Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 12
Helgarblað 28.–31. mars 201412 Fréttir M ikil óvissa er um hver efna­ hagsleg áhrif skuldarniður­ fellingar ríkisstjórnarinn­ ar verða í raun og veru. Spár Seðlabanka Íslands og greiningafyrirtækisins Analytica eru mjög ólíkar og gera ráð fyrir mis­ munandi afleiðingum. Forsenda þess að áhrifin verði hófleg er að gengi krónunnar haldist stöðugt og að verð­ bólgu verði haldið í skefjum. Þetta kemur fram í greinargerð með frum­ varpi fjármálaráðherra um niðurfell­ ingar á verðtryggðum fasteignalánum einstaklinga á árunum 2008 og 2009. Í lagafrumvarpinu heldur ríkis­ stjórnin því einnig opnu að leið­ réttingarhluti lána muni enda á herð­ um lántakenda aftur, fáist ekki árlegt fjármagn frá Alþingi. Fjármögnun ákveðin árlega Ríkisstjórnin getur ekki skuldbundið Alþingi til að veita fjármagni í aðgerð­ irnar. Samþykkja þarf árlegt fjármagn til þeirra í hverjum fjárlögum fyrir sig. Það þýðir að þrátt fyrir ákvörðunina núna verður framkvæmd niðurfell­ inganna háð ákvörðun Alþingis hverju sinni. Það verður þó að teljast ólíklegt að núverandi stjórnvöld hætti við eða dragi úr aðgerðunum. Því til viðbót­ ar er ekki ljóst hversu dýrar aðgerð­ irnar munu reynast ríkissjóði þar sem heildarumfang aðgerðarinnar kemur ekki í ljós fyrr en hún er þegar hafin. Heildarumfangið mun ekki liggja fyrir fyrr en að loknu umsóknarferli en gert er ráð fyrir að það verði næstkom­ andi haust. Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir um niðurfellinguna frá 15. maí næstkomandi og það standi til 1. september. Á blaðamannafundi sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benedikts­ son, fjármála­ og efnahagsráðherra, héldu um aðgerðina á miðvikudag kom fram að reiknað sé með að lang­ flest heimili nýti sér hana. Af því leið­ ir að kostnaðurinn er metinn á um 72 milljarða króna auk vaxta og verðbóta. Veruleg óvissa og áhættuþættir „Ljóst er að mikil óvissa er um heildar­ áhrif aðgerðanna og áhættuþættir eru fjölmargir,“ segir í athugasemdum með frumvarpi fjármálaráðherra. Þar er rakið hverjir helstu áhættuþættirn­ ir eru samkvæmt greiningum sem Seðlabanki Íslands gerði annars vegar og greiningarfyrirtækið Analytica hins vegar. Talsverður munur er á þessum tveimur greiningum enda byggjast þær á ólíkri aðferðafræði. Báðar bera þær þó með sér þá miklu óvissu sem felst í efnahagslegum áhrifum að­ gerðanna, eins og það er orðað í athugasemdunum. Greining Seðlabanka Íslands er mun umfangsmeiri en sú sem fyrir­ tækið Analytica framkvæmdi og er gjarnan vísað í. „Munar ekki síst um það að fjárfesting, nafnlaun og vaxta­ stig eru innri breytur í líkani Seðla­ bankans en ekki í greiningu Ana­ lytica,“ segir um mun á greiningunum. „Þjóðhagsleg áhrif aðgerðanna eru til­ tölulega mild samkvæmt greiningu Analytica þótt talsverðra örvandi áhrifa geti gætt á fjárfestingu í íbúðar­ húsnæði. Spá Seðlabankans gerir ráð fyrir mun meiri áhrifum.“ Ýtir undir einkaneyslu og verðbólgu Báðum aðilum ber saman um að að­ gerðirnar leiði til lækkaðrar greiðslu­ byrði en Seðlabankinn telur að sú staða ýti undir þjóðarútgjöld á grund­ velli aukinnar einkaneyslu. Það muni svo hafa þau áhrif að verðbólga auk­ ist, vextir hækki og fjárfesting verði minni en ella. Auknar inngreiðslur í séreignarlífeyrissparnaðarsjóði gætu haldið aftur af aukningu einkaneysl­ unnar á meðan þær vara. Það er þó tímabundin aðgerð en til þess fallin að auka á fjárfestingu í íbúðarhúsnæði. Það mun þó velta talsvert á framgangi og útfærslu annarra tillagna ríkis­ stjórnarinnar; afnámi verðtryggingar og framtíðarskipan húsnæðismála. Seðlabankinn spáir því að að­ gerðirnar leiði til þess að vöxtur einkaneyslu verði fjórum prósentum meiri á þriggja ára tímabili en annars hefði orðið. Analytica er heldur ekkert vitað