Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 42
Helgarblað 31. janúar 201442 Lífsstíll
Lawrence áfram
hjá Dior?
Miklar vangaveltur eru nú yfir því
hvort bandarísku leikkonunni
Jennifer Lawrence hafi verið boð
ið að skrifa undir nýjan samning
við Dior um að vera andlit fyrir
tækisins næstu þrjú árin. Þetta
hefur ekki fengist staðfest hjá
hátískuhúsinu en afar háværar
raddir hafa heyrst vegna þessa
upp á síðkastið. Lawrence var
valin andlit Dior í október 2012,
eftir að Raf Simons, yfirhönnuð
ur merkisins, varð mikill aðdá
andi Óskarsverðlaunaleikkon
unnar, og hefur hún iðulega
sést í hönnun Dior á rauða
dreglinum síðan, meðal annars
þegar hún datt eftirminnilega á
leiðinni upp á sviðið á Óskars
verðlaunahátíð síðasta árs.
Blekblettir
á fingrum
Nýsjálenska söngkonan Lorde
vakti mikla athygli á Grammy
verðlaununum sem fram fóru
síðastliðinn sunnudag. Þessi
unga og efnilega söngkona tók
sinn þekktasta slagara, Royals,
og þótti afar smekkleg á sviðinu,
en hún klæddist hvítri skyrtu og
víðum, svörtum buxum auk þess
sem hún skartaði dökkfjólublá
um varalit. Það sem vakti þó helst
athygli við útlit söngkonunnar
voru neglur hennar, en í stað þess
að skarta hefðbundnu nagla
lakki var engu líkara en söngkon
an hefði dýft puttunum í blek.
Þannig var fremsti hluti fingr
anna þakinn dökkum lit, langt
út fyrir sjálfar neglurnar, og er
þetta nokkuð sem lítið hefur sést
af áður. Ætli þetta verði nýjasta
æðið í naglatískunni eða munu
blekneglurnar verða eitt af eins
tökum tískufyrirbrigðum Lorde?
Appelsínugular varir
og náttúruleg húð
Léttur farði og sólarpúður nauðsynlegt fyrir sumarið
E
lísabet Ormslev er tvítugur
förðunarfræðingur hjá
MAC. Hún starfar hjá MAC
í Kringlunni og tekur auk
þess að sér að farða fólk fyrir
hin ýmsu tækifæri en Elísabet spáir
mikið í förðunartískuna og lumar á
ýmsum góðum ráðum. Blaðamaður
DV hafði samband við Elísabetu og
spurði hana út í förðunartískuna
fyrir vorið og sumarið auk þess sem
hún deilir nokkrum góðum förðun
arráðum og sínum uppáhaldsvör
um með lesendum.
Hvernig verður förðunartískan
í vor og sumar?
„Appelsínugulur varalitur verður
áberandi í vor. Sérstaklega rauðir
með appelsínugulum undirtón, hef
séð mikið af því nýlega. Einnig mjög
ljósir berjatónar. Náttúruleg húð,
lítið um sólarpúður; meira hugsað
um að hún sé mjög fersk og ljóm
andi. Á sumrin eru bjartir varalitir í
öllum regnbogans litum alltaf mjög
sterkur leikur. Gyllt húð og brún
ir tónar eru líka mjög áberandi fyr
ir sumarið 2014 svo ég mæli með að
fólk fjárfesti í góðum „bronzer“ sem
hentar húðlit hvers og eins.“
Eitthvað nýtt sem er að
koma sterkt inn núna?
„Það er mjög áhugavert að fylgjast
með dökku varalitunum koma
þegar fer að hausta. Þeir eru alltaf
mjög viðeigandi á þessum árstíma
og haldast í tísku alveg fram á sum
ar; dökkrauðir og fjólubláir eru í
uppáhaldi hjá flestum sem þora
en ég hef mest tekið eftir að dökkir
brúnir tónar eru að koma mjög
skemmtilega á óvart.“
Hvaða vörur er nauðsynlegt
að eignast fyrir sumarið?
„Ég mæli með að eiga góðan létt
an farða, eins og til dæmis Face and
Body frá MAC og/eða Prep+Prime
BBkremið, einnig, eins og fyrr
var nefnt, að eiga fallegt sólarpúð
ur sem hentar húðlit hvers og eins.
Ég mæli með að fólk láti prófa á sér
áður en það kaupir „bronzer“ svo
að það sé örugglega ekki of appel
sínugult.“
Hvað er mikilvægt að hafa í huga í
sambandi við fallega förðun?
