Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Page 60
48 Fólk 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
3.–5. maí
Föstudagur03
maí
Laugardagur04
maí
Sunnudagur05
maí
Skálmöld á Akureyri
Tónlist Skálmaldar hefur verið kennd
við víkinga og er það engin furða. Textar
sveitarinnar, sem allir fylgja fornum ís-
lenskum bragarháttum, eru í víkingastíl,
yrkisefnið bardagar og goðafræði, og
andrúmsloftið rammíslenskt. Tónleikar
Skálmaldar eru kafli út af fyrir sig. Þar
nýtur sveitin sín best og hrífur áhorfendur
með sér með frumkrafti og spilagleði.
Þessi upplifun verður þó alls ekki útskýrð
að fullu með orðum og sjón sögu ríkari.
Græni Hatturinn Akureyri 22.00
Buldi við brestur og
brotnaði þekjan!
60 manna Karlakór Kópavogs flytur brot
af því besta af íslenskum karlakórslög-
um, þjóðlögum og öðrum hljómfögrum
perlum í útsetningu fyrir karlakór. Stjórn-
andi er Garðar Cortes en undirleikari
Hólmfríður Sigurðardóttir.
Salurinn Kópavogi 16.00
Hvörf
Nýtt sviðslistarverk frá
Lab Loka sem byggir
hugarheim sinn á
svokölluðu Guðmund-
ar- og Geirfinnsmáli.
Hvörf er ferðalag um
völundarhús sálar og
samfélags. Hér er annars vegar um að
ræða hreinan sviðsskáldskap en hins
vegar sækir verkið allan sinn innblástur
og orðræðu í blákaldan raunveruleikann,
Guðmundar- og Geirfinnsmál sem skók
íslenskt samfélag á árunum 1974–1980.
Sá dómur er Hæstiréttur felldi þá hefur
síðan legið eins og mara yfir þjóðinni.
Þjóðleikhúsið 19.00
Walking Mad
Íslenski dansflokkurinn sýnir gamansamt
verk sem fléttar saman húmor, galsa og
geðveiki. Johan Inger hafði orðatiltæki
Sókratesar „okkur hlotnast mestu gæði
gegnum brjálæði, ef það er guðsgjöf“
að leiðarljósi þegar hann samdi verkið.
Walking Mad krefst mikils af dönsur-
unum þar sem þeir þurfa að fylgja stig-
magnandi takti tónverksins Boléro eftir
Maurice Ravel en samtímis tjá þær miklu
tilfinningar sem fylgja verkinu.
Borgarleikhúsið 20.00
Vortónleikar
Lúðrasveitar
Reykjavíkur
Á þessum
vortónleikum
Lúðra sveitar
Reykjavíkur verð-
ur leikin kvikmyndatónlist fyrir alla
aldurshópa. Á efnisskránni verður tónlist
úr kvikmyndum á borð við Star Wars,
Spiderman, The Incredibles, Hercules,
Indiana Jones og James Bond, svo eitt-
hvað sé nefnt. Stjórnandi Lúðrasveitar
Reykjavíkur er Lárus Halldór Grímsson.
Kaldalón Hörpu 17.00
S
igrún Magnúsdóttir er
flott í tauinu hvar sem hún
fer og fyrirmynd margra
kvenna hvað varðar klæða-
burð. Stílistinn er eigin-
maður hennar, fyrrverandi þing-
maður og ráðherra Páll Pétursson.
Sigrún er aldursforseti nýkjörins
þings og ætlaði að fara að hægja á
og var búin að viða að sér efni í tvær
bækur sem hún hugðist skrifa. Hún
átti sér þann draum að verða vara-
þingmaður og fá að setjast á þing
einhvern tímann á kjörtímabilinu
en endaði sem kjördæmakjörinn
þingmaður. Hún hefur ekki áhuga
á að verða ráðherra en vill gjarnan
stýra einhverri af nefndum þings-
ins.
„Ég keypti mér helgan stein
þegar ég varð 67 ára en mér dettur
ekki í hug að setjast í hann. Á mín-
um aldri hella margir sér út í golf,
aðrir sinna sjálfboðastörfum, ég
er í pólitík. Hún er mitt áhuga-
mál og allt sem tengist henni. Það
þykir kannski dálítið hörð lína
að eiga áhugamál af þessu tagi á
gamalsaldri en það verður hver
að velja sér tómstundaiðju við
hæfi ef það er hægt að kalla póli-
tík því nafni,“ segir Sigrún Magn-
úsdóttir, nýkjörinn þingmaður, og
skellihlær. Þessi kona sem margir
héldu fyrir nokkrum misserum að
væri að draga sig út úr þjóðmála-
umræðunni er hláturmild baráttu-
kona.
Hún á óvenjufjölbreyttan
lífsferil að baki. Hún var kaup-
maðurinn á horninu í mörg ár,
sat í borgarstjórn Reykjavíkur fyr-
ir Framsóknarflokkinn, var vara-
þingmaður 1980 til 1982. Sigrún
tók þátt í stofnun R-listans og sat
í borgarstjórn fyrir hann í átta ár,
fór í háskólanám þegar hún hætti
í borgarstjórn og lauk prófi sem
þjóðfræðingur, með borgarfræði
sem aukagrein. Að námi loknu
stofnaði hún Sjóminjasafn Reykja-
víkur sem hún stýrði í nokkur ár
og er nú að setjast á Alþingi Ís-
lendinga. Sigrún verður aldurs-
forseti þingsins, tæplega 69 ára að
aldri.
