Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 12
Helgarblað 31. janúar 201412 Fréttir DV líklegast til að afhjúpa spillingu Könnun MMR sýnir að flestir telja DV stunda öflugustu rannsóknarblaðamennskuna F lestir Íslendingar telja DV líklegasta prentmiðilinn á Íslandi til að afhjúpa spill- ingarmál. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem MMR gerði fyrr í janúarmánuði. Könnunin var gerð í gegnum netið og voru Íslendingar á aldrinum 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR í úrtakinu. Samkvæmt niðurstöðunum telur fólk DV miklu líklegra til að af- hjúpa spillingarmál en aðrir prent- miðlar á landinu og munar 71 prósentustigi á blaðinu og næsta fjölmiðli. Næst á eftir DV er Frétta- blaðið sem 8,5 prósent aðspurðra nefna, svo Morgunblaðið sem 6,1 prósent nefna, Fréttatíminn með 3,9 prósent og að lokum Viðskipta- blaðið með slétt tvö prósent. Engu skiptir hvaða hópar voru spurðir, DV mældist alltaf líklegast til að af- hjúpa spillingu. DV og RÚV í sérflokki Í sömu könnun sögðu 29,5 pró- sent DV vera þann innlenda fjöl- miðil sem stundaði öflugustu rann- sóknarblaðamennskuna. RÚV kemur þar næst á eftir en 28,6 pró- sent nefna ríkisfjölmiðilinn. Fólk á aldrinum fimmtíu ára og eldri nefndi DV í flestum tilfellum en yngra fólk nefndi RÚV oftast. Lág- og millitekjufólk nefndi DV oftast þegar spurt var um rannsóknar- blaðamennsku en hálaunafólk, það er með tekjur yfir 600 þúsundum króna á mánuði, nefndi RÚV. Aðrir fjölmiðlar voru nefndir talsvert sjaldnar. Fréttastofa 365, sem segir fréttir á Fréttablaðinu, Stöð 2, Bylgjunni og Vísi, var nefnd af þrettán prósentum, Morgunblað- ið af 11,5 prósentum, stafræni mið- illinn Kjarninn 6,9 prósentum og aðrir þar undir. Athygli vekur að 5,6 prósent sögðu engan fjölmiðil stunda öfluga rannsóknarblaða- mennsku. Óháður fjölmiðill DV er einnig sá miðill sem flestir nefna aðspurðir hvaða innlendi fjölmiðill sé minnst háður valda- blokkum. RÚV kemur þar næst á eftir og er nefnt af 20,9 prósentum svarenda. Fréttastofa 365 kemur þar á eftir, nefnd af 9,5 prósentum, Kjarninn var nefndur af 5,9 prósent- um og Morgunblaðið af 5,6. Aðrir fjölmiðlar, til að mynda Frétta- tíminn og Skjárinn, voru samtals nefndir í 28,7 prósentum tilfella en enginn í fleiri en fimm prósentum. Lítill munur er á afstöðu kvenna og karla og stendur DV best á meðal beggja kynja. Karlar nefna DV í 25,9 prósentum tilvika og konur í 22,3 prósentum. Munurinn er hins vegar meiri þegar litið er á mismun- andi aldurshópa. Yngsti hópurinn, 18–29 ára, nefna DV í flestum tilfell- um en fréttastofu 365 í næstflest- um. Þá stendur RÚV best með- al aldurshópsins 50–67 ára og DV í næstflestum. n Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Halla Björk ekki í framboð Halla Björk Reynisdóttir, bæjar- fulltrúi L-listans á Akureyri og formaður bæjarráðs, hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram að nýju fyrir komandi sveitar- stjórnarkosningar. Þetta sagði Halla í viðtali við Vikudag á Akureyri. „Ég íhugaði málið í nokkurn tíma og núna liggur niðurstaðan fyrir,“ segir Halla Björk við blaðið. Halla skip- aði annað sæti listans í síð- ustu kosningum, en L-listinn náði sem kunnugt er hreinum meirihluta. Halla segist kveðja bæjarmálapólitíkina sátt. Átta ökutæki tekin úr umferð Lögreglan á Selfossi tók átta ökutæki úr umferð á miðviku- dagskvöld. Ástæðan var sú að eigendur þeirra höfðu vanrækt vátryggingaskyldu. Á vef lög- reglunnar kemur fram að bif- reiðarnar höfðu því verið í um- ferð ótryggðar. Lögregla segir að það sé alvarlegt mál í þeim tilvikum sem ökumenn þeirra valda tjóni, en það hefur gerst í nokkrum tilvikum síðustu mánuði. Þrjátíu þúsund króna sekt bíður eigenda þessara öku- tækja, upphæð sem líklega hefði betur verið varið í að viðhalda ábyrgðartryggingunni. Málið sent til ríkissaksóknara Rannsókn lögreglu á máli karl- manns sem hélt barnsmóður sinni og barni þeirra föngnum í íbúð í Mosfellsbæ aðfaranótt jóladags er lokið. Málið hefur verið sent ríkissaksóknara. Þetta kom fram í fréttum RÚV á fimmtudag. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því hann var handtekinn á jóladag. Hann var vopnaður hnífum og er grunaður um að hafa beitt konuna ofbeldi. Barn þeirra slapp ómeitt. Hvaða innlendi fjölmiðill er að þínu mati minnst háður valdablokkum? Hvaða innlendi fjölmiðill stundar að þínu mati öflugustu rannsóknar- blaðamennskuna? DV 188 RÚV 161 Fréttastofa 365 73 Kjarninn 46 Morgunblaðið 43 Fréttatíminn 34 Frétta- stofa 365 RÚV DV Kjarninn Morgun- blaðið Frétta- tíminn Frétta- stofa 365 RÚV DV Morgun- blaðið Kjarninn Aðrir fjölmiðlar DV 236 RÚV 229 Fréttastofa 365 104 Morgunblaðið 92 Kjarninn 55 Aðrir fjölmiðlar (undir 1,5%hver) 39 Enginn 45 Hver eftirtalinna prent- miðla er að þínu mati líklegastur til að afhjúpa spillingarmál? DV 615 Fréttablaðið 66 Morgunblaðið 47 Fréttatíminn 30 Viðskiptablaðið 16 Morgun- blaðið Frétta- blaðið DV Viðskipta- blaðið Frétta- tíminn Upplýsingar um könnunina MMR framkvæmdi könnunina dagana 9. til 15. janúar en verkkaupi var DV ehf., útgefandi DV og DV.is. Um er að ræða netkönnun þar sem úrtakið var einstaklingar á aldrinum átján og eldri sem valdir voru handahófskennt úr hópi álitsgjafa fyrirtækisins. Hópurinn telur liðlega sextán þúsund einstaklinga sem valdir hafa verið með tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá og fengnir til þátttöku með símakönnun. Svarfjöldi í könnuninni var 981 einstaklingur. 29,5% 28,6% 13,0% 11,5% 6,9% 4,9% 79,5% 8,5% 6,1% 3,9% 2,0% 34,5% 29,5% 13,4% 8,4% 7,9% 6,2%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.