Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 28.–31. mars 20144 Fréttir
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Forlagsverð:
2.990 kr.
Þ
að var aðeins bjartara yfir
þessu í dag en í gær,“ sagði
Sigríður Ragna Birgisdóttir,
sem er í verkfallsstjórn
framhaldsskólakennara, í
samtali við DV á fimmtudag. Líkt og
fram hefur komið leit á miðvikudag
allt út fyrir að viðræður kennara við
ríkið hefðu siglt í strand.
Verkfall framhaldsskólakennara
hefur nú staðið í tæpar tvær vik-
ur eða tólf daga á föstudag. Á mið-
vikudag barst kennurum tilboð frá
ríkinu sem talið var óboðlegt. „Við
fengum tilboð frá ríkinu 12. mars
og svo annað í gær. Það seinna var
raunlækkun frá fyrra tilboðinu, ekki
mikil en nóg til að við urðum mjög
ósátt. Það hefði aldrei þýtt neitt að
bjóða félagsmönnum okkar upp
á það,“ sagði Stefán Andrésson,
fulltrúi samninganefndar fram-
haldsskólakennara og stjórnenda,
við DV á miðvikudag. Þetta tilboð
breyttist á fimmtudag og þótti það
vera nýr flötur á kjaraviðræðunum,
en kennarar höfðu neitað að ræða
vinnutíma eða annað fyrr en fregn-
ir af launaliðum kæmu fram.
Viðræðurnar hafa þó gengið
mjög hægt og oft komið í þær
bakslag og á miðvikudag var þungt
hljóð í kennurum og þeir voru
svartsýnir á framhaldið. Engu síður
er mikill baráttuhugur í kennurum
sem segjast vera langþreyttir á lág-
um launum og mikilli vinnu. „Við
stöndum keik og gefum engan af-
slátt,“ sagði kennari sem DV ræddi
við á fimmtudag. „Þetta er samt erf-
ið staða en vonandi er að birta til,“
sagði hún. Funda átti allan daginn
á fimmtudag, en kennarar hittast
daglega í verkfallsmiðstöðinni í
Framheimilinu. n
astasigrun@dv.is
„Aðeins bjartara yfir þessu“
Bjartsýni, en staðan er þó enn erfið í kennaradeilu
M
ér var sagt upp af engum
sökum,“ segir Sigurður
Einarsson sem hefur starf-
að sem framkvæmdastjóri
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni um nokkurt
skeið. Honum var sagt að félagið
bæri það ekki fjárhagslega að hafa
hann í vinnu. Það er þrátt fyrir að fé-
lagið skilaði hagnaði í fyrra og í hitti-
fyrra, samkvæmt ársreikningum þess.
Eiginmaður gjaldkera félagsins fær
auk þess tæpa hálfa milljón krónur á
mánuði fyrir að spila fyrir dansi viku-
lega. Facebook-síðu félagsins var lok-
að af stjórnarmönnum eftir að um-
ræða hófst þar um uppsögn Sigurðar.
Ekki í samræmi við lög félagsins
„Það var ekkert út á mín störf að setja.
Það var talað um áherslubreytingar
hjá félaginu,“ segir Sigurður í sam-
tali við DV. Í uppsagnarbréfi hans,
sem DV hefur undir höndum, segir
að verkefni framkvæmdastjóra verði
færð til formanns, varaformanns
og gjaldkera félagsins. Stingur þessi
skýring í stúf við lög félagsins sem
segja til um að það skuli vera fram-
kvæmdastjóri og hefur staðan verið
til frá stofnun félagsins.
Sigurður hefur að undanförnu
staðið fyrir undirskriftasöfnun meðal
félagsmann með það að markmið að
haldinn verði félagsfundur þar sem
uppsögn hans verði skýrð. Hann hef-
ur safnað hundrað og sjötíu undir-
skriftum en þrátt fyrir þrjá stjórnar-
fundi hefur félagsfundur ekki verið
settur á dagskrá.
Fjögur hundruð þúsund fyrirböll
„Ég þykist vita hvað stendur að baki.
Það er persónuleg óvild stjórnar-
manns í minn garð. Það er fyrst og
fremst Birna Bjarnadóttir, gjaldkeri
stjórnar. Hún hefur sýnt það seinasta
árið að hún ber einhvern kala til mín.
Það hefur fram að þessu ekki komið
til neinna átaka en hún heilsar mér
ekki og virðir mig ekki viðlits,“ segir
Sigurður. Hann telur að rekja megi
þennan kala að einhverju leyti til
þess að hann hafi verið gagnrýninn
á háar greiðslur til eiginmanns Birnu,
Hauks Ingibergssonar, en hann hef-
ur leikið fyrir dansi vikulega í hart-
nær áratug fyrir félagsmenn. Hann
fær um fjögur hundruð þúsund krón-
ur í verktakagreiðslur á mánuði fyrir
að spila á dansiböllunum fjóra daga í
mánuði, að jafnaði.
