Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Síða 38
Í
sland verður sífellt vinsælli
áfangastaður erlendra ferða-
manna og ferðamannaiðnað-
urinn blómstrar sem aldrei fyrr.
Yfir 600.000 ferðamenn heim-
sóttu Ísland á síðasta ári og búist er
við enn fleirum í ár. En hvað er það
helsta sem túristar gera og skoða hér
á landi?
Blaðamaður DV tók saman
nokkra áfangastaði sem fæstir ættu
að láta framhjá sér fara.
Gullfoss
Gullfoss er einn af frægustu fossum
landsins, en hann er í hinni kraft-
miklu og hvítfyssandi Hvítá í Árnes-
sýslu og fellur í tveimur þrepum nið-
ur í Hvítárgljúfur sem er um 70 metra
djúpt.
Þegar vel viðrar myndast gjarn-
an við hann fallegir regnbogar, en
talið er að fossinn dragi nafn sitt af
þeirri fögru sjón sem myndast þegar
sólin skín á hann og myndar gylltan
glampa. Fossinn þykir einstaklega
fagur og hefur verið friðlýstur frá ár-
inu 1979.
Geysir
Geysir er goshver á hverasvæðinu í
Haukadal, Árnessýslu. Hann er lík-
lega frægasti goshver í heimi og er
auk þess fyrsti goshverinn sem getið
var um í prentuðum heimildum, en
til eru rit frá árinu 1647 þar sem hann
er nefndur með nafni.
Fyrr á öldum var Geysir öflugur
goshver sem gaus oft og reglulega og
náði allt að 80 metra hæð. Eftir alda-
mótin 1900 dró hins vegar mikið úr
gosvirkninni því kólnunarflötur hans
var orðinn of stór. Í kjölfar Suður-
landsskjálftanna árið 2000 tók hann
svo aftur að gjósa en hefur lítið látið
á sér kræla undanfarin ár.
Þrátt fyrir að vera að mestu hættur
að gjósa er hverinn enn mikið að-
dráttarafl fyrir ferðamenn. Á svæðinu
eru auk hans margir aðrir hverir, svo
sem Strokkur, sem gýs á 4 til 8 mín-
útna fresti, Smiður og Litli-Strokkur.
Þingvellir
Þingvellir eru staðsettir í Bláskóga-
byggð í uppsveitum Árnessýslu og
eru, líkt og allir vita, einn mikilvæg-
asti staður í sögu lands og þjóðar.
Þarna var Alþingi stofnað árið 930
og síðan hafa margir af stærstu við-
burðum Íslandssögunnar átt sér
stað á þessu gullfallega landsvæði.
Það er því eflaust óþarfi að taka fram
mikilvægi þess að allir Íslendingar
heimsæki Þingvelli að minnsta kosti
nokkrum sinnum yfir ævina.
Þingvellir eru á bökkum Öxarár
sem rennur eftir völlunum í Þing-
vallavatn, en það er stærsta stöðu-
vatn landsins. Hægt er að ganga
niður Almannagjá og sjá þannig
glögglega flekaskilin á milli Norður-
Ameríkuflekans og Evrasíuflekans.
Eins má skoða söguleg kennileiti á
borð við Lögberg, Drekkingarhyl og
Peningagjá auk þess sem hægt er að
fara að Silfru þar sem boðið er upp á
köfun í kristaltæru vatninu. Skammt
frá Þingvallakirkju er svo Þjóðargraf-
reiturinn svokallaði, en þar eru Jónas
Hallgrímsson og Einar Benediktsson
grafnir.
Bláa lónið
Fáir sem heimsækja Ísland láta Bláa
lónið framhjá sér fara. Lónið, sem er
í grennd við Grindavík á Reykjanes-
skaga, myndaðist árið 1976 vegna af-
fallsvatns frá Hitaveitu Suðurnesja.
Árið 1981 tók fólk að baða sig í lón-
inu og sex árum síðar var opnuð bað-
stofa fyrir almenning. Jarðsjórinn í
lóninu inniheldur steinefni, kísil og
þörunga og er því einstaklega góður
við hinum ýmsu húðvandamálum,
svo sem sóríasis. Bláa lónið hf. hefur
unnið til margs konar verðlauna,
meðal annars fyrir að vera besta nátt-
úrulega heilsulind í heimi, einn af tíu
ótrúlegustu baðstöðum heims og ein
af 25 bestu heilsulindum heims.
Hvalaskoðun
Ein vinsælasta afþreying ferða-
manna á Íslandi er hvalaskoðun.
Í slíkum ferðum, sem taka yfirleitt
um þrjár til fjórar klukkustundir, er
siglt út á haf og fylgst með hvölum
í sínu náttúrulega umhverfi við Ís-
landsstrendur. Boðið er upp á hvala-
skoðun allt árið um kring og kostar
ferðin á bilinu 8 til 10 þúsund krón-
ur fyrir fullorðna en um helmingi
minna fyrir börn. Hægt er að fara í
slíkar ferðir frá Reykjavík, Húsavík
og Ólafsfirði svo eitthvað sé nefnt en
yfir vetrar tímann eru brottfararstað-
ir valdir eftir veðri og vindum sem og
hvar hvali er að finna.
