Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 10
Helgarblað 28.–31. mars 201410 Fréttir
E
mbætti sérstaks saksóknara
mun að öllum líkindum
kæra frávísunarúrskurðinn
í málinu gegn Hannesi
Smárasyni, fyrrverandi for
stjóra og stjórnarformanni FL
Group, út af millifærslunni út úr FL
Group árið 2005. Ákærunni í mál
inu gegn Hannesi var vísað frá á
miðvikudaginn á grundvelli van
reifunar: „Engar skýringar er að
finna í röksemdum fyrir því hvern
ig ákærði lét millifæra fjármunina,“
segir í niðurstöðu dómarans, Guð
jóns Marteinssonar. Embættið hef
ur frest þar til í dag, föstudag, til að
kæra úrskurðinn.
Líkt og DV hefur margoft fjallað
um snýst málið um tæplega þriggja
milljarða króna millifærslu út úr
FL Group í apríl 2005. Peningarn
ir voru millifærðir af bankareikn
ingi FL Group og inn á bankareikn
ing Fons, fjárfestingarfélags Pálma
Haraldssonar, en félagið notaði
peninga svo til að greiða fyrir
danska flugfélagið Sterling. Fons
seldi Sterling svo til FL Group
á uppsprengdu verði nokkrum
mánuðum síðar og átti svo eftir að
kaupa það aftur af FL Group fyrir
enn hærri upphæð í gegnum ann
að félag.
Vantar lýsingu á brotinu
Ákæruefnið í málinu er fjárdráttur
og byggir meint sakarefni á því að
Hannes hafi misnotað aðstöðu sína
sem stjórnarformaður FL Group
þegar hann fyrirskipaði millifærsl
una. Líkt og DV hefur fjallað um
lét Hannes annan starfsmann FL
Group stofna sérstakan reikn
ing í Kaupþingi í Lúxemborg til að
taka við millifærslunni. Tölvupóst
ur frá Hannesi mun einnig vera
til í málinu sem og frekari gögn
frá Lúxemborg sem sýna fram á
hvert peningarnir fóru og hvern
ig en embætti sérstaks saksóknara
beið lengi eftir þessum gögnum frá
Lúxem borg. Þessi bankagögn eru
lykil atriði á bak við þá staðreynd að
hægt var að ákæra í málinu.
Dómarinn í málinu var hins
vegar ekki sannfærður um sakar
efnið við lestur ákærunnar. Orðrétt
segir í úrskurði hans: „Í ákærunni
segir að ákærði hafi látið millifæra
þessa fjármuni af bankareikningi
FL Group hf. í Kaupthing Bank Lux
embourg S.A., yfir á reikning Fons
eignarhaldsfélags í sama banka.
Ekki er í ákærunni nánari lýsing á
því hvernig ákærði lét gera þetta en
fram kom við munnlegan málflutn
ing vegna frávísunarkröfunnar að
ákærði neitar sök í málinu.“
Verknaðarlýsingu á meintum
fjárdrætti Hannesar vantar því í
ákæruna að mati dómarans.
Embættið getur lýst
verknaðinum
Það sem virðist vera vandamálið
í málinu er að embætti sérstaks
saksóknara hafi ekki lýst því með
nægilega ítarlegum og nákvæmum
hætti hvernig Hannes Smárason
kom að millifærslunni á peningun
um og hvernig. Miðað við þau gögn
og þær upplýsingar sem fyrir ligg
ur að embættið hefur þá ætti það
að geta lýst aðkomu Hannesar með
nákvæmari hætti.
Embætti sérstaks saksóknara
getur kært úrskurðinn til Hæsta
réttar Íslands. Að öllum líkindum
verður þetta gert. Fari svo að Hæsti
réttur staðfesti niðurstöðu Héraðs
dóms Reykjavíkur þá mun emb
ætti sérstaks saksóknara geta ákært
aftur í millifærslumálinu með ná
kvæmari og ítarlegri hætti. Stað
festing Hæstaréttar á úrskurði Hér
aðsdóms Reykjavíkur myndi hins
vegar ekki koma sér vel fyrir emb
ættið.
Hugsanlegt er að niðurstaða
Hæstaréttar varðandi annað mál
sem vísað var frá dómi í héraði,
Asertamálið, muni hafa ákveðið
fordæmisgildi í Hannesarmálinu.
