Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 30
30 Umræða Helgarblað 31. janúar 2014
Ríkisútvarp á ráðherraveiðum
Þ
að er kominn tími til að of-
sóknir hins svokallaða „RÚV“
gegn heiðursmanninum Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni
líði undir lok. Svarthöfði býr sjálfur í
Efstaleiti og hann finnur eineltisfnyk-
inn sem leggur frá stofnuninni; læðist
inn um eldhúsgluggann og yfirgnæfir
viðkunnanlegan ilminn af nýmöluðu
arabica-kaffinu, á hverjum degi.
Líkt og nýr stjórnarmaður í
Efstaleitinu orðaði það, þá eru vinstri
öflin á „RÚV“ með Sigmund í sigtinu!
Fréttamenn „RÚV“, lítt dulbúnir út-
sendarar VG, eru á forsætisráðherra-
veiðum!
Nýja stjórnin, sem samanstendur
mestmegnis af sérfræðingum – sex af
níu eru slíkir – er svona eins og rann-
sóknarnefnd Alþingis hefði átt að
vera; hlutlæg, fagleg, samheldin. Frá-
bær!
Hinn framsækni Guðlaugur G.
Sverrisson er óneitanlega vonin í
svörtu eineltisþokunni sem ligg-
ur yfir Efstaleitinu. Svarthöfði fyllist
kærleika og trausti þegar viðkunnan-
lega ásjónu hans ber fyrir augu. Guð-
laugur er nefnilega kominn til þess að
hafa hemil á óráðsíunni á „RÚV“.
Guðlaugur var gerður að stjórnar-
formanni Orkuveitu Reykjavíkur
þegar hún stefndi í glötun. Svarthöfði
táraðist af samúð þegar Orkuveitan
endaði í vitleysu, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir Guðlaugs til að víkja af
stefnu glötunar, sem vinstri stjórn-
in 1971–1974 lagði grunn að. „Fögur
er fórn þín, en fegurri er réttsýnin,“
hvíslaði Svarthöfði með samúðartár í
augum, þegar fréttir bárust af vitleys-
unni í OR. Nú getur hann ekkert ann-
að en vonað að aðgerðir Guðlaugs
muni bjarga „RÚV” í tæka tíð. n
Guðlaugur framsækni „Fögur er
fórn þín, en fegurri er réttsýnin,“ hvíslaði
Svarthöfði með samúðartár í augum. Nú
getur hann ekkert annað en vonað að
aðgerðir Guðlaugs muni bjarga „RÚV“ í
tæka tíð.
Þorir ekki í Ómar Umsjón: Henry Þór Baldursson
Sterkari sýslumenn
A
llsherjar- og mennta-
málanefnd Alþingis
hefur nú til meðferðar
frumvarp innanríkisráð-
herra um framkvæmd og
stjórnsýslu ríkisins í héraði. Frum-
varpið felur í sér þá breytingu að
sýslumannsembættum landsins
verði fækkað úr 24 í 9. Jafnframt er
lagt fram frumvarp til breytingar á
lögreglulögum þar sem gert er ráð
fyrir því að löggæsla verði skilin frá
starfsemi sýslumanna. Aðalmark-
mið breytinganna er að búa til
öflugri stofnanir sem veiti íbúum
landsins góða þjónustu og geti tek-
ið að sér aukin verkefni.
Sýslumannsembætti eru ein
elsta stjórnsýslustofnunin í okkar
samfélagi og þau hafa frá fornu
fari farið með framkvæmdarvald
ríkisins í héraði. Sýslumenn voru
oddvitar sýslunefnda til ársins
1987 þegar ný sveitarstjórnarlög
tóku gildi. Þeir fóru hvort tveggja
með lögreglustjórn og dómsvald á
lægra dómstigi fram til 1. júlí 1992
þegar sú grundvallarbreyting varð
á skipan réttarfars í landinu að skil-
ið var á milli dómsvalds og fram-
kvæmdarvalds með breytingum á
öllum réttarfarslögum og stofnun
héraðsdómstóla.
Embættin annast nú aðfarar-
gerðir, nauðungarsölu, þinglýs-
ingar, sifjamál, skipti á dánarbú-
um, lögbókandagerðir, útgáfu á
ýmsum leyfum og skírteinum og
ýmis önnur mál. Sýslumenn utan
Reykjavíkur fara með innheimtu
opinberra gjalda og annast um-
boðsstörf fyrir Tryggingastofnun
ríkisins.
