Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Qupperneq 34
Helgarblað 28.–31. mars 20146 Heimili og hönnun
Gólfdúkur skynsamleg, smekkleg og hagkvæm lausn
-léttur í þrifum -au›veldur í lögn -glæsilegt úrval
-fæst í 2, 3 og 4 m rúllum.FLOORING SYSTEMS
hjarta heimilisins
Eldhúsi›
þægilegt andrúmsloft
Svefnherbergi›
alltaf jafn heimilislegt
Stofan
einfaldara ver›ur þa› ekki
Forstofan
hl‡tt og mjúkt undir fæti
Ba›herbergi›
SÍ‹UMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510
Heimilisdúkur, sígild lausn: Sérverslun me›
gólfdúk og teppi
Vík með kröftugt
femínískt verkefni
n Teppið eins og prjónuð ljósmynd n Á leiðinni í samstarf við við JÖR
Í
tilefni af HönnunarMars kynnir
Vík Prjónsdóttir samstarf sitt við
sænska hönnuðinn Petru Lilju en
samstarfið er þáttur í hönnunar
verkefni hennar The Medusa De
sign Projects.
Sýningin var opnuð í gær, fimmtu
daginn 27. mars, í Hannesarholti
og er samsýning með hönnuðun
um Rúnu Thors og Hönnu Dís
Whitehead sem sýna verk sín. Einnig
eru til sýnis skissur og teikningar eftir
5 af þekktustu hönnuðum Svíþjóðar
sem eru á vegum ferðasjóð Summit
sem hefur þann tilgang að styrkja ís
lenska hönnuði til að fara til Stokk
hólms og taka þátt í hönnunarvik
unni þar.
Farsælt samstarf við hönnuði
Vík Prjónsdóttir samanstendur af
hönnuðunum, Brynhildi Pálsdóttur,
Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og
Þuríði Sigurþórsdóttur. Allar hafa
þær áhuga á að nýta íslensku ullina í
nýsköpun af ýmsu tagi og hafa hlot
ið heimsathygli fyrir hönnun sína.
Þær hafa ánægju af teymisvinnu. Þær
unnu verkefni á síðasta Hönnunar
Mars með heimsfrægum tísku
hönnuði, Eley Kishimoto, og í vetur
og í vetur hönnuðu þær ullarkápu
fyrir bókina Stína Stóra sæng eftir
rithöfundinn Lani Yamamoto. Verk
efnið sem þær vinna með Petru Lilju
er ólíkt öllu því sem Vík Prjónsdóttir
hefur tekið sér fyrir hendur. Bæði
hvað varðar form og aðferð.
Eins og prjónuð ljósmynd
Brynhildur Pálsdóttir segir frá sam
starfinu við Petru Lilju, hvað sé
framundan hjá Vík Prjónsdóttur og
ræðir einnig um það hvernig hlúð er
að ullariðnaði á Íslandi.
„Petra Lilja vinnur með goð
söguna um Medúsu sem breytti öllu
í stein með augliti sínu. Þetta er kröft
ugt femínískt verkefni sem hefur
verið spennandi að taka þátt í,“ segir
Brynhildur.
„Við gerðum saman teppi sem er
að mörgu leyti mjög ólíkt því sem
Vík hefur verið að gera áður. Bæði
hvað varðar framleiðslu og áferð. Við
höfum verið að vinna með gamlar
flatprjónaprjónavélar en með Petru
Lilju notuðum við hátækni hring
prjónavél prjónavél hjá textíl háskól
anum í Borås. Útkoman er skemmti
leg, eins og prjónuð ljósmynd. Teppið
er átthyrnt og í myndefninu blöndum
við saman teikningum og hönnum
okkar og Petru. Samstarfið var lær
dómsríkt og áhugavert, okkur fannst
gaman að sjá möguleika prjónsins og
hversu nákvæmum áhrifum er hægt
að ná fram í prjóni. Við þurftum að
setja okkur í allt annan gír en áður
höfum við alltaf reynt að hugsa ferlið
á sem einfaldastan máta. Þarna gilti
hið andstæða, því flóknara því betra,“
segir Brynhildur og segir Vík Prjóns
dóttur munu taka lærdóminn af ferl
inu með sér inn í framtíðina.
Þróa nýjar vörur og samstarf
við JÖR á döfinni
Brynhildur segir margt spennandi
á döfinni hjá Vík Prjónsdóttur. „Við
erum í miðju hönnunarferli og erum
að vinna í að koma með nýjar vör
ur. Bæði flíkur og teppi. Við erum
alltaf að leita að nýjum möguleik
um í framleiðslu. Við erum einnig
á leiðinni í samstarf við JÖR. Það er
ýmislegt í deiglunni í samstarfi við
aðra hönnuði.“
Þarf átak í íslenskum ullariðnaði
Íslenskur ullariðnaður eru sagður
smár og skorta fjárfestingar. Tekur
Brynhildur undir þau sjónarmið?
Erum við ekki að sinna þessum
iðnaði sem skyldi? „Við segjum alltaf
að ullin sé okkar timbur, það hráefni
sem við ættum að leggja meiri alúð í.
Bæði hvað varðar rannsóknir og þró
unarvinnu. Við þurfum að standa
okkur töluvert betur. Það ætti að
vera til hérlendis öflug rannsóknar
stöð fyrir ullariðnað. Þetta efni hef
ur miklu meira upp á að bjóða en
framleiðslan í dag gefur til kynna.
Við þurfum að þróa ólíkar vörur og
markaðsetja þær á nýjum svæð
um. Okkur vantar meiri fjölbreytni
á framleiðslumöguleikum á prjóni
og íslenskri ull. Ull er efni sem við
finnum fyrir að fólk hefur áhuga á að
nota. Það er umhverfisvænt og heil
brigt hráefni og í henni eru enda
lausir möguleikar. Það felast mik
il tækifæri fyrir fjárfesta að fjárfesta í
textíliðnaði á Íslandi. Við erum aldrei
að fara að verða stór framleiðsluþjóð.
Við eigum hins vegar að vera í farar
broddi hvað varðar skapandi fram
leiðslu og leggja áherslu á verðmæta
aukningu í hinu smáa. Skapa okkur
sérstöðu. Við í Vík Prjónsdóttur höld
um alla vega ótrauðar áfram,“ segir
Brynhildur. n
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Í samstarf við JÖR Á næstunni fer
teymið í samstarf við Guðmund Jörundsson
fatahönnuð.
Ullarkápa Vík Prjónsdóttir hannaði
ullarkápu fyrir margverðlaunaða bók Lani
Yamamoto, Stínu Stórusæng.
Á nýjum slóðum Með
hátækniprjónavél gerði
Vík Prjónsdóttir tilraunir
í prjóni með sænska
hönnuðinum Petru Lilju.
Útkoman er í allt aðra átt
en teymið er þekkt fyrir.
Mynd SiGtRyGGUR ARi
Hafa unun af samstarfi Ullin er aðal-
hráefni hönnunarteymisins og hefur það
hlotið heimsathygli. Þeim finnst skorta á
uppbyggingu í iðnaðinum.
„Við segjum
alltaf að ullin
sé okkar timbur, það
hráefni sem við ættum
að leggja meiri alúð í.