Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 40
Helgarblað 31. janúar 201440 Lífsstíll
Í
samfélagi þar sem við eigum að
vera ofurforeldrar, ofurduglegir
starfskraftar, nautsterk í ræktinni
og alltaf í nýjustu tískunni með
nýklippt og litað hár getur verið
erfitt að finna tíma til að anda.
Mundu að það að slappa af og
gefa þér smá tíma fyrir þig getur
hreinlega verið lífsnauðsynlegt. Líf
ið er til þess að njóta þess. Prófaðu
að gefa þér smá tíma á hverjum degi
einungis fyrir sjálfan þig.
Í leit sinni að heilbrigðari kost
um eru margir tilbúnir til að gefa
kaffi upp á bátinn og það jafnvel án
þess að kynna sér kosti kaffis fyrir
heilsuna fyrst. Samkvæmt rannsókn
National Institute of Health eru þeir
sem drekka kaffi ólíklegri til að deyja
úr hjartasjúkdómum, lungnakrabba
meini, heilablóðfalli og sykursýki. Ef
þú elskar kaffi skaltu fá þér annan
kaffibolla. Án þess að fá samviskubit.
Þótt hreyfing sé af hinu góða
skaltu muna að taka þér frí frá rækt
inni einn og einn dag. Líkaminn þarf
tíma til að jafna sig á milli æfinga.
Að sama skapi er góður svefn
lykil atriði þegar kemur að góðri
heilsu og heilbrigði. Þegar þú sefur
losar líkaminn sig við streitu og álag
gærdagsins. Ekki gera óraunhæfar
kröfur til þín. Þú þarft ákveðið magn
af svefni. Leyfðu þér að sofa út ann
að slagið og njóttu þess að leggjast
snemma upp í rúm hina dagana.
Samkvæmt fjölda rannsókna ger
ir eitt rauðvínsglas á kvöldi okkur
gott. Rauðvín er fullt af andoxunar
efnum auk þess sem hófleg neysla
vinnur gegn hjartasjúkdómum,
krabbameini og andlegri hrörnun.
Ekki gleyma heldur að hæfilegt
kæruleysi þegar kemur að heimil
isstörfunum hefur engan drepið.
Hver samdi þær reglur að það þurfi
alltaf að þvo upp strax eftir matinn?
Eftir langan dag í vinnunni er allt í
lagi að gleyma leirtauinu um stund
og njóta frekar kvöldsins með fjöl
skyldunni. Diskarnir verða þarna í
fyrramálið. Enn betra er þó að hóa
allri fjölskyldunni saman, deila út
verkum og klára uppvaskið á ör
fáum mínútum. n
Hver segir að þú þurfir að vera á fullu allan daginn, alla daga?
Ertu útkeyrður?
Slepptu ræktinni og
uppvaskinu, fáðu þér
rauðvínsglas og sofðu út.
Slakaðu á – heilsunnar vegna
Heimur
Hendrikku
Þið munuð örugglega mörg fá
andúð á mér eftir lestur þessa
pistils. Ég er ekki stolt af þessari
lífsreynslu sem fer hér á eftir, en
vona svo innilega að einhver dragi
lærdóm af þessum skrifum mín
um. Það er vel hægt að bæta fyrir
mistök og verða betri manneskja
ef maður hefur farið út af sporinu.
Þegar ég var unglingur þurfti
ég á viðurkenningu að halda og
gerði fullt af hlutum sem ég er ekki
stolt af í dag. Ég byrjaði að fikta
í dópi og að reykja hass aðeins
15 ára gömul. Ég sniffaði gas, tók
alls konar pillur og reykti allt sem
brann … eða kannski allt að því.
Ég varð fljótt vinsæl meðal
hörðustu pönkara þessa tíma,
því ég vann í sjoppu og átti alltaf
til aur fyrir eiturlyfjum. Eitt skipti
þegar ég var nýbúin að fá útborg
að, sá ég gamla konu sem var að
tína flöskur úr ruslatunnu. Ég tók
upp seðlabúnt og kveikti í því fyr
ir framan hana í stað þess að gefa
henni aur. Þvílík mannvonska,
illska og hatur sem var til staðar í
sál minni.
Ég hékk í hitakompum með
gömlum dópistum. Ég var úti
gangsbarn á flótta frá sjálfri mér.
Mér var oft ögrað til að gera hluti
sem ég vildi alls ekki gera því innst
inni var ég skíthrædd við þetta líf
erni og félagsskap.
Ég var mönuð upp í að brjót
ast inn hjá þekktum dópsala og
ræna hann. Ég gerði það og stal
pilluglasi en skildi eftir 500 kall á
borðinu sem ég var með í vasan
um því mér leið svo illa að hafa
gert þetta.
Ég sá og upplifði fullt af hlutum
eins og að vera daglegur gestur
hjá einum af dæmdum barnaníð
ingum landsins. Hann var með
klámspólur úti um allt og oft voru
gamlir karlar hjá honum með okk
ur. Já, ég reykti og drakk með þeim,
en aldrei lenti ég í neinu ofbeldi.
HEPPIN!
Á þessum tíma var ég and
styggileg við foreldra mína og
bróður sem vildu og reyndu að
gera allt fyrir mig. Fjölskylda mín
stóð á gati yfir hegðun minni en
aldrei í eitt augnablik gáfust þau
upp á mér og fyrir það er ég svo
óendanlega þakklát.
Krakkar sem glíma við brotna
sjálfsmynd, sem ég svo sannarlega
gerði á þessum tíma, eru líklegri til
að láta tala sig inn á alls konar rugl
og vitleysu. Við sem erum foreldr
ar berum mikla ábyrgð og ættum
að gera allt sem við getum til að
ala börn okkar við heilbrigðar að
stæður.
