Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 24
Helgarblað 31. janúar 201424 Fréttir Erlent Írska ríkið skaðabótaskylt Louise O'Keefe varð fyrir kynferðisofbeldi í kaþólskum skóla á áttunda áratug síðustu aldar M annréttindadómstóll Evr­ ópu hefur komist að þeirri niðurstöðu að írska ríkið sé skaðabótaskylt vegna konu sem sætti kynferðis­ ofbeldis af hálfu kennara í kaþólsk­ um skóla á áttunda áratug síðustu aldar. Skólinn sem um ræðir var ríkis rekinn en írskir dómstólar höfðu ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að ríkið sem slíkt gæti ekki borið ábyrgð á ofbeldinu sem konan varð fyrir. Konan sem um ræðir heitir Lou­ ise O'Keefe og er 49 ára. Hún stund­ aði nám við Dunderrow National­ skólann í Cork­sýslu á áttunda áratugnum þar sem kennari og jafn­ framt skólastjóri skólans, Leo Hickey, beitti hana kynferðisofbeldi. Foreldr­ ar barna í skólanum höfðu tilkynnt yfir völdum að grunur léki á að börn væru beitt ofbeldi í skólanum. Þeim tilkynningum var hins vegar aldrei komið áfram til lögreglu og var það sérstaklega gagnrýnt í niðurstöðu Mannréttindadómstólsins. Áratugir liðu áður en málið kom fram í dagsljósið, en árið 1998 var Hickey loks dæmur í fangelsi fyrir brot gegn 21 fyrrverandi nemanda. Hlaut hann þriggja ára fangelsis­ dóm. Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi írska ríkið til að greiða O'Keefe 4,7 milljónir króna í skaða­ bætur og 13,4 milljónir króna til að standa straum af kostnaði við málið fyrir dómstólum. O'Keefe sagði í samtali við fjöl­ miðla, eftir að niðurstaðan var kynnt, að niðurstaðan væri sigur fyrir öll írsk börn. Kallaði hún jafn­ framt eftir því að írska ríkið gerði meira til að vernda börn gegn kyn­ ferðisofbeldi. n Vann málið O'Keefe fékk greiddar tæpar fimm milljónir króna í bætur vegna ofbeldis- ins sem hún varð fyrir. Sættir sig ekki við að dóttirin sé lesbía Vellauðugur kaupsýslumaður býður milljarða þeim sem getur „snúið“ dóttur hans Þ að er fullt af frábærum karlmönnum til, en þeir eru bara ekki fyrir mig,“ segir Gigi Chao, dóttir vell­ auðugs kínversks kaup­ sýslumanns. Það vakti talsverða athygli árið 2012 þegar faðir Gigi, Cecil Chao, hét hverjum þeim karlmanni sem gæti unnið hjarta dóttur hans rúma þrjá milljarða króna. Staðreyndin er hins vegar sú að Gigi er samkynhneigð og alls ekkert fyrir karlmenn. Fjölmargir áhugasamir karlmenn settu sig í samband en Gigi varð ekki hagg­ að. Í síðustu viku tvöfaldaði Cecil, sem er einn ríkasti maður Hong Kong, upphæðina sem hann var tilbúinn að greiða. 20 þúsund lýstu áhuga Gigi, sem er 35 ára, virðist vera búin að fá sig fullsadda af af­ skiptasemi föður síns því á mið­ vikudag birtu tvö dagblöð í Hong Kong opið bréf frá Gigi til föður hennar. Í bréfinu biður Gigi föður sinn um að sætta sig við að hún sé samkynhneigð og enginn muni fá því breytt. Gigi hefur verið í sam­ bandi með stúlku að nafni Sean Eav, en þær gengu að eiga hvor aðra á borgaralegan hátt í Par­ ís í Frakklandi árið 2012. Það var einmitt sú ákvörðun sem varð til þess að Cecil ákvað að bjóða fúlg­ ur fjár þeim sem tækist að „snúa“ dóttur hans, ef svo má segja. Sam­ kvæmt kínverskum fjölmiðlum lýstu tuttugu þúsund karlmenn yfir áhuga sínum á Gigi. Áhuginn er engu minni eftir nýjasta boðið og hafa mýmargir karlmenn reynt að setja sig í samband við Gigi. Sofið hjá 10 þúsund konum Í viðtali við Financial Times í jan­ úar í fyrra sagði Cecil að sá sem myndi vinna hjarta dóttur sinnar þyrfti ekki að hafa neinar fjárhags­ legar áhyggjur í framtíðinni. Þessi 77 ára Kínverji sem