Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 26
26 Umræða Helgarblað 28.–31. mars 2014
É
g vissi aldrei alveg hvort það
var satt eða logið, sem sagt
var um Mobutu Sese Seko
einræðisherra í Kongó, síð-
ar Zaire, á árunum 1965 til
1997, að hann hefði haft ráð und-
ir rifi hverju til að hygla stuðnings-
mönnum sínum og ættmennum.
Ef ættmenni gerðust fjárvana
hafi einfaldlega verið komið upp
nýju tollhliði á alþjóðaflugvellin-
um í höfuðborginni Kinshasa. Þar
hafi ferðamenn verið rukkaður og
andvirðið látið renna beint ofan í
fjölskylduvasann. Þetta þótti mér
að vísu alltaf lygilegt en þó ekki
eins lygilegt og það sem nú er að
gerast á okkar Ísalandi.
Þeir borgi sem „njóta“!
Þar eru einstaklingar farnir að taka
sér vald til að rukka ferðamenn
fyrir að njóta þess sem íslensk
náttúra hefur upp á að bjóða. Þeir
eiga að greiða „sem njóta“ sagði
Ragnheiður Elín Árnadóttir ferða-
málaráðherra fyrir nokkrum dög-
um og tók þannig undir með gjald-
heimtumönnum, sagði í ofanálag
að hin ólöglega gjaldheimta hafi
tekist einstaklega vel í Kerinu þar
sem eigendur fóru nýlega að rukka
þvert á lög! Þó skal þess getið að
aðrir tónar og fallegri hafa einnig
heyrst frá ferðamálaráðherranum.
Ríkisskattstjóri bætti síðan gráu
ofan á svart með því að segja að hin
ólöglega gjaldheimta væri skatt-
skyld. Við það hljóta ýmsar spurn-
ingar að gerast áleitnar. Ef rétt er,
sem ég hygg að fáir deili um, að
gjaldtakan sé ólögleg, þá hlýtur af-
raksturinn að flokkast undir þýfi.
Varla er þýfi skattskylt? Af öðru
þekki ég ríkisskattstjóra en að vilja
ekki fara að lögum!
Hvers vegna ekki lögbann?
Sem betur fer er að finna fólk
í stjórnsýslunni sem reynir að
stöðva þennan ólöglega verknað og
var nýlega krafist lögbanns á rukk-
un á Geysisvæðinu. Nú brá svo við
að sýslumaðurinn í umdæminu
neitaði að verða við þessari kröfu
og er það óuppgert í fjölmiðlum á
hvaða forsendum hann geti gert
slíkt nema þá að um formgalla á
beiðninni sé að ræða. Ekki hefur
þetta verið brotið til mergjar í fjöl-
miðlum að því er ég best veit.
Hvað sem þessu líður þá er ljóst
að stjórnvöld eru að missa tök á
málinu. Einstaklingar sem telja sig
eiga náttúruundur Íslands standa
keikir með rukkunarvélar og hafa
af fólki fé og glotta við tönn.
Börn sem vilji ókeypis sleikjó!
Rukkunarstjórinn á Geysisvæðinu
sagði í viðtali við Ríkissjónvarpið
að flestir borguðu eins og upp væri
sett en vissulega væru til einhverj-
ar undantekningar, einstaklingar
ósáttir við þetta nýja fyrirkomulag.
Þetta minnti á börn, sagði hann,
sem hefðu fengið sleikibrjóstsyk-
urinn sinn ókeypis til þessa en
þyftu nú að borga. Einhvern veginn
svona komst hann að orði.
Norður í Mývatnssveit er síðan
maður sem gerir tilkall til sjálfs
Dettifoss. Hann skrifaði blaða-
grein nýlega þar sem hann kvaðst
hafa í hyggju að rukka fyrir að-
gang að þessari náttúruperlu. Í
greininni, sem birtist í Morgun-
blaðinu, nefndi hann fleiri nátt-
úruperlur „sem gætu staðið undir
og séð um gjaldtöku … til dæmis
Geysir, Kerið, Jökulsárlón, Dyr-
hólaey, Reynisfjörður, Dettifoss/
Selfoss, Leirhnjúkasvæðið, hverir
Námafjalls, Gjástykki, Gullfoss og
Dimmuborgir, o.fl, o.fl.“
Afsláttur fyrir öryrkja og börn
Landeigandinn kvaðst sjá það fyrir
sér að öryrkjar og börn fengju að
skoða Dettifoss og Gullfoss ókeypis
en að gjaldtakan skyldi vera „undir
stjórn þeirra sem hafa umráðarétt-
inn á svæðinu og þeir skuli ráða því
hvað gert verður til uppbyggingar
og verndunar náttúrunni.“ Það er
nefnilega það, ekki nóg með að
þeir rukki heldur ætla þeir líka að
ráða allri umgjörð við náttúruperl-
ur Íslands.