Ég tók um eitt ár í þetta óreglu
tímabil og ákvað að hætta öllum
samskiptum við þennan félags
skap sem ég var í og snéri við blað
inu á einni nóttu. Ég uppgötvaði
að ég var ófrísk. Mamma, pabbi
og bróðir minn tóku mér opnum
örmum og ég eignaðist heilbrigt
barn sem var þvílík blessun … lífið
varð aftur dásamlegt.
Óargardýrið varð aftur góða
ljúfa stúlkan sem allir þekktu sem
slíka. Ég er reynslunni ríkari og
þakka guði fyrir að hafa ekki lent
verr í því.
Dópaði með
barnaníðingi
Hendrikka er heimshornavanur fagurkeri sem lætur
allt flakka. Hún tilheyrir „elítunni“, á nóg af pen-
ingum og er boðin í öll fínustu partíin. Hendrikka er
raunveruleg manneskja sem skrifar undir dulnefni.
É
g er sjálf einhleyp svo stofnun
síðunnar var að vissu leyti
ákveðin sjálfshjálparvið
leitni en einnig til að bæta
stefnumótamenningu Ís
lands,“ segir Fríða Fróðadótt
ir ein þeirra sem stendur á bak við
stefnumótasíðuna Kynna.is.
Meðmæli frá vini
Síðan fór í loftið þann 19. janúar og
að sögn Fríðu hafa viðbrögðin verið
góð. „Okkur fannst vanta vettvang
þar sem fólk kemur fram undir eigin
nafni og undir mynd. Svo til að fá
enn meiri dýpt í prófílinn biðjum
við um meðmæli frá vini. Vinir þín
ir skrifa miklu betri lýsingu um þig
en þú myndir nokkurn tímann gera
auk þess sem þeirra lýsing verður
klárlega mun skemmtilegri aflestrar.
Síðan gengur því út á það að vinur
mælir með þér; það klárar enginn
ferlið nema fá meðmæli frá vini.“
Fríða, sem er viðskiptafræðingur
að mennt og bjó í London um árabil,
segist ekki hafa haft löngun til að
skrá sig inn á aðrar stefnumóta
síður hér á landi. „Hinar síðurnar
henta mér ekki. Þar eru notuð not
endanöfn, ekki krafist mynda og
oft veistu ekkert við hvern þú ert
að tala, innan um fólk sem er að
leita að einhverju allt öðru en þú. Í
London eru allir á stefnumótasíð
um. Þú ert ekki spurð hvort þú sért á
stefnumótasíðu heldur á hvaða síðu
þú sért. Þegar ég kom heim fór ég að
kvarta yfir því að hér væri engin síða
sem væri mér að skapi og þá benti
vinkona mín mér á að stofna hana
sjálf. Sem ég gerði.“
Eins og atvinnuleit
Kynna.is er eingöngu fyrir einhleypa.
„Þessi síða er því einungis fyrir fólk í
makaleit en ekki þá sem eru að leita
að skyndikynnum og framhjáhaldi.
Það geta samt allir skoðað síðuna og
innihald hennar. Okkur fannst mikil
vægt að notendur geti skoðað síðuna
vel án þess að skrá sig því það er ekk
ert þægilegt að skrá sig á síðu án þess
að vita hvernig hún virkar.“
Fríða er að sjálfsögðu sjálf skráð
á Kynna.is. Aðspurð segir hún ekkert
óþægilegt til þess að hugsa að hver
sem er geti lesið hennar prófíl. „Ekki
frekar en þegar ég er spurð hvort ég
sé einhleyp. Þetta er bara eins og að
vera í atvinnuleit og vera skráð hjá
ráðningarfyrirtæki,“ segir hún og
bætir við að þar sem síðan sé fallega
hönnuð sé ekkert því til fyrirstöðu
að vera með hana opna fyrir allra
augum. „Þarna er sem sagt kom
inn vettvangur þar sem manni á að
líða vel og þar sem heiðarleiki ræður
ríkjum og allt er uppi á yfirborðinu.“
Eðlileg mannleg samskipti
Fríða trúir því að síðan sé þannig
byggð að einhleypir verði ekki feimn
ir við að skrá sig þar inn. „Ég vona líka
að þessi síða breyti stefnumótamenn
ingunni hér á landi. „Ég vil sjá fólk
óhræddara við að fara á stefnumót,
hittast yfir kaffibolla, fara í mat saman
eða í göngutúr. Á Íslandi er reglan að
hittast á djamminu. Sjálf er ég 38 ára
og þegar fólk er komið á minn aldur er
það ekkert alltaf á djamminu lengur og
þá getur reynst erfiðara að hitta fólk.
Það er líka bara heilbrigðara að hitta
fólk edrú og spjalla. Það þarf ekki að
vera fjögurra klukkustunda stefnumót
og þarf alls ekki að enda með trúlof
un. Mörgum finnst stefnumót vera
svo mikil skuldbinding; halda að með
einu deiti sé fólk komið í einhvern
pakka. Erlendis þykir það ekkert mál
og ef þú ert ekki að fíla viðkomandi af
þakkarðu bara pent. Sem sagt eðlileg,
mannleg samskipti.“ n
Hannaði öðruvísi
stefnumótasíðu
Fríða Fróðadóttir vill bæta stefnumótamenninguna á Íslandi
Fríða Fríða er
sjálf einhleyp og
að sjálfsögðu
skráð á síðuna.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Þessi síða er því
einungis fyrir fólk í
makaleit en ekki þá sem
eru að leita að skyndi-
kynnum og framhjáhaldi