á meðal annars stórt fasteignafyrirtæki, þyk­ ir, eðli málsins samkvæmt, nokk­ uð umdeildur og lýsti hann því til að mynda yfir í viðtalinu að hann hefði sofið hjá tíu þúsund konum á lífsleiðinni. „Ég hef aldrei talið, en það er ekki svo fjarri lagi. Ég elska að lifa frjálsu og hamingjuríku lífi,“ sagði Cecil. Honum virðist ekki vera jafn umhugað um að dóttir hans fái að njóta sömu hamingju. Tilbúin að fyrirgefa Í bréfinu sem birt var í vikunni segir Gigi að hún muni ávallt elska föður sinn, en nú sé mál að linni. „Ég mun alltaf fyrirgefa þér fyrir að framkvæma það sem þú fram­ kvæmir, því ég veit að þú berð hagsmuni mína fyrir brjósti.“ Hún sagðist jafnframt miður sín yfir dómhörku fólks, en margir hafa gagnrýnt föður hennar harðlega. „Sem dóttir þín, vil ég þér allt það besta. En væntingar þínar um mig og hver ég er í raun og veru fara ekki saman.“ Í bréfinu bætti Gigi við að hún vænti þess ekki að kona henn­ ar, Eav, og hann yrðu bestu vinir, „… en það myndi skipta mig öllu ef þú værir ekki svona hræddur við hana og myndir koma fram við hana eins og venjulega og virðu­ lega konu. Mér þykir fyrir því að hafa látið þig halda að ástæða þess að ég ákvað að vera með konu hafi verið skortur á karlmönnum í Hong Kong,“ segir Gigi í bréfinu. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Ástfangnar Cecil og Eav gengu að eiga hvor aðra í Frakklandi árið 2012. Gigi segist eiga þá ósk heitasta að faðir hennar komi vel fram við Eav. „Sem dóttir þín, vil ég þér allt það besta. En væntingar þínar um mig og hver ég er í raun og veru fara ekki saman. Afskiptasamur Gigi virðist vera búin að fá sig fullsadda af afskiptasemi föður síns. Hún skrifaði opið bréf til hans í vikunni sem birtist í tveimur blöðum í Hong Kong. Leiddist í ellinni og stal úr búðum Sjötíu og sex ára bresk kona, June Humphreys, hefur verið dæmd í eins mánaðar skilorðs­ bundið fangelsi þar í landi fyrir fjölmarga þjófnaði yfir fjögurra ára tímabil. Málið er nokkuð athyglisvert enda sagði konan fyrir dómi að henni hafi leiðst í ellinni og því ákveðið að stela úr búðum. Stal hún meðal annars úr verslanakeðjunni Iceland og barnafötum úr versluninni BHS. Jane, sem er langamma, má ekki brjóta af sér næsta árið. Ef hún gerir það verður hún send í grjótið í einn mánuð. Frakkar ekki lengur efstir Kínverjar hafa skotið Frökkum af toppnum yfir þær þjóðir sem neyta mest af rauðvíni. Þetta kemur fram í niðurstöðum rann­ sóknar breska fyrirtækisins International Wine and Spirits Research. Eftirspurn eftir rauð­ víni hefur aukist mikið í Kína á undanförnum árum, eða um 136 prósent frá árinu 2008. Á sama tíma hefur eftirspurnin eftir rauðvíni í Frakklandi minnkað. Árið 2013 neyttu Kínverjar 1,87 milljarða flaskna, en 80 prósent þess voru framleidd í Kína. Eftir­ spurn eftir innfluttu rauðvíni í þessu fjölmennasta ríki heims virðist þó vera að aukast sem ætti að kæta Frakka sem eru sú þjóð sem framleiðir mest af rauðvíni í heiminum. Þaulskipulagður þjófnaður Dómstóll á Englandi hefur dæmt fjóra menn sem allir störfuðu í verksmiðju bílaframleiðandans Nissan í Washington á Englandi í fangelsi. Mennirnir voru sak­ felldir fyrir þaulskipulagðan þjófnað á staðsetningartækjum og öðrum aukabúnaði sem ætl­ aður var í bíla fyrirtækisins. Alls var um 350 staðsetningartæki að ræða sem mennirnir seldu síðan á eBay. Heildarverðmæti þýfisins sem mennirnir seldu er talið vera um ein milljón punda, 190 milljónir króna. Þyngsta dóminn hlaut Stephen Ganley, fimm ára fangelsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.