Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Qupperneq 50
Helgarblað 31. janúar 201450 Menning
Slagurinn um leikhúsin
Þ
að verða sviptivindar í
leikhúslífi landans, en
nýir leikhússtjórar setj-
ast í stóla Borgarleik-
húss og Þjóðleikhúss í ná-
inni framtíð. Leit stendur yfir að
hæfileikaríkri manneskju til að
taka við blómlegu búi Borgarleik-
húss af Magnúsi Geir Þórðarsyni
sem flytur sig um set í Efstaleiti. Þá
verður staða Þjóðleikhússtjóra lík-
lega auglýst með vorinu og ráðinn
inn nýr í stað Tinnu á næsta leik-
ári. Tinna mun einnig skila góðu
búi og skilar hagnaði eftir erfiðan
niðurskurð á krepputímum.
DV hefur heimildir fyrir því að
nú þegar hafi verið haft samband
við nokkra þjóðþekkta aðila í leik-
húslífinu og þeir spurðir um áhuga
á starfinu og tók DV í því sambandi
í góðu gamni saman lista yfir þá
sem þykja líklegir til stórra afreka
í stól leikhússtjóra. n
n Magnús Geir og Tinna skila góðu búi n Jón Gnarr, Kristín, Þorleifur og Gísli Örn eru orðuð við stöðurnar
Þorleifur er vonarstjarna leikhús-
heimsins um þessar mundir og
hefur feiknasterka sýn og ástríðu.
Það er ekki hægt að líta hjá Þorleifi
í leiðandi stöðu í leikhúsheimin-
um. Til þess er hann of hæfileik-
aríkur. Þorleifur hefur á skömm-
um tíma náð árangri og athygli
sem leikstjóri erlendis og hlotið
tilnefningar og viðurkenningar.
Hér á landi vakti hann athygli fyrir
uppfærslu sína á Englum alheims-
ins í Þjóðleikhúsinu. Öruggt er að
Þorleifi er veitt athygli af stjórn-
um beggja leikhúsanna hvort sem
hans tími er nú eða seinna. Gengi
hans sem leikstjóra er slíkt að
ekki er víst að hann vilji festa sig í
stjórnunarstöðu.
Þorleifur nam við hinn virta
leikhússkóla Ernst Busch í Berlín
og útskrifaðist þaðan 2008.
Eldhuginn: Unnur
Ösp Stefánsdóttir
Eins og Ólafur hefur Unnur Ösp
sýnt að henni eru allir vegir færir.
Henni er treyst, er fagmanneskja
og óhrædd við krefjandi verkefni.
Hún er sjálfstæð og efni í sterkan
leiðtoga. Hún er sögð eldhugi ur
Ösp hefur verið í fylkingarbrjósti
Fiðrildaviku UN Women og er einn
verndara samtakanna. Hún útskrif-
aðist frá leiklistardeild Listahá-
skóla Íslands 2002 og hefur síðan
þá starfað við leikhús og kvik-
myndir, sem framleiðandi, leikari
og leikstjóri. Hún framleiddi og
leikstýrði kvikmyndinni Reykja-
vík Guesthouse – rent a bike, leik-
stýrði dansmyndinni While the
Cat's Away og var höfundur og
leikari í heimildarleikhúsverk-
inu Venjuleg kona? sem sýnt var
í Nýlistasafninu. Hún leikstýrði
Fólkinu í blokkinni og söngleikn-
um Footloose í Borgarleikhúsinu.
Unnur Ösp er nú fastráðin leik-
kona við Borgarleikhúsið.
Gísli Örn og Rakel Garðarsbörn
eru nefnd í einni og sömu
andránni sem öflugt teymi í stjórn
leikhússins. Heyrst hefur að nú
þegar hafi verið haft samband við
Gísla Örn til að kanna áhuga hans
á stól leikhússtjóra í Borgarleik-
húsinu. Hann hefur þó svo mikið
á sinni könnu með Vesturporti að
ólíklegt þykir að honum hugnist að
beina kröftum sínum annað. Ekki
má vanmeta Rakel Garðarsdóttur,
systur Gísla og framkvæmdastjóra
Vesturports. Rakel er geysiöflug
markaðsmanneskja og tekst iðu-
lega með jákvæðum hætti að mala
gull úr viðfangsefnum sínum.
Rakel hefur nýtt allan aukreitis
tíma sinn til góðgerðastarfa á liðn-
um misserum og þótt fengur yrði
að henni í Borgarleikhúsið er útlit
fyrir að hún verði upptekin við að
leiðrétta karmahlutföll heimsins á
næstunni.