„Fyrst og fremst ber að hafa í huga
að undirbúa andlitið fyrir förðun
ina. Að nota gott rakakrem og/eða
„serum“ til þess að húðin haldist
fersk undir öllu því sem fer á húð
ina, svo sem farði og púður. Góðir
burstar finnst mér einnig vera lykil
atriði í fallegri förðun. Það er ekki
vitlaust að fjárfesta í einum mjög
góðum bursta, í farða til dæmis get
ur góður bursti skipt sköpum varð
andi útlit húðarinnar.“
Hvað er nauðsynlegt að
hafa í snyrtibuddunni?
„Rakakrem, góðan hylj
ara, púður, varasalva og
varalit eða gloss, kinnalit,
maskara og eitthvað í auga
brúnirnar. Þetta er allavega eitt
hvað sem ég gæti ekki verið án
fyrir mitt litla líf!“
Hver eru algengustu mistökin sem
fólk gerir í sambandi við förðun?
„Of mikill og dökkur farði/púður
er oftast efst á listanum hvað varð
ar förðunarmistök. Ég mæli alltaf
frekar með því að finna lit sem
fellur nákvæmlega við þinn húð
lit þannig að það myndist ekki skil
við kjálka eða háls, af því
að maður getur alltaf sett
smá kinnalit eða sólar
púður í kinnarnar til
að gefa andlitinu aft
ur smá líf.“
Lumar þú á ein-
hverjum góð-
um ráðum?
„Já,
persónu
lega
finnst mér þessar svoköll
uðu „förðunarreglur“ sjaldan
eiga við. Það eru vissulega til
hentugri aðferðir við sumt
en það má allt. Það fer aðal
lega eftir því hvernig þú út
færir það. Það má alveg vera
með bláan augnskugga við
bleikar varir, það má alveg
vera með „smokey eye“ um
augun og með dökkan vara
lit. Förðun er list, eins og að
mála málverk á striga, nema
í stað strigans kemur and
lit. Það getur bara verið töff
og skemmtilegt að fara út
fyrir reglukass
ann og prófa
hluti sem ein
hver sagði þér
áður að væru
„bannaðir“, það
gæti komið þér
skemmtilega á
óvart!“
Hverjar eru
þínar uppá-
haldsvörur?
„Mineralize
Moisture SPF
15farðinn
frá MAC er í
miklu upp
áhaldi og
er eiginlega
búinn að
vera það síð
an hann kom á
markað snemma
í fyrra. High
Impactmaskar
inn frá Clinique
fattar augnhárin
mín svo vel að ég
get ekki hætt að
nota hann. Studio
Fixmaskarinn
frá MAC er líka
himnasending.
Warm Soul
kinnaliturinn frá
MAC
klikkar
aldrei og
Prep+Prime Lip Primer er
nauðsynlegur í mitt líf þar
sem að hann lætur alla
varalitina mína endast
helmingi lengur og kemur
í veg fyrir að þeir smitist út
í fínar línur í kringum var
irnar.“ n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
„Það er mjög
áhugavert að
fylgjast með dökku
varalitunum koma
þegar fer að hausta.
Clinique High
Impact Mascara
MAC Face
and Body
Mineralize
Moisture
Foundation
Appelsínugular varir Elísabet segir
appelsínugulan varalit verða áberandi í vor.
Hvorki of dökkt né ljóst Elísabet segir
mikilvægt að velja farða í réttum lit.
Dökkur varalitur Dökkir varalitir hafa
verið heitir undanfarið.
Náttúruleg húð Fersk og ljómandi
húð verður málið í sumar.
Prep+Prime Lip Primer
Elísabet Ormslev
Elísabet segir að allt
sé leyfilegt í förðun.
Victoria
og tískan
Búið að opinbera fyrstu stikluna
úr væntanlegri heimildamynd
kryddpíunnar fyrrverandi; Victor
iu Beckham. Myndin ber nafnið
Five Years: The Victoria Beckham
Fashion Story og í myndinni opn
ar hún sig um það hvernig hún fór
frá því að vera kryddpía yfir í fata
hönnunarbransann.
„Ég hef alltaf elskað tísku og ég
var barn sem horfði á móður mína
taka sig til og hugsaði: Vá, þú lítur
ótrúlega vel út. Mig dreymdi alltaf
um að hanna mína eigin línu,“
segir hún í stiklunni fyrir myndina.