Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 33
Helgarblað 31. janúar 2014 Fólk Viðtal 33
Vonuðu að þetta myndi hverfa
samtalsins að það væru nú 80 pró-
sent karlmenn sem ynnu þarna og
það veitti nú ekki af fleira kven-
fólki þarna,“ segir hún hlæjandi og
segist hafa verið heppin með það
hversu vel starfsmannastjórinn
tók þessu. „Ég var ótrúlega heppin
með það hversu vel hún tók á þessu
strax. Hún sagði við mig að það
skipti engu máli hvað fólk héti eða
hvernig það liti út innan fyrirtæk-
isins svo lengi sem það sinnti sinni
vinnu. Það væri heldur ekki liðið
neitt einelti eða stríðni. Það var
ómetanlegt að fá þennan stuðn-
ing,“ segir Anna Margrét sem vinn-
ur þó ekki lengur hjá fyrirtækinu
þar sem hún missti vinnuna í nóv-
ember vegna skipulagsbreytinga.
Hún lætur þó ekki deigan síga og
er nú sest á skólabekk þar sem hún
leggur stund á nám í bókhaldi.
Miklir fordómar
Eftir starfsmannaskemmtunina
vissu fleiri leyndarmálið, en Anna
Margrét fór þó ekki í kynleið-
réttingaraðgerðina sjálfa fyrr en
í fyrra, þá orðin sextug. Þá hafði
hún verið hjá sálfræðingi í átta ár
og í nokkur ár tekið inn hormóna
til að breyta vextinum og fá kven-
legt útlit.
Anna K. fór hins vegar í sína
aðgerð árið 1995 – í Svíþjóð þar
sem hún bjó lengi og barðist fyrir
réttindum transfólks. Hún kom þó
út úr skápnum með það hver hún
væri árið 1984, þá var hún fjöl-
skyldufaðir og vélstjóri og fann fyrir
miklum fordómum. Fjölskyldan
lokaði á hana fyrst um sinn en það
hefur lagast í dag. Hún bjó í Sví-
þjóð til ársins 1996 þegar hún flutti
aftur til Íslands og þurfti að takast
á við talsvert fordómafyllra samfé-
lag en það sem er í dag. Fólk starði
á hana úti á götu og margir vildu
ekki kannast við að þekkja hana.
Anna hefur margoft í gegnum tíð-
ina sagt sína sögu og verið áber-
andi talsmaður transfólks og ef-
laust hjálpað mörgum að stíga það
skref til fulls að koma fram.
Konuna grunaði eitthvað
Þær segja báðar að það hafi verið
afar erfitt að stíga það skref að
koma fram. Standa fyrir framan
fjölskylduna og segja að pabbi sé
kona.
„Ég gerði þetta í áföngum – fyrst
sagði ég konunni en hana hafði
grunað að það væri eitthvað. Hún
hafði ábyggilega fundið í gegnum
tíðina einhver föt eða bækur. Ég
reyndi auðvitað að fela þetta en
það getur verið erfitt þegar það er
búið þröngt,“ segir Anna Margrét
og viðurkennir að það hafi ekki
verið auðvelt skref að segja eigin-
konu sinni til 35 ára hvernig í pott-
inn væri búið. „Ég gerði það ekki
ófull – það get ég alveg sagt þér.
Það var ekki gert edrú og búið að
plana það lengi.“
Því næst sagði hún syni sínum,
leikaranum Hannesi Óla Ágústs-
syni, sem var í viðtali í síðasta helg-
arblaði DV þar sem hann sagði frá
því að pabbi sinn væri kona. „Ég
sagði honum þetta nú bara á kaffi-
húsi í miðbænum, hann tók þessu
vel. Svo sagði ég dóttur minni þetta
síðast, hún átti dálítið erfitt með
þetta og konan líka,“ segir Anna
Margrét og segist skilja það vel.
Það sé yfirleitt þannig að nánasta
fjölskylda taki þessu verst eins og
eðlilegt er, en hún tekur fram að
stórfjölskyldan sem og vinir hafi öll
tekið þessu vel og stutt hana.
Fer enn í veiðiferðir
með strákunum
Þær segjast báðar hafa kynnst
auknum fjölda fólks eftir að þær
komu fram en halda þó líka sam-
bandi við gamla vini. Þó er mun-
ur á milli þeirra – flestir vinir Önnu
Margrétar taka breytingunni vel
en Anna K. segir sumt fólk hafa
snúið baki við henni. „Ég var í 20
ár í vinahóp sem fór á hverju ári
í sukk- og veiðiferð í Veiðivötn.
