Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 6
Helgarblað 28.–31. mars 20146 Fréttir
AðAlfundur BÍ 2014
Aðalfundur Blaðamannafélagsins
verður haldinn 10. apríl 2014 að
Síðumúla 23 kl 20:00
Dagskrá fundarins
• Venjuleg aðalfundarstörf
• Skýrslur frá starfsnefndum
• Kosningar*
• Önnur mál
*Framboð til formanns BÍ þarf að
berast skrifstofu BÍ ekki síðar en
viku fyrir boðaðan aðalfund.
BÍ félagar eru hvattir til að mæta
E
ignarhaldsfélag í eigu Stein-
gríms Wernerssonar hefur
verið tekið til gjaldþrota-
skipta. Þetta kemur fram
í Lögbirtingablaðinu.
Eignarhaldsfélagið heitir Vægi ehf.
Skiptastjóri félagsins er Heimir Örn
Herbertsson.
Steingrímur Wernersson var eig-
andi eignarhaldsfélagsins Milestone,
ásamt bróður sínum, Karli Werners-
syni. Milestone átti tryggingafélag-
ið Sjóvá, stóran hlut í Glitni, fjár-
festingarbankann Askar Capital og
hluti í erlendum fyrirtækjum eins og
sænska fjármálafyrirtækinu Invik.
Eignarhaldsfélagið Vægi ehf. var
nánast gjaldþrota í árslok 2012. Þá
var eiginfjárstaða félagsins neikvæð
um tæplega 150 milljónir króna.
Skuldirnar námu rúmlega 300 millj-
ónum en eignirnar voru eingöngu
upp á rúmlega 150 milljónir króna.
Eignir félagsins voru eignarhlutir í
öðrum félögum en ekki er tilgreint í
hvaða fyrirtækjum félagið átti hluta-
bréf.
Strax í árslok 2012 var því útséð
með að Vægi ehf. stefndi í gjaldþrot.
Steingrímur býr í Lundúnum
um þessar mundir og hefur gert frá
hruninu 2008. Hann og Karl töpuðu
langstærstum hluta eigna sinna í
bankahruninu, meðal annars Mile-
stone sem fór í tæplega 100 milljarða
króna gjaldþrot. Stærsta eign þeirra
bræðra í dag eru lyfjaverslanirnar Lyf
og heilsa. Vægi ehf. er því einung-
is eitt af fjölmörgum fyrirtækjum
Steingríms sem farið hafa í þrot eftir
hrunið 2008. n
ingi@dv.is
Félag Steingríms gjaldþrota
Skuldaði 150 milljónir króna umfram eignir
Fengu ný húsgögn
fyrir tæpa milljón
Utanríkisráðuneyti Gunnars Braga keypti ný skrifstofuhúsgögn fyrir aðstoðarmenn ráðherra
K
eypt voru ný húsgögn fyrir
tæpa milljón af skattfé inn
á skrifstofur tveggja að-
stoðarmanna Gunnars Braga
Sveinssonar utanríkisráð-
herra eftir að hann tók við ráðu-
neytinu í fyrra. Þetta kemur fram í
svari frá utanríkisráðuneytinu við
fyrirspurnum DV um málið. Að-
stoðarmennirnir eru Sunna Gunnars
Marteinsdóttir og Margrét Gísladóttir.
Líkt og DV greindi frá í síðustu
viku voru keypt ný fjarskiptatæki frá
Apple fyrir þær Sunnu og Margréti í
fyrra. Um var að ræða Apple-fartölv-
ur, iPhone-farsíma og iPad-spjald-
tölvur. Kostnaðurinn við kaupin á
þessum fjarskiptatækjum var einnig
tæp milljón. Þá voru keypt sams kon-
ar fjarskiptatæki fyrir Gunnar Braga
Sveinsson utanríkisráðherra fyrir um
hálfa milljón króna, líkt og Fréttatím-
inn greindi frá.
Skrifborð á nærri 300 þúsund
Í svari frá ráðuneytinu kemur
fram að í tilfelli Sunnu Gunnars
Marteinsdóttur hafi verið keypt
nýtt skrifborð þar sem breyta þurfti
biðstofu í ráðuneytinu í skrifstofu.
„Breyta þurfti biðstofu í skrifstofu.
Kaupa þurfti skrifborð en að öðru
leyti var skrifstofan búin húsgögn-
um sem til voru í húsinu.“ Skrif-
borðið kostaði tæplega 300 þúsund
krónur, nánar tiltekið 276.581, sam-
kvæmt svari ráðuneytisins.
Sunna Gunnars Marteinsdóttir er
seinni aðstoðarmaðurinn sem Gunn-
ar Bragi réð til ráðuneytisins en heim-
ild er fyrir því í lögum að ráðherra
ráði sér tvo aðstoðarmenn. Fyrir vik-
ið þurfti að innrétta sérstakt skrif-
stofurými fyrir hana í ráðuneytinu
þar sem fyrri utanríkisráðherrar hafa
ekki nýtt sér þessa heimild, til dæmis
var Össur Skarphéðinsson með einn
aðstoðarmann, Kristján Guy Burgess,
en ekki tvo. Fleiri aðstoðarmenn þýða
meiri útgjöld fyrir ríkið, líkt og þessi
tvo dæmi sýna glögglega.