Helstu ástæður fyrirhugaðra
breytinga á embættunum eru þær
að þegar lögreglustjórn og ákæru-
vald verður að fullu aðskilið frá
embættum sýslumanna dragast
verkefni margra embætta verulega
saman. Breytingar á samgöngum
og byggðaþróun leiða einnig til
þess að rétt er að endurskoða þessa
skipan mála. Með aukinni sam-
skiptatækni og tilkomu rafrænnar
stjórnsýslu má segja að staðsetn-
ing starfstöðva sé ekki lykilatriði
heldur þjónustan sjálf og hvernig
henni verði sem best háttað.
Hagræðing í ríkisrekstri hefur
verið mjög til umræðu undanfar-
in misseri enda er það eitt helsta
viðfangsefni stjórnmálamanna að
sjá til þess að þeim fjármunum
sem skattgreiðendur treysta ríkis-
sjóði fyrir sé vel varið. Í því sam-
bandi er nauðsynlegt að þora að
endurskoða þau verkefni sem ríkið
sinnir og meta hvort hægt sé að
sinna þjónustu við íbúa landsins
á einfaldari, skjótari og hagkvæm-
ari máta en tíðkast hefur. Í hag-
ræðingarvinnu felast tækifæri til
að skapa sterkari einingar og gera
enn betur hvað varðar nýtingu fjár-
magns og í þjónustu við borgarana.
Til að sýslumannsembættin geti
haldið uppi öflugri þjónustu, búið
að víðtækri þekkingu og samræmt
vinnulag í þeim fjölbreyttu mála-
sviðum sem þeim eru falin er þörf
á sterkari einingum.
Störfum sýslumanna er lýst
þannig í frumvarpinu að þeir
fari með framkvæmdarvald og
stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver
í sínu umdæmi, eftir því sem
lög, reglugerðir og önnur stjórn-
valdsfyrirmæli kveða á um. Við
endurskipulagningu opinberrar
þjónustu á landsbyggðinni er eðli-
legt að stefna að því að sýslumenn
geti í auknum mæli þjónað öðrum
ríkisstofnunum sem hafa hlutverki
að gegna á landsbyggðinni og bætt
við sig fleiri verkefnum. Embættin
hafa í áraraðir sinnt slíkum verk-
efnum fyrir t.d. Tryggingastofnun
ríkisins með góðum árangri.
Ljóst er að fjárhagslegt hagræði
breytinganna mun ekki koma fram
strax. En markmiðið til lengri tíma
er það að veita enn betri þjónustu á
sem hagkvæmasta hátt. n
Mynd SAJ
„Ljóst er að fjár-
hagslegt hagræði
breytinganna mun ekki
koma fram strax.
Unnur Brá Konráðsdóttir
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Kjallari
Svarthöfði
Mest lesið
á DV.is
1 Tengdadóttirin á meðal þeirra sem kæran beinist
gegn Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðar-
kona Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
innanríkisráðherra, er eiginkona Ríkarðs
Daðasonar. Ríkharður er sonur Ragn-
heiðar Ríkharðsdóttur, þingflokksfor-
manns Sjálfstæðisflokksins. Ragnheiður
var látin svara fyrir trúnaðarbrestinn
gagnvart Tony Omos í Kastljósi á
þriðjudag.
23.312 hafa lesið
2 „Hún bugaðist vegna ranglætisins“ Gunnar Þor-
steinsson, kenndur við Krossinn, segir að
eiginkona hans, Jónína Benediktsdóttir
hafi verið beitt ranglæti þegar hún var
dæmd fyrir ölvunarakstur á dögunum.
20.542 hafa lesið
3 „Allt hverfið á kafi í reyk“ Mannskapur af öllum
stöðvum slökkvliðsins í Reykjavík glímdi
við eldsvoða í iðnaðarhúsi við Dugguvog
1 um hádegisbil á fimmtudag. Eldurinn
var talsvert mikill og breiddist hann
hratt út.
11.982 hafa lesið
4 Pétur lést eftir að hafa fengið lyf sem ætluð
voru öðrum Pétur Pétursson,
heimilismaður á hjúkrunarheimilinu
Garðvangi, lést eftir að hafa verið
gefinn lyfjaskammtur sem ætlaður var
herbergisfélaga hans.
8.900 hafa lesið