Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 14
14 Fréttir V afi leikur á hvort ný kærunefnd útlendinga- mála geti talist óháður og sjálfstæður úrskurðar- aðili. Samkvæmt frum- varpi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra til breytinga á útlendingalögum sem liggur fyrir Alþingi mun innanríkisráðherra sjálfur skipa alla nefndarmenn án aðkomu annarra aðila. Þetta geng- ur þvert gegn því sem lagt var upp með þegar hugmyndir um nýja kærunefnd útlendingamála komu fram á síðasta kjörtímabili. Allar ákvarðanir Útlendingastofnun- ar, sem teknar eru á grundvelli útlendingalaga, verða kæranlegar til nefndarinnar, þar á meðal um- sóknir flóttafólks um hæli hér á landi. Í frumvarpi Hönnu Birnu er gert ráð fyrir því að staða formanns kærunefndarinnar verði auglýst en einu skilyrðin þau að hann hafi lok- ið fullnaðarprófi í lögum. Í frum- varpinu er ekki tilgreint hvern- ig skipun annarra nefndarmanna verður háttað en þeir verða einnig skipaðir af innan ríkisráðherra. Rauði kross Íslands er á meðal þeirra aðila sem gera sér- stakar athugasemdir við það hvernig fyrir hugað er að skipa kærunefndina. Í umsögn Rauða krossins sem lögð hefur verið fyrir allsherjar- og menntamálanefnd segir að tryggja þurfi að ekk- ert gefi tilefni til að draga óhlut- drægni og sjálfstæði nefndar- innar í efa. Þá hvetja samtökin til þess að allsherjar- og mennta- málanefnd endurskoði ákvæð- ið og geri breytingatillögur um skipan nefndarinnar „með það að leiðarljósi að sem minnstur vafi leiki á um sjálfstæði hennar, t.d. með tilnefningu frá Dómarafélagi íslands og Alþingi.“ Fleiri hafa efa- semdir um að úrskurðarnefndin geti talist sjálfstæður og óháður úrskurðaraðili þegar ráðherra get- ur skipað í hana að eigin geðþótta. Átti að vera óháð ráðherra Hingað til hafa ákvarðanir Útlendingastofnunar verið kæran- legar til innanríkisráðuneytisins. Þetta hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ítrek- að gagnrýnt þar sem ráðuneytið geti ekki talist óháður úrskurðar- aðili. Árið 2011 skipaði Ögmundur Jónas son, fyrrverandi innanríkis- ráðherra, sérstakan starfshóp um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), sem falið var að gera tillögur að breytingum á lögum þegar kemur að aðgengi þeirra að landinu. Var sérstök kærunefnd í útlendingamálum eitt af þeim atriðum sem starfshópur- inn skoðaði, og fyrirkomulag slíkra kærumála á Norður löndunum. Árið 2012 kom svo út skýrsla þar sem starfshópurinn lagði fram tillögur að breytingum. Þær birt- ust síðar í frumvarpi Ögmundar til setningu nýrra heildarlaga um útlendinga sem lagt var fyrir Al- þingi á síðasta kjörtímabili en dagaði þar uppi. Þar var gert ráð fyrir því að þriggja manna nefnd mæti hæfi umsækjenda og að ráð- herra væri óheimilt að víkja frá því mati. Jafnframt skyldu aðrir nefndarmenn skipaðir eftir tilnefn- ingu Mannréttindastofnunar Ís- lands og Mannréttindaskrifstofu Íslands. Þá var sérstaklega tiltekið að annar skyldi hafa sérþekkingu á flóttamanna- og hælismálum og hinn á útlendingamálum í breiðari skilningi. Ekkert af þessu hefur skil- að sér inn í frumvarp Hönnu Birnu. „Útvötnuð kærunefnd“ Halla Gunnarsdóttir fór fyrir starfs- hópnum. Hún hefur gagnrýnt þær hugmyndir sem birtast í þeim breytingum á útlendingalögum sem nú liggja fyrir þinginu. Í grein henn- ar sem bar fyrirsögnina „Útvötnuð kærunefnd“ og birtist í Fréttablað- inu þann 27. febrúar síðastliðinn, sagði hún það vekja furðu hvernig núverandi innanríkis ráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hefði útvatnað fyrri tillögur sem lágu fyrir í innanríkis ráðuneytinu. Halla sagði það jákvætt að ráðherrann héldi á lofti þeim tillögum sem náðist víð- tæk sátt um á síðasta kjörtímabili en að forsenda þess að setja á laggirnar sjálfstæða kærunefnd væri hins vegar sú að hún yrði að vera „óháð ráðuneytinu.