Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 24
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
24 Umræða Helgarblað 28.–31. mars 2014
Samtökin hjálpuðu
mér mikið
Hátt fljúga hrægammar
Hilmar Magnússon hélt að hann væri eini homminn á Íslandi. – DV
R
íkisstjórn Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar tók jóðsóttina
og eitt stærsta kosningaloforð
Íslandssögunnar er að mynd-
gerast. 300 milljarðarnir sem átti að
sækja í skjóður hrægammanna hafa
umbreyst þannig að 150 milljarðar
króna eiga með einum eða öðrum
hætti að renna til þeirra sem skulda
húsnæðislán eða hyggja á húsnæð-
iskaup. Um helmingur upphæðar-
innar rennur til höfuðstólslækkunar-
innar en hinn helmingurinn á rót að
rekja til þess að fólk má leggja sér-
eignarsparnað sinn í að greiða nið-
ur húsnæðislán eða kaupa húsnæði.
Við blasir að allir þessir peningar eru
ýmist sóttir í ríkissjóð eða beint í vasa
þeirra sem njóta. Niðurstaðan er sú að
hjálpin er í skötulíki og fjöldi fólks sem
lent hefur í klóm kreppunnar situr eft-
ir án þess að fá bót. Yfirborðskennd
gervilausnin er bersýnileg. Svikin
blasa við öllu hugsandi fólki í landinu.
Sigmundur Davíð ítrekaði það í
kosningabaráttunni að neyðarhjálp-
in til skuldara yrði sótt til hrægamma-
sjóðanna sem eignuðust bankana eft-
ir hrun. Aldrei lét hann það uppi að
til stæði að láta fólk skipta áhyggju-
lausu ævikvöldi séreignarsparnað-
arins út fyrir steinsteypu. Og aldrei
talaði hann um að fólkið í landinu ætti
með sköttum sínum að borga fyrir
niðurfellingu skuldanna. Alltaf benti
hann á hrægammasjóðina og þrotabú
bankanna. „Við ætlum að láta þá sem
bjuggu til forsendubrestinn bæta fyr-
ir forsendubrestinn sem þeir bjuggu
til, það er að segja þrotabú þessara
banka,“ sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, í samtali við Ríkisút-
varpið í aðdraganda kosninganna.
Sigmundur er líklega einn mesti
sölumaður sem íslensk stjórnmál
sitja uppi með. Hann svarar iðulega
út í hött og afvopnar þannig spyrj-
endur. Dæmi um slíkt er boðsferð
sem hann þáði til Kanada þar sem
fagnað var nýrri flugleið. Í þættinum
á Sprengisandi var hann spurður um
siðsemi þess að þiggja slíkt boð. Þá
svaraði forsætisráðherrann með því
að spyrja á móti hvort fólk héldi að
það væri skemmtilegt að fara í svona
langt flug til að lenda í hörkufrosti í
fjarlægu landi. Nú boðar hann þau
tíðindi að stærstu efndir stjórnmála-
sögunnar séu að ganga fram. Og það
verður eins og að „panta pítsu“ hjá
fólki að sækja milljónirnar.
Yfirlýsingar hans um efndir eru eins
fjarri lagi og verða má. Þvert á móti er
lýðskrumið komið fram. Framsóknar-
flokkurinn hófst til valda á vængjuð-
um loforðum sem ekki reyndist inni-
stæða fyrir. Hrægammarnir fljúga hátt
og óáreittir og niðurstaðan er sú að ís-
lenskur almenningur hefur tekið að
sér að vera hrægammarnir sem for-
sætisráðherrann ætlaði að lúskra á.
Á jörðu niðri eru spunameistarar að
telja fólki trú um að svart sé hvítt og
rautt sé blátt. Lygin heldur áfram eins
og hver önnur langavitleysa. Keisar-
inn fer um strætin nakinn og hluti al-
mennings trúir því að hann sé í skart-
klæðum.
