Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 30
Helgarblað 28.–31. mars 20142 Heimili og hönnun
Á
HönnunarMars koma í
sölu á Íslandi kertin Pyro
Pet, eða Kisa, sem eru
hugarfóstur og framleiðsla
hönnuðarins Þórunnar
Árnadóttur. Um er að ræða kerti
sem líta út eins og sakleysislegar
kisur, gráar eða bleikar, en koma
svo sannarlega á óvart. Þegar kertið
hefur fengið að loga um stund og
vaxið hefur bráðnað, kemur í ljós
beinagrind kattarins, jafnvel ör-
lítið ógnvænleg. Ljósið frá logan-
um verður eins og eldur í augum
kattarins. Kertin voru seld í forsölu
á fjáröflunarsíðunni Kickstarter í
nóvember í fyrra en koma nú í al-
menna sölu á HönnunarMars.
Þórunn hefur getið sér gott orð
sem hönnuður og fengið alþjóð-
lega viðurkenningu. Má sem dæmi
nefna að klukka sem hún hannaði,
Sasa klukkan sem mælir tímann í
perlum, við Listaháskóla Íslands
hefur verið gríðarlega vinsæl. Þá
var hún tilnefnd til Menningar-
verðlauna DV í ár, meðal annars
fyrir hönnun sína á Kisum.
Hönnunarbloggið, Svart á hvítu,
greindi svo frá því fyrir skemmstu
að Þórunn hefði hannað aðra línu
af kertum, í þetta sinn fugla. Þeir
byggja á sömu hugmynd, það er
að inni í fuglinum er beinagrind
sem kemur í ljós þegar kertið er
brennt. Fuglarnir verða gulir með
sítrónuilm, en slíkur ilmur fælir
burtu flugur og önnur skordýr svo
hægt er að nota kertið til dæmis
þegar setið er úti að sumri til eða í
garðveislu. n
astasigrun@dv.is
Krúttleg en ógnvænleg kerti
Kisa verður til sölu á HönnunarMars
Feng Shui
á heimilið
Það er einhver óútskýrður kraft-
ur sem stjórnar þeirri veröld
sem við lifum í og væri ekki best
að leyfa þeirri orku að flæða
frjálsri í gegnum heimilið þitt?
Gæti það mögulega verið að
eitthvað af því sem þú heldur á
heimilinu þínu aftri frjálsu flæði
þessarar orku? Athugum mál-
ið því í versta falli færðu út úr
þessu eilitla upplyftingu á heim-
ilinu þínu.
Við erum að tala um Feng
Shui en fylgjendur þeirrar stefnu
segja þetta viðhorf geta aukið
friðsemd á heimili þínu, heilsu
og velferð. Hugmyndin að baki
Feng Shui er að losa um þann
kraft sem býr í heimili þínu.
Byrjaðu á því að losa þig við
allt „rusl“ og þá er í raun og veru
átt við að losa sig við alla hluti
á heimilinu sem þú kemst af án
eða „elskar“ ekki. Gættu að lýs-
ingu og andrúmslofti á heim-
ilinu þínu. Þessi tvö atriði eru
afar mikilvæg til að kalla fram
góða orku. Opnaðu glugga oftar
og fáðu inn góðar plöntur til að
hreinsa loftið. Reyndu að fá sem
mest af náttúrulega birtu inn á
heimilið þitt og mögulegt er.
Þegar húsgögnum er raðað
upp á heimili þínu þá er
nauðsynlegt að þau loki ekki á
orkuflæðið. Ekki reyna að troða
húsgögnum eða aukahlutum á
þrönga staði, það hamlar frjálsu
flæði. Trikkið er að reyna að
komast af með sem fæsta hluti
inni á heimilinu. Notaðu inn-
ganginn á heimilinu til að sjá
fyrir þér orkuflæðið. Þetta á við
sófa, skrifborð, stóla og rúm. Ef
það er ekki hægt að koma því
við að húsgögnin bjóði upp á
útsýni að innganginn þá er hægt
að koma spegli fyrir þannig
að inngangurinn sjáist. Tæpur
metri ætti að vera á milli allra
húsgagna.
