Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Qupperneq 15
Fréttir 15Helgarblað 28.–31. mars 2014
www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Líf og fjör í starfseminni
Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag sem hefur
það markmið að hvetja landsmenn til að ferðast
og fræðast um landið. Áhugi á gönguferðum, fjall-
göngum og útiveru hefur aldrei verið meiri og er
mikið líf og fjör í starfseminni.
Allir finna eitthvað við sitt hæfi
Ferðafélagið leggur sig fram við að mæta þörfum
breiðs hóps með miklu úrvali ferða. Í ferðaflóru
félagsins er að finna allt frá söguferðum um grös-
ugar sveitir til erfiðra jöklaferða. Í ferðaáætlun
félagsins geta flestir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Á 86 árum hefur Ferðafélagið efnt til meira en
8.500 ferða með yfir 200.000 þátttakendum.
Öflug útgáfustarfsemi
Það eru allir velkomnir í Ferðafélagið og njóta félags-
menn sérkjara, bæði í ferðum, skálum og í fjölda
verslana. Auk þess fá allir félagsmenn árbókina
senda heim á hverju ári og er það hluti af árgjaldinu.
Árbókin er einstæður bókaflokkur um land og náttúru.
Auk árbókanna hefur Ferðafélag Íslands staðið að
útgáfu handhægra fræðslu- og upplýsingarita um
ferðamál, þjóðfræði og sögu landshluta.
Sjálfboðastarf í góðum félagsskap
Félagsstarfið hefur í gegnum tíðina einkennst af
miklu sjálfboðastarfi. Félagar hafa unnið að
byggingaframkvæmdum, farið vinnuferðir í
skála eða í frágangsferðir, stikað og unnið að
uppbyggingu gönguleiða, unnið við brúargerð og
margt fleira. Í staðinn hafa þeir fengið fríar ferðir,
fæði og félagsskap.
Samgöngubætur og uppbygging svæða
Félagið hefur unnið markvisst að samgöngubótum,
lagt akvegi og brúað ár. Það hefur haft samstarf
við sveitarfélög um landgræðslu, náttúruvernd
og uppbyggingu svæða eins og t.d. í Landmanna-
laugum, á Þórsmörk og Emstrum.
Sæluhúsin standa öllum opin
Sæluhús Ferðafélags Íslands og deilda félagsins úti
um land eru þægilegir áningarstaðir á ferðalagi um
óbyggðir Íslands. Þau eru á 36 stöðum víðsvegar
um landið og getur allur almenningur nýtt þau óháð
aðild að félaginu.
Fjölbreytt starfs
emi í yfir 86 árFerðafé
lag Íslands
Upplifðu náttúru
Íslands
Aðal samstarfsaðilar FÍ
Ræddi áminninguna
við umhverfisráðherra
Illugi Gunnarsson ræddi málefni eins umsækjanda um framkvæmdastjórastarf LÍN áður en hann fékk það inn á borð til sín
I
llugi Gunnarsson menntamála
ráðherra ræddi áminningu sem
Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir,
þáverandi skrifstofustjóri í um
hverfisráðuneytinu, hafði fengið í
starfi sínu við Sigurð Inga Jóhannsson
umhverfisráðherra áður en áminn
ingin var dregin til baka. Þetta herma
heimildir DV innan úr stjórnkerfinu.
Það var Sigurður Ingi sem dró áminn
inguna til baka en sú afturköllun var
lykilatriði svo Hrafnhildur Ásta gæti
fengið starf framkvæmdastjóra Lána
sjóðs íslenskra námsmanna þann 25.
október síðastliðinn. Líkt og komið
hefur fram er Hrafnhildur Ásta ná
frænka Davíðs Oddssonar.
Heimildir DV herma að Illugi
hafi rætt við Sigurð Inga um áminn
inguna sem Hrafnhildur Ásta hafði
fengið áður en stjórn Lánasjóðs ís
lenskra námsmanna sendi honum
tillögu sína um hvern skyldi skipa í
framkvæmdastjórastarfið. Þetta þýðir
að Illugi hefur væntanlega fylgst með
stöðunni á ráðningarferlinu hjá stjórn
LÍN og vitað að Hrafnhildur Ásta hafi
verið með áminningu á sínum herð
um sem draga þyrfti til baka svo hægt
væri að ráða hana. Hrafnhildur Ásta
var ekki efst á þeim lista jafnvel þótt
hún væri talin ein af þeim þremur
hæfustu í starfið. Stjórn LÍN benti Ill
uga á þrjá umsækjendur, Hrafnhildi
Ástu þar á meðal, en taldi hins vegar
að Kristín Egilsdóttir væri hæfust.
