Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 60
Helgarblað 28.–31. mars 201452 Fólk
Nálgunarbann
á eltihrelli
PoppstjarnanTaylor Swift fékk ný-
lega samþykkt nálgunarbann á
mann sem hafði elt hana og áreitt
síðastliðin þrjú ár. Maðurinn, sem
er 33 ára og heitir Timothy Sweet,
hafði meðal annars haft í hót-
unum um að „drepa hvern þann
mann sem stæði í vegi fyrir hon-
um og Swift“ og hótaði að myrða
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna sem og ættmenni
Swift. Sweet hefur einnig margoft
lýst yfir ást sinni á söngkonunni,
sem hann kallaði eiginkonu sína á
netinu, ásamt því að senda henni
óteljandi ástarbréf í pósti. Í máls-
gögnum um nálgunarbannið
kemur fram að Swift hafi þótt
hegðun mannsins „virkilega ógn-
vekjandi fyrir mig og fjölskyldu
mína.“ Sweet þarf héðan í frá að
halda sig í 90 metra fjarlægð frá
söngkonunni, hið minnsta.
Vill hætta
að leika
Chris Evans, sem leikur hina ró-
lyndu ofurhetju Captain America
sagði nýlega í viðtali við Variety
að hann vilji hætta að leika og
snúa sér að leikstjórn. Leikarinn
sagði að hann sæi ekki fyrir sér að
hann héldi leik sínum áfram eft-
ir að samningur hans við Marvel
rennur út. Evans leikstýrði sinni
fyrstu mynd fyrir stuttu. „Mig
hefur lengi langað til að leikstýra
en mér gefst aldrei tími til þess.
Það er alltaf önnur mynd og ann-
að hlutverk sem tekur við. Ég var
kominn á þann punkt að ég hugs-
aði bara að ég yrði að gera þetta.“
Cooper næsti
Indiana Jones?
Svo virðist sem Lucasfilm og Dis-
ney skipti Harrison Ford út fyrir
næstu mynd um Indiana Jones.
Ford hefur leikið Indy í fjórum
myndum fram að þessu og það
virðist ekki vera vilji til þess að fá
hann aftur í þeirri fimmtu. Leik-
arinn Bradley Cooper hefur verið
orðaður við hlutverkið og mun
hann þá líklega leika Jones í nýj-
um þríleik. Fjórða myndin um
ævintýri Jones kom út árið 2008
og fékk afar slaka dóma. Sú stað-
reynd rennir styrkum stoðum
undir orðróminn um að leitað sé
að nýjum leikara í hlutverkið.
R
apparinn og sjónvarpskynn-
irinn Nick Cannon virðist
hafa komið sér í vandræði
með nýju tónlistarmynd-
bandi við lagið Looking for
a Dream sem hann gaf út á
dögunum. Í myndbandinu er
Cannon málaður eins og hann
væri hvítur, en nýja platan
hans ber einmitt heitið White
People Party Music. Rapparinn,
sem er kvæntur söngkonunni
Mariuh Carey, hefur átt í vök að
verjast á veraldarvefnum vegna at-
viksins.
Viðbrögðin við mynd-
bandinu voru lík-
lega ekki þau sem
hann bjóst við en
Cannon hefur feng-
ið að heyra það frá
aðdáendum og öðrum sem saka
hann um kynþáttahatur
með athæfinu. Sam-
félagsmiðlar loguðu
vegna neikvæðra
viðbragða og end-
aði Cannon á því
að setja færslu á
Twitter þar sem
hann bað fólk
um að halda ró
sinni. „Fólk elskar
drama! Við nærumst á því. Slakið bara
á og skemmtið ykkur!“ stóð í
færslunni.
Til að réttlæta athæfið benti
hann svo á að aðrir skemmtikraft-
ar hefðu gert svipaða hluti og
hann gerir í myndbandinu. Þar
nefndi hann til dæmis Robert
Downey Jr. í myndinni Tropic
Thunder, en í henni leikur Downey
Jr. kvikmyndaleikarann Kirk Lazar-
us sem er ráðinn til að leika svart-
an hermann. „Það er mikill mun-
ur á gríni og hatri,“ sagði Cannon í
annarri færslu. n jonsteinar@dv.is
Sakaður um kynþáttahatur
Rapparinn Nick Cannon er í vanda
Hjón Nick Cannon er kvæntur söngkonunni Mariuh Carey.
Hvítur Cannon er hvítur í myndbandinu.
Á föstu með frægum
n Sex stjörnur sem eru á föstu með „venjulegu“ fólki
Stórlax! Amal Alamuddin fellur ekki alveg í sama flokk og
glamúrpíurnar sem George Clooney hefur „deitað“ að undanförnu. Þau
eru engu að síður par, en Alamuddin, sem fædd er í Líbanon en búsett í
London, er sannkallaður stjörnulögfræðingur á Englandi. Alamuddin tók
meðal annars að sér mál Julians Assange, stofnanda Wikileaks, þegar
þess var krafist að hann yrði framseldur frá Bretlandi til Svíþjóðar.
Kærasta vinar síns
Simon Cowell leitaði ekki langt yfir skammt
að hinni einu sönnu. Cowell, sem á þeim
tíma var í hópi eftirsóttustu piparsveina
Hollywood, byrjaði með Lauren Silverman
en svo vildi til að hún var kærasta vinar
Cowells, fasteignamógúlsins Andrew Silver
man. Þau eignuðust nýlega soninn Eric.
Hannar
skartgripi
Anne Hathaway er þekkt andlit
í Hollywood en það sama verð
ur ekki sagt um makann henn
ar, Adam Shulman. Shulman
er skartgripahönnuður og afar
lítið fyrir sviðsljósið.
Franskur
ritstjóri
Scarlett Johansson er
ein skærasta stjarnan
í Hollywood en virðist
nægjusöm þegar kemur
að karlmönnum. Þeir
þurfa allavega ekki að
vera frægir. Scarlett er í
sambandi með franska
blaðamanninum
Romain Duriac og eiga
þu von á barni saman.
Duriac var ritstjóri
listatímarits í Frakk
landi en er í dag eigandi
auglýsingastofu.
Hittust á barnum
Matt Damon hafði „deitað“ þekktar
leikkonur eins og Winonu Ryder og Minnie
Driver áður en hann hitti núverandi eigin
konu sína, Luciönu, við tökur á myndinni
Stuck on You árið 2003. Luciana þjónaði
Damon á bar á Miami og má segja að það
hafi verið ást við fyrstu sín þegar Luciana
afgreiddi okkar mann – á barnum það er.
Með lögfræðingi Lítið hefur farið fyrir Britney
Spears undanfarin misseri. Hún hefur fundið ástina í örmum lög
fræðingsins Davids Lucado sem jafnframt er eigandi lögfræðistofu.