Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 14
Helgarblað 31. janúar 201414 Fréttir „Þau voru fallegt par“ A llt sem að þér viljið að aðr­ ir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra,“ var mottó Skarphéðins Andra Kristjánssonar Barðsnes. Hann hafði fengið sér húðflúr með sömu ritningargrein og lifði eftir þessari hugsjón. Skarp­ héðinn Andri lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi á mið­ vikudag. Hann hafði þá barist fyr­ ir lífi sínu eftir bílslys í Norðurárdal fyrr í janúar. Slysið varð á Vestur­ landsvegi í Norðurárdal við Forna­ hvamm sunnudaginn 12. janúar. Í slysinu lést kærasta Skarphéðins Andra til nokkurra mánaða, Anna Jóna Sigurbjörns­ dóttir. Hún var sextán ára þegar hún lést, en Skarphéðinn Andri átján. Þau voru á leið á Sauðárkrók þar sem þau stunduðu bæði nám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Anna Jóna bjó ásamt fjölskyldu sinni. Skarphéðinn bjó á heimavist skólans. Þar lagði Anna Jóna stund á nám á málabraut en hafði hugsað sér að fara í snyrtifræði í kjölfarið. Skarphéðinn lagði stund á nám við málmsmíðadeild skólans og ætlaði sér að verða vélstjóri. Þau kynntu­ st í haust og byrjuðu að vera saman. Alltaf brosandi, alltaf kát „Mér fannst vinir hennar og fjöl­ skylda lýsa henni mjög vel í minn­ ingargreinunum,“ segir Sigurbjörn Björnsson um dóttur sína. Í minn­ ingargreinunum má lesa mikla hlýju í garð Önnu Jónu og henni er lýst sem glaðværri ungri konu sem átti auðvelt með að eignast vini og ræktaði sambandið við bæði vini og fjölskyldu vel. „Alltaf þegar ver­ ið var að tala um hana var talað um að hún væri alltaf hress, alltaf kát, alltaf brosandi og tilbúin að gera eitthvað fyrir aðra. Bróðir minn sagði við mig að auðvitað væri það kannski klisja að segja svona, en að í þessu tilfelli þá væri það engin klisja. Þannig væri henni rétt lýst,“ segir Sigurbjörn. „Hún átti mjög gott með að gefa af sér og var yfir­ leitt brosandi og skemmtileg.“ Hún hóf nám í fjölbrautaskólanum í haust og stefndi á snyrtifræði í kjöl­ farið. Draumurinn var líka að fara sem skiptinemi í nám. „Hún vildi líka að verða skiptinemi og vildi fara og læra betri spænsku. Við vor­ um byrjuð að horfa í kringum okkur með það,“ segir hann. Vinmargur Skarphéðinn Andri var vinmargur, hlýr og góður drengur að sögn vina hans og vandamanna. Í þeirra huga er varla hægt að draga það saman hvaða persónu hann hafði að geyma. „Hann var fjörkálf­ ur og ofboðslega mikil félagsvera. Það var alltaf margt fólk í kring­ um hann,“ segir Steinunn Rósa Einarsdóttir um son sinn. „Hann gerði ekkert alltaf allt rétt, en frá upphafi var hann algjört gull þessi drengur,“ segir Steinunn. „Hann var mjög hreinskiptinn. Hann mátti aldrei sjá neitt aumt. Hann var til dæmis alltaf að passa mig og spyrja: „mamma er ekki allt í lagi?““ seg­ ir Steinunn. Skarphéðinn Andri stóð þétt við bak vina sinna og var afar fús til að aðstoða þá ef þá bar af leið. Hann bað jafnvel foreldra sína um að taka þátt ef svo bar undir og reyndist félögum sínum vel að sögn foreldra hans. Slysið Slysið varð sem áður sagði í Norður­ árdal rétt við Fornahvamm. Skarp­ héðinn Andri var ökumaður bif­ reiðar sem lenti í árekstri við flutningabifreið sem kom úr gagn­ stæðri átt. Tildrög slyssins eru enn ekki að fullu ljós. Ökumann og far­ þega flutningabifreiðarinnar sakaði ekki. Anna Jóna lést í slysinu, en Skarphéðinn var fluttur alvarlega slasaður til Reykjavíkur. Á gjörgæslu Skarphéðinn var á gjörgæsludeild og reglulega bárust af því fréttir að honum væri haldið sofandi enda var hann enn í lífshættu. Móðir hans sendi þó vinum og vandamönnum þeirra reglulega fréttir af líðan hans og notaði samfélagsmiðilinn Face­ book til að ná til sem flestra. Það þýddi að vinir þeirra, sérstaklega Önnu Jónu og Skarphéðins, fengu reglulegar fréttir af líðan hans og gátu fylgst með hvernig gekk að eiga við áverkana sem Skarphéðinn fékk í slysinu. Reynt var að minnka þrýsting við heila hans með því að losa um vökva og læknar reyndu að halda ástandi hans stöðugu. For­ eldrar hans skiptust á að sitja hjá honum, en að auki komu margir til að heimsækja þau á spítalann. „Við vorum þarna eiginlega á vöktum við pabbi hans. Hann var þar yfir daginn og ég yfir nóttina. Svo komu margir gestir sem vildu fylgjast með honum. Þetta var mikil bið og þetta var ekki auðvelt. Við héldum alltaf í vonina,“ segir hún. Á mánudag var fjölskyldunni tjáð að ástand Skarphéðins væri mjög alvarlegt og þau, fjölskyldan, voru undirbúin undir að allt færi á versta n Samfélag í sorg eftir andlát ungmenna n Byrjuðu saman í haust n Vinmörg og vinsæl Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Alltaf hress, alltaf kát, alltaf brosandi. Hamingjusöm Þau Anna Jóna og Skarphéðinn byrjuðu að draga sig saman í haust. Skarphéðinn deildi því með mömmu sinni að hann væri eiginlega bæði ástfanginn af Skagafirði, en einnig Önnu Jónu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.