Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 25
Umræða 25Helgarblað 28.–31. mars 2014
Aðgerðin er
gríðarlega stór
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir leiðréttinguna umfangsmikla. – Bylgjan
Þetta er ekkert
persónuleg
Gústaf Níelsson kærði lektor fyrir árás á Sjálfstæðisflokkinn. – DV
Þetta er
góður staður
Dagmar Pálsdóttir hefur áhyggjur af lokun Draumasetursins. – DV
1 Andar köldu á milli Bjarna og Sigmundar Afar stirt er á milli leiðtoga
ríkisstjórnarflokkanna tveggja.
2 Ólafur tók sér sex milljóna arð í fyrra Ólafur Johnson ætlar að opna
Hraðbraut aftur.
3 „Þegar hann talar þá þegir maður“ Davíð Oddsson komst á lista yfir þá sem
þykja gáfaðastir á Íslandi.
4 „Ég var tekin fyrir eins og betlari“ Díönu Nyman, talsmanni Róma-fólks í
Svíþjóð, var meinaður aðgangur að morgun-
verðarhlaðborði á hóteli í Svíþjóð.
5 Erfitt að svara um ráðherrabústað Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar og
aðstoðarmaður forsætisráðherra hafa
enn ekki svarað fyrirspurn DV er snýr að
forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum
og notkun á honum.
Mest lesið á DV.is
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
„Ætli hann
sé á móti
orlofsréttindum og
veikindaréttinum líka?
Kannski á móti öllum
réttindum launþega
yfirhöfuð?“
Kristinn Heikur Guðnason
var einn þeirra fjölmörgu sem
tjáðu sig Björn Jón Bragason
sagnfræðing, sem kenndi nemendum
MR íslensku í verkfallinu. Björn er á móti
verkföllum.
„Er þröngt um
þig í þessum
kassa þínum sem þú virðist
búa í?!?“
Sigríður Ragna Árnadóttir
sló í gegn með svari sínu til
Ragnars Tryggvasonar, sem
vildi í kommentakerfinu meina að Pól-
verjar væru vandræðagemsar. Þeir væru
leiðinlegir að auki. Tilefnið var frétt um
að Pólverja var meinaður aðgangur að
íslenskum skemmtistað.
„Við eigum að
geta treyst því
að fá ekki útrunnar vörur.
Fínt að verslanir fái aðhald
með því að fjalla um þetta.
Okkur á ekki að vera sama.“
Ragnhildur Gunnarsdóttir
skrifaði ummælin við frétt um
löngu útrunnið súkkulaðikex
sem viðskiptavinur keypti í Krónunni.
Þeir væru leiðinlegir að auki. Tilefnið
var frétt um að Pólverja var meinaður
aðgangur að íslenskum skemmtistað.
„Þetta er bara
veik kona,
það biður enginn um
geðsjúkdóm. Stórlega efast
um að hún hafi ætlað sér að
ljúga eða særa fólk.“
Hrafnhildur Ósk Halldórs-
dóttir kom konu í Kanada til
varnar en sú taldi sig eiga von á
fimmburum.
22
62
14
27
J
á, kæru vinir, ég hef ákveðið að
stofna minn eigin sértrúarsöfn-
uð. Söfnuður minn mun nefnast
Sælan og aðalleynibækistöðv-
ar safnaðarins verða eiginlega bæði
hvar sem er og hvergi. Ég vil að við
trúum á þá guði sem fallið hafa í
gleymsku; þá guði sem enginn hefur
trúað á um langa hríð. Ég vil að þetta
verði svo mikill sértrúarsöfnuður, að
hverjum og einum meðlimi safnað-
arins verði gert skylt að hafa sína sér-
stöku trú. Það verður sem sagt sér trú
fyrir hvern og einn einasta safnað-
arlim.
Fagnaðarerindi mitt verður ein-
falt: Bjartsýni hefur oft verið þörf
en er nú nauðsyn. Og kærleikurinn
er það sem við getum gefið öllum
sem á vegi okkar verða. Við verðum
að trúa á mátt þeirrar sælu sem býr
innra með okkur öllum. Mannkynið
á þessa veiku von.
Og ég vil náttúrlega að allir sem
vilja tileinka sér fagnaðarerindi mitt,
geri það með glöðu geði og taki þá
trú sem ég boða. En svo mér megi
auðnast að sýna öllum söfnuði mín-
um tilhlýðilega virðingu, vil ég taka
það skýrt fram að sérstaða hvers og
eins er það heilagasta sem söfnuð-
ur minn virðir. Fólk má mín vegna
trúa því að enginn guð sé svo góður
að ekki megi finna annan betri. Það
er sem sagt aukaatriði hverju fólk
trúir, hvernig það trúir og hvar það
iðkar sína trú. Og hvort sem fólk trú-
ir eða ekki er einnig aukaatriði. Hjá
sértrúarsöfnuði mínum munu allir
komast í himnaríki ef þeir bara óska
þess.
Ég mun ekki þiggja neinar fórnir
og ekki taka við peningum í nafni
safnaðarins. Ég mun ekki halda eina
einustu messu og ekki kvelja söfn-
uðinn með löngum og hrútleiðin-
legum ræðum. Ég mun ekki titla
mig predikara og ég mun ekki skipa
sóknarnefnd. Það eina sem ég ætla
að gera, er að gefa ykkur þennan
söfnuð. Þið megið eiga Sæluna.
Ekki það að ég ætli að gera kröfur,
svona rétt eftir að ég hef gefið ykkur
sértrúarsöfnuðinn. En mig langar þó
að gauka að ykkur hugmynd. Ég held
nefnilega að við gætum bætt heim-
inn með því einu að vera bjartsýn
og kærleiksrík. Því hefur lengi verið
haldið fram, að ef fólki tekst að sýna
samferðamönnum sínum kærleika,
þá verði lagabálkar óþarfir. Þetta
snýst sem sagt um fordómaleysi og
virðingu. Kærleikurinn er sú fagra
mynd sem við getum sýnt samferða-
fólki okkar, um leið og við virðum
skoðanir þess og leyfum fordómum
okkar að njóta ævarandi hvíldar. n
Hamingjuna helst ég tel
henta mínum vinum
og mér finnst gott að geta vel
glaðst með öllum hinum.
Sértrúarsöfnuður minn
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
Í nafni leigjenda Umsjón: Henry Þór Baldursson
Myndin Blautt Með hækkandi sól eykst straumur ferðamanna á landinu. Veðrið hefur á síðustu dögum sýnt sínar bestu og verstu hliðar. Senn víkur vetur og tími sólar rennur upp. MyND SiGtRyGGUR ARi