Meðfram störfum sínum hef-
ur hún lokið námskeiðum við
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla Íslands meðal annars í skap-
andi skrifum. Sigrún er tvígift, fyrri
maður hennar var Kári Einars-
son verkfræðingur. Seinni maður
hennar er Páll Pétursson, fyrrver-
andi ráðherra og þingmaður Fram-
sóknarflokksins. Hún á tvær dætur
og þrjú barnabörn, Páll á þrjú börn
og fjórtán barnabörn. Fjölskyldan
er því orðin allstór.
Náttúran hvarf ekki
Það hefur ekki borið mikið á Sig-
rúnu í fjölmiðlum síðustu misseri.
Þrátt fyrir það hefur hún verið virk
í flokksstarfi Framsóknarflokks-
ins og var formaður Félags fram-
sóknarmanna. „Náttúran hvarf
aldrei eða virknin,“ segir hún. „Þess
vegna var ég ofarlega í huga félaga
minna þegar kom að því að velja á
lista í haust. Ég get hins vegar viður-
kennt að að ég hló að formannin-
um þegar hann hafði samband við
mig og bað mig um að taka annað
sætið í Reykjavík norður. Svo sló ég
til. Ég hélt að ég yrði varaþingmað-
ur á kjörtímabilinu og til þess lang-
aði mig.
Ég sat á Alþingi sem varaþing-
maður 1980 og aftur 1982 og átti þá
ósk að fá að setjast aftur á þing. Það
verður hins vegar að hafa í huga að
það getur enginn farið í framboð
nema eiga trausta félaga og gott
bakland. Ég fór fram til að berjast
með félögum mínum og til þess að
verða varaþingmaður og fá í kjöl-
farið að setjast einhvern tímann
aftur á þing. Það var ásetningur-
inn. En það er ótrúlega upplífgandi
að fá að taka þátt í svona ævintýra-
för. Ég hef alltaf sagt að kosninga-
barátta sé það skemmtilegasta það
sem hægt er að taka þátt í.“
Vill ekki verða ráðherra
Sigrún segist hafa vitað að allt gæti
gerst þegar kom á daginn að kjör-
dagur yrði 27. apríl. „Þversumman
af 27 er 9 sem er samkvæmt þjóð-
færðinni mögnuð tala,“ segir hún.
Frá því hún sat á þingi síðast eru
liðin rúm 30 ár og þingstörf hafa
breyst á þeim tíma. Virðing þings-
ins er ekki sú sama og áður og um-
ræðuhefðin hefur breyst. Sigrún er
hins vegar hvergi bangin. „Ef manni
líkar ekki eitthvað á maður ekki að
sitja við eldhúsborðið og nöldra
heldur reyna að breyta hlutun-
um. Sama hvort maður er tvítugur
eða sjötugur.“ Þegar hún er spurð
hvort hún vilji verða ráðherra svar-
ar hún neitandi. „Mig langar ekki í
ráðherraembætti. Það á að velja til
að gegna ráðherraembættum fólk
sem ætlar að sitja lengur á þingi en
eitt kjörtímabil.“
Hins vegar er hún alveg til í að
taka að sér formennsku í einhverri
af fastanefndum þingsins. „Ég get
verið stjórnsöm, ég ætla ekkert
að draga fjöður yfir það.“ Marg-
þætt reynsla hennar úr borgar-
stjórn kemur án efa að góðum not-
um á þingi. Hún stýrði Fræðsluráði
borgarinnar á miklum umbrota-
tímum, þegar verið var að einsetja
grunnskóla borgarinnar. Hún var
formaður borgarstjórnarhóps R-
listans og í nokkur ár kosinn for-
maður borgarráðs. „Við segjum oft
sem höfum setið í borgarstjórn að
það sé mesta vandaverkið. Ég hef
lengst af sem stjórnmála maður
starfað að sveitarstjórnarmálefn-
um og hef reynslu af því að vinna
bæði í meirihluta og minnihluta.
Ég sat líka í stjórn Sambands ís-
n Sigrún stefndi á varaþingmennsku en endaði á þingi n Páll velur fötin á hana n Hefur ótrúlega næmt auga fyrir klæðaburði kvenna
Eiginmaðurinn Er stílistinn
„Ólíkt líf-
legra að
sitja á þingi en ein
við skriftir
„Hló að for-
manninum
þegar hann bauð
mér annað sætið.
Stefnir ekki á ráð-
herraembætti
„Ég stefni ekki á
ráðherraembætti en
gæti vel hugsað mér
að gegna formennsku
í nefnd.“
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
blaðamaður skrifar johanna@dv.is
E
milíana Torrini er flutt til Ís-
lands með kærasta sínum og
tveggja ára syni þeirra.
Kærastinn hefur fengið
starf hjá stoðtækjaframleið-
andanum Össuri hf. og starfar að þró-
un lausna hjá fyrirtækinu. Emilíana
átti íbúð í Norðurmýrinni í Reykjavík
en nú hefur hún, eftir því sem nafn-
laus heimildarmaður DV hermir, fest
kaup á gullfallegu húsi við Elliða-
vatn. Húsið stendur rétt við Elliða-
vatn á stórri lóð og er stílhreint og
fallegt.
Hin geðþekka söngkona vinnur
að útgáfu nýrrar plötu sem kemur út
í haust. Aðdáendur bíða spenntir eftir
plötunni en sú síðasta, Me and Armini,
kom út árið 2008 og náði mikilli hylli. n
Keypti gullfallegt hús við Elliðavatn
n Emilíana festir rætur á Íslandi á ný n Ný plata væntanleg í haust
Á Íslandi á ný Emilíana gefur út nýja plötu
í haust og festir rætur á Íslandi.
Fallegt hús Emilíana flytur sig úr
Norðurmýrinni í stílhreint fallegt
hús við Elliðavatn.