Það er svo sem ekki hægt
að fjalla um alla þætti þessar-
ar hugmyndafræði í stuttri
grein en endilega leitið frekari
upplýsinga á netinu. Þetta eru
skemmtilegar pælingar sem geta
lífgað upp á heimilið.
Flagð undir fögru skinni Þegar vaxið brennur kemur í ljós beinagrind.
Höfðagaflar
aftur í tísku
n Framleiddu fimm þúsund rúm í fyrra n Ljósir litir vinsælastir
Í
fyrra framleiddum við um fimm
þúsund rúm og ég reikna með
því að þau verði fleiri núna,“ segir
Birna Ragnarsdóttir hjá RB rúm-
um. Fyrirtækið framleiðir rúm,
bæði botna og dýnur auk höfuðgafla,
náttborða og svo mætti lengi telja. „Í
dag er mjög vinsælt að hafa áklæði
á rúmbotninum og höfðagaflinum.
Auk þess eru bólstruð náttborð í stíl
við rúmið mjög vinsæl. Áklæðin eru
í alls konar litum, mikið er keypt af
ljósum litum eins og grænum, app-
elsínugulum og fjólubláum,“ seg-
ir Birna en í þessu eru tískusveiflur
eins og í öðru. Þannig duttu höfuð-
gaflar úr tísku um 2008 en eru aftur
orðnir vinsælir nú.
„Við höfum allt í svefnherbergið,
og ég var einhvern tímann spurð
hvort ég ætti maka líka til að selja
með. Ætli það sé ekki það eina
sem við bjóðum ekki upp á,“ segir
Birna hlæjandi. RB rúm tók þátt í
HönnunarMars í fyrra en nú gefst
ekki tími til þess. „Í fyrra vorum við
í Hörpu með öðrum húsgagnafram-
leiðendum en nú getum við það ein-
faldlega ekki. Það er mikið að gera og
það er gaman að fylgjast með hversu
mikil vakning er fyrir íslenskri
hönnun. Hún er inn í dag, eins og
krakkarnir segja. Við erum í harðri
samkeppni við fyrirtæki sem flytja
inn rúm en við tökum þátt í henni af
fullum krafti,“ segir Birna.
Fyrirtækið framleiðir dýnur fyrir
skip og selur einnig rúm til hótela,
sem þurfa að vera af ákveðinni gerð.
„Það er allur gangur á því hvaða dýn-
ur hótelin kaupa. Í hóteldýnum er
sérstakur sængurdúkur og þær eiga
að þola meira álag en venjulegar
dýnur. Í slíkum dýnum þarf einnig
að vera eldtefjandi efni og ryk-
mauravörn, slík öryggisatriði verða
að vera til staðar. Þessar dýnur má
svo endurnýta, það má laga þær og
skipta um ýmislegt. Ef áklæðið er
hreint og fínt, þá margborgar það sig
að láta okkur yfirfara dýnurnar,“ segir
Birna. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Framleiðslan
Fyrirtækið er í
Hafnarfirði og
þar eru rúmin
framleidd.
Birna Ragnarsdóttir
RB rúm tók þátt í Hönnunar-
Mars í fyrra en nú gefst ekki
tími til þess, vegna anna.
Boðskorta-
veisla
Í boðskortaveislunni, sem
haldin er af Reykjavík Letter-
press, býðst gestum tækifæri til
að bjóða til alls konar persónu-
legra viðburða með persónuleg-
um boðskortum sem búin verða
til á staðnum, auk frímerkja
og jafnvel póstkassa! „Bjóðum
ömmu í mat, vinum í bústað
eða höldum langþráð partý.
Bjóðum og bjóðum!“ segir í til-
kynningu um viðburðinn.