Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 11
Fréttir 11Helgarblað 31. janúar 2014
Samfélagsmiðlar illa nýttir
Gunnar Bragi
Styrkleikar
netsins nýttir
Sem fyrr segir er utanríkisráðuneytið
með mjög öfluga Facebook-síðu og
sjálfur virðist Gunnar Bragi meðvit-
aður um mikilvægi samfélagsmiðla.
Hann setur reglulega inn efni á
opinbera síðu sína en persónuleg
síða hans finnst ekki við hefð-
bundna leit á Facebook. Hann setur
reglulega inn myndir, en er þó ekki
nærri því jafn virkur og ráðuneytið
sjálft. Myndirnar tengjast hins vegar
störfum hans sem ráðherra og sjald-
an koma inn persónulegar myndir
frá honum. Ráðherrann er einnig
á Twitter og þar birtast reglulega
færslur frá honum. Yfirleitt er þar
efni sem ekki er tengt Facebook og
fer jafnvel ekki þangað inn. Því nýtir
Gunnar Bragi styrkleika miðlanna og
skiptir efninu upp eftir því hvar það
passar best inn.
Eygló:
Óvirk á Twitter
Eygló notar sína opinberu síðu lítið,
líkt og Ragnheiður Elín, en þar hefur
ekki komið inn ný færsla frá því í sept-
ember á síðasta ári. Á opinberu síðunni
stendur einnig að hún sé þingmaður
og ritari Framsóknarflokksins en ekki
ráðherra. Hún er hins vegar mjög virk
á sinni persónulegu síðu og setur þar
inn færslur sem eru öllum opnar og
allir geta sett athugasemdir við. Aldrei
líða margir dagar á milli færslna og
stundum koma margir inn á hverjum
degi. Eygló er á Twitter, en seint verður
sagt að hún sé mjög virk þar.
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti Með rúmlega 1.700 aðdáendur á Facebook. Síð-
an er að mestu notuð til þess að koma fréttum af heimasíðu ráðuneytisins á framfæri.
Utanríkisráðuneyti Stendur sig best af ráðuneytum á Facebook, enda með flesta
fylgjendur. Forsíðumyndin er skemmtileg og henni er regulega skipt út til að halda
síðunni lifandi.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti Facebook-síðan er aðeins með 530 „Like"
og lítið er lagt í forsíðumyndir.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 3. febrúar, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Karl Kvaran
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Kviknaði í Dengsa
n Reyk lagði yfir nálæg hverfi n Börn sótt á leikskóla
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
A
llar stöðvar slökkviliðsins
í Reykjavík voru sendar í
Dugguvog eftir að eldur
kom upp í húsnæði aug
lýsingaskiltagerðarinnar
Dengsa í hádeginu á fimmtu
dag. Eldurinn var talsvert mikill og
breiddist hann hratt út. Slökkvilið
náði tökum á eldinum en ljóst er að
efri hæð byggingarinnar er gjör ónýt
samkvæmt upplýsingum af vett
vangi.
Börn sótt á leikskóla
Eigandi Dengsa var nýfarinn í mat
þegar nágrannar urðu varir við
eld og aðeins nokkrum mínútum
síðar skíðlogaði í húsinu. Íbúum í
nærliggjandi hverfum var sagt að
halda sig inni og lagði mikinn reyk
yfir nærliggjandi hverfi. „Allt hverf
ið er á kafi í reyk,“ sagði einn íbúi í
Vogahverfi í samtali við DV. Slökkvi
liðið ráðlagði fólki að loka gluggum
og hækka hitann inni hjá sér.
Dagforeldrar í nágrenni við
Dugguvog höfðu samband við for
eldra og óskuðu eftir að börnin yrðu
sótt sökum mengunar af völdum
reyksins.
Mikil vinna eftir
Slökkviliðsmaður sem DV ræddi við
upp úr tvö á fimmtudegi sagðist ekki
geta tjáð sig um eldinn að svo komnu
máli. „Við sem erum á stöðinni vitum
voða lítið um hvað er í gangi þarna
nema það sem við heyrum í talstöð
inni.“ Hann sagði þó að búið væri að
ráða niðurlögum eldsins en taldi þó
að mikil vinna væri eftir. „Þótt það sé
búið að kveða niður eldinn eru þeir í
bullandi vinnu þarna,“ sagði slökkvi
liðsmaður í samtali við DV. n
Reykský Slökkviliðsmenn höfðu náð að
kveða niður eldinn um tvö leytið en þó var
talsverð vinna eftir. Mynd SigtRyggUR ARi
Alelda Vegfarandi tók þessa
mynd um svipað leyti og
slökkviliðið mætti á svæðið.
Mynd ÁRni HlynUR JónSSon
gjörónýt Slökkviliðsmenn
hlúa að nærstöddum.
Mynd dV SigtRyggUR ARi