Baráttukonan:
Kolbrún
Halldórsdóttir
Kolbrún Halldórsdóttir sótti um
stöðu útvarpsstjóra en hlaut
ekki. Hæfileikar hennar í stjórn-
unarstöðu í leikhúsi eru hins
vegar óumdeildir. Hún þykir
einstaklega skemmtileg í sam-
starfi. Mannvinur, frjáls í fasi en
ákveðin.
Hún er forseti BÍL, Bandalags
íslenskra listamanna, og fyrrver-
andi alþingiskona og ráðherra
fyrir Vinstri græn. Þá er hún for-
maður stjórnar Leikminjasafns
Íslands og hefur setið í for-
mennsku ECA, Evrópuráðs
listamanna. Hún er baráttukona
að upplagi, hefur víðtæka þekk-
ingu á leikhúsinu og þykir væn-
leg í stól Þjóðleikhússtjóra.
Spíran: Una
Þorleifsdóttir
leikstjóri
Una Þorleifsdóttir er ein sú allra
hæfileikaríkasta í leikhúsheiminum
um þessar mundir. Hún útskrifaðist
sem leikstjóri frá Royal Holloway,
University of London árið 2004 en
hafði áður stundað nám í leikhús-
fræðum og list við Goldsmiths Colle-
ge, University of London.
Hún starfar sem lektor í sviðslist-
um við leiklistar- og dansdeild LHÍ.
Una stýrði Harmsögu í Þjóðleikhús-
inu í vetur en helstu leikstjórnarver-
kefni hennar eru fyrir utan það: Nú
er himneska sumarið komið eftir
Sigtrygg Magnason, sem var sýnt á
Árbæjarsafni 2013, Óraland (sam-
sköpunarverk unnið í samvinnu við
Jón Atla Jónasson og útskriftarnem-
endur LHÍ) í Nemendaleikhúsi LHÍ
2012, Bráðum hata ég þig eftir Sig-
trygg Magnason, í Nemendaleikhúsi
LHÍ 2010, og Gengið á vit sögunnar
í samvinnu við START ART og Lista-
hátíð í Reykjavík 2009. Eins og Unnur
og Ólafur gæti tími Unu verið seinna.
En hann mun koma!
Ástríki leiðtoginn:
Katrín Hall
Katrín Hall hætti sem listrænn
stjórnandi Íslenska dansflokksins
eftir sextán ára farsælt starf. Henni
tókst að gera Íslenska dansflokk-
inn að virtum nútímadansflokki og
kom honum á kortið með seiglu
og útsjónarsemi. Hún var alla tíð
óumdeild í starfi, var sterkur leið-
togi og fylgin sér. Hún bar traust
til starfsmanna sinna sem fylgdu
henni óhikað og gátu eflt ástríðu
sína. Katrín er alin upp í leikhúsinu í
gegnum ballettinn. Einhverjir nefna
að hún hafi ekki þekkingu eða sýn
á heim leikhússins en aðrir benda á
að ballettlistin sé hluti af leikhúsinu
og árangur hennar sé gott veganesti
í stól Borgarleikhússtjóra.
Vonarstjarnan: Þorleifur Arnarsson
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Stjórn Borgarleikhússins
n Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður
n Eggert Benedikt Guðmundsson,
varaformaður
n Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, ritari
n Ármann Jakobsson
n Hilmar Oddsson
Fagmaður:
Hilmar Jónsson
Hilmar Jónsson útskrifaðist
frá Leiklistarskóla Íslands árið
1990. Hann starfaði sem leikari
við Þjóðleikhúsið en árið 1995
stofnaði hann ásamt öðrum
Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóð
og Háðvöru. Síðan þá hefur
hann einkum sinnt leikstjórn
og stjórnað Hafnarfjarðarleik-
húsinu. Hann hefur nú leikstýrt
hátt í þrjátíu leiksýningum,
einkum hjá Hafnarfjarðarleik-
húsinu, en einnig hjá Þjóð-
leikhúsinu, Borgarleikhúsinu,
Nemendaleikhúsinu og á Norð-
urlöndum. Hilmar sótti um
stöðu Þjóðleikhússtjóra árið
2009 en laut í lægra haldi fyr-
ir Tinnu Gunnlaugsdóttur. Þá
þótti hann af yngri kynslóð um-
sækjenda en ef til vill er hans
tími runninn upp nú árið 2014.
Gullsystkinin: Gísli Örn Garðarsson
og Rakel Garðarsdóttir
Þjóðleikhúsráð
llugi Gunnarsson menntamálaráðherra
hefur skipað nýtt ráð. Ráðið skipa
Ingimundur Sigfússon formaður, Herdís
Þórðardóttir varaformaður og Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir en þau þrjú eru
skipuð án tilnefningar. Randver
Þorláksson er tilnefndur af Félagi
íslenskra leikara og Agnar Jón Egilsson
af Félagi leikstjóra á Íslandi.