Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 9
Helgarblað 31. janúar 2014 Fréttir 9
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH)
boða til kynningarfundar vegna vinnu við verk efni 2.1 til 2.3 í samningi SSH við
ríkið um Sóknar áætlun höfuðborgar svæðis ins. Fundurinn verð ur haldinn
í Kaldalóni Hörpu, miðvikudaginn 5. febrúar kl. 8.30.
Kynntar verða niður stöður rannsókna og kannana sem hafa verið unnar
í tengslum við verkefnin.
Boðið verður upp á kaffiveitingar við komu.
MARKAÐSSETNING
HÖFUÐBORGAR SVÆÐISINS
Á ERLENDUM MÖRKUÐUM
UNDIR VÖRUMERKINU REYKJAVÍK
8.30 Húsið opnar - kaffiveitingar.
9.00 Gestir boðnir velkomnir, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs.
9.05 Upprifjun og kynning á verkefninu, þátttakendum og afurðum,
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
9.15 Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður fjárfestingasviðs Íslandsstofu, kynnir helstu niðurstöður
um stöðu svæðisins í fjárfestingatækifærum.
9.45 Rögnvaldur Guðmundsson, ferðamálaráðgjafi hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar,
kynnir niðurstöður um breytingar á atferli og viðhorfi erlendra gesta í Reykjavík síðustu 10 ár.
10.10 Friðrik Larsen, lektor, og Guðjón Guðmundsson, markaðsfræðingur,
kynna rannsókn á viðhorfi erlendra ferðamanna til Reykjavíkur sem áfangastaðar.
10.50 Dagur B. Eggertsson, formaður framtíðarhóps SSH, tekur saman helstu niðurstöður.
11.15 Fundi slitið.
Skráning á fundinn fer fram á visitreykjavik.is/skraningSSH
KYNNINGARFUNDUR
Svelti stóðhest og var sendur í leyfi
Dýraeftirlitsmaður sætir rannsókn vegna vísbendinga um illa meðferð á dýri
M
atvælastofnun hefur
ákveðið í samráði við
dýraeftirlitsmann sem
starfar hjá stofnuninni í
Suðurlandsumdæmi að
hann hverfi tímabundið frá störf-
um meðan ásakanir, um að hann
hafi í nokkrum tilvikum ekki sinnt
skyldum sínum um umhirðu og
eftir lit með stóðhestagirðingum,
verða teknar til skoðunar.
Maðurinn var ráðinn til Mat-
vælastofnunar um áramótin þegar
búfjáreftirlit færðist frá sveitarfé-
lögunum til stofnunarinnar, sam-
kvæmt lögum sem þá tóku gildi.
Um er að ræða stöðu sérfræðings
sem sinnir eftirliti með dýrahaldi,
þar með talin fóðrun og aðbúnað-
ur, ásamt móttöku og úrvinnslu til-
kynninga um illa meðferð dýra.
Starfsmaðurinn uppfyllti allar
kröfur sem gerðar voru til starfs-
ins að sögn Matvælastofnunar og
hafði í rúman áratug sinnt sam-
bærilegu starfi fyrir sveitarfélög í
Árnes- og Rangárvallasýslum.
Í ráðningarferlinu hafði Mat-
vælastofnun spurnir af því að
haustið 2007 hafi Landbúnaðar-
stofnun haft til skoðunar og gert
alvarlegar athugasemdir við fóður-
ástand og umhirðu stóðhests sem
tímabundið var í umsjón viðkom-
andi starfsmanns. Hesturinn var
sveltur í hans umsjá. Það var mat
dýralækna að hesturinn hafi ekki
orðið fyrir varanlegum skaða,
engin kæra var lögð fram og þótti
ekki ástæða til að grípa til frek-
ari aðgerða. Starfsmaðurinn bar
fyrir sig að hann hafi vanmetið
það hversu mikið fóður hesturinn
þyrfti. Frekari eftirgrennslan, og
ábendingar sem borist hafa, hafa
nú leitt til þess að óháður aðili,
teymi sérfræðinga, mun rannsaka
umrædd mál og hvort gætt hafi
verið að eðlilegum starfsháttum
við eftirlit með stóðhestagirðing-
um á hans vegum. n
simon@dv.is
Hestur Maðurinn var ráðinn til Matvælastofnunar um áramót. Mynd eyþór árnason
Reyndi að
tæla barn
Nemandi í fyrsta bekk í Seljaskóla
var stöðvaður á leið sinni heim úr
skólanum af manni í bíl sem bauð
honum sælgæti. Skólastjóri Selja-
skóla sendi foreldrum barna í skól-
anum tilkynningu um þetta í á
fimmtudag.
Þar kemur fram að drengurinn
hafi ekki látið manninn trufla sig
heldur gengið áfram heim til sín.
Kennarar munu ræða málið við
börnin í skólanum, en að auki eru
foreldrar hvattir til að ræða slíkt við
börnin sín og kenna þeim hvernig
rétt er að bregðast við.
Dómur fyrir árás
á fangaverði
Hæstiréttur staðfesti á fimmtudag
tíu mánaða fangelsisdóm héraðs-
dóms yfir Baldri Kolbeinssyni. Bald-
ur var ákærður fyrir eignaspjöll og
brot gegn valdstjórninni með því
að hafa í fangelsinu að Litla-Hrauni
veist með margvíslegu ofbeldi að
þremur fangavörðum sem þar voru
við skyldustörf, með þeim afleiðing-
um að einn fangavarðanna hrufl-
aðist á enni og fékk kúlu á höfuðið,
annar hlaut sár á nefið auk þess sem
tvenn gleraugu eyðilögðust. Baldur
játaði sök.
Baldur hefur ítrekað brotið af sér
en DV fjallaði nýverið um ákæru
sem lögð hefur verið fram fyrir
sérlega hrottafengna líkamsárás
Baldurs á samfanga í útivistargarði
Litla-Hrauns þann 10. maí í fyrra.
Nauðgunar-
dómur þyngdur
Hæstiréttur Íslands þyngdi á
fimmtudag dóm yfir manni sem
var dæmdur fyrir kynferðisbrot
gegn öðrum karlmanni. Maðurinn
hafði verið sakfelldur í Héraðsdómi
Reykjaness fyrir að hafa munnmök
við annan mann gegn vilja hans, en
maðurinn er sagður hafa notfært sér
að fórnarlambið gat ekki spornað við
verknaðinum sökum ölvunar, vímu-
efnaáhrifa og svefndrunga. Hinn
dæmdi krafðist sýknu.
Maðurinn var í héraði dæmdur
til 15 mánaða fangelsisvistar og til að
greiða fórnarlambinu 800 þúsund
krónur í skaðabætur. Ákæruvaldið fór
fram á að Hæstiréttur myndi þyngja
refsingu mannsins. Varð Hæstiréttur
við þeirri kröfu og dæmdi manninn
til tveggja ára fangelsisvistar og þess
að greiða fórnarlambinu eina milljón
króna í miskabætur. Ólafur Börkur
Þorvaldsson vildi einn dómara sýkna
manninn.