um afleiðingarnar n Efnahagsleg áhrif og kostnaður skuldaniðurfellinganna er óljós 20.000 15.000 10.000 5.000 0 0–0,5 m. 0,5–1 m. 1–1,5 m. 1,5–2 m. 2–2,5 m. 2,5–3 m. 3–3,5 m. 3,5–4 m. Svona skiptist niðurfærslan Súlurnar sýna hvernig niðurfærslan skiptist á milli heimila. Stærsta súlan sýnir þannig að 20 þúsund heimili fá leiðréttingu sem nemur frá hálfri til einnar milljónar króna. hóflegri í sinni spá og gerir aðeins ráð fyrir 0,4 prósenta vexti umfram það sem annars hefði orðið. Fjármála­ ráðuneytið telur þetta hins vegar of­ mat þar sem ekki sé gert ráð fyrir því að við höfuðstólslækkunina muni vanskil og jöfnunarreikningar vegna greiðslujöfnunar fyrst lækka. Allt dregið frá Líkt og í tillögum sérfræðingahóps­ ins sem vann upphaflegu niðurfell­ ingartillögurnar fyrir ríkisstjórnina er gert ráð fyrir að allar fyrri afskriftir og niðurfærslur komi til frádráttar þeim rétti sem fólk kann að eiga til niður­ fellingar nú. Þá verður afskriftun­ um líka fyrst beitt á jöfnunarreikning vegna greiðslujöfnunar, sé til staðar skuld á honum við framkvæmd niður­ fellingarinnar, sem mun þýða að í ein­ hverjum tilfellum finni fólk ekki fyrir niðurfellingunni með sama hætti og annars hefði verið. Á síðasta kjörtímabili voru 107,94 milljarðar afskrifaðir eða veittir í sér­ stakar vaxtabætur til skuldara. Lang­ mestu skilaði 110 prósenta leiðin svo­ kallaða þar sem fasteignalán voru færð niður um samtals 46 milljarða króna. Greiðslufrestanir námu svo 33 milljörðum króna, sérstakar vaxta­ bætur 12,3 milljörðum, greiðslujöfn­ un hjá Íbúðalánasjóði 7,6 milljörðum og sértæk skuldaaðlögun 7,3 millj­ örðum. Allar tölurnar eru fengnar úr skýrslu sérfræðingahópsins sem nú­ verandi stjórnvöld skipuðu. Ekki greint eftir eignastöðu Athygli vekur að í yfirliti sem birtist með frumvarpinu um skiptingu niðurfellinganna eftir heimilum er ekki tiltekið hvernig niðurfell­ ingin skiptist miðað við eignir fjöl­ skyldnanna sem eiga í hlut. Skoðað er hvernig skipting niðurfellingar­ innar er eftir árstekjum heimil­ is, eftir fjölskyldustærð, eftirstöðv­ um fasteignaláns og aldursbilum. Skuldaaðgerðirnar hafa einna helst verið gagnrýndar fyrir það að verið sé að færa fé úr ríkis sjóði og afhenta það eignafólki sem þarf ekki á því að halda. Ekki er gerð tilraun til að svara þessari gagnrýni eða skýra stöðuna í skýringum með frumvarpinu. Samkvæmt þeim greiningum sem liggja fyrir munu tæplega 40 prósent af milljörðunum sem verja á til að­ gerðanna fara til heimila með árs­ tekjur umfram átta milljónir. Um 44 prósent niðurfellingarinnar fara í hlut heimila með árstekjur undir sex milljónum króna. Meðalfjárhæð niðurfærslunnar hækkar eftir því sem heimilistekjur eru hærri. Það er vegna þess að þau heimili eru að jafnaði skuldugri en þau sem eru tekjulægri. Hlutfall fjárhæðar niðurfærslunnar og árstekna er aftur á móti hærra hjá tekjulægri heimilunum. Pólitíska staðan líka óljós Það er ekki bara efnahagslegar af­ leiðingar aðgerðanna sem eru óljós­ ar heldur einnig pólitískar afleiðingar þeirra. Frækinn sigur framsóknar­ manna má að miklu rekja til fyrir­ ferðarmikilla loforða um skuldaniður­ fellingu og ríkisstjórnarsamstarfið er reyst á grundvelli þess og loforðs um afnám verðtryggingar. Kjósendur hafa beðið lengi eftir að sjá loforðin koma til framkvæmda þrátt fyrir að innan við ár sé frá kosningum. Fylgi og stuðningur við ríkisstjórnina hefur hrunið frá kosningum. Líklega kem­ ur það ekki í ljós fyrr en aðgerðirnar eru komnar til framkvæmda að fullu hvaða áhrif þær muni hafa á pólitíska stöðu þeirra Sigmundar Davíðs og Bjarna og flokka þeirra. n Í hnotskurn n 67.000 heimili eiga rétt á niðurfellingu n Meðalfjárhæð niður- fellingar er 1,1 milljón n 5.000 heimili sem áttu lán 2009 fá ekkert Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.