Tæplega 650 þúsund
í skrifstofu Margrétar
Í tilviki Margrétar Gísladóttur voru
keypt fleiri húsgögn inn á skrifstof-
una sem ætluð var aðstoðarmanni
ráðherra. Um var að ræða skrifborð,
skenk og hillu. Í svari ráðuneytis-
ins segir að kominn hafi verið tími á
endurnýjun á húsgögnunum í skrif-
stofunni: „Já, kominn var tími á
endurnýjun hluta húsgagna í her-
bergi aðstoðarmanns. Keypt var skrif-
borð, skenkur og hilla.“
Kostnaðurinn við þessar
breytingar á skrifstofu Margrétar, sem
er prestsdóttir úr Skagafirðinum, var
tæplega 650 þúsund krónur.
Mælt með sparnaði
Heildarkostnaðurinn við endur-
nýjun á húsgögnum í skrifstofum
aðstoðarmannanna og kaupin á
fjarskiptatækjunum fyrir þá og
Gunnar Braga Sveinsson er tæplega
2,5 milljónir króna.
Ríkisstjórn Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokkurinn gaf það út
á seinni hluta árs í fyrra að skorið
yrði niður á mörgum sviðum sam-
félagsins. Komið var á laggirnar sér-
stökum hagræðingarhópi sem kom
með tillögur þess efnis í nóvember
í fyrra. Hópurinn benti til að mynda
á að skera ætti niður fjárframlög til
þróunar mála, framlög til menningar-
starfsemi og fjárframlög til eftirlits-
stofnana, framlög til skólastofnana og
eins til Fjármálaeftirlitsins.
Þá var í tillögum hagræðingar-
hópsins fjallað ítarlega um mögu-
legan niðurskurð í utanríkisþjón-
ustunni, meðal annars með fækkun
sendiráða og sendiskrifstofa sem og
fækkun starfsmanna. Þá voru boð-
aðar aðhaldsaðgerðir í rekstri utan-
ríkisráðuneytisins sem og annarra
ráðuneyta. Orðrétt sagði: „Utanríkis-
ráðherra láti meta útgjaldaþörf í ljósi
breyttra áherslna. Sérstaklega skal
metin þörf á fjölda stöðugilda innan-
lands og erlendis með það að mark-
miði að fækka stöðugildum og ná
fram sparnaði.“ n
Keypt fyrir nærri 650 þúsund Keypt
voru ný húsgögn inn á skrifstofu Margrétar
Gísladóttur fyrir tæplega 650 þúsund krónur.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Húsgögn fyrir milljón
Tveir aðstoðarmenn Gunnars
Braga Sveinssonar fengu ný
húsgögn á skrifstofur sínar
fyrir samtals tæpa milljón.
Mynd SIGTryGGur ArI
Skrifborð á tæplega 300 þúsund
Keypt var nýtt skrifborð fyrir Sunnu Gunnars
Marteinsdóttur á tæplega 300 þúsund.
„Keypt var
skrifborð,
skenkur og hilla.
Vann rúmar
14 milljónir
Heppinn Íslendingur vann
bónusvinninginn í Víkinga-
lottóinu á miðvikudagskvöld
og er fyrir vikið 14,4 milljón-
um króna ríkari. Íslenski bónu-
svinningurinn var seldur í Bláu
sjoppunni í Starengi í Grafar-
vogi. Fimm aðilar deildu með
sér fyrsta vinningi; Finni, Lit-
hái, Norðmaður og tveir Danir.
Fá þeir 19 milljónir króna hver
um sig.
Kveiktu ljósin
Samgöngustofa hvetur öku-
menn til að gæta þess að öku-
ljós séu kveikt. „Það er nokkuð
áberandi að eigendur nýrra bíla
sem búnir eru dagljósabún-
aði haldi að með þeim búnaði
kvikni á öllum ökuljósum og
þar með talið ljósum að aftan
en í mörgum tilfellum er það
ekki raunin,“ segir í tilkynn-
ingu sem Samgöngustofa sendi
frá sér.
Samgöngustofu hefur borist
fjöldi ábendinga um að nýir
bílar séu með öllu ljóslausir
að aftan í myrkri, þoku og
slæmu skyggni vegna þess að
ökumenn virðast halda að dag-
ljósabúnaðurinn, sem kviknar
sjálfkrafa á þegar bíllinn er
ræstur, dugi allan sólarhringin
og við allar þær aðstæður sem
krefjast notkunar ökuljósa. „Á
mörgum þessara bíla þarf að
kveikja sérstaklega á ökuljósum
og er ökumönnum skylt að
gæta þess. Einhver óhöpp og
árekstrar eru rakin til þess að
sjáanleiki bifreiða var mjög lítill
af völdum þessa og því mikil-
vægt að ökumenn hafi þetta í
huga.“
Miklar skuldir Skuldir eignarhaldsfélags
Steingríms Wernerssonar námu rúmum 300
milljónum í árslok 2012.