Það eru enn eftir rúmlega þrjú ár
af kjörtímabilinu. Áríðandi er að hver
einasti kjósandi í landinu geri sér grein
fyrir því hvað gerðist í kosningabarátt-
unni og hvernig það kom til að for-
sætisráðuneytið lenti í höndum Sig-
mundar Davíðs sem veifar töfrasprota
sínum og dregur kanínur upp úr hatti
sínum í stað hrægamma. Allir þeir
kjósendur sem trúðu fagurgalanum
og kusu í samræmi við það þurfa að
líta vandlega í eigin barm. Þjóðin má
ekki láta blekkja sig án þess að gera
upp sakirnar. Engu má gleyma. n
Dagur sterkur
Það blæs ekki byrlega fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík sem
samkvæmt nýjustu könnunum
stefnir í að hann fái aðeins fjóra
borgarfulltrúa. Á sama tíma kæt-
ast Dagur B. Eggertsson og félagar
í Samfylkingu og Bjartri framtíð
með níu fulltrúa samanlagt. Lík-
legt er að Halldór Halldórsson,
leiðtogi sjálfstæðismanna, og fé-
lagar hans séu að súpa seyðið
af þeirri óánægju sem grasserar
vegna framgöngu Sjálfstæðis-
flokksins í ESB-málinu.
Björn og Berlusconi
Björn Bjarnason, ráðherra á eftir-
launum, er einn hatrammasti
andstæðingur Evrópusambands-
ins, ef marka
má skrif hans á
Evrópuvaktina.
Nýverið skrif-
aði hann færslu
þar sem hann
fór mikinn vegna
þess að Evrópu-
sambandið hafði
ýtt út nokkrum ráðamönnum
í aðildarríkjum sínum. „Silvio
Berlusconi sagði af sér embætti
forsætisráðherra Ítalíu um miðj-
an nóvember 2011. Hann gerði
þetta að kröfu ráðandi afla innan
Evrópusambandsins …,“ skrifar
Björn sem tilgreinir að arftaki
Berlusconis hafi verið hliðhollur
ESB. Það eru ekki allir sem átta
sig á vegferð Björns.
Skatturinn gegn 365
Ríkisskattstjóri hefur nú skorið
upp herör gegn 365 og krefur
samsteypuna um 230 milljónir
króna vegna við-
skipta á sínum
tíma með Rauðsól
þar sem tilfærsla
átti sér stað á eig-
um fjölmiðlaveld-
isins. Víst er að
það er samsteyp-
unni áfall ef þessi reikningur fell-
ur á hana en um er að ræða stór-
an hluta hagnaðar ársins 2012.
Að baki gjörningnum á sínum
tíma var Jón Ásgeir Jóhannesson,
þáverandi aðaleigandi. Nú er það
eiginkona hans, Ingibjörg Pálma-
dóttir, sem fer formlega með
eignarhald félagsins.
Engeyingur vill út
Grafalvarleg staða er uppi innan
Sjálfstæðisflokksins þar sem
Evrópusinnar eru teknir að ókyrr-
ast mjög. Einn
helsti forystumað-
ur þeirra er sá
innmúraði Eng-
eyingur, Benedikt
Jóhannesson, sem
hefur leitt andóf
Evrópusinna inn-
an flokksins. Hann hefur gefið
sterklega til kynna að nýtt fram-
boð hægrimanna komi fyllilega til
greina. Alvaran er sú að stærstur
hluti atvinnulífsins er fylgjandi
aðild að ESB og gæti lagt slíkum
flokki lið. Þá er eins víst að Þor-
steinn Pálsson, fyrrverandi for-
maður, verði ekki langt undan.
Reynir Traustason
rt@dv.is
Leiðari „Lygin heldur áfram
eins og hver önnur
langavitleysa.
MynD SIgTRygguR ARI
Ómetanleg
fyrirmynd
Álitsgjafar velja Vigdísi Finnbogadóttur gáfaðasta Íslendinginn. – DV
Við erum
þakklát
Ástrós Rut Sigurðardóttir bloggar um krabbamein kærastans. – DV
Heilbrigðiskerfi fyrir hverja?
R
agnar Árnason, prófessor í
hagfræði og formaður í ráð-
gjafaráði fjármála- og efna-
hagsráðherra, ritaði grein-
ina „Samfélagsleg skaðsemi
opinberra heilbrigðistrygginga“
í marshefti Hjálmars, blaðs hag-
fræðinema. Eins og heiti greinar-
innar bendir til heldur hagfræði-
prófessorinn því fram að opinberar
heilbrigðis tryggingar séu skaðlegar
samfélaginu sökum þess að þær
rýri hag borgaranna. Ekki eru bein-
línis færð rök fyrir þessari kenningu
í greininni, heldur einungis notað
einfalt reiknilíkan með fáum breyt-
um og gefnum forsendum til að
leiða niðurstöðuna fram. Hún er þó
sett fram án nokkurra fyrirvara og
má því ætla að hugur fylgi máli.