„Ég hef þurft að kalla í Hauk og
setja út á þetta. Ég var bara í þeirri
stöðu að ég gat ekki farið með þetta
fyrir stjórn vegna þess að kona hans
er gjaldkeri. Eftir á að hyggja tel ég
þetta sé eitt af því sem hefur haft
áhrif.“ Ekki náðist í Birnu við vinnslu
fréttarinnar en Haukur staðfestir í
samtali við DV að hann hafi haldið
dansiböll fyrir félagið frá árinu 2005.
Hann neitar þó að tjá sig um hve mik-
ið hann fær fyrir.
Tilraun til þöggunar
Sigurður segir að lokun Facebook-
síðu félagsins sé tilraun til þöggunar.
Hann hafði rætt við umsjónarmann
vefsíðu- og tölvumála félagsins sem
hafi sagt honum að Bryndís Hagan
Torfadóttir hafi krafist þess að síð-
unni yrði lokað. „Síðan var ekki á veg-
um Félags eldri borgara í Reykjavík
og þar af leiðandi enginn til að upp-
færa hana með sérstökum fréttum.
Konan hans Sigurðar hafði sett upp
Facebook-síðuna. Við vissum ekki af
henni. Það hefði svo sem ekkert gert
til ef hann hefði ekki verið að nota
þessa síðu til að skrifa bréf. Síðan var
merkt eins og hún kæmi frá Félagi
eldri borgara svo við lokuðum henni
bara,“ segir Bryndís.
Sigurður segir að vissulega hafi
hann staðið fyrir að koma Facebook-
síðu laggirnar. „Þetta var Facebook-
síða félagsins, ég er með mitt eigið
Facebook. Það hefði vel verið hægt að
taka mig út sem stjórnanda,“ segir Sig-
urður. Hann telur að það sé ekki nægi-
leg góð skýring.
„Það þarf ekki að gefa nein rök“
Bryndís Hagan, stjórnarmaður félags-
ins, segir að ástæðan fyrir uppsögn
Sigurðar hafi verið slæm fjárhags-
staða félagsins. Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir, formaður félagsins, vildi hins
vegar sem minnst tjá sig um uppsögn
Sigurðar sem og greiðslur til Hauks í
samtali við DV. Spurð um hvers vegna
Facebook-síðu félagsins hafi verið
lokað eftir að umræða fór þar á stað
um uppsögn Sigurðar segir Þórunn:
„Ég skulda þér enga skýringu á því.“
Þórunn telur ekkert athugavert við
uppsögn Sigurðar. „Þetta mál er bara
venjuleg uppsögn og löglega að henni
staðið. Það þarf ekki að gefa nein rök
fyrir henni. Þetta er heimilt, það eru
lög á bak við þetta. Ég held að þetta
sé bara ekkert sem á erindi í blöðin,“
segir Þórunn áður en hún skellti á
blaðamann. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Sigurður Einarsson segir
að sér hafi verið sagt
upp vegna þess að hann
gagnrýndi háar verk-
takagreiðslur til eigin-
manns gjaldkera Félags
eldri borgara Reykjavíkur
og nágrennis.
mynd sigTryggur ari
„Ég var bara í þeirri
stöðu að ég gat
ekki farið með þetta fyr-
ir stjórn vegna þess að
kona hans er gjaldkeri.
Gagnrýndi greiðslur til
eiginmanns gjaldkera
n Spilar fyrir dansi einu sinni í viku n Kvartaði og var látinn fara
Snjóflóð í
Bláfjöllum
„Þetta er bara eitthvað sem
verður lagað í sumar. Lyftan er
í fínu lagi,“ segir Einar Bjarna-
son, rekstrarstjóri í Bláfjöllum,
um snjóflóð sem féll á suður-
svæðinu í Bláfjöllum aðfara-
nótt fimmtudags. Lýsingarstaur
skekktist í flóðinu, en að öðru
leyti virðist ekki hafa orðið
tjón vegna sjóflóðsins, að sögn
Einars. Hægt er að fylgjast með
framgangi mála á vefsíðu Blá-
fjalla, skidasvaedi.is.
Fjölmenni Kennarar hittast daglega í
verkfallsmiðstöðinni. mynd sigTryggur ari
Borga fyrir
eigin bleyjur
Kjaranefnd Félags eldri borgara
í Reykjavík skorar, í tilkynningu
til fjölmiðla, á heilbrigðisráð-
herra að afturkalla hækkanir
á komugjöldum í heilbrigðis-
þjónustu. Þar segir að ýmsar
hækkanir stjórnvalda á þjón-
ustu komi öldruðum og ör-
yrkjum mjög illa. „Dregið var
svo mikið úr niðurgreiðslum
á stoðtækjum og hjálpartækj-
um, að verð á þeim hefur stór-
hækkað. Sjúklingar sem þurfa á
bleyjum að halda, þurfa nú að
greiða 4–5.000 kr. á mánuði fyr-
ir þær, en áður voru þær ókeyp-
is. Með þessum hækkunum er
ríkisstjórnin að taka að mestu
til baka þær kjarabætur, sem
hún hafði áður veitt öldruðum
og öryrkjum,“ segir í tilkynn-
ingunni.