“ Sú væri hins vegar ekki raunin sé litið til þess að ráðherrann muni sjálfur skipa nefndina: „Með þessu móti er því þveröfugt farið. Tveir af þremur fulltrúum verða skipað- ir af ráðherra einum og hafa þar af leiðandi úrslitaáhrif í öllum mál- um sem nefndin fær til meðferðar. Þetta fyrirkomulag kemur ekki til móts við þá gagnrýni sem íslensk stjórnvöld hafa sætt á alþjóðavett- vangi. Hanna Birna Kristjánsdóttir þarf því að skýra hvers vegna þessi leið er farin. Alþingi breytir frum- varpinu vonandi til betri vegar þannig að réttarbótin sem það kveður á um verði raunveruleg.“ Áfram dæmt í fangelsi Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar- lögmaður er einn af þeim sem hafa gert sérstakar athugasemdir við það hvernig kærunefndin verður skipuð. Bendir hann á að sam- kvæmt skýrslu starfshóps um mál- efni útlendinga utan EES hafi verið lagt til að formaður kærunefndar- innar yrði tilnefndur af Dómara- félagi Íslands, og tveir meðstjórn- endur yrðu tilnefndir annars vegar af Mannréttindaskrifstofu Íslands og hins vegar af Alþingi. „Er það í samræmi við skipan dönsku úr- skurðarnefndarinnar (Flygtninge- nævnet),“ segir í umsögn Ragnars sem liggur fyrir Allsherjar- og menntamálanefnd. Eins og fyrr segir gerir Rauði krossinn svipaðar athugasemdir. Í umsögn Hermanns Ottóssonar, framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi, þar sem hann fjallar um kærunefndina segir að það þurfi að vera hafið yfir allan vafa að slík kærunefnd sé óhlutdræg og sjálfstæð. „Tryggja þarf að skipan nefndarinnar sé sannarlega með þeim hætti að ekkert gefi tilefni til að draga óhlutdrægni og sjálfstæði nefndarinnar í efa,“ segir meðal annars í umsögninni og leggur Rauði krossinn til að nefndarmenn verði til dæmis valdir með tilnefn- ingu frá Dómarafélagi Íslands og Alþingi. Þá er einnig tekið fram að málafjöldi hjá kærunefndinni megi ekki verða þess valdandi að kærumál er varða alþjóðlega vernd tefjist í afgreiðslu með tilheyrandi óþægindum fyrir þá sem í hlut eiga. Eins og DV greindi nýlega frá munu íslensk yfirvöld halda áfram að refsa flóttafólki fyrir að koma hingað til lands á fölsuðum skilríkjum. Þrátt fyrir að þetta sé eitt af þeim atriðum sem Flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóð- anna hefur gagnrýnt hvað harðast þegar kemur að meðferð hælisleit- enda hér á landi, og að hér sé um skýr brot á Flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna að ræða, er ekkert kveðið á um breytingar á þessu í nýjum útlendingalögum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. n Helgarblað 28.–31. mars 2014 Kærunefnd Hönnu Birnu gagnrýnd n Vafi á sjálfstæði kærunefndar útlendingamála n Ráðherra skipar nefndarmenn Rauði krossinn gagnrýnir Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, gerir athugasemdir við það að innanríkisráðherra sjálfur muni skipa kærunefndina. Fór fyrir starfshópi Halla Gunnarsdóttir fór fyrir starfshópi sem skoðaði meðal annars kærunefndir á Norðurlöndum. Niðurstaða þeirra var sú að nefndarmenn yrðu meðal annars skipaðir eftir tilnefningu Mannréttindastofnunar Íslands og Mann- réttindaskrifstofu Íslands. Mynd SigtRygguR ARi Horfir til danmerkur Ragnar Aðalsteins- son hæstaréttarlögmaður gerir athugasemd- ir við skipan kærunefndarinnar og vísar meðal annars til þess hvernig slík kærunefnd er skipuð í Danmörku. Mynd RóbeRt ReyniSSon Jón bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is „Tveir af þremur full- trúum verða skipaðir af ráðherra einum og hafa þar af leiðandi úrslitaáhrif í öllum málum sem nefndin fær til meðferðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.