Svona karlaferð þar sem við drukk-
um mikið – kannski dálítið mikið
fyrstu árin en það breyttist svo
eftir því sem við urðum eldri og
þá fórum við að veiða meira.
Transfólk ekki
kynskiptingar
Transfólki finnst rangt að talað sé um
það sem „kynskiptinga“.
Annar algengur misskilningur er að tala
um transfólk sem kynskipting og tala
um kynskiptiaðgerð. Þessi orð gefa
ranga mynd af einstaklingum og að-
gerðinni. Transfólki finnst rangt að tala
sé um þau sem „kynskiptinga“, þar sem
í rauninni eru einstaklingarnir ekki að
skipta um kyn heldur láta leiðrétta það.
Flest vilja láta tala um sig sem trans
(transkona, transmaður, transfólk) en
ekki kynskipting. Einnig má benda á að
orðið kynskipti vísar til endurtekinnar
sífellu sem á alls ekki við í þessu tilfelli.
Eins er með orðið „kynskiptiaðgerð“ sem
ætti í raun að vera kynleiðréttingarað-
gerð vegna þess að það er, jú, verið að
leiðrétta kyn einstaklings með aðgerð. Í
raun er verið að leiðrétta fæðingargalla.
(Úr bæklingnum Hvað er trans?)
Hugtök og útskýringar
Í hinsegin samfélaginu er orðið trans (sem
er stytting á orðinu transgender) oftast
notað sem regnhlífarhugtak yfir flókinn
og fjölbreytilegan heim transfólks. Orð
sem falla þar undir eru t.d. transsexual,
klæðskiptingur (transvestite), androgyne,
genderqueer og fleira. Í þessari grein er
fyrst og fremst fjallað um það sem kallast
transsexual, enda hefur það verið mest
opinbert í umræðunni hér á Íslandi.
Transsexual: Ýmsir rugla saman
hugtökunum transsexual og klæðskipt-
ingur. Að vera transsexual er að fæðast
í vitlausum líkama, þ.e. að fæðast sem
kona í karlmannslíkama eða karlmaður
í kvenmannslíkama. Einstaklingurinn
upplifir sig af öðru kyni en líffræðin segir til
um og kýs oft að gangast undir hormóna-
meðferð og kynleiðréttingaraðgerð.
Klæðskiptingur: Sá/sú sem er
klæðskiptingur klæðist fötum hins kyns-
ins og gengur oft undir öðru nafni en vill
ekki breyta líkama sínum með því að taka
hormóna eða fara í leiðréttingaraðgerð.
Dragdrottningar og -kóngar: Að
klæðast dragi er sú listgrein að koma fram
í ákveðnu kynhlutverki, gjarnan í öðru
kyni, í formi skemmtunar og listar.
Intersex: Einfalda skýringin á intersex
einstaklingum er að ekki er hægt að sjá
hvaða kyn einstaklingur fæðist sem.
Á fræðilegu máli er talað um kynlitn-
ingaröskun. Það getur bæði lýst sér sem
ósýnilegt (litningatengt) eða sýnilegt
(líkamlegt), t.d. hermaphrodite. Þó svo
að intersex flokkist ekki sem transgender
þótti okkur vert að nefna það hér í þessari
grein.
Þess vegna
n er talað um transfólk, en ekki kynskipt-
inga.
n er orðið kynskiptingur neikvætt þar sem
það hefur fengið á sig neikvæða merkingu
í gegnum tíðina og er mísvísandi, þar sem
einstaklingur er ekki að skipta um kyn,
heldur láta leiðrétta það.
n er transkona einstaklingur sem fæðist
líffræðilega karlkyns og lætur leiðrétta
kyn sitt í kvenkyn.
n er transmaður einstaklingur sem fæðist
líffræðilega kvenkyns og lætur leiðrétta
kyn sitt í karlkyn.
n er talað er um kynleiðréttingaraðgerð
eða kynleiðréttingu en ekki kynskiptiað-
gerð (þar sem einstaklingur er að láta
leiðrétta kyn sitt).
Hvert er hægt að leita? Það eru
ýmsir staðir sem einstaklingar geta leitað
til ef þá vantar frekari upplýsingar, stuðn-
ing eða einfaldlega spjall.
Upplýsingar úr bæklingi sem
Trans Ísland gaf út.
Í gleðigöngu Hér má sjá nöfnunar stoltar saman í gleðigöngunni í fyrra.„Margir leita mjög
út í feluleikinn og
grafa sig eins langt inni
í skáp og unnt er í þeirri
von að losna við þetta