar. Hann sést sjaldan í
viðurvist kvenmanns og það hefur
komið af stað orðrómi um samkyn
hneigð. Þá hafa samstarfsmenn hans
kvartað undan tiktúrum hans. Honum
finnst óþægilegt að láta snerta sig og
er fremur einrænn í háttum.
Flestir eru þó sammála um af
burðahæfileika Kevins Spacey og
sumir tala um náðargáfu. Hann hefur
enda uppskorið vel. Vann til Óskars
verðlauna fyrir frammistöðu sína
í The Usual Suspects og American
Beauty, en fyrir það hlutverk hlaut
hann einnig BAFTAverðlaun. Þá var
hann tilnefndur til Golden Globe
verðlauna fyrir hlutverk sitt í Casino
Jack.
n Kevin Spacey er góðkunningi Bill Clinton n Kveikti í tréhúsi
systur sinnar n Þykir einrænn og sérvitur
Kevin slær í
gegn á skjánum
Fitaði sig fyrir hlutverk
Kevin Spacey
Leikarinn góðkunni
þykir sérvitur.
Isla Fisher Hún át
bollakökur, með bros
á vör, til að þyngjast.