Farþegar eiga möguleika á að sjá
allt að 20 tegundir hvala, svo sem
hrefnu, höfrung, hnísu og hnúfu-
bak. Tegundir á borð við háhyrning,
sandreyði og langreyði eru öllu sjald-
gæfari hér við land.
Þó svo að ekki sé tryggt að far-
þegar komi auga á einn einasta hval
eru allmiklar líkur á að skoðunin
gangi vel. Hvalaskoðunarferðir eru
mikið ævintýri og frábær afþreying
fyrir ferðamenn á öllum aldri, ís-
lenska sem erlenda.
Jökulsárlón
Jökulsárlón er stærsta jökullón Ís-
lands og jafnframt einn vinsælasti
ferðamannastaður landsins. Það
er við rætur Breiðamerkurjökuls á
Breiðamerkursandi, á milli þjóð-
garðsins í Skaftafelli og Hafnar í
Hornafirði. Lónið er dýpsta vatn
á Íslandi, en samkvæmt nýlegum
mælingum er það allt að 248 metr-
um að dýpt. Í vatninu leynist bæði
loðna og síld en bæði selir og æðar-
fuglar elta æti sitt inn á lónið og
setja skemmtilegan svip á svæðið.
Lónið er stórkostleg sjón og
himinblátt vatnið og jöklarnir
mynda sannkallaða ævintýraveröld.
Nokkrar erlendar kvikmyndir hafa
einmitt verið teknar upp vi Jökuls-
árlón, svo sem James Bond-mynd-
irnar Die Another Day og A View
to a Kill, Tomb Raider, og Batman
Begins.
Fyrirtækið IceLagoon býður upp
á siglingu um lónið til að gera upp-
lifunina enn magnaðri. n
38 Lífsstíll 28.–30. júní 2013 Helgarblað
Gengið á
Snæfellsjökul
Sunnudaginn 7. júlí verður farið
í dagsferð á Snæfellsjökul. Lagt
verður af stað frá bækistöð vél-
sleðamanna á Jökulhálsi og verður
að mestu farin sama leið og þeir
fara til að öryggi göngufólks sé
sem best tryggt.
Þegar upp er komið verður
metið hvort færi sé nógu gott til
að hægt sé að ganga upp hæsta
tindinn, Miðþúfu, og ræður þar
mestu hversu gljúpur snjórinn er.
Gengnir verða 10–12 kílómetrar
og mun gangan taka um 5–7
klukkutíma.
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðunni utivist.is.
Undraheimur
ystu stranda
Dagana 11.-14. júlí verður farin
gönguferð um Hornstrand-
ir og ber hún heitið Undraheim-
ur ystu stranda. Siglt verður frá
Bolungarvík í Lónafjörð í Jökul-
fjörðum, en það er um tveggja
tíma sigling. Í Lónafirði getur að
líta óspillta náttúru og eru hvergi
merki um mannabyggð. Komið
er í land í Miðkjósi og þaðan er
gengin 14 km leið yfir Snókaheiði
að Hornbjargsvita í Látravík.
Gangan tekur fjóra daga en gist
verður í Hornbjargsvita, þaðan
sem farið verður í náttúruskoðun,
óbyggðaupplifun og gönguferðir
um svæðið.
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðu Ferðafélags Íslands: fi.is.
Vinir Þórsmerkur
fá styrk
Á þriðjudaginn síðastliðinn hlutu
samtökin Vinir Þórsmerkur styrk
úr Samfélagssjóði Landsbankans
til uppbyggingar og verndunar
á náttúrunni í Þórsmörk. Styrk-
urinn hljóðar upp á 500.000 krón-
ur og verður nýttur til að viðhalda
gönguleiðum á brattlendi í
Þórsmörk og Goðalandi, en það
mun bæði vernda gróður og koma
í veg fyrir jarðvegsskemmdir.
Vinir Þórsmerkur hafa, í sam-
vinnu við Skógræktina, farið
fremstir í flokki við viðhald á stíg-
um á Þórsmerkursvæðinu undan-
farin ár, sem er einn fegursti stað-
ur landsins og afar vinsæll meðal
ferðamanna.
Upplifðu Ísland
eins og túristi
n Þetta eru vinsælustu áfangastaðir ferðamanna á landinu
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Öflugur Gullfoss
þykir einn fallegasti
foss landsins.
Í fullri reisn Geysir
hefur lítið látið á sér
kræla undanfarin ár.
Bláa lónið Þykir ein
besta heilsulind í heimi.
Fallegt Þónokkrar
kvikmyndir hafa
verið teknar upp vi
Jökulsárlón.