Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Side 8
Helgarblað 28.–31. mars 20148 Fréttir
Í
slenska ríkið borgaði hundrað
og áttatíu þúsund krónur fyrir
boðsferð Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar til Edmonton
í Kanada. Kemur þetta fram
í svari forsætisráðuneytisins við
fyrir spurn DV. Blaðið greindi frá því
á dögunum að ferð Sigmundar hafi
verið nær alfarið í boði Iceland air;
flugfélagið borgaði bæði flug og
gistingu forsætisráðherra. Andvirði
ferðarinnar, sem Icelandair stóð
straum af, var að minnsta kosti ein
milljón króna.
Boðsferðin kostaði ríkið
um 200 þúsund
Líkt og kom fram í umfjöllun DV
um boðsferð Sigmundar Davíðs
til Edmonton borgaði flugfélag
ið bæði flug og gistingu forsætis
ráðherra. Stingur því nokkuð í
stúf að samkvæmt svari forsætis
ráðuneytisins hafi kostnaður for
sætisráðuneytisins vegna ferðar
innar verið 185.145 krónur. Í svari
við fyrirspurn DV kemur fram að
Sigmundur Davíð hafi afsalað sér
dagpeningum vegna ferðarinnar.
Í svari ráðuneytisins kemur ekki
fram í hvað þessi peningur fóru en
telja má líklegt að um sé að ræða
laun aðstoðarmanna Sigmundar;
Jóhannesar Þórs Skúlasonar og Jör
undar Valtýssonar, sem voru með í
för. Þeir borguðu heldur ekki fyrir
flug eða gistingu.
Fundir með ráðamönnum
eftiráskýring
Samkvæmt svari forsætisráðu
neytisins hafði Icelandair að fyrra
bragði samband við Sigmund í
desember og óskaði eftir því að
hann leiddi viðskiptasendinefnd
til Edmonton í tilefni af jómfrúar
flugi flugfélagsins til borgarinn
ar. Það var eftir að Sigmundur fékk
þetta boð að haft var samband
við erlenda ráðamenn. Í siðar
eglum ráðherra segir: „Ráðherra
þiggur að jafnaði ekki boðsferð
ir af einkaaðilum nema opinberar
embættisskyldur séu hluti af dag
skrá ferðarinnar.“ Svo virðist sem
samband hafi verið haft við ráða
menn í Edmonton eftir á til þess að
Sigmundur gæti uppfyllt þetta skil
yrði. „ Eftir að hafa kannað grund
völl þess að hitta fyrir helstu ráða
menn í Alberta, í því augnamiði að
efla samskipti ríkjanna, staðfesti
forsætisráðuneytið þátttöku for
sætisráðherra þann 20. desember,“
segir í svari ráðuneytisins.
Heildarkostnaður
Icelandair minnst milljón
DV óskaði eftir að fá upplýsingar um
í hvaða herbergi Sigmundur gisti
er hann dvaldist í boði Icelandair á
eina fimm stjörnu hóteli Edmonton,
The Fairmont Hotel Macdonald.
„Forsætisráðuneytið gefur almennt
ekki upp herbergisnúmer á hótel
um þeim sem forsætisráðherra gistir
á hverju sinni. Slík herbergi eru iðu
lega valin eða vottuð af gistiríki með
hliðsjón af öryggi og þægindum,“
segir í svari ráðuneytisins. Þrátt fyrir
að herbergisnúmer sé ekki gefið upp
má telja líklegt af orðalagi svarsins
að um sé að ræða eitt af betri her
bergjum hótelsins.
Svítan á hótelinu kostar hundrað
og tuttugu þúsund á nótt. Sig
mundur gisti þrjár nætur sem gerir
heildarkostnað upp á rúmlega þrjú
hundruð og sextíu þúsund krónur,
miðað við að um svítuna hafi verið
að ræða. Icelandair greiddi alfarið þá
upphæð auk kostnaðar sem hlaust
af herbergjum aðstoðarmanna.
Ódýrasta herbergi á hótelinu
kostar um þrjátíu þúsund krónur
nóttin. Samkvæmt heimasíðu
Icelandair kostar ódýrasta flug fram
og til baka til Edmonton um hundrað
og þrjátíu þúsund krónur, yfirleitt er
flugið þó nokkuð dýrara. Voru boðs
farþegar á vegum forsætisráðuneyt
isins í það minnsta fjórir; Sigmundur
Davíð, eiginkona hans, Anna Stella
Pálsdóttir, og aðstoðarmenn, Jó
hannes Þór Skúlason og Jörund
ur Valtýsson. Sé allt tekið saman þá
borgaði Icelandair að minnsta kosti
eina milljón króna fyrir allt föru
neytið með hótel gistingu og flugi.