En það eru fleiri sem fá vatn í
munninn. Fyrir áramótin fluttu
fjölmiðlar fréttir af því að ýmsir
landeigendur og sveitarstjórnar-
menn væru farnir að ókyrrast yfir
því að geta ekki byrjað að rukka
fólk fyrir að njóta náttúrunnar.
Seljalandsfoss og Skógarfoss voru
nefndir í þessu sambandi.
Ekkert hef ég við það að athuga
að greiða gjald fyrir að nýta að-
stöðu og þjónustu við ferðamanna-
staði. Sums staðar hefur tekist vel
til við þjónustustöðvar, til dæmis
við Geysi í Haukadal. Margoft hef
ég komið þangað með erlenda
gesti og í sumum tilvikum hópa
og snætt þar málsverð. Ráðstefnu
hef ég setið við Geysi í tvígang við
mikla ánægju þátttakenda. Á Skóg-
um hefur verið komið upp merku
safni og margvísleg þjónusta í
boði. Fyrir allt þetta er sjálfsagt að
taka gjald.
Forðumst öfgar sölumennsku
Þó þarf að fara varlega í þessu efni
og forðast ókosti og öfgar mark-
aðsvæðingar og sölumennsku við
ferðamannastaði. Hrikaleg dæmi
fyrirfinnast erlendis um skrum-
skælingu á náttúruperlum og
sögulegum minjum.
Að undanförnu hefur forsvars-
fólk í ferðaþjónustu varað við því
að rukka ferðamenn með þeim
hætti sem nú er farið að gera við
Kerið og Gullfoss. Og erlendir að-
iljar í ferðabransanum hafa kom-
ið fram í fjölmiðlum með kurteis-
isleg varnaðarorð. Hlustum á þau.
Og tökum þessa umræðu nú í
alvöru.
Stöðvum lögleysuna
Það er hins vegar algert skilyrði að
þegar í stað verði lögleysan stöðv-
uð. Það ber yfirvöldum að gera
undanbragðalaust. Það velkist ekki
fyrir lögreglustjórum og sýslu-
mönnum sem fara með lögreglu-
vald að senda lögreglu á þjófa,
fórnar lömbunum til verndar.
Hvers vegna fer lögreglan þá
ekki í Kerið þar sem menn hafa fé
af ferðafólki eða á Geysisvæðið til
þess að stöðva lögleysuna þar?
Auðvitað á almenningur að
fylkja liði á þessa staði til þess að
standa á löglegum rétti sínum.
Fólk á einfaldlega að fara að Kerinu
og inn á Geysissvæðið án þess að
greiða fyrir það. Ef fólki er meinað-
ur aðgangur eða áreitt á einhvern
hátt ber að kæra það til lögreglu.
Ef það verður hins vegar ekki
fyrir áreiti er það til marks um að al-
menningur er byrjaður að hrinda af
sér þessum ágangi, staðráðinn í því
að standa vörð um lögin í landinu.
Þetta ætla ég að gera á Geysis-
svæðinu á sunnudag klukkan hálf
tvö. n
Ókeypis á Geysi á sunnudag
Ögmundur Jónsson
þingmaður Vinstri grænna
Kjallari „Fólk á einfaldlega
að fara að Kerinu
og inn á Geysissvæðið án
þess að greiða fyrir það.
Ferðamenn rukkaðir „Hvers vegna fer
lögreglan þá ekki í Kerið þar sem menn hafa
fé af ferðafólki eða á Geysisvæðið til þess að
stöðva lögleysuna þar?“ Myndir rÖgnvAldur Már