Ef Hæstiréttur Íslands snýr við frá
vísun héraðsdóms í því máli, sem
snýst um meint gjaldeyrislagabrot,
er afar líklegt að rétturinn muni
einnig fallast á að ákæran í máli
Hannesar hafi verið vanreifuð en
báðum málunum var vísað frá á
grundvelli vanreifunar í ákæru. n
Kæra líklega
úrskurð í
Hannesarmáli
n Ákæran talin ófullægjandi n Betri lýsingu á aðkomu Hannesar vantaði
„Nánar tiltekið lét ákærði [Hannes Smára-
son] 22. apríl 2005 millifæra 46.500.000
bandaríkjadali af bankareikningi FL Group
hf. nr. 002-1006036216 í útibúi Danske
Bank í New York í Bandaríkjunum inn á
bankareikning FL Group hf. nr. 401301 í
Kaupthing Bank Luxembourg S.A., sem
ákærði hafði látið stofna 17. apríl 2005, en
samkvæmt sérstöku umboði, sem barst
síðastnefndum banka 20. apríl 2005,
hafði ákærði fullt og ótakmarkað umboð
til ráðstafana á fjármunum félagsins á
þeim bankareikningi. Hinn 25. apríl 2005
var 45.864.241,84 bandaríkjadölum skipt
yfir í 2.875.000.000 íslenskra króna í
gjaldeyrisviðskiptum á áðurnefndum
reikningi FL Group hf. í Kaupthing Bank
Luxembourg S.A. Sama dag lét ákærði
millifæra 2.875.000.000 króna af sama
bankareikningi yfir á bankareikning Fons
eignarhaldsfélags hf. nr. 401098 í sama
banka en ráðstöfunin var ekki í þágu FL
Group hf. eða hluti af lögskiptum félagsins.
Millifærslan var framkvæmd án vitundar,
og þar með samþykkis, þáverandi for-
stjóra, fjármálastjóra og annarra meðlima
í stjórn FL Group en ákærða. Sama dag
var fjárhæðinni skipt yfir í 260.889.292,20
danskar krónur og 375.000.000 danskra
króna millifærðar af sama reikningi Fons
eignarhaldsfélags hf. yfir á bankareikning
þáverandi eiganda Sterling Airlines A/S.
Takmörkuð lýsing í ákæru
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is „Engar skýringar er að finna í
röksemdum fyrir því
hvernig ákærði lét
millifæra fjármunina.
Ekki búið hjá
Hannesi Sérstakur
saksóknari mun
áfrýja frávísunarúr-
skurði Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli
Hannesar Smára-
sonar til Hæstarétt-
ar Íslands.
Léttara yfir
landanum
Íslendingar eru nú mun bjart
sýnni á ástand og horfur í efna
hags og atvinnumálum miðað
við seinni helming síðasta árs,
ef marka má Væntingavísitölu
Gallup fyrir marsmánuð. Grein
ing Íslandsbanka gerir þetta að
umtalsefni á vef sínum og vísar í
Capacent Gallup sem birti niður
stöður vísitölunnar í vikunni.
Vísitalan hækkaði um tæp
níu stig milli febrúar og mars og
mælist hún nú 94,8 stig. Þetta er
hæsta gildi vísitölunnar frá því í
júní í fyrra og hefur hún raun
ar aðeins tvisvar mælst hærri frá
því í apríl 2008; það gerðist í maí
og júní í fyrra þegar vísitalan fór
upp í 101 stig. Ef vísitalan er und
ir hundrað eru fleiri svartsýnir en
bjartsýnir. „Þrátt fyrir að VVG fari
ekki yfir 100 stigin í þetta sinn,
og Íslendingar teljist því ekki enn
almennt bjartsýnir á ástandið
í efnahags og atvinnumálum
þjóðarinnar, þá teljum við ekki
ólíklegt að með hækkandi sól fari
vísitalan yfir 100 stigin,“ segir í
frétt Greiningar Íslandsbanka.
Sveik út vörur
Héraðsdómur Suðurlands sak
felldi á fimmtudag konu fyrir
fjársvik, en hún greiddi fyrir vör
ur með debetkorti sem var ekki
í hennar eigu. Alls sveik hún út
vörur fyrir 27.513 krónur, meðal
annars í verslun Olís á Hellu og
á Bestu útihátíðinni sem haldin
var á Gaddstaðaflötum í júlí í
fyrra. Konan viðurkenndi brotin,
en hún hefur þrívegis áður gerst
brotleg við lög.
Héraðsdómur ákvað að fresta
ákvörðun um refsingu. Fellur hún
niður að liðnum tveimur árum,
að því gefnu að konan haldi sig
réttu megin laganna.
Ekki refsað
fyrir þjófnaði
Héraðsdómur Suðurlands hefur
sakfellt konu fyrir þjófnað í versl
un Samkaupa á Selfossi. Í þrjú
skipti, frá 25. júlí í fyrra til 30.
september, stal konan vörum
úr versluninni. Meðal annars
stal hún kjöti, sósu, handspritti,
frönskum kartöflum og gosi.
Konan játaði brotin en hún hef
ur sex sinnum áður sætt refsingu,
þar af tvisvar fyrir auðgunarbrot.
Í september í fyrra var konan
dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir
brot gegn valdstjórninni. Var það
mat dómsins að þjófnaðarbrotin
úr verslun Samkaupa hefðu ekki
leitt til þyngri refsingar en henni
var gert að sæta þegar hún var
dæmd í sex mánaða fangelsi. Af
þeim sökum var konunni ekki
gerð sérstök refsing í málinu.