Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2014, Page 62
Helgarblað 28. febrúar 201454 Fólk
Hæstvirtur
ráðherra
– hoppaðu upp
í rassgatið á þér
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er
á leiðinni í stjórnmál með Bjartri
framtíð í borginni og veltir því
eðlilega fyrir sér tíðarandanum.
Henni þykja reglurnar á Alþingi
úreltar. „Fáránlega úreltar regl-
ur á Alþingi að segja alltaf hátt-
virtur alþingismaður og hæst-
virtur ráðherra þegar því fylgir
svo yfirleitt; hoppaðuuppírass-
gatiðáþér!“ segir Ilmur.
Ófrísk Hanna
Rún enn að æfa
Dansarinn Hanna Rún Óladóttir
er enn að æfa dans á fullu þótt
hún sé gengin 26 vikur. Hanna
Rún og dansfélagi hennar og
kærasti, Nikita Bazev, eiga von
á litlum dreng í byrjun júní.
Miklar líkur hljóta að vera á
því að sá stutti verði hæfileik-
aríkur dansari enda með réttu
genin auk þess að vera búinn
að hoppa og skoppa í magan-
um á mömmu sinni í Heims-
bikarmótinu í Austurríki, á
International-mótinu í London
sem og Heimsmeistaramótinu í
Berlín. Meðgangan hefur geng-
ið eins og í sögu og eru verð-
andi foreldrar sagðir fullir eftir-
væntingar.
Leikkonur selja
fatabirgðir
Leikkonurnar Elma Lísa og Tinna
Lind ætla að selja af sér fallegar
spjarir á fatamarkaði í FÍL-hús-
inu, Lindargötu 6.
Elma Lísa hefur oftsinnis stað-
ið að veglegum fatamörkuðum
og ávallt úr mörgu að velja. Hún
lofar að þar verði að finna fullt af
flottum fötum, skóm, yfirhöfn-
um, töskum, glingri og öðrum
gersemum og hellir upp á kaffi
fyrir góða gesti.
Frægir mótmæla á
Leikarar, stjórnmálamenn og tónlistarfólk mætti á mótmælin
A
usturvöllur hefur iðað af
lífi undanfarna daga, en
fjöldinn allur hefur mætt
til að mótmæla áformum
og aðgerðum ríkisstjórnar-
innar. Á mánudaginn mættu hátt í
fjögur þúsund manns fyrir utan Al-
þingishúsið til að mótmæla þeirri
ákvörðun að stöðva aðildarviðræður
Íslands við Evrópusambandið og
hafa mótmælin haldið áfram alla
vikuna. Á þriðjudag söfnuðust svo
stúdentar saman og mótmæltu
kjaraskerðingu námsmanna. Fræga
fólkið lét sitt ekki eftir liggja í mót-
mælunum því fjölmörg þekkt andlit
sáust á Austurvelli í vikunni. n
Austurvelli
Dagur B. Eggertsson Dagur B.
Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar, var kátur á Austurvelli.
Þorvaldur Gylfason Þorvaldur
Gylfason mótmælti aðgerðum
ríkisstjórnarinnar á mánudag.
Sigurður Pálsson
Sigurður Pálsson skáld
mætti á Austurvöll.
Þorsteinn Bachmann
Leikarinn Þorsteinn Bachmann
leit við á mótmælunum.
Í djúpum samræðum Sveinn Andri og Ómar ræða málin á öðrum degi mótmæla.
MynDir SiGtryGGur Ari
Samúel Jón Samúelsson Sammi í
Jagúar lét sig ekki vanta.
Sólveig Arnarsdóttir Leikkonan Sólveig
Arnarsdóttir var á Austurvelli.
Skjöldur Sigurjónsson
Skjöldur Sigurjónsson, annar
eigenda Kormáks og Skjald-
ar, var flottur í tauinu.
Mummi í Götusmiðj-
unni Guðmundur Týr Þórar-
insson, betur þekktur sem
Mummi í Götusmiðjunni, var
mættur á Austurvöll.
Guðbjartur Hannesson
Guðbjartur Hannesson,
þingmaður Samfylkingar-
innar, leit við á mótmælum
stúdenta á þriðjudag.
G. Pétur
Matthíasson
og Eiríkur
Bergmann
Einarsson
Þeir G. Pétur
Matthíasson og
Eiríkur Bergmann
Einarsson
mættu báðir á
Austurvöll.
Gunnar Nelson á von á barni
Á leiðinni í risabardaga við andstæðing sem þekktur er fyrir rothögg
G
unnar Nelson bardagakappi
er staddur í London og býr sig
undir risabardaga við mikla
rotmaskínu þann 8. mars sem
verður sýndur í beinni útsendingu í
Smárabíói.
Omari Akhmedow er 26 ára Rússi
sem hefur unnið tólf bardaga í röð,
þar af sex með rothöggi. Gunnar er,
líkt og Omari, enn ósigraður. Því er
augljóslega mikið í húfi fyrir kapp-
ann og dagljóst að hörkuspennandi
bardagi er í uppsiglingu, en átök-
in fara fram í 02-leikvanginum í
London.
Fleiri en öllu ljúfari átök eru
framundan í lífi Gunnars sem á von
á barni. Hann vill ekkert ræða um
barneignirnar og vill ekki ræða um
einkalíf sitt í fjölmiðlum.
Faðir Gunnars, Haraldur, ítrekar
þetta. „Þau eru bæði góðar mann-
eskjur og eiga eftir að standa sig vel.
Gunnar er þannig úr garði gerður
að hann vill ekki ræða þessa hluti og
heldur þeim fyrir sig.“
Haraldur segir undirbúning undir
bardagann ganga vel. Gunnar hafi al-
farið náð sér af meiðslum sem hrjáðu
hann á hné. „Hann hefur aldrei ver-
ið í eins góðu formi og núna. Gunn-
ar tekur engar syrpur fyrir bardaga,
hann heldur dampi út allt árið.
Andlegi undirbúningurinn skipt-
ir svo mestu máli, að halda fókus og
vera æðrulaus. Þá eiginleika hefur
hann til að bera og hefur alltaf verið
sultuslakur,“ segir hann og hlær.
Sem faðir hefur hann auðvitað
nokkrar áhyggjur af meiðslum og þá
helst á höfði. „Hættan í MMA ligg-
ur í rothöggum. Maður er auðvit-
að alltaf pínulítið á tánum með það
þegar menn fá þung högg á höfuðið.
Ég hef aldrei svo miklar áhyggjur
af því hvort Gunnar tapar eða sigr-
ar heldur því að báðir aðilar komi
heilir út. Ég vil hvorugan aðila sjá
meiddan. Meiðsli og slys eru hluti
allra íþrótta og ég held að Gunn-
ar komi vel út úr þessum bardaga.
Hann tekur þetta.“ n kristjana@dv.is
Faðir í fyrsta sinn
Gunnar býr sig undir
stóran bardaga og eitt
stærsta hlutverk lífsins,
föðurhlutverkið.