Af hverju?
Spurningin sem eftir stendur er af
hverju hann gerði það. Heimildir DV
herma að Illugi hafi ekki verið búinn
að fá tillöguna um hvaða umsækj
endur stjórn LÍN taldi hæfasta og
málið var því ekki komið inn á hans
borð. Líkt og Illugi greindi frá í viðtali
við DV á þriðjudaginn þá var búið að
afturkalla áminninguna þegar hann
fékk tillöguna um ráðningu á fram
kvæmdastjóranum inn á sitt borð.
Þetta þýðir að samskipti Illuga og
Sigurðar Inga, sem DV hefur heim
ildir fyrir að hafi átt sér stað, um
áminninguna hafi borið upp áður
en áminningin var afturkölluð og þar
af leiðandi áður en Illugi fékk mál
ið inn á sitt borð. Af hverju hafði Ill
ugi Gunnarsson svona mikinn áhuga
á einum umsækjenda um starf fram
kvæmdastjóra LÍN?
Illugi endaði svo á því að ráða ná
kvæmlega þennan umsækjenda sem
svo vill til að er náfrænka fyrrverandi
yfirmanns hans og formanns Sjálf
stæðisflokksins, Davíðs Oddssonar.
Til umræðu á Alþingi
Líkt og DV greindi frá á mánudaginn
þá hefur ráðning Hrafnhildur Ástu
verið tekin upp á Alþingi. Helgi
Hjörvar, þingflokksformaður Sam
fylkingarinnar, spurði Illuga út í ráðn
inguna á Hrafnhildi Ástu í óundirbún
um fyrirspurnatíma á mánudaginn.
Meðal þess sem Helgi spurði út í var
rökstuðningur ráðuneytisins fyrir
ráðningunni en hann var heldur rýr.
Líkt og DV hefur greint þá hefur
sá umsækjandi sem metinn var hæf
astur í starfið og stjórn LÍN benti sér
staklega á, Kristín Egilsdóttir, leitað
réttar síns út af ráðningunni. Lög
maður Kristínar, Haukur Guðmunds
son, telur að lög hafi verið brotin í
málinu þar sem hæfasti umsækj
andinn hafi ekki verið valinn. Dóm
stólar munu á endanum skera úr um
það. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Rætt um áminningu
Illugi og samráðherra
hans, Sigurður Ingi, ræddu
áminninguna sem Hrafn-
hildur Ásta fékk áður en
hún var dregin til baka.
Mynd SIGTRyGGuR ARI
„Af hverju
hafði Illugi
Gunnarsson svona
mikinn áhuga á einum
umsækjenda um starf
framkvæmdastjóra LÍN?
Fagna samkeppni
Ánægðir með tilkomu sýndargjaldmiðla
H
eimdallur og Týr, félög ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík og
Kópavogi, fagna útgáfu sýndar
gjaldmiðilsins Auroracoin.
Þetta kemur fram í ályktun frá félögun
um. Þar kemur fram að í áratugi hafi Ís
lendingar mátt búa við gjaldeyrishöft,
verðbólgu, gengisfellingar og fjárhags
legan óstöðugleika vegna krónunnar.
Því sé aukin samkeppni í gjaldmiðla
málum kærkomin.
„Auroracoin veitir neytendum
vörn gagnvart peningaprentun krón
unnar, sem er í raun dulin skattlagn
ing á sparnað einstaklinga. Enn frem
ur hefur Seðlabanki Íslands á síðustu
árum njósnað um gjaldeyrisfærslur
Íslendinga og með því gengið hættu
lega langt á friðhelgi einkalífs fólks, en
Auroracoin býður upp á leynd gagn
vart slíkum njósnum,“ segir í ályktun
inni en Auroracoin er íslenskt fyrir
bæri. Í ályktuninni kemur fram að
einstaklingum eigi að sjálfsögðu að
vera í sjálfsvald sett hvaða gjaldmiðil
þeir nota. Að lokum er tekið fram að
Auroracoin sé svar einstaklinga við
gjaldeyrishöftum krónunnar, þau
þurfi að afnema sem fyrst svo hægt sé
að hefja uppbyggingu íslensks efna
hagslífs af alvöru. n
Bitcoin Bitcoin er sýndargjaldmiðill líkt og
Auroracoin. Heimdallur og Týr fagna útgáfu
gjaldmiðlanna.