Telur sig ekki skuldbundinn
Sigmundur Davíð var spurður út
í boðsferðina í Sprengisandi á
dögunum. „Mér fannst eðlilegt að
spara skattgreiðendum kostnaðinn
við að sinna þessum störfum í
Kanada, sem ég tel að hafi verið
mjög mikilvæg. Ef að menn vilja á
annað borð að Ísland eigi samskipti
við útlönd, eru ekki svokallaðir
einangrunarsinnar, þá hljóta þeir
að vilja að stjórnmálamenn sinni
samskiptum við önnur lönd,“ svar
aði forsætisráðherra. Er Sigur jón
M. Egilsson þáttastjórnandi benti
á að hádegisverðurinn sé aldrei
ókeypis svaraði Sigmundur: „Ertu
að segja að það sé svo skemmti
legt fyrir stjórnmálamann að fara
í sjö tíma flug til að vera á fundum
frá morgni til kvölds? Ertu að segja
að það sé gjöf, að geta verið á fund
um allan daginn? Þetta gengur ekki
upp hjá þér, að maður eigi að vera
skuldbundinn fyrir að fá að fara í
tuttugu stiga frost.“ n
Svarið við spurningu dagsins
Fylgiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Fiskisúpur í Fylgiskum
Verð 1.790 kr/ltr
Súpan kemur í fötu en skinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, skinum er jafnað
út milli súpudiska eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann
Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30
Laugardaga frá 11.00-16.00 (Kópavogur)
M
eðalverð á lausasölu
lyfjum hefur oftar lækk
að en hækkað síðast
liðna 10 mánuði. Þetta
kemur fram í saman
burði á könnun sem verðlags
eftirlit ASÍ gerði í apótekum nú
í mars og könnun sem gerð var
þann 15. maí 2013. Greint er frá
þessum niðurstöðum á vef ASÍ.
Þar kemur fram að meðalverð
á algengum lausasölulyfjum hafi
lækkað um eitt til sex prósenta í um
helmingi tilvika milli mælinga, en
einnig megi sjá hækkanir á bilinu
eitt til fjögurra prósenta í þriðjungi
tilvika. „Aðeins hjá Reykjavíkur
Apóteki og Garðs Apóteki hefur
verð nánast ekkert breyst frá því
í fyrra, þrátt fyrir einstöku verð
breytingar. Flestar vörurnar hækk
uðu hjá Apóteki Suðurnesja eða í
27 tilvikum af 30 og Lyfjavali Álfta
mýri í 26 tilvikum af 30,“ segir á vef
ASÍ.
Af þeim 30 lausasölulyfjum
sem borin eru saman á milli ára
hafði meðalverð á 17 lækkað. Sem
dæmi um vöru þar sem meðalverð
hefur lækkað má nefna að Nuro
fen Apelsin sem er íbúprófen fyrir
börn, en meðalverðið í maí 2013
var 937 krónur en er nú 895 krónur
sem er fjögurra prósenta lækkun.
Meðalverð hefur hækkað í
þriðjungi tilvika af þeim vörum
sem bornar eru saman. ASÍ bend
ir á að gengi krónunnar hafi styrkst
um ellefu prósent frá upphafi árs
2013 þar til nú og því hefði lyfja
verð átt að lækka enn frekar. n
einar@dv.is
Oftar lækkun en hækkun
n Verð á lausasölulyfjum kannað n Innistæða fyrir meiri lækkun
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Boðsferð Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra klippti
á borða vegna jómfrúar
ferðar Icelandair til
Edmonton. Kostnaður
Icelandair við þessa
kynningu nemur minnst
einni milljón króna.
Hótelið Um er að ræða fimm stjörnu hótel.
„Mér fannst eðlilegt
að spara skatt-
greiðendum kostnaðinn.
Boðsferð ráðherra
kostaði yfir milljón
Forsætisráðherra var boðið í jómfrúarflug Icelandair áður en hann mælti sér mót við ráðamenn
Gjaldþrotum
fjölgaði
Níutíu og sex fyrirtæki voru tek
in til gjaldþrotaskipta í febrúar
mánuði, samkvæmt upplýsing
um sem Hagstofa Íslands birti
á fimmtudag. Til samanburðar
voru sjötíu og níu fyrirtæki tek
in til gjaldþrotaskipta í sama
mánuði árið 2013. Er þetta fjölg
un upp á 22 prósent. Í janúar
síðastliðnum voru sextíu og tvö
fyrirtæki tekin til gjaldþrota
skipta og fækkaði um fimm frá
sama mánuði árið áður.
Þá voru nýskráð 162 einka
hlutafélög, til samanburðar við
149 í febrúar 2013. Nýskrán
ingar voru flestar í fjármála og
vátryggingastarfsemi, eða 29
talsins.
Ölvaður í
æfingarakstri
Lögreglan stöðvaði á miðviku
dagskvöld sautján ára stúlku
sem var akandi á Reykjanes
braut til móts við IKEA , en hún
mældist á 143 kílómetra hraða á
klukkustund. Leyfður hámarks
hraði er 80 kílómetrar. Lög
reglan hafði afskipti af stúlkunni
klukkan 21.17 en málið var að
sögn lögreglu leyst með aðkomu
foreldris og var það enn fremur
tilkynnt til Barnaverndar.
Um hálf tvö leytið aðfaranótt
fimmtudags stöðvaði lögreglan
ellefu ökutæki við hefðbundið
eftirlit. Í einu þeirra var 16 ára
ökumaður í æfingarakstri, en sá
sem sat í bílnum með honum
reyndist ölvaður.
Þá hafði lögreglan afskipti af
tveimur ökumönnum sem óku
ölvaðir um Bústaðaveg en tveir
voru teknir undir áhrifum fíkni
efna, einn ók um Stekkjarbakka
en hinn á Hringbraut.
Krónan styrkist Þó svo að meðalverð
lausasölulyfja hafi oftar lækkað en hækkað
hefði lyfjaverð átt að lækka enn frekar
vegna styrkingar krónunnar, að mati ASÍ.