Hagfræðiprófessorinn er þekktur
að afdráttarlausum skoðunum sín-
um, sem bæði hafa hallast til hægri
og vinstri í áranna rás, og þarf mál-
flutningur hans því ekki að koma
öldungis á óvart. Formennska pró-
fessorsins í ráðgjafaráði um efna-
hagsmál og opinber fjármál verður
hins vegar til þess að gefa hugmynd-
um hans um skaðsemi opinberra
heilbrigðistrygginga langtum meira
vægi en ella væri. Sú spurning hlýt-
ur að vakna, og með henni sá ugg-
ur sem óhjákvæmilega fylgir slíkum
hugrenningum, hvort í ráði sé, að
undirlagi ráðgjafaráðs fjármála- og
efnahagsráðherra, að hefja atlögu
að heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga
með það að markmiði að koma
rekstri þess í hendur einkaaðila.
Einfalt val
Í meginatriðum er um tvær leiðir
að velja til að fjármagna og starf-
rækja heilbrigðiskerfi. Annars vegar
er opin ber fjármögnun í gegn-
um skattkerfið með engri eða lítilli
beinni greiðsluþátttöku almenn-
ings og eiga allir borgarar í viðkom-
andi samfélagi rétt á þeirri þjónustu
sem heilbrigðiskerfið veitir án tillits
til greiðslugetu þeirra. Þetta er sam-
ábyrgðarkerfi.
Að hinu leytinu er hin
einkavædda heilbrigðisþjónusta
þar sem notendur greiða úr eigin
vasa, eða í gegnum tryggingar sínar,
allan kostnaðinn við að fá bót meina
sinna. Í kerfum af þessu tagi er hver
sjálfum sér næstur. Samábyrgð er
engin.
Við Íslendingar höfum fyrir löngu
valið þann kost sem flestum okk-
ar hugnast best. Við höfum valið að
starfrækja hér opinbert heilbrigðis-
kerfi sem opnar dyr sínar jafnt fyrir
fátækum sem ríkum. Greiðsluþátt-
töku notenda hefur verið stillt í hóf,
þó hefur þróunin í þeim efnum stefnt
til verri vegar og ástæða til að snúast
gegn henni. En það er engu að síður
fullt tilefni til að álíta að mikill meiri
hluti Íslendinga telji einmitt hið op-
inbera heilbrigðiskerfi meðal bestu
kosta samfélagsins.
Stundum er litið til hins einka-
rekna heilbrigðiskerfis Banda-
ríkjanna sem fyrirmyndar og er þá
gjarnan bent á hin þekktu sjúkrahús
þar í landi sem ásamt bandarískum
rannsóknastofnunum og háskólum
hafa vissulega lagt margt gott til
þróunar lækninga og læknisfræði.
En bakhlið þessa kerfis er ærið ógeð-
felld. Talið er að allt að 50 milljónir
Bandaríkjamanna séu ekki sjúkra-
tryggðir og hafi því takmarkaðan að-
gang að heilbrigðisþjónustu – sumir
svo gott sem engan – og að einungis
um fimmtungur Bandaríkjamanna
njóti góðrar heilbrigðisþjónustu.
Kostnaður við heilbrigðiskerfi
Bandaríkjanna er hins vegar mikill
og verður það seint talið samkeppn-
ishæft hvað það snertir.
Að lokum
Það er full ástæða til að vera á verði
gagnvart þeirri hugmyndafræði
hægri manna sem birtist í skrifum
formanns ráðgjafaráðs fjármála- og
efnahagsráðherra. Hægri stjórnin,
sem nú situr, stefnir að aukinni
einkavæðingu. Henni hugnast ekki
samtryggingin í heilbrigðiskerfi
okkar en vill hlúa að gróðasjónar-
miðum. Við vinstri menn eigum að
berjast gegn áformum hennar um
einkavæðingu heilbrigðiskerfisins
með öllum ráðum, hvar sem þeirra
verður vart. n
„Við höfum valið
að starfrækja hér
opinbert heilbrigðiskerfi
sem opnar dyr sínar jafnt
fyrir fátækum sem ríkum.
Lilja Rafney Magnúsdóttir
þingmaður
Kjallari