Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 28
Helgarblað 28.–31. mars 201428 Fólk Viðtal
Ilmur Kristjánsdóttir hefur tekið sæti á lista
Bjartrar framtíðar og lætur kveða að sér á nýjum
vettvangi stjórnmálanna. Hún er skemmtilegt og
klókt ólíkindatól og gerir það sem hugur hennar
stendur til. Að því komst sjálfur forseti Íslands þegar
Ilmur hitti hann í röð í apóteki á dögunum. „Ég hitti
Ólaf Ragnar í röð í apóteki. Ég heilsaði honum og
spjallaði aðeins við hann. Hann spurði mig um nýjan
vettvang og ég sagði við hann: - Ég stefni á
embættið þitt,“ segir Ilmur og hlær.
Þ
að rignir eins og hellt sé úr
fötu. Ilmur kemur gang
andi með glimrandi fínan
barnavagninn á undan sér
til fundar við blaðamann á
kaffihúsi í miðborginni. Í vagnin
um hvílir sonur hennar, nokkurra
mánaða gamall. Fæddur 1. janúar.
Á settum degi. Kemur í ljós seinna í
samtalinu að drengurinn sá, virðist
ungur hlynntur formfestu og reglu.
Nokkuð sem Ilmur hefur aldrei sett
sérstaklega fyrir sig.
Hún er dugleg við að sveigja
leiðina og gera það sem hún vill. Á
meðan hún er ein vinsælasta leik
kona Íslendinga þá hefur hún oft
viljað taka sér leyfi frá leiklistinni til
að gera alls ólíka hluti. Eins og að
stunda nám í guðfræði og nú að taka
þátt í stjórnmálum.
Þjóðfélagsþegnar
eru pólitíkusar
„Ég er svolítið spennt fyrir því að
láta til mín taka í ýmsum málum.
Æi, nú fer ég að hljóma eins og póli
tíkus,“ segir hún og hlær.
„Mér finnst gaman að breyta til,
ég hef alltaf haft gaman af pólitík. Ég
er alin upp á vinstri sinnuðu heim
ili og þar var mikið rætt um pólitík
alla tíð.
Ég hef alltaf skynjað það sem
þjóðfélagsþegn að þá er maður póli
tíkus í einhverjum skilningi. Ég hef
í rauninni aldrei skilið það þegar
fólk segist ekki hafa áhuga á pólitík.
Hvernig getur þú ekki haft áhuga
á pólitík? Þetta er þjóðfélagið sem
þú býrð í. Þú hlýtur að hafa áhuga
á því hvernig auðæfum er skipt.
Hvernig börnunum þínum líður í
skóla, hvernig umhverfið þitt er og
svo framvegis? Ranghugmyndin er
auðvitað sú að pólitík sé fullorðið
fólk að rífast við annað fullorðið
fólk um eitthvað sem flest fólk skilur
ekki. Það var í rauninni ekkert erf
ið ákvörðun fyrir mig að ákveða að
taka þátt í stjórnmálum.
Mér var boðið að taka þátt og ég
hugsaði með mér, að ég gæti ekki
sleppt þessu tækifæri.“
Dreymt um stjórnmálaþátttöku
Ilmur hefur engan áhuga á því
að verða atvinnupólitíkus og ein
ástæða þess að hún gekk til liðs við
Bjarta framtíð var sú arfleifð sem
Besti flokkurinn skildi eftir sig. Að
allir hafi rödd og enginn sérstakur
hafi tilkall til valda fram yfir annan.
„Ég hef ekki áhuga á því að verða
atvinnupólitíkus. Þetta er ekki fram
tíðardjobb. Ég lít á þetta sem verk
efni sem ég ætla að gera mitt besta
í að leysa. Að Besti flokkurinn skyldi
hætta var auðvitað svolítið sorglegt
en um leið mjög mikilvægt. Þau gáfu
nýjan tón opnuðu vettvang stjórn
málanna þannig að allir geta átt inn
komu í stjórnmál, látið til sín taka og
svo má maður líka hætta. Pólitík á
ekki að snúast um að sanka að sér
völdum og ríghalda í þau.
Besti flokkurinn breytti öllu
landslagi í stjórnmálum á Íslandi,
vonandi til frambúðar. Þau eru
ekki lengur fjarlægt fyrirbæri sem
fáir geta tekið þátt í. Sem fáir skilja.
Stjórnmál eru engin geimvísindi.
Mig hefur í raun lengi dreymt um að
láta til mín taka í stjórnmálum. Ég
á mér marga drauma. Sumir þeirra
snúa að því að vaxa í leiklistinni
og reyna nýja hluti í henni, aðr
ir að því að mig langar að prófa að
búa erlendis. Stjórnmálin eru einn
þessara drauma sem mig langar til
að framkvæma.“
Skemmti systur sinni á Skype
Ilmur fæddist 1978. Hún á tvö syst
kini, Lísu, sem er fjórum árum
eldri og starfar sem aðstoðarmaður
Katrínar Jakobsdóttur á Alþingi, og
Sverri, sem er tveimur árum yngri
og starfar sem kvikmyndaklippari í
Noregi.
Ilmi líkaði það vel að alast upp
í miðbænum. Barnæskan hófst á
Óðins götu þar sem Ilmur gekk í
Austurbæjarskóla.
„Systir hans pabba bjó á neðri
hæðinni með dóttur sinni, það var
svona blokkarstemning í þessu bláa
steinhúsi. Það var rosalega gott að
búa þar og ég á góðar æskuminn
ingar þaðan.“
Systkinin eru náin og spurð
hvernig þau myndu lýsa henni leik
ur enginn vafi þar á. „Ég held að þau
hafi ótrúlega oft hrist hausinn yfir
mér bæði tvö. En ég veit líka alveg
að þau eru mjög stolt af mér líka.
Ég er gleymin og utan við mig, þau
myndu örugglega taka undir það.“
Hún er nýkomin frá Ósló með
kæruleysissögu í farteskinu. Systir
hennar Lísa fagnaði fertugsafmæli
sínu nýlega. Veislan var stór, haldin í
Tin Can Factory í Borgartúni en Ilmi
vantaði. Hún hafði pantað sér miða
til Óslóar á sama tíma og gat ekki
fengið því breytt. Hún tók því upp á
því að skemmta systur sinni í gegn
um Skype, veislugestum til mikillar
gleði.
„Það er til dæmis alveg týpískt.
Ég pantaði ferð til Óslóar. Sverrir
bróðir minn er í fæðingarorlofi og
ég líka. Ég stökk á einhverja ferð í 10
daga. „Systkini saman í fæðingar
orlofi“, mér fannst það alveg kjörið
og hringdi svo í Lísu og ætlaði að
segja henni þetta. Í sömu andrá og
ég var að fara að segja henni frétt
irnar mundi ég eftir því að hún ætti
fertugsafmæli og hikstaði upp úr
mér: Já, hmmm … hvenær ætlarðu
aftur að halda upp á fertugsafmæl
ið þitt?“ Ilmur hlær. „Þetta var ekki
gott. Svo gat ég ekki breytt flugmið
anum.“
Áhugasöm út lífið
Foreldrar Ilmar eru Kristján Guð
mundsson félagsfræðikennari og
Margrét Sigurðardóttir ferðamála
fræðingur. Ilmur sækir margt til
þeirra og er bæði alin upp við að
ganga gegn hefðum og því að öryggi
felist ekki í kyrrstöðu.
„Pabbi er svona alfræðirit og
áhugasamur út lífið. Árið áður
en hann fór á eftirlaun fór hann í
námsleyfi til Berlínar að læra um
styrkjakerfi Evrópusambandsins,“
segir hún frá. Móðir Ilmar fór til
tölulega seint á æviskeiðinu í sitt
nám. „Þau hafa bæði verið í því í
Ilmur í framboði
gegnum tíðina að brjóta hefðir og
munstur. Öryggi felst ekki í því að
sitja fastur. Það er óhætt að hreyfa
sig og taka áhættu.“
Tók strætó í bæinn
Fjölskyldan flutti til Danmerkur og
bjó þar um tveggja ára skeið. „Pabbi
var að læra markaðsfræði. Hann
hefur alltaf ætlað að verða ríkur
svona inn á milli,“ segir hún og hlær.
Ljóst er að því skammtímamarkmiði
var ekki endilega náð. „Að eiga nóg,
það er best,“ segir Ilmur. „Pabbi er
svo skemmtilegur, hann fær svona
hugdettur á milli þess sem hann er
vinstri róttæklingur.“
Ilmur var níu ára þegar fjöl
skyldan fluttist aftur til Íslands
eftir tveggja ára dvöl og hóf aft
ur skólagöngu í Austurbæjarskóla.
Þegar hún var um fermingaraldur
settist fjölskyldan að í Grafarvogi
um tíma. Það leist miðbæjarbarninu
ekki sérlega vel á.
„Þar bjó ég um skamma hríð
þegar ég var um fermingaraldurinn.
Ég tók alltaf strætó niður í bæ þegar
skólinn var búinn til að hitta gömlu
félagana. Svo endaði það á því að ég
skipti bara um skóla og fór aftur í
Austurbæjarskóla.“
Æskuár sín var Ilmur ekki
ákveðin í því hvað hún vildi gera við
líf sitt. Þó var leiklistin sterkur þráð
ur allt frá barnæsku. Tólf ára skrifaði
hún sitt fyrsta leikrit með vinkonu
sinni.
„Ég var alls ekkert ákveðin og
ég er ekkert enn ákveðin. Einhvern
tímann ætlaði ég að eiga og reka
hótel. Svona sveitahótel í fjöllunum.
Kannski á ég eftir að gera það ein
hvern tímann í framtíðinni. Ég man
í Austurbæjarskóla að ég skrifaði
leikrit með vinkonu minni þegar ég
var tólf ára, á gamla makkann hans
pabba.
Og vorum að gera alls konar.
Þetta var mjög frjór tími.“
Fékk gott veganesti í MH
Þegar Ilmur mætti til leiks í MH
vann leiklistin hjarta hennar. Hún
naut góðs af kennslu Rúnars Guð
brandssonar sem gaf henni gott
veganesti í leikhúsið.
„Það var gaman að koma í MH.
Ég fór á kaf í félagslífið. Ég er svo
þakklát fyrir þennan tíma. Ef ég er
spurð hvað hafi mótað mig mest í
lífinu þá svara ég því til að leiklistin
hafi gert það. Þó ég hafi alltaf átt í
eins konar ástarhaturs sambandi
við þess listgrein.
Rúnar Guðbrandsson var fyrsti
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is „Að fara
með
þessu fólki í
sturtu er bara
pís of keik
„