Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Qupperneq 41
Helgarblað 31. janúar 2014 Lífsstíll 41
K
ínóa er með hollari mat
vælum sem fyrirfinnast
og hefur af mörgum ver
ið skilgreint sem svokölluð
„ofurf æða“. Vinsældir
þessara glútenlausu fræja hafa auk
ist gríðarlega á undanförnum árum
enda eru þau afar næringarrík og
góð fyrir heilsuna.
Þrátt fyrir að kínóa sé eldað og
neytt eins og hrísgrjóna eða annars
kornmetis er það í raun skylt græn
meti á borð við spínat og rauðróf
ur. Sá hluti sem er borðaður eru
fræ plöntunnar, þó svo að einnig sé
hægt að borða blöðin, og er kínóa
þar af leiðandi glútenlaust. Það er
líka gríðarlega próteinríkt en fræin
innihalda allar þær amínósýrur
sem nauðsynlegar eru manninum
og eru því gríðarlega holl og góð
fæða. Sumar þessara amínósýra
getur líkaminn ekki framleitt sjálf
ur og verða þær því að fást úr fæð
unni.
Alls eru þekktar um 120 ólíkar
tegundir af kínóa, en þær þekktu
stu eru hvítt kínóa, rautt og svart.
Kínóa fæst ekki eingöngu í formi
fræja heldur er einnig hægt að fá
kínóaflögur og kínóamjöl en slíkt
er til dæmis sniðugt í bakstur fyr
ir þá sem ekki geta eða vilja borða
glúten. n
horn@dv.is
Kínóa er sannkölluð ofurfæða
Glútenlaust og afar próteinríkt
Hollt og gott
Kínóa hentar vel
þeim sem ekki vilja
borða glúten.
5 góð ráð fyrir
andlitsþvott
Allflestir þvo sér í framan á hverj
um degi, bæði kvölds og morgna,
hvort sem það er með þvotta
poka, í sturtunni eða einfald
lega með því að skvetta vatns
gusu í andlitið. Þó eru nokkrir
hlutir sem gott er að hafa í huga
þegar kemur að andlitsþvotti og
húðumhirðu því ekki er alveg
sama hvernig farið er að ef halda
á andlitinu í sem bestu ásig
komulagi.
1 Ekki þvo þér of mikið Ekki þvo þér of mikið í
framan, hvorki of
lengi eða of oft á
dag. Mikið áreiti
á húðina getur
þvert á móti haft
þau áhrif að hún
eldist hraðar svo
gott er að miða við
að þvo andlitið ekki mikið oftar
en tvisvar á dag.
2 Notaðu mild efni Forðastu að nota venjulega
sápu og reyndu frekar að þvo
andlitið með mildum hreinsiefn
um sem sérstaklega eru ætluð
fyrir andlitið. Slík efni valda
minni ertingu í húðinni og fara
þar með betur með hana.
3 3. Þvoðu alltaf af þér farða Þótt það sé vissulega
freistandi að skríða
upp í rúm með
farðann ennþá í
andlitinu er það
eitthvað sem allir
ættu að varast.
Sérstaklega er mik
ilvægt að hreinsa augnmálningu
því að sofa með slíkt getur valdið
ertingu í augum og jafnvel valdið
sýkingu sé það gert oft.
4 4. Ekki nota of heitt vatn Það er sérstaklega
mikilvægt á veturna, þegar húðin
er gjarnan í þurrara lagi, að þvo
andlitið ekki með sjóðandi heitu
vatni. Heitt vatn getur nefnilega
valdið enn meiri þurrki og því
skaltu frekar nota ylvolgt vatn á
andlitið.
5 5. Skrúbbaðu húðina Til að fá fallega húð er afar
mikilvægt að skrúbba hana af og
til. Hægt er að kaupa
ýmsa skrúbba sem
gefa húðinni góða
næringu og raka
um leið og fíla
penslar og dauðar
húðfrumur eru
skrúbbaðar burt en
þó verður að passa að gera þetta
hvorki of oft né of harkalega því
það getur valdið ertingu í húðinni.
Eðlilegt að
vera döpur
Virtur sálfræðingur í Kanada segir
fólk of gjarnt á að gleypa pillur við
hversdagslegum leiða. „Við erum
ekki alltaf glöð og oft eru gildar
ástæður fyrir óhamingju okkar,“
segir sálfræðingurinn Joel Paris í
National Post og bætir við að við
lifum í samfélagi þar sem kraf
an sé sú að við séum ávallt með
sjálfstraustið í botni, í frábærum
samböndum og enn stórkostlegri
störfum.
Samkvæmt Paris er Kanada í
þriðja sæti yfir þær þjóðir sem éta
mest af þunglyndislyfjum en á list
anum eru Íslendingar í efsta sæti
og Ástralar í því þriðja. „Það er gott
og gilt að fá pillur við miklu þung
lyndi en pillurnar virka einfaldlega
ekki þegar um almennan leiða er
að ræða,“ segir Paris.
U
nnur Pálmarsdóttir, stöðvar
stjóri World Class á Sel
tjarnarnesi, hefur stundað
líkamsrækt um langt skeið
með góðum árangri. Blaða
maður hafði samband við Unni og
fékk nokkur góð ráð fyrir þá sem vilja
byrja í ræktinni og huga að heilsunni,
en hún segir mikilvægt að setja sér
markmið til að ná árangri og að æfa
með félaga til að gefast ekki upp. Þá
sé nauðsynlegt að ná góðum svefni
og stunda fjölbreyttar æfingar til að
erfiðið skili sér.
Hvað þarf fólk sem vill byrja í
ræktinni að hafa í huga?
„Ég legg áherslu á mikilvægi þess
að styrkja hjarta, tauga og æða
kerfi með þolæfingum og því er gott
að stunda alhliða og fjölbreyttar æf
ingar. Þannig verður líkaminn í bestu
alhliða formi. Gott er að skrifa niður
æfingaáætlun og ákveða hvaða þjálf
un þú vilt stunda og á hvaða tíma
dags. Markmiðið er að stunda lík
amsrækt 3–5 sinnum í viku í 30–60
mínútur í senn. Best er að stunda
styrktaræfingar með lóðum, bæði í
opnum hóptímum og í tækjasal, og
einnig er hægt að nota fallegu nátt
úruna okkar á Íslandi við fjölbreytt
ar æfingar.“
Hvað þarf maður að gera til að
gefast ekki strax upp á því að mæta?
„Besta ráðið sem ég get gefið ykk
ur er að stunda líkamsrækt með fé
laga. Félagslegi þátturinn er svo stór
hluti af líkamsræktinni. Ef þú æfir
með einhverjum þá hvetur það þig
áfram til að mæta á æfingar. Það er
ávallt gott að hafa góðan og skemmti
legan félagsskap þegar við stund
um líkamsrækt. Ég tel það vera bæði
hollt og gott að stunda líkamsrækt
ina saman. Tíminn er dýrmætur nú
á þessum tímum og því er tilvalið
að skipuleggja æfingar saman í takt
við gott fjölskyldulíf. Auðvitað getur
keppnisskapið farið með mann við
iðkun á ýmsum íþróttum. Í tækja
sal þá er það hvatningin og félags
skapurinn sem skiptir öllu máli.“
Hvernig æfingar er best að gera? Á
maður að byrja rólega eða af fullum
krafti?
„Best er að byrja rólega þegar við
erum að stíga fyrstu skrefin. Það er
nauðsynlegt til að læra vel allar æf
ingarnar og einnig til að hvatinn verði
ávallt til staðar og líkamsræktin verði
að lífsstíl. Lyfta að jafnaði 3–4 sinnum
í viku og stunda þolþjálfun/hóptíma
þá daga sem við hvílum okkur í tækja
sal. Ég mæli einnig með að stunda
útivist, ganga reglulega og synda.
Við þurfum að borða rétt og stunda
góðar styrktaræfingar fyrir allan lík
amann. Í lokin verð ég að hvetja alla
til fara einnig í jógatíma og að teygja
vel á vöðvunum eftir átök því liðleika
þjálfunin skiptir miklu máli.“
Hvað þarf að hafa í huga fyrir utan
líkamsræktina í sambandi við matar-
æði og annað?
„Það er nauðsynlegt að borða
hollan og góðan mat og temja sér
heilbrigt líferni fyrir alla lífstíð.
Drekka nóg af vatni og allt er gott í
hófi. Gott er að borða hráfæði, fisk
meti, kjúkling, ávexti, grænmeti, skyr
og grófmeti. Svefn skiptir miklu máli
þar sem við endurnærumst á líkama
og sál með góðum og djúpum svefni.
Besta leiðin er að byrja að hreyfa sig
og breyta rólega um mataræði, setja
sér markmið og fylgja þeim eftir.“
Lumar þú á einhverjum góðum
ráðum fyrir þá sem vilja ná árangri?
„Markmiðasetning er það ráð sem
ég get gefið ykkur. Setjið ykkur skýr
markmið, haldið æfingadagbók og
fylgið árangrinum eftir. Gerðu það
að venju þinni að stunda líkamsrækt
fjórum sinnum í viku. Með því að gera
rútínuna að föstum lið þá verður auð
veldara að ná settum markmiðum.
Því oftar sem þú stundar líkamsrækt
því fyrr nær líkaminn að aðlagast.
Gerðu mánudagsæfinguna í upp
hafi vikunnar að föstum lið og haltu
því áfram. Það er yndislegt að vakna
á mánudagsmorgni, stunda góða
heilsurækt og eiga alla vikuna eftir.“
Eitthvað sem þú vilt bæta við?
„Við eigum að finna líkamsrækt
sem hentar okkur best. Það er aðal
atriðið að gefast ekki upp þótt á móti
blási og halda áfram! Þótt að það
komi nokkrir erfiðir dagar þá stíga
eitt skref aftur og tvö skref áfram! Haf
ið ávallt tíma fyrir heilsuna – við eig
um aðeins einn líkama og við verð
um að virða líkama okkar. Heilsan
er það dýrmætasta sem við eigum og
þess vegna eigum við að hlúa vel að
henni.“ n
„Við eigum
aðeins einn líkama“
n Líkamsrækt er góð fyrir líkama og sál n Fjölbreyttar æfingar mikilvægar
Félagsskapur
skiptir máli Unnur
segir gott að stunda
líkamsrækt með fé-
laga til að gefast síður
upp á því að mæta.
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
Markmið til að ná árangri Unnur segir mikilvægt að setja sér markmið til að ná árangri.
Mynd pHotos.coM
„Það er nauðsyn-
legt að borða
hollan og góðan mat og
temja sér heilbrigt líferni
fyrir alla lífstíð.