Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 18
Helgarblað 31. janúar 201418 Fréttir
Þ
órólfur komst fyrst í sviðs-
ljósið 16 ára þegar fjallað
var um hann og tvo aðra
unga drengi í dagblöðum
landsins fyrir að hljóta gull-
merki KSÍ. Heiðursmerkin voru veitt
fyrir framúrskarandi knattleikni, en
Knattspyrnusambandið hafði ný-
tekið upp á því að gefa drengjum á
aldrinum 12–16 ára færi á að leysa
allerfiðar knattþrautir. Þrautirnar
reyndu á tæknilega getu drengj-
anna og tók Þjóðviljinn svo til orða
að „flestum leikmönnum meistara-
flokks mundi veitast erfitt að ná til-
skildum árangri“ í knattþrautunum.
Þórólfur brosti breitt í svarthvítri
treyju KR á ljósmynd sem birtist af
verðlaunahöfunum í íþróttafrétt-
um Morgunblaðsins. Framtíðin var
björt.
Leitaði til knattarins í sorginni
Á Framnesvegi fæddist skolhærður
drengur þann 21. janúar 1940 og
ungur að árum var hann byrjaður
að hlaupa um hverfið með knöttinn
límdan við tærnar. Hann var skírð-
ur Þórólfur í höfuðið á afa sínum og
eignaðist eina systur, Guðrúnu, sem
fæddist ári síðar. Þennan hógværa
dreng dreymdi ekki aðeins um að
verða atvinnumaður í knattspyrnu,
heldur stefndi hann markvisst
að því. Albert Guðmundsson var
á þeim tíma eini Íslendingurinn
sem hafði sest að erlendis vegna
knattspyrnuiðkunar og gert hana
að lifibrauði sínu. Þórólfur hafði því
fyrirmyndina og trúði statt og stöð-
ugt að einn daginn myndu einhverj-
ir útsendarar koma auga á hann og
byðu honum að leika sem atvinnu-
maður. Það leið ekki langur tími þar
til metnaðarfulli drengurinn var far-
inn uppskera laun erfiðra æfinga.
Hann skildi jafnaldra sína eftir í reyk
á æfingasvæði KR, uppeldisfélagi
hans, eftir að hafa leikið fimlega á
þá hvað eftir annað.
Þórólfur var 11 ára þegar faðir
hans féll ofan í lest um borð í Selfossi
og höfuðkúpubrotnaði. Skömmu
síðar lést hann, liðlega þrítugur að
aldri. „Það voru kaldir febrúardagar
sem þá fóru í hönd,“ lýsti Þórólf-
ur í einlægu viðtali við Mannlíf árið
1992. Eftir áfallið flutti fjölskyldan
búferlum á Lágholtsveg til Guðrún-
ar Jóhannesdóttur, móður ömmu
Þórólfs, þar sem vel var séð um eina
karlmanninn á heimilinu. Í sorginni
leitaði Þórólfur til knattarins og æfði
sig enn meira en áður. Þar gafst hon-
um tækifæri til að gleyma stað og
stund.
Sigursæll með KR
„Fáir íslenskir nýliðar á knattspyrnu-
vellinum hafa vakið aðra eins
athygli að undanförnu sem Þórólfur
Beck,“ stóð í grein um Þórólf í Vik-
unni í ágústmánuði árið 1958.
„Hann er aðeins 18 ára að aldri en
hefur þegar unnið slík afreksverk á
leikvellinum að undrum sætir. Enda
er hann orðinn varamaður í lands-
liðinu þrátt fyrir æsku sína. Helztu
einkenni Þórólfs á leikvelli eru þau
að hann hefur óvenjugóða knatt-
meðferð og næmt auga fyrir sam-
leik, fundvís á veilur í liði and-
stæðinga og gerir sér ljóst hverjir
samherjanna eru í beztri aðstöðu
til hjálpar. Hann virðist ætíð gera
sér fulla grein fyrir gangi leiksins og
hefur gott yfirlit yfir völlinn. Sumir
finna honum það til foráttu að hann
sé ekki nógu snöggur upp á lagið og
varla nógu fylginn sér, en þess ber
að gæta að hann er enn ekki nema
18 ára að aldri og ekki fullþroska
enn. Þetta er um það bil samhljóða
álit knattspyrnugagnrýnenda.“
17 ára hóf Þórólfur að leika reglu-
lega með meistaraflokki KR. Þau
fjögur tímabil sem hann lék með
KR urðu KR-ingar tvisvar sinn-
um Íslandsmeistarar, í fyrra skiptið
árið 1959 og það síðara 1961, sama
ár og æskudraumur Þórólfs varð að
veruleika.
Draumurinn rættist
„Ég fékk atvinnutilboð frá St.
Mirren [í Skotlandi] eftir að liðið
var hér á keppnisferðalagi 1961,“
sagði Þórólfur eitt sinn í samtali við
Morgunblaðið. Þórólfur varð annar
íslenski knattspyrnumaðurinn
sem hélt í víking. „Ég náði að skora
fjögur mörk gegn liðinu, þegar Suð-
vesturlandsúrvalið vann stórsigur
á Laugardalsvellinum, 7–1. Nafn á
velli liðsins hafði aðdráttarafl; Love
Street.“
Leikni Þórólfs naut sín vel til
Þórólfur glímdi við geðklofa
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
n Stórstjarna í Skotlandi á sjöunda áratugnum n Listamaður með knöttinn „Ég lék ekki
knattspyrnu
til að verða frægur.
Ég lék hana af því
ég elskaði leikinn.
Í blárri treyju Rangers
Þórólfur lék með stórliðinu
Glasgow